Vísir - 19.06.1963, Qupperneq 4
f
4
'MsgMHMHH
IIMWpMniM. l-.M
MðlMBgnnaQgBaeMWi *’kíw»m
19. JÚNÍ
Martin sýnir blaðamönnum og fleiri gestum snyrtingu.
í dag er Kvennadagurinn, 19.
júni, dagurinn sem íslenzkar
konur öðluðust kosningarétt. —
Kvenréttindafélag Islands minn-
ist þessa dags ár hvert með sam-
komu og útvarpsdagskrá þann
18. júní og útgáfu blaðsins „19».
júní“.
Blaðið „19. júní“ er nú komið
út og er mjög fróðlegt og fjöl-
breytt að vanda. Rita þar marg-
ar merkiskonur og menn um
ýmis efni, sem varða fyrst og
fremst konur og heimilið, og
má þar nefna:
„Ættleiðingar", álits á ættleið
ingum leitað hjá Aðalbjörgu Sjg
urðardóttur, Þorkeli Kristjáw?
syni fulltrúa Barnaverndarnefnd
ar Reykjavíkur, Sigurði Ólasyni
hæstaréttarlögmanni og dr. Sí-
moni Jóh. Ágústssyni. Tilefnið
til þessarar greinar er erindi,
sem Hákon Guðmundsson hæsta
réttarritari flutti á fundi KRFÍ
á s. 1. vetri.
„Aðbúnaður aldraðs fólks“, út
varpserindi sem Ragnhildur
Helgadóttir flutti á s. 1. vori.
„Ljósið á heimilinu", leiðbein-
ingar með myndum um val ljósa
staða á heimilum, eftir Petrínu
K. Jakobsson.
Áhrif veð
Verið dálítið glaðlegri urbreyt-
Um þessar mundir er stödd
hér á landi Mlie Martin skóla-
stýra fegrunarskóla Coryse Sal-
ome í París og er hún hér á
vegum snyrtistofunnar Valhall-
ar, sem selur vörur frá Coryse
Salome fyrirtæklnu í París.
Fyrirtækið Coryse Salöme í
París er eitt af helztu snyrti-
vörufyrirtækjum í Frakklandi,
var stofnað fyrir 43 árum. Nú
ðnav &!&<! ao isbrtií
unni Valhöll og veitir viðskipta-
vinum Upplýsingar og háðlegg-
ingar. Sagði hún að til sín hefðu
komið stúlkur og konur á öllum
aldri og fyndist sér ekki siður
ánægjulegt að ’ leiðbeina þeim
fullorðnu.
Þegar þær koma, skoðar hún
á þeim andlitið og húðina og
skrifar síðan niður á sérstakan
seðil hvaða tegundir snyrtivara
— segir Mlle Martin
hefur það 120 verzlanir víðs
vegar í Frakklandi, þar af 18 í
París, sem eingöngu selja vörur
fyrirtækisins. Coryse Salome
starfrækir fegrunarskóla I París
og veitir Mlle Martin honum
forstöðu, en annars sagði Mlle
Martin að hún væri eins konar
tengiliður milli verksmiðjunnar
og viðskiptavinanna.
— Ég hef umsjón með öllum
vörum, sem fyrirtækið framleið-
ir, sagði Mlle Martin, og ræð
hvort þær eru settar á markað-
inn, hvort þær fullnægja öllum
þeim kröfum, sem til þeirra þarf
að gera. Þannig er ég eins konar
tengiliður milli verksmiðjunnar
og viðskiptavinanna.
— Fegrunarskólinn, sem ég
veiti forstöðu, er eingöngu ætl-
aður til þess að kenna meðferð
Coryse Salome snyrtivara. Þang
að koma allar stúlkur, sem ætla
sér að vinna að sölu snyrtivar-
anna og læra allt um gerð þeirra
og meðferð. Þannig verða þær
hæfar til að veita viðskiptavin-
unum allar þær upplýsingar um
vörurnar, sem þeir þarfnast, og
það er mjög mikils virði.
Mlle Martin mun dveljast hér
á landi um hálfan mánuð og er
hún 1 verzluninni og snyrtistof-
hæfa þeim bezt, t. d. hvaða litur
á púðri, hvaða litur á augn-
skugga, hvaða tegundir krems
o. s. frv.
— En ég skipa þeim ekki að
kaupa allar vörurnar nú strax,
sagði Mlle Martin, heldur hafa
[i 1 mu'Adi.hi í rnup.ail rricjgirid
þær seðilínn við hendina, þegar
að því kemur að þær vilja
kaupa þessa eða hina tegundina.
— Mér finnst íslenzku stúlk-
urnar vera dálítið feimnar og
kaldar. Þær eru of feimnar við
að draga fram þá þætti persónu-
leikans, sem þær ættu helzt að
gera. Góð snyrting gerir mikið
og allir vita að vel snyrt stúlka
hefur mun meira sjálfstraust en
hin og verður þá frjálslegri í
framkomu — og með auknu
sjálfstrausti aukast einnig vinnu
afköstin, þahnig að þetta hefur
mjög mikið að segja I daglegu
lífi. Þið mættuð því vera dálítið
brosleitari hér á Islandi.
— En íslenzku. stúlkurnar eru
fallegar, og þetta segi ég ekki
til að þóknast þeim, heldur af
því að ég meina það. Ef við í
Frakklandi værum eins falleg-
ar, gætum við gert mikið úr
okkur.
inga á fólk
Fólk, sem fann á líðan sinrif
að veðurbreytingar voru á
næstu grösum var áður fyrr
annað hvort talið hjátrúarfullt
eða búa yfir einhverjum yfir-
náttúrulegum krafti.
Það var og er ekkert í veg-
inum með þetta fólk segja
læknavisindin í dag, sumir eru
þannfe gerðir, að skapið og
heilsan eru mjög háð sveiflum
loftvogarinnar.
Ég las I dönsku blaði, að
læknar hefðu komizt að því, að
veðurbreytingar hefðu einkum
áhrif á hinn svo mjög við-
kvæma hluta taugakerfisins,
sem stjórnar ómeðvitaðri starf-
semi líkamans, svo sem blóð-
rásinni, meltingunni og starf-
semi kirtlanna. Það er mjög
Framhald á bls. 5.
ALLT Á SAMA STAÐ
Hárgreiðslustofurnar í Reykja
vík spretta upp eins og gorkúl-
ur og sama má segja um snyrti-
stofurnar og ekki ber á öðru en
að starfsemin gangi vel, svo mik
ið er víst að oft er ekki nokkur
Ieið að fá tíma, nema panta með
löngum fyrirvara.
Hárgreiðsla og snyrting eru
skyldir hlutir, stuðla að bættu
útliti konunnar og því er ekkert
eðlilegra en að hægt sé að fá
hvort tveggja á sama stað, slá
tvær flugur I einu höggi, koma
út bæði greidd og snyrt.
Nokkrar stofur hafa verið
starfandi í Reykjavik, þar sem
bæði hefur verið unnt að fá
hárgreiðslu og snyrtingu og I
vor bættist ein við, er Hár-
greiðslustofa Austurbæjar opn-
aði snyrti og nuddstofu. Er hér
um að ræða hand-, fót- og and-
Iitssnyrtingu, nudd alls konar og
ljósböð.
Á Hárgreiðslustöfu Austur-
bæjar sjá-María Guðmundsdótt-
ir hárgreiðslukona og stúlkur
hennar um hárgreiðsluna, en
Olga Pétursdóttir og Sólborg
Jónsdóttir um snyrtinguna og
nuddið.
Nuddið, sem reykvlskar konur
geta fengið á Hárgreiðslustofu
Austurbæjar, er megrunarnudd,
afslöppunarnudd, andlitsnudd og
hársVarðarnudd. Megrunarnudd-
ið er oftast gefið í 10 eða 15
skipta kúrum og er það mikil
hjálp konum sem eru á megr-
mmhhmmmhhmhm
unarkúr, styrkir aftur vöðva,
sem hafa slappazt. Hársvarðar-
nuddið er ætlað til þess að
vinna gegn hárlosi og rækta
upp lélegt hár. Þá er og unnt að
fá svo nefnt partanudd, þar sem
einstakir líkamshlutar sem sér-
staklega þurfa á nuddi að halda
eru nuddaðir.
Olga Pétursdóttir er nýkomin
frá Þýzkalandi, þar sem hún var
I eitt ár við nám, m. a. í sjúkra-
nuddi, andlitsnuddi, reflexnuddi
og snyrtingu. Sólborg Jónsdótt-
ir er á förum til Danmerkur,
þar sem hún mun dveljast um
tíma til að kynna sér helztu
nýjungar, sem komið hafa fram
á sviði nudds.
„Nýlunda", rætt við þrjár
reykvískar húsmæður, sem luku
kennaraprófi á þessu vori.
Guðfínna Þorsteinsdóttir rit-
ar grein um gömlu eldhúsin,
Halldóra B. Björnsson um Þjóð-
búning frá álfum, og Aðalbjörg
Sigurðardóttir ritar greinina
„Hvað er þá orðið okkar starf?“
„Veðurþjónusta í 33 ár“, Elín
Pálmadóttir ritar um störf frú
Teresíu Guðmundsson veður-
stofustjóra á Islandi.
Rætt er við þrjár konur um
störf þeirra, þær Margréti
Guðnadóttur lækni, Fríðu
Proppé lyfsala og Ellý Vilhjálms
dægurlagasöngkonu.
Margt annað efni er í ritinu,
kvæði, sögur, minningarorð,
fréttir af nýjum Iagasetningum,
starfsemi KRFÍ og byggingu
Hallveigarstaða.
Þessi dama er á leið til strand
arinnar — þó líklega ekki Naut-
hólsvikur — og kyrtilllnn sem
hún er í er úr hvítu frottéeíni,
bryddaður dökkbláum líningum.
Hann er einfaldur en skemmti-
legur og mjög þægilcgur að
bregða sér. í yfir blautan sund-
bollnn.