Vísir - 26.04.1963, Page 7
V1SIR . Föstudagur 26. apríl 1963.
HS, svo sem m. a. sést af þessu:
Höfuðatvinnuvegur þjóðarinn-
ar, sjávarútvegurinn, var illa far
inn eftir langvarandi verðbólgu
og hafði á undanförnu ári orðið
fyrir meira verðfalli afurða sinna
en dæmi voru til um langt ára-
bil. Síldarvertíðin sumarið 1960
hafði brugðizt og vetrarvertíðin
1961 verið afleit, og togararnir
áttu við meira aflaleysi að 'etja
en nokkru sinni fyrr.
Engum hugsandi manni gat því
dottið f hug, að þessi bágstaddi
atvinnurekstur gæti allt í einu
tekið á sig 13—19% kauphækk-
anir, jafnt við sjálfa framleiðsl-
una sem alla verkun aflans.
Stjómarandstæðingar hafa að
vísu tæpt á því, að gengisfelling
hefði verið óþörf, ef vextir hefðu
verið lækkaðir um 2%. Hvílík
endemis fjarstæða hér er á ferð
sést bezt á því, að slík vaxta-
lækkun hefði aðeins létt af at-
vinnurekendum 70—80 millj.
króna, en kauphækkanimar
lögðu nýjar byrðar á þá, er námu
550—600 millj .kr.
□
En hvað þá um aðra atvinnu-
vegi?
Gátu þeir tekið á sig kaup-
hækkanimar?
Eftir gengisfallið reyndi rfkis-
stjórnin til hins ýtrasta að vemda
hagsmuni launþega með því að
sporna af aiefli gegn þvf, að at-
vinnurekendur fengju að hækka
verðlagið vegna kauphækkan-
anna. Var hagur og afkoma hvers
einstaks fyrirtækis rannsakað áð-
ur en leyft væri að hækkun kaup
gjaldsins fengist að einhverju
eða öllu tekin upp f verðlagið.
Niðurstaða þessara rannsókna
sýndi, að langflest fyrirtækin
gátu sannað, að ef þau ættu að
forðast hallarekstur, væri óhjá-
kvæmilegt að heimila verðhækk
anir, er sem næst námu kaup-
hækkununum.
Rétt er að upplýsa, að flest
fyrirtæki S.Í.S. stóðu engum að
baki í kröfunum um verðhækk-
anir, sem sannar, að þau vom
ekki fær um að standa undir
samningunum við kommúnistana,
án þess að færa afleiðingamar
yfir á bök almennings.
Það liggur þannig alveg ljóst
fyrir, að það em Framsóknar-
menn og kommúnistar, sem alla
sök eiga, jafnt á hinni fyrri geng
islækkun sem hinni sfðari.
Með þessu er stjómarandstað-
an rekin út úr sfðasta víginu.
Þeim er því hentast að þagga
niður í grátkerlingum sínum.
Auðvitað er það rétt, að af verð-
lækkun krónunnar leiða margvís-
leg vandkvæði og misrétti. En
hitt er jafn satt og víst, að það
er ekki við þann, sem viður-
kennir verðfallið að sakast, held
ur við hinn, sem þvf veldur og
þar með þeim verðhækkunum,
sem þeir ásaka okkur fyrir.
□
Hér Iýkur tilvitnunum í eld-
húsræðu mfna. Það var ekki S.
l.S. sjálft, heldur sambandskaup-
félögin, sem engum stóðu að
baki að krefjast mikilla hækkana
vegna kauphækkana og sönnuðu
þar með að þau töldu sig ekki
geta staðið undir samninguniun,
sem S.Í.S. gerði við kommúnist-
ana, án þess að almenningur borg
aði brúsann. Belgingur Clafs Jó-
hannessonar f útvarpsumræðun-
um er aðeins óvenju ósvífnar
blekkingar. Þarf ég engu við að
bæta því til sönnunar, að það
eru kommúnistar og engu þó
siður Framsókn, sem bera ábyrgð
á þeim miklu verðhækkunum síð-
ustu missera, sem þeir ásaka
okkur fyrir.
Framsókn skal
meðganga.
En ég vil neyða Framsókn til að
meðganga.
Þess vegna rifja ég enn upp
hina frægu yfirlýsingu foringja
þeirra á Alþingi 4. desember
1958. Þau orð mega aldrei gleym-
ast. Eftir að hafa lýst Canossa-
göngu sinni á fund Alþýðusam-
bandsins, þegar sambandið neit-
aði beiðni hans um mánaðarfrest,
segir hann orðrétt:
„Af þessu leiddi að hin nýja
kaupgreiðsluvísitala kom til
framkvæmda um mánaðamótin
og ný verðbólgualda er þar
með skollin yfir.
Við þetta er svo því að bæta,
að f rfkisstjóminni er ekki sam
staða um nein úrræði í þessum
málum, sem að mfnu áliti geti
stöðvað hina háskalegu verð-
bólguþróun, sem verður óvið-
ráðanleg, ef ekki næst sam-
komulag um þær raunhæfu ráð
stafanir, sem lýst var jrfir að
gera þyrfti, þegar efnahags-
málafrumvarp ríkisstjómarinn-
ar var lagt fyrir Alþingi á sfð-
asta vori“.
Hér lýkur ummælum Her-
manns Jónassonar.
Hverju er foringinn að lýsa
yfir:
1. „Ný verðbólgualda er skollin
yfir“.
2. „Hin háskalega verðbólguþró-
un verður óviðráðanleg, ef
ekki næst samkomulag um
raunhæfar aðgerðir".
3. „Við þetta er svo því að bæta,
að í ríkisstjórninni er ekki
samstaða um nein úrræði í
þessu máli“.
Of snemmborin.
Þetta eru hans orð. Þau geta
ekki skýrari verið. Óviðráðanleg
verðbólga var skollin á. Hermann
Jónasson játar svo ótvírætt, -að
samvizkuliprum mönnum þýðir
ekkert að þræta.
Þeir Eysteinn, Ólafur Jóhann-
esson og Þórarinn geta svo
spreytt sig á að sanna þjóðinni,
að sú óðaverðbólga, sem Her-
mann segir að sé riðin yfir og
beinlínis hrýs svo hugur við að
sjá hækka vísitöluna á fáum
mánuðum um a. m. k. 25%, en
miklu lfklegra þó 50—100%, að
hann segir af sér, sé okkur að
kenna. Ég er hræddur um, að
óðaverðbólgan hafi verið heldur
of snemmborin til þess að hægt
sé að kenna okkur hana.
□
Strax og viðreisnarstjómin
hafði með breyttri gengisskrán-
ingu viðurkennt sannvirði vinstri
krónunnar, gerði hún veigamikl-
ar ráðstafanir til að létta byrði
þeirra, er bágast vora staddir, og
þá fyrst og fremst með stóraukn
um bótum almannatrygginganna.
Ágrip af sögu
viðreisnarinnar.
Andstæðingamir hófu strax á-
rásir á viðreisnina og ekki stóð
á hrakspánum.
Er löngu þjóðfrægt, að mestu
valdamenn andstæðinganna sögðu
strax f öndverðu, að viðreisnin
væri farin út um þúfur, sfðan að
hún væri að fara út um þúfur
og loks, að hún myndi fara út um
þúfur. Allar vesluðust þessar
hrakspár upp og horféllu loks f
pólitískum móðuharðindum
Framsóknarflokksins.
Reyndin varð sú, að þrátt fyrir
aflabrest og geysimikið verðfall
á mjöli og lýsi, sem skaðaði þjóð
arbúið um a. m. k. 500 milljórir
króna á fyrsta ári viðreisnarinn-
ar, var svo komið á miðju næsta
ári, þ. e. a. s. 196J, að þjóðin
var byrjuð að safna sér gjaldeyr-
issjóðum og sparifé landsmanna
hafði stóraukizt. Voru menn þá
sammála um að vel horfði.
En þegar hér var komið, gerðu
kommúnistar og Framsókn sam-
særi gegn krónunni og tókst að
fella hana að nýju. Og nú er það
óumdeilanlegur sannleikur, að af
leiðingin af þessari verðföllnu og
af sömu aðilum aftur verðfelldu
vinstri krónu era nær allar þær
verðhækkanir, sem stjómarand-
stæðingar eru að reyna að festa
á viðreisnarstjómina, en sjálfir
hafa valdið og bera alla ábyrgð á.
Stórsigrar.
Sjálf viðreisnin hefur nú þegar
unnið hvern stórsigurinn af öðr-
um, svo sem bezt sést á því, að
í stað 216 millj. króna gjaldeyr-
isskuldar íslenzkra banka, þegar
viðreisnin hófst, er nú komin
1192 millj. króna inneign og að
jafnframt hefur sparifé lands-
manna aukizt úr 1824 milljónum
í nóvember 1959 f 3655 milljónir
f lok síðasta mánaðar. Er Island
nú að nýju komið í tölu skila-
þjóða og standa þvf nú erlendar
fjárhirzlur aftur opnar, sem
vinstri stjórnar óreiðan áður
hafði sett slagbrand fyrir.
