Vísir - 20.04.1963, Blaðsíða 1
VISIR
jLaugaruagur av. apni lvoó.
arþegaleyfið tíi
Færeyja ófeagið
Skömmu fyrir páskana var
hefði fengið leyfi dönsku flug-
málastjórnarinnar til að hefja
Færeyjaflug með Doglas DC-3
flugvélum sínum, og var þá tal-
að um að áætlunarflug þangað
myndi hefjast f byrjun maí.
Nú hefur blaðið fregnað, að
nokkur dráttur kunni að verða
á þessu. Þau leyfi sem danska
flugmálastjórnin hefur þegar
gefið munu aðeins ná til póst-
flutninga og vöruflutninga, en
hins vegar hefur ekki enn feng-
izt endanlegt leyfi til farþega-
flutninga. Líklegt er þó talið að
slíkt leyfi fáist og er þess að
vænta að Færeyjaflugið geti
hafizt í vor.
Þessi mynd er af mynni Sdglufjarðar og sézt þar glögglega vegurinn, sem lagður hefur verið upp að fyrlr- I
t huguðum jarðgöngum. Fyrir þó nokkru voru sprengd 30 metra löng göng inn f fjallið f tilraunaskynl.
STRÁKA VEGUR fullgerð-
ur fyrír 21 milljón króna
Ingólfur Jónsson samgöngu-
málaráðherra skýrði frá því á
Alþingi í gær, að nýi Siglu-
fjarðarvegurinn með jarðgöng-
unum miklu f gegnum fjallið
Stráka, ætti samkvæmt áætlun
að verða fullgerður að rúmum
tveimur árum liðnum, eða f
ágúst 1966.
Á yfirstandandi ári verður
varið til vegarins að fjallinu
Fljótamegin 4 milljónum króna,
og jafnframt undirbúið tækni-
lega að hefja sprengingu jarð-
gangnanna vorið 1964. Á þvf
ári á að verja 10.9 milljónum
alls til þessarar framkvæmdar,
og 6.1 milljón árið 1966, og
eru þetta samtals 21 milljón
króna. Lagt verður kapp á það
sem fyrr segir að þessi nýi,
langþráði framtfðarvegur Sigl-
firðinga, og nálægra byggðar-
laga, verði tekinn í notkun sum-
arið 1966.
Ráðherrann . fór sérstökum
viðurkenningarorðum um ð-
þreytandi baráttu Einars Ingi-
mundarsonar alþingismanns fyr
ir þessu mikla hagsmunamáli
Siglfirðinga, sem ríkisstjómin
hefir nú tryggt að hrundið verði
í framkvæmd á eins skömmum
tíma og unnt er frá tæknilegu
sjónarmiði.
Skemmtanir æskunn-
ar verða skattlausar
Frumvarp um skemmtanaskatt
og Þjóðleikhús varð að lögum í
gær með þeirri breytingu, sem
menntamálaráðherra bar fam fyr-
ir hönd ríkisstjórnarinnar, að
vínlausar skemmtanir ungs fólks
á aldrinum 16—21 árs verði með
öllu undanþegnar skemmtana-
skatti. Mun það verða unga fólk-
inu og öllum foreldrum gleðiefni.
Þær raddir hafa orðið æ háværari
að stuðla bæri að heilbrigðu og
ódýru skemmtanalffi æskunnar
með þessum hætti og er vel farið
að þetta hagsmuna- og menning-
armál unga fólksins hefir mætt
fyllsta skilningi stjórnarvaldanna.
Er þess nú að vænta að unga
Askenasy: Ég trúði ekki sjóvnarpsfréttinni og hringdi til Moskvu.
faiir ASKENASY neitar ai
hafa kaffai son sinn svikara
— Ég er nýbúinn að
tala við föður minn í
síma austur til Moskvu
og hann sagði mér, að
fréttin um að hann hefði
afneitað mér og kallað
mig svikara væri röng.
Þannig mælti Vladimir
Askenasy píanóleikari
við fréttamann Vísis
seint í gærkvöldi, en þá
um kvöldið hafði sú
frétt borizt út, að David
faðir Askenasys hefði
lýst hann svikara og
sagzt afneita honum ef
hann sneri ekki aftur
heim til Rússlands.
Þau hjónin Þórunn og Asken-
asy höfðu heyrt frétt þessa
lesna upp í sjónvarpinu og brá
þeim heldur en ekki f brún.
Askenasy fór þegar að símanum
og pantaði föður sinn austur í
Moskvu. Faðir hans kvaðst ekki
Framh. á bls. 5.
fólkið sæki skemmtanir af þessu
tagi öðrum skemmtunum fremur
eftirleiðis.
Bílamól
borgarinnar
í athugun
Borgarstjórinn í Reykjavík
hefur skipað þrjá menn til að
„athuga reglur þær, sem fylgt
hefur verið um bifreiðanotkun
borgarinnar og bifreiðastyrki '
og gera tillögur um breytingar
eftir því sem efni standa til“.
Þessi nefnd er skipuð Guttormi
Erlendssyni, aðalendurskoð-
anda, Ágúst Hafberg fram-
kvæmdastjóra og Einari ög-
mundssyni, vörubílstjóra. Þeir
hafa áður gert athuganir á
þessum málum, og er þessi nýja
athugun í framhaldi af þeirri
fyrri. Nefndin mun starfa í
samráði við borgarritara og
hagsýslustjóra.