Vísir - 06.04.1963, Síða 5
V í SIR . Laugardagur 6. apríl 1963.
KOLA VERKFALLI LOKID
Verkfalli franskra námumanna
er lokið og hófst vinna að nýju
í hinum þjóðnýttu kolanámum rík-
isins í gærmorgun.
Það var í gær, sem endanlega
var frá þessu gengið, er námu-
menn samþykktu að- tillögum leið-
toga sinna, að fallast á samkomu-
lag, sem náðst hafði milli samn-
inganefndar námumanna og Kola-
ráðsins, en samkvæmt því fengu
námumenn mikilvægum kröfum
framgengt, en þó ekki yfir 11%
kauphækkun þegar, heldur var
samið um kauphækkun, sem nem-
ur 12i/2%, þannig að hækkunin
kemur að hálfu til framkvæmda
nú, en að fullu stig af stigi á
næstu 6 mánuðum. Námumenn fá
og lengra sumarleyfi. Fréttaritarar
leggja áherzlu á, að með sam-
komulagi þessu hafi báðir aðilar
slakað til.
Samkomuiag hefur náðst um
kaup og kjör járnbrautastarfs-
manna, en ekki um kjör starfs-
manna f gasverum ríkisins, ög er
óttazt, að þeir haldi áfram skyndi-
Helgnrráðstefnci
N.K. LAUGARDAG efnir
Heimdallur tii ráðstefnu um
Sjálfstæðisflokkinn og stefnu
hans. Ráðstefnan hefst kl. 12,30
með miðdegisverðarboði Mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins.
Eftirfarandi 6 inngangserindi
verða flutt:
1. Már Elísson: Efnahags-
málastefna Sjálfstæðisflokksins.
2. Þór Vilhjálmsson: Utan-
ríkisstefna Sjálfstæðisflokks-
ins.
3. Gunnar G. Schram: Sjálf-
stæðisflokkurinn og velferðar-
ríkið.
Sunnudagur — kl. 2 í Vaihöll:
4. Magnús L. Sveinsson:
Sjálfstæðisflokkurinn og
verkalýðurinn.
5. Bjarni Beinteinsson: Við-
horf Sjálfstæðisflokksins til
samvinnu við aðra flokka.
6. Birgir ísl. Gunnarsson:
Skipulag og starfsemi Sjálf-
stæðisflokksins.
Væntanlegir þátttakendur
látið skrá sig til þátttöku á
skrifstofu Heimdallar í síma
18192 eða 17102.
Stjórn Heimdallar.
verkfölium til að koma fram kröf-
um sínum. Enn fremur er búizt
við skyndiverkfalli útvarps- og
sjónvarpsmanna £ gær.
í framhaldsfréttum segir, að
flestir þeirra 240,000 námumanna,
sem tóku þátt í fimm vikna verk-
fallinu, hafi byrjað vinnu í gær,
en verkfallsverðir voru enn á
Flugféiagið —-
Framh. at bls. 1.
ist ekki að vænta neins svars
frá því um öryggi flugferða
þess á Reykjavíkurflugvelli.
Þessar upplýsingar, sem Vísir
birtir hér eru hafðar eftir flug-
málastjóra Agnari Kofoed Han-
sen á fundi sem hann hélt með
blaðamönnum í gær, þar sem
hann rabbaði við þá almennt
um flugmál og Reykjavíkur-
flugvöll.
í sambandi við þetta sagði
flugmálastjóri, að það væri all
alvarlegt ef Flugfélag íslands
teldi ekki að gætt væri fyllsta
öryggis við flug frá Reykja-
víkurflugvelli. Ef svo væri að
það teldi að fyllsta öryggis
væri ekki gætt væri eðlilegast
að það hætti flugi frá Reykja-
víkurflugvelli og flytti þá starf-
semi sína til Keflavíkurflugvall-
í viðtalinu ræddi flugmála-
stjóri mjög um Reykjavíkur-
flugvöll og komst hann að
þeirri niðurstöðu, að óhjá-
kvæmilegt væri að notast við
hann enn um sinn a. m. k. fyrir
allt innaniandsflug, einfaldlega
vegna þess, að ekkert fjármagn
eða fjárveitingar væru fyrir
hendi til að fara að reisa nýjan
flugvöil á Álftanesi, sem myndi
kosta hundruð milljóna króna.
★
Hann skýrði og frá því, að
fyrir meir en ári hefði Flugmála
stjórnin'fengið hingað til lands
færasta sérfræðing Bandaríkj-
anna í rekstri og flugi Cloud-
masterflugvéla Mr. Harry L.
Irman og hefði hann komizt að
því eftir ýtariegar rannsóknir,
að fyllsta öryggis væri gætt á
Reykjavíkurflugvelli í sambandi
við flugtak og lendingu Cloud-
masterflugvélanna. Hafði þessi
sérfræðingur meira að segja
komizt að þeirri niðurstöðu, að
fjarlægðin milli flugbrautar og
Miðbæjarins væri nægileg til
,þess að Cloudmasterflugvélarn-
arar myndu hafa nægilegt
svæði til að hefja sig á loft með
aðeins þrjá hreyfla í gangi, ef
miðað er við þá hleðslu sem
flugvélarnar hafa hér.
Þ a k k i r
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við and-
lát og útför mannsins míns, föður, tengdaföður og afa
KRISTINS KRISTINSSONAR
Njálsgötu 77.
Sérstaklega viljum við þakka kirkjukór Hallgrímskirkju,
Páli Halldórssyni orgelleikara, Karlakór Reykjavíkur, Sig-
urði Þórðarsyni söngvara, Guðmundi Jónssyni óperusöngv-
ara, Bifreiðastjórafélaginu Frama og Hestamannafélaginu
Fák.
Vilborg Sigmundsdóttir
Reynir Kristinsson.
Erna Haraldsdóttir
og bamabörn.
verði í námunum í Norður-Frakk-
landi. Talið er að 85 af hundraði
hafi komið til vinnu, en margir
látið óánægju í ljós yfir samning-
unum. í námunum í Austur-Frakk
iandi var þátttakan 100% og eins
í Mið- og Suður-Frakklandi, þar
sem námumenn fylktu liði til
vinnu með lúðrasveitir í farar-
broddi, en í Norður-Frakklandi
komu aðeins 25 af hundraði til
vinnu, en leiðtogar námumanna
ætla, að þegar mesti skaphitinn
hjaðni í ungum námumönnum,
muni allt færast í venjulegt horf.
Tvær kirkjur
vígður
Ákveðið hefur verið að vígja
nýja kirkju í Súðavík f dymbil-
vikunni, en þar hefur aldrei áður
verið reist kirkja. Biskqpinn yfir
íslandi framkvæmir vígsluna og s.l.
sunnudag vígði hann nýja kirkju
að Höskuldsstöðum í Húnavatns-
prófastsdæmi.
Fyrir tveimur árum var kirkjan
á Hesteyri tekin ofan sökum eyð-
ingar byggðar þar og voru viðir
úr henni notaðir í nýju kirkjuna í
Súðavík, Hún er með svipuðu sniði
og Hesteyrarkirkjan gamla, en
nokkru stærri. í Súðavík eru bú-
settir 200—300 manns og hefur
fólk þar sýnt mikinn áhuga fyrir
kirkjubyggingunni og Iagt fram
krafta sína við byggingu hennar,
bæði börn og fullorðnir, undir for-
ustu sóknarprestsins, séra Bern-
harðs Guðmundssonar og konu
hans, sem eru búsett í Súðavík
í Ögurþingum. Kirkjunni hafa bor-
izt margar gjafir til vígslunnar.
Kirkjan á Höskuldsstöðuni, sem
var vígð s.l. sunnudag, er stein-
kirkja og rúmar á annað hundrað
manns, en í sókninni eru 140
manns. Þessi kirkja hefur verið í
smíðum undanfarin ár og er hið
myndarlegasta guðshús. Fyrir var
á Höskuldsstöðum timburkirkja
frá 1876 og má geta þess til gam-
ans að Friðrik, faðir séra Friðriks
Friðrikssonar, smíðaði þá kirkju.
Við kirkjuvígsluna á sunnudaginn
prédikaði sóknarpresturinn séra
Pétur Ingjaldsson, en meðai við-
staddra var héraðsprófasturinn og
ýmsir aðrir nágrannaprestar. Að
lokinni vígslu bauð kvenfélag sókn
arinnar öllum viðstöddum til kaffi-
drykkju.
FÉLAGSLfF
Skíðaráð Reykjavikur biður
keppendur sína á landsmótið á
Sigiufirði að hafa samband við for
mann skíðaráðs Reykjavíkur á
laugardagskvöld kl. 8. Lagt verður
af stað þriðjudagsmorgun kl. 8 frá
Amtmannsstíg 2. Skíðaráð Rvíkur.
Skíðaferðir um helgina:
Laugardag kl. 2 og kl. 6.
Sunnudag kl. 10 og kl. 1
Skíðaráð Reykjavikur.
SSkíðaferðir um páskana:
Skíðaferðir um páskana verða sem
hér segir:
Miðvikudag 10. apríl kl. 8 e. h.
Fimmtudag 11. apríl ki. 10 og kl.
5 og í bæinn kl. 6.
Föstudag 12. apríl kl. 10 og kl.
5 og í bæinn kl. ‘6.
6 og í bæinn kl. 7.
Laugardag 13. apríl kl. 8 og kl.
Sunnudag 14. apríl kl. 10 og kl.
5 og í bæinn kl. 6.
Mánudag 15. apríl kl. 10 og í bæ-
inn kl. 5.
Geymið auglýsinguna því að ekki
verður auglýst aftur.
Skíðaráð Reykjavíkur.
Kammermúsikklúbburinn
jpyrir um það bil tíu árum,
gat maður átt von á að
heyra annað slagið góðan
strengjakvartett leika listir sín-
ar hér í bænum. Ríkisútvarpið
hafði á sínum snærum einn
slíkan, og veitti Björn Ólafsson
konsertmeistari honum for-
stöðu. Mér er enn minnsstæð
meðferð hans á nokkrum
kvartettum eftir Mozart og
Beethoven, og líklega ekki sizt
á kvartett nr. 1 eftir Jón Leifs,
sem vakti mikla hrifningu í
hópi okkar unglinganna. Starf-
semi þeirra félaganna, sem eru
Josep Felzmann, Jón Sen, Ein-
ar Vigfússon og svo auðvitað
Björn, hefur legið niðri að
mestu um ára bil. Þann 4. apríl
s.I. Iéku þeir þó á vegum
kammermúsíkklúbbsins, kvart-
ett í D dúr k 499 eftir Mozart
og Op. 18 nr, 4 eftir Beethoven.
Til að spara allar orðlengingar,
er bezt að segja strax, að und-
irritaður hefur sjaldan orðið
fyrir meiri vonbrigðum á nokkr-
um tónleikum. Hér skortir á
allt sem gefur raunverulegum
kvartettsamleik gildi. Hvergi
örlaði á minnstu tilfinningu
fyrir þeim lit og lífi sem þessi
yndislegu verk eru hlaðin af.
Tónhæð og hljóðfall voru út
og austur, og í rauninni hljóm-
aði þetta eins og skopstæling
af Vínarklassík eftir einhvern
miður smekklegan atónalista.
Æfingarleysi og lífsþreyta voru
semsé höfuðeinkenni þessa
flutnings.
jgn hvernig má slíkt verða í
höndum jafn ágætra tón-
listarmanna? Við verðum að
ætla að hér hafi verið um
hræðilega tilviljun að ræða.
Mennirnir hafi verið svo dauð-
þreyttir eftir sinfóníu og leik-
húsþrældóm, að þeir hafi varla
vitað í þennan heim né annan.
Alla vega skulum við vona að
næst þegar heyrist í kvartett
Björns Ólafssonar, verði aftur
komið á gamla lagið, eða jafn-
vel annað nýtt og betra. En
það gerist þó varla að ýmsum
aðstæðum óbreyttum.
Leifur Þórarinsson.
Sjcifstæðisfólk!
Munið ¥ar8arkaffið
í Vsslhéll í dag
Fermingarskeyti
Hin vinsælu fermingarskeyti, sumarstarfs K.F.U.M. og
K. verða afgreidd sem sér segir.
Laugardaga frá kl. 2 e. h. í skrifstofu félagsins Amt-
mannsstíg 2B Sunnudaga frá kl. 10—12 og 1—5 e. h.
á eftirtöldum stöðum.
Miðbær K.F.U.M. og K. Amtmannsstíg 2B.
Vesturbær. Barnaheimilið Drafnarborg.
Laugames. K.F.U.M. og K. Kirkjuteig 33.
Langhoiti. K.F.U.M. og K. við Hólaveg.
Smáfbúða- og Bústaðahverfi. Breiðagerðisskóla.
Nánari uppl. á skrifstofu félaganna á Amtmannsstíg 2B.
VINDÁSHLÍÐ
VATNASKÓGUR.
*xm^AfmiESBaEMmr’ma& j
BBsrmssas