Vísir - 06.04.1963, Blaðsíða 7
VÍSIR . Laugardagur 6. apríl 1963.
be: bb
Freyr
Sverrisson
L
Fæddur 14. ágúst 1948 — Dáinn 31. marz 1963.
Allt var bjart yfir ævibrautu þinni
æska þín fögur og hlý.
Blikandi vonir og brosljúf vinakynni,
bjart svo að hvergi sá ský.
Þú varst svo hreinskilinn, hugljúfur drengur
heill bæði í starfi og þraut.
Því er svo logsárt að sjá þig ei lengur,
sjá þig nú hafinn á braut.
Skólinn er hnípinn og skuggaleg ströndin
skúrablá fjöllin í dag.
Hrímdökk og föl eru framtíðarlöndin, .
fjarlægt er gleðinnar lag.
Einmana hlýða nú vondaprir vinir
vágestsins ógnandi róm.
Enginn fær skilið, við allra sízt hinir
þar örlaga nístandi dóm.
Aldrei skín framar við augum og'sinni
indæla brosið þitt skært.
Samt skal það geymast í muna og minni
milt eins sólskinið tært.
Hljóðnuð er rödd þín úr hljómbrotum dagsins.
Himinninn grætur í nótt.
Harmandi söknum við ljúfasta lagsins
loks, þegar allt verður hljótt.
Þöglir við göngum að leiðinu lága
leggjum þar blómsveig í kveld.
Störum svo hljóðir á hafdjúpið bláa.
Heillumst við dagroðans eld.
Sjá, þú ert horfinn en samt ertu nærri
samgróinn öllu sem skín.
Æskunnar veröld er öll orðin stærri
að eilífu minnumst við þín.
Ríkarður, Kristján, Ingi og Pétur.
BIFREIÐASALA
Laugavegi 146 — Símar 11025 og 12640.
býður yður í dag og næstu daga til sölu eftirtaldar
bifreiðar: .
Studebaker 1947 30 manna rútubíl Ford ’47 á kr.
30.000,00 Ford F-100 sendib. ’55 kr. 70 þús. Greiðslu-
skilmálar. Opel Carvan: ”54, ’55, ”56 og ’60.
Mercedes-Benz: ’55, ’56, ’57, ’58, ’60 og ’61.
NSU Prinz ’63 sem selst fyrir fasteignabréf.
Enn, sem ávallt er úrval 4ra, 5 og 6 manna, auk stat-
ion, vöru- og jeppa-bifreiða fjölbreyttast hjá RÖST sf.
Vaxandi viðskipti, síaukin þjónusta, og ánægja við-
skiptavina okkar sannar yður bezt, að það er hagur
beggja að RÖST annist fyrir yður viðskiptin.
Laugavegi 146
Simar 11025 og 12640.
Hjfilbarðaverksfæðið M Y L L A N
Viðgérðii á alls Kona, njólbörðum - Sel|um einm,
stærðii hjóibarða - Vönduð vnna - Hagstæu verð
M Y L L A N Þverholti 5.
iuuh*iiiiwi:i
I ■ * B U I
I ■ ■ ■ •
Ingvar Asmundsson — Þórir Ólafsson
I ■ U ■ ■ U ■ O I
Botvinnik — Petrosjnn
Samkvæmt nýjustu fréttum ætl-
aði það ekki að ganga of vel að
koma einvíginu um heimsmeistara
tiltilinn í skák af stað. Og tókst
það reyndar ekki fyrr en eftir
langt þras og beina milligöngu F.
I. D. E. Botvinnik lýsti því nefni-
lega yfir á síðasta ári, að hann
mundi ekki verja tignina gegn sam-
landa sínum. Þar að auki kvaðst
hann þjást af of háum blóðþrýst-
ingi og ekki telja ráðlegt að leggja
of mikla taugaspennu á sig. Petro-
sjan tók þetta víst ekki mjög al-
varlega, en bað þó um nokkurn
frest eftir að Botvinnik ákvað að
tefla og vildi byrja einvígið 30.
marz. Botvinnik vildi nú hins vegar
byrja sem allra fyrst og krafðist
þess, að einvígið hæfist eins og
venjulega hinn 15. marz. Eftir nokk-
urt þóf og milligöngu alþjóðasam-
bandsins var svo fallizt á að hefja
einvígið hinn 23. marz. Þar að
auki munu allar greinar einvígis-
samningsins hafa verið undirritaðar
fyrir fjórum mánuðum!
Eftir slíkt streð ofan á allt erfið-
ið, sem er því samfara að hljóta
áskorunarréttinn, er ekki við því að
búast, að taugar Petrosjans séu í
góðu lagi. Enda teflir hann fyrstu
skákirnaf greinilega langt undir
styrkleika.
1. SKÁK.
Hvítt: Petrosjan . Svart: Botvinnik
Nimzo-indversk vörn.
