Vísir - 06.04.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 06.04.1963, Blaðsíða 3
VÍSIR . ^augardagur 6. apríl 1963, Cunnan við er Skerjafjörður, þar sem grásleppur veiðast í torfum á vorin; að austanverðu er sjálf borgin, þar sem hún rís á einum níu hæðum, tveim bet- ur en sjálf höfuðborg heimsins, Róm. í vesturátt er útsærinn. S>etta er táin við Faxaflóa, Sel- tjarnarnes. Dumbungsveður í miðri viku — brimið svarrar við Gróttu. Kolgrænn sjórinn fellur að og brotnar. í fjarska skrlða herskip — skyldu þau vera rússnesk? Eða eru þetta freygátur úr brezka sjóhernum í kurteisis- heimsókn, sem komnar eru til þess að mynnast við fyrsta april kaf- bát íslenzka lýðveldisins? Ljósmyndavélin er með að- ; «\«.*VV^ - wv.. X . iZ: '■ ■ * dráttarlinsum — og þeir skyldu rétt reyna. Nú er glerjum vélar- innar beint á vitann og brimið. í forgrunni eru skreiðarhjallar og annáð stáss. Svo er snúið til baka og áð í Ráðagerði, sem er ffægur staður, — þar bjó áður sunnlenzkt klan í miklu veldi, sem kunni að notfæra sér auð- liníir sjávarins. Hvemig gat eitt öreigaskáld reynt að slá sig til rid<3ara með því að kveða um nesið, sprota Reykjavíkur: „Sel- tjamarnesið er lítið og lágt — — lifa þar fáir og hugsa smátt, o. s. frv.“ Blómleg atvinna var löngum á Seltjarnarnesi þrátt fyrir „léns- herrakerfi". Máttarstólpar, sjó- sóknarar, hörkutól bjuggu við reisn á býlum eins og Mýrarhús- um, Pálsbæ, Nesi, Nýjabæ, Ráða- gerði. Þeir sóttu gull í greipar Ægis, voru fyrirmynd annarra að dugnaði og ráðvendni og komu mörgum til manns í skóla lffsinsí Á hægri hönd er Nesj gamla landlæknissetrið. Húsið er nálega tvö hundruð ára gamalt. Þar bjó Bjarni Pálsson, fyrsti landsfýsi- kus Islands, tengdasonur Skúla fógeta. Ýmsar kynjasögur ganga af nesinu. Það er ramt bragð af staðblænum. í góðviðri og stund- um í vondu veðri leitar margur borgarbúi út á nes til þess að anda að sér sjávarlyktinni eða hlusta á brimniðinn eða njóta annarra lystisemda. Þegar skark- ali borgarinnar sker hlustir og kapphlaup er þreytt við tímann eins og heimsendi sé I nánd, er Seltjarnarnesið kyrrðin uppmál- uð, yfirlætislaust og svo sunn- lenzkt. — s t g r.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.