Samfara þessu hefur viðreisn-
arstjórnin verið viðbragðsharðari,
athafnameiri og farsælli í fram-
kvæmd og löggjöf en dæmi era
til um íslenzka ríkisstjórn. Þykir
mér rétt að staldra við og rök-
styðja þessa staðhæfingu. Má þar
til margt nefna og varðandi laga-
setningu m.a. þetta:
Lög um dómsmálastörf, lög-
reglustjórn o. fl., lög um lands-
____________19
dóm, lög um ráðherraábyrgð, lög
um meðferð opinberra mála, lög
um hæstarétt, lög um ríkisfang-
elsi, lög um héraðsfangelsi, lög
um almannavarnir, lög um þjóð-
skrá og almannaskráningu, sveit-
arstjórnarlög, lög um launajöfnuð
kvenna, lög um byggingarsjóð
ríkisins, lög um aðstoð við van-
gefið fólk, lög um aðstoð við
fatlaða, lög um læknaskipan,' lög
um atvinnubótasjóð, lög um
verkamannabústaði, lög um Bjarg
ráðasjóð, lög um tekjustofna
sveitarfélaga, lög um ríkisá-
byrgðir, lög um lækkun aðflutn-
ingsgjalda, lög um ríkisábyrgðar-
sjóð, lög um tekju- og eignar-
skatt, lög um sameiginlega inn-
heimtu opinberra gjalda, lög um
kjarasamninga opinberra starfs-
manna, lög um stofnlánadeild
sjávarútvegsins, lög um stofn-
lánadeild landbúnaðarins, lög um
lausaskuldir bænda, lög um ábúð
jarða, lög um Verzlunarbanka ls-
lands, lög um Samvinnubanka Is-
lands, — margvísleg önnur lög-
gjöf um banka og peningamál,
lög um heimild ríkisstjórnarinnar
til að taka framkvæmdarlán, lög
um Iðnaðarmálastofnun Islands,
lög um byggingar í sveitum, lög
um Handritastofnun íslands, lög
um Iistasafn ríkisins, lög um
lánasjóð íslenzkra fiámsmanna,
lög um heyrnarleysingjaskóla,
lög um jarðhitasjóð og jarðboran-
ir, erfðalög, lög um lífeyrissjóð
sjómanna, lög um freðfiskseftirlit,
lög um Fiskveiðasjóð íslands, lög
um verðlagsráð sjávarútvegeins,
lög um Fiskimálasjóð, lög um
sllílarútvegsnefnd, lög um afla-
tryggingarsjóð sjávarútvegsins,
lög um verzlunarmál og Verð-
lagsmál, lög um tollvörugeymslu,
lög um sameiningu Áfengis- og
tóbaksverzlunar rikisins, lög um
iðnlánasjóð, lög um bændaskóla,
siglingalög, sjómannalög, lög um
byggingarsjóð aldraðs fólks, lög
um lögreglumenn, lög um tón-
listarskóla, Iög um aðstoð við
kaupstaði og kauptún vegna
landakaupa, lyfsölulög, lög um
heimild til þess að afhenda þjóð-
kirkju Islands Skálholtsstað, lög
um almenningsbókasöfn, lög um
Kennaraskóla íslands, lög um
Tækniskóla íslands, lög um líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins,
lög um tollskrá.
Er þá ónefnd sjálf viðreisnar-
löggjöfin frá 1960, þ. á m.: lög
um efnahagsmál, lög um sölu-
skatt, lög um jöfnunarsjóð sveit-
arfélaga, lög um skipan innflutn-
ings- og gjaldeyrismála, lög um
tekjuskatt og eignarskatt, lög um
útsvör, lög um almannatrygging-
ar.
Skal hér staðar numið, þótt
margt sé ótalið. Mun mörgum
þykja nóg komið, en mér þótti
rétt, að upptalningin sýndi, að
ekki hafa menn setið með hend-
ur í skauti að jafnaði. Treysti ég
mér tæplega að kveða á um, hvað
merkast sé I þessarilöggjöf, enda
munu um það skiptar skoðanir.
Flestir mundu þó fyrst nefna við-
reisnarlöggjöfina frá 1960.
En sé litið yfir farinn veg,
munu menn mjög fagna hinni
róttæku breytingu á tryggingar-
löggjöfinni. Efast ég um, að al-
menningur hafi gert sér grein
fyrir, að nú greiða tryggingam-
ar 4 krónur I stað hverrar einnar
fyrir viðreisn. Tel ég víst, að
aldrei fyrr hafi nokkur þjóð á
jafn stuttum tíma gert hlutfalls-
lega svipað þv£ eins stórt átak
til þess að jafna milli manna og
sjá borgið rétti pess þurfandi,
Ræða Óiafs Thors forsætisráðherra á Lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins í gær
Á Landsfundi f gær. Bjami Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Thors forsætisráð'
herra og Gunnar Thoroddsen varaformaður flokksins.
Nei, ég þarf engu við að bæta.