Vísir


Vísir - 24.06.1963, Qupperneq 8

Vísir - 24.06.1963, Qupperneq 8
8 V í S I R . Mánudagur 24. júní 1963 VtSIR Utgefandi: BlaSaútgáfan VlSIR. R'tstjðri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjðri: Þorsteinn ó. Thorarensen. Ritstjömarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og ’^greiðsla Ingðlfsstræti 3. Askriftargjald er 65 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Siml 11660 (5 llnur) Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Ný stefna Kjarasamningarnir, sem gerðir voru við verka- Iýðsfélögin norðanlands eru eitt merkasta sporið í vinnumálum, sem stigið hefir verið. f fyrsta lagi vegna þess, að þá samþykktu báðir deiluaðilar að láta fara fram hlutlæga rannsókn á greiðslugetu atvinnuveg- anna. 1 öðru lagi vegna þess, að skynsemin var látin ráða við samningsgerðina en ekki pólitísk skemmdar- starfsemi. Önnur félög launþega hafa siðan gert kjara- samninga á sama grundvelli og norðlenzku verkalýðs- félögin og þannig hefur verið komið í veg fyrir víð- tækar vinnudeilur. Það er gleðiefni öllum sanngjömum mönnum, að vinnufriðurinn hefir þannig verið tryggður og kjara- bætur fengnar fram sem öruggt er að reynast ekki einungis pappfrskjarabætur, sem svo oft áður. En þó em ekki allir ánægðir. Samningamir em harmsefni forseta ASÍ, sem hafði í hótunum við þjóð sfna dag- inn eftir kosningar. Og þeir era líka harmsefni for- ystu Framsóknarflokksins. Sú forysta ól þá von í brjósti, að launadeilur yrðu til þess að fella ríkisstjóm- ina fljótt eftir kosningar. f gær kemur Tíminn upp um þessi vonbrigði og segir, að „óréttsýn og óbilgjöm ríkisstjóm“ hafi hvað eftir annað teflt vinnufriðnum í tvfsýnu. Það séu samvinnufélögin, sem hafi annazt björgunarstarfið og tryggt vinnufriðinn. Ekki er hægt að hafa öllu rækilegar endaskipti á sannleikanum en hér er gert. Ríkisstjórnin hefir einmltt lagt á það megináherzlu að kjarabætur yrðu launþegum raunhæfar og að þær næðust á sem frið- samlegastan hátt. Og það era ævintýramenn fram- sóknar, sem hafa blásið til upphlaups og vandræða á vinnumarkaðnum. Sú saga er öllum kunn. En þótt nauðsynlegt sé að leiðrétta slíkar rang- færslur er ástæðulaust að einblína á liðna atburði. Hitt er mikilvægara, að ný stefna hefir verið mörkuð i kjaramálum. Stefna, sem mikil fyrirheit felast í. Vinnudeilur hafa verið hér erfiðari og óbilgjamari en með flestum öðram þjóðum. Engum hefir verið það til hags, allra sízt launþegum. Það er því kominn tími til að snúa við á þeirri braut. Valhöll Hér I blaðinu er skýrt frá því í dag f máli og mynd- um, hverjar breytingar hafa orðið á móttöku gesta á Þingvöllum. Gistihúsið þar var veglegt á sínum tíma, en það fullnægði ekki lengur kröfum tímans. Þing- velli heimsækja þúsundir manna, innlendir og erlend- ir, á hverju sumri. Þar þarf veitingasala að vera með menningarbrag og öll aðstaða á þann hátt, sem sæm- ir hinum fornfræga sögustað. De Gaulle gefíð eins ákveðið í skyn og I ræðum á þessu ferðalagi um fjóra landshluta (departments) í Mið- og Vestur-Frