Vísir - 22.06.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 22.06.1963, Blaðsíða 5
V í SIR . Laugardagur 22. júní 1963. Mikil aðsókn að skíða■ hótelinu / Hlíðarfíalli Akureyri í gær. ÖIl gistihús á Akureyri hafa ver ið fullsetin undanfarið og meiri hluti gestanna hafa verið útlend- ingar. Nokkurn þátt í þessum mikla gestagangi hefur veðráttan óhjá- kvæmilega átt. Það lýsir sér ekki hvað sízt í því að þeir sem hafa tjaldað á tjaldstæðinu sunnanvert Lijérgunarbntur — Framhaid if bis. 1. um bátum. Sex manna, sem vega 95 kg., 10 manna, sem vega 140 kg., og 14 manna, sem vega 170 kg. 1 gær var fréttamiönnum sýnd- ur bátur af minnstu gerð í Naut- hólsvík. Þar stungu sér nokkrir sundgarpar, m. a. Eyjólfur Jóns- son, tii þess að reyna hann. Þá voru og teknir um borð nokkr- ir snyrtilega klæddir farþegar. Ekki fór þó sem skyldi með sýninguna, því að þegar menn- imir fóru út í aðra hliðina, valt bátunnn og var með naumind- um hægt að bjarga hinum prúð- búnu mönnum áður en vatnið Iuktist yfir höfðum þeirra. Var þar lán að báturinn skyldi vera alveg við bryggju svo að hægt var að rétta hann við með að- stoð úr landi. Talið er að loftrúm það er myndast undir bátnum þegar hann kemur I vatnið hafi valdið þvi að svona fór. Umboðsmenn töldu þetta aðeins smávægileg- an galla sem auðvelt væri að lag færa, og gátu þess að 6 manna gúmmíbátur myndi ekki hafa reynzt betur í þessu tilfelli. Það var norska útflutnings- ráðið sem í samvinnu við G. Helgason og Melsted og fyrir- tækið Walter Tangen gekkst fyr ir þessari sýningu. Umboðsmenn hér á landi eru G. Helgason og Melsted, en uppfinningamaður- inn er Walter Tangen skipstjóri. Samstarf Framh af 1 síðu „Þar sem lýst var yfir því af hálfu beggja stjórnarflokkanna fyrir kosningar, að þeir mundu halda áfram samstarfi um ríkis- stjórn, ef þeir hlytu nægilegt fylgi til þess, þá telur flokksráð ið það rökrétta afleiðingu kosn ingaúrslitanna, að samstarfið haldi áfram á sama grundvelli í meginatriðum og lagður var á síðasta kjörtímabili“. Síðan ræddi formaður ýtarlega úrslit alþingiskosninganna. Að lokinni ræðu Bjarna Bene- diktssonar hófust umræður og tóku þessir til máls: Hermann Þór arinsson, hreppstjóri, Blönduósi. Birgir Gunnarsson, borgarfulltrúi, Reykjavík, Jón Pálmason, fyrrv. ráðherra, Akri, Sigurður Biarna- son, alþingismaður, Reykjavík, Karl Friðriksson, vegaverkstjóri, Akureyri, Ólafur Bjarnason, bóndi, Brautarholti, Ólafur Thors, forsætisráðherra, Bjarni Benedikts son, dómsmálaráðherra og Sigur- jón Sigurðsson, bóndi, Raftholti. Að umræðum loknum var borin undir atkvæði framangreind til- laga formanns flokksins og var hún samþykkt f einu hljóði með atkvæðum allra fundannanna. Formaður sleit síðan fundi. í bænum hafa flúið þaðan unnvörp um og leitað skjóls undan óveðr- inu, ýmist í hótelum eða heima- húsum. Eftir þjóðhátíðardaginn virðist hafa dregið verulega úr ferða- mannastraumnum til Akureyrar í bili og mun það einnig að verulegu leyti veðráttunni að kenna. Aftur á móti er búizt við miklum ferða- mannastraumi um n. k. mánaða- mót og úr því og fram eftir öllu sumri. Er hvert einasta hótelher- bergi upppantað langt fram í ágúst- mánuð. Skíðahótelið í Hlíðarfjalli hefur fram að þessu aðeins veitt gestum mótttöku um helgar, fyrst og fremst vegna þess að ekki hefur verið ráðinn neinn forstöðumaður fyrir því fyrr en nú. Or þessu verð ur það opið alla daga og hefur mik ið borizt af pöntunum fyrir sum- arið, bæði af einstaklingum og hóp um. Um s. 1. helgi gisti í skíðahótel- inu fjöldi erlendra náttúruskoðara, þ. e. áhugamenn um náttúrufræði á ýmsum sviðum, og voru þeir frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Hol- landi. Eftir n. k. mánaðamót er von á 5 eða 6 ferðamannahópum frá ferðaskrifstofunni Lönd og Leiðir í Reykjavík. Þá halda bæði Verk- stjórasamband íslands og Skógrækt arfélag Isiands fjölmenn ársþing með allt að 60—70 þátttakendum hvert í skíðahótelinu. Flugfélag Is- Iands hefur beðið fyrir 15 manna hóp svissneskra og ítalskra ferða- langa þar til gistingar og loks hef- ur 40 manna hópur frá Keflavíkur- flugvelli beðið um gistingu og fyr- irgreiðslu. Allir þessir hópar eru væntanlegir I næsta mánuði. Hótel- ið getur tekið á móti um 120 manns í einu ef svefnpokapláss er fullnýtt. Síldarleitarráð- stefna á Akurevri Akureyri í gær. Ráðstefna átti að hefjast á Ak- ureyri í dag meðal forráðamanna á síldarleitarskipum við íslands- strendur. Það eru norsk og rússnesk síld- arleitarskip, sem hér eiga hlut að máli og svo varðskipið Ægir, sem annast síldarleitina af íslands hálfu. Skipin áttu öll að vera komin til hafnar á Akureyri um hádegið í dag, en norska skipið var hið eina, sem þá var komið. Hinum tveim skipunum, því rússneska og ís- Slasaðist á reiðhjóli í gær meiddist drengur í um- ferðarslysi á Borgartúni og var fluttur í slysavarðstofuna. Slysið skeði laust fyrir kl. 5 e. h. Þá voru tveir drengir á reið- hjólum á leið vestur Borgartún. Þegar þeir voru komnir á móts við Klúbbinn rákust þeir saman á hjól- unum og skullu við það í götana. Annar drengjanna, Bjarni Ómar Guðmundsson, Austurbrún 21, hlaut höfuðhögg og var fluttur í slysavarðstofuna, en meiðsli hans vor-u ekki talin alvarleg. Framhald af bls. 16. og láréttar bylgjuhreyfingar, en jafnframt mismunandi bylgjulengd ir. Sérfræðingar hafa talið Akureyri heppilegan stað fyrir þessa mæla og því hafa þeir verið fluttir þang- að. Enn sem komið er eru mæl- arnir geymdir í kössum og verða ekki teknir upp fyrr en þeir kom- ast í húsnæði það sem þeim er ætl- að, en það er Iögreglustöðin á Ak- ureyri, sem nú er í byggingu. Það lenzka, hafði seinkað, en þeirra var von á hverri stundu í kvöld og bú- izt við að ráðstefnan myndi þá þegar hefjast. /vwwwwvwwwwwwvwwvwwvwwwv PALL VI Montini kardínáli, hinn ný- kjörnl páfi valdi sér nafnið Páll 6. Páll postuli var einn fremsti baráttumaður kristinna manna fyrir stofnun kirkjunnar. Nú er það hlutverk hins nýja páfa að stuðla að sameiningu allra krist inna manna, sameina kristna kirkju, sem Páll postuli átti svo ríkan þátt f að stofna, en síðan hefur greinzt I margar deildir. Páll 6. hefur verið talinn einn frjálslyndasti í hópi höfðingja kaþólsku kirkjunnar, um leið og hann er að flestra dómi meðal hæfustu og lærðustu kenni- manna hennar. Páll 6. varð fljótt áberandi maður innan kaþólsku kirkjunnar, fyrst og fremst fyrir störf sín í Vatikaninu, þar sem honum voru fengin æ umfangs- meiri og vandasamari verk- efni. Þá reyndi á kunnáttu hans, mælsku og samningslip- urð. Hann varð þannig smátt og smátt meðal helztu trúnaðar- manna tveggja páfa, fyrst Píusar 12. og síðan Jóhannesar 23. Sagt er af sumum að þeir hafi báðir viljað gera hann að eftirmanni sínum. Svo mikið er að minnsta kosti víst aí Páll 6., eða Montini kardí náli, átti meiri þátt I þvi en nokkur annar að hvetja Jóhann- es 23. ti! að kalla saman kirkju þing og hefja baráttu í stærsta verkefni kaþólsku kirkjunnar um aldabil: sameiningu allra kristinna manna á jörðunni. Rök Páll VI. semdir og lærðar fullyrðingar kardinálans orkuðu mjög á stór hug Jóhannesar 23. og efldu hann £ undirbúningi kirkjuþings ins, sem ætlað er að losa kaþólsku kirkjuna við fjölmarg ar hömlur á sameiningarstarfið. Páll 6. er aðeins 65 ára og kann því að eiga góðan starfs- aldur fyrir höndum. Það er hug-' sjón hans sennilega nauðsynlegt til sigurs að hann geti sem1 lengst starfað í þágu hennar.1 Honum virðist manna bezt Ijóstl hvers er þörf. < Humarveiðar ganga velog feikna vinna við vinnsluna Fjöldi báta er nú á humarveið- um og hafa þær gengið ágætlega, nema þá daga, sem gæftir hafa verið slæmar. Tugir báta stunda veiðarnar, en það er erfiðleikum bundið að fá nákvæmar upplýsingar um hve margir þeir eru hverju sinni, þar sem ekki er að miða við það eitt, hve margir hafa fengið leyfi til veið anna, en sumir breyta stundum til í bili. Frá Akranesi hefir Vísir frétt, að þar sé búið að landa 250 lest- um af humar (af 8 bátum) og þykir það góður afli, til jafnaðar 30 lest- ir á bát, og tveir losa 40 tonn. Níundi báturinn er nýbyrjaður á humarveiðum. Það voru tveir bát- ar, sem hófu veiðarnar seinni part- inn í maí, og hinir bætzt við hver af öðrum síðan. Geysimikil vinna er við humarinn í landi og vegna humarvinnslunnar hafa fjöldamarg- ir unglingar og börn vinnu. Sömu sögu er að segja frá Eyr- arbakka, Þorlákshöfn og víðar, þar var ákveðið áður en bygging henn- ar hófst að Veðurstofan fengi á- kveðinn hluta af húsrýminu fyrir jarðskjálftamælana. Ragnar taldi líkur fyrir því að húsið yrði það vel á veg komið í ágústbyrjun í sumar. að hægt væri að setja jarð- skjálftamælana niður. Koma þá sér fræðingar frá Ameríku þeirra er- inda hingað til lands. sem humar er lagður á land: Góð- ur afli þega,- gæftir eru góðar og óhemju vinna í frystihúsunum. Dragnótaveiðar voru heimilaðar Bílar úr umferð Akureyri í gær. Akureyrarlögreglan hefur átt annríkt að undanförnu i sambandi við eftirlit með bifreiðum, sem ekki hafa komið til lögskipaðrar skoð- unar. Lögreglan hefur hert mjög á eft- irliti með því að bifreiðaeigendur trassi ekki að láta skoða farartæki sin hjá bifreiðaeftirlitinu. Hefur lög reglan undanfarna daga sótt fjölda HRINGUNUW. WWWWVWVWWWWVWVA^^WWWWWVW" frá 18. þ. m. og hafa 70—80 bát- ar fengið leyfi til veiðanna og eru þessir bátar á svæðinu frá Seyðis- firði vestur á Bíldudal bifreiða, sem eigendurnir hafa lát- ið undir höfuð leggjast að i koma með til skoðunar, og flutt þær án frekari aðvörunar til bifreiðaeftir- litsins. Þar sem um litlar viðgerð- ir er að ræða hefur eigendunum verið gefinn tilskilinn frestur til að koma bifreiðunum í lag, en hafi þær þurft mikilla aðgerða við hafa þær að fullu og öllu verið teknar úr umferð. sm

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.