1. d4, Rf6 2. c4, e6 3. Rc3, Bb4,
4. Dc2, d5 „Þessi Ieikur er ekki i
samræmi við grundvallarhugmynd
þessa varnarkerfis, en er réttlætan-
Iengur vegna slæmrar stöðu hvítu
drottningarinnar á c2. D-peðið er
valdlaust um stúndarsakir og svart
ur stefnir þegar mönnum sínum
til baráttu um miðborðið“ (Bot-
vinnik).
5. cxd5 6. Bg5, h6 7. Bxf6,
— Á Skákþingi Sovétríkjanna 1941
lék Keres gegn Botvinnik 7. Bh4,
en fékk tapstöðu eftir 7. — c5, 8.
O-O-O, Bxc3 9. Dxc3, g5 vegna
alltof hættulegrar kóngsstöðu. Þó
virðist það vera rökréttari leikur
að reyna að varðveita biskupa-
parið.
7. Dxf6 8. a3, Bxc3 9. Dxc3,
c6 10. e3, 0-0 11. Re2! — Stahl-
berg telur riddarann virkari á f4
eða g3 en f3. Botvinnik kemur nú
í veg fyrir að riddarinn komist
til f4 og rekur hann frá g3.
11. , He8! í skákinni Reshevsky
— Geller, Ziirich 1953 lék svartur
11. — Bf5 og fékk slæma stöðu
eftir 12. Rf4, Rd7 13. Be2, He8 14.
0-0, Rf8 15. b4. Minnihlutasókn
hvíts færði honum unnið tafl.
12. Rg3, g6! 13. f3? — „Eftir 10
ár verður skákin jafnteflisdauðan-
um að bráð“ sagði Capablanca ár-
ið 1924, rétt fyrir stórmótið f New
York. Hann hafði þá ekki tapað
skák í átta ár og þóttist því hafa
nokkuð til’síns máls. Nokkrum dög
um síðar tapaði hann fyrir Réti í
frægri skák og síðan heimsmeistara
tigninni þremur árum sfðar. Og
hvaða ánægju hefðu menn af skák
ef þeir Iéku aldrei af sér?
13. — h5! 14. Be2, Rd7 15. Kf2?
— Áætlun hvíts var að hróka stutt
og leika síðan e4 við tækifæri og
ná þannig góðu taki á miðborðinu
eða sprengja upp til sóknar á
kóngsarmi. En framrás h-peðs
svarts h.i’ur um stundarsakir kippt
skorðunum undan þesari áætlun,
Petrosjans, en þó miklu fremur
komið taugakerfi hans úr jafnvægi.
Miklu betra var að hróka stutt
og vinna að framrás e-peðsins,
þrátt fyrir nokkur leiktöp: T. d. 15.
0-0, h4 16. Rhl, De7 17. Kf2, og
þótt svartur hafi betri stöðu hefur
hvítur þó eitthvert stefnumál! En
eins og skákin teflist nú verSur það
nánast hlutverk hvíts að bíða
dauða síns.
15. t——, h4 16. Rfl, Rf8 17. Rd2,
He7, Hhel, Bf5 19. H3?, — í slík-
um stöðum sem þessum jafngilda
svona peðaveikingar hreinni upp-
gjöf.. Reynandi. var Bd3 og eftir
uppskipti á biskupunum hefur hvít
ur einhverja taktíska möguleika á
að halda skákinni.
19. ~ , Hae8 20. Rfl, Re6 21.
Dd2?
4 I ®
í t I. í i
t
* I
' ’A* íe. f
Ekki er eyðandi orðum að svona
leikjum. Botvinnik hefði nú getað
gert út um taflið með 21. — Rg5!
Við hótuninni Bxh3 er ekkert að
gera, t. d. 22. Kgl, Bxh3, 23. gxh3,
Rxh3 + 24. Khl, Dg5 25. Kh2,
Hxe3 26. Kxh3, Dgl og siðan g6
— g5 — g4+.
21. —, Rg7 22. Hadl, Rh5 23.
Hcl, Dd6 24. Hc3, Rg3 25. Kgl,
Rh5 “S. Bdl, He6 27. Df2, De7 28.
Bb3, gu 29. Bdl, Bg6 30. g4 Hxg
31. Rxg3, Rf4 32. Dh2, c5! Svartur
hefur teflt af miklu öryggi og
þjarmað miskunnarlaust að hvítum.
Með þessum leik rekur hann enda-
hnútinn á skákina á skömmum
tíma.
33. Dd2, c4 34. Ba4, b5 35. Bc2,
Rxh3+ 36. Kfl, Df6 37. Kg2,
Rf4+ 38. exf4, Hxel 39. fxg5, De6
40. f4, He2+ og hvítur gefst upp,
þar eð manntap verður ekki um-
flúið. Þ. Ó.
HUSGÖGN
STERK OG
STÍLHREIN
KÓNISKT
KRÓMAP
PÓLERAS
f.y 'y i
SENDu;
ELEKTROLUX UMBOÐIÐ
LAUGAVEG 69 SÍMI 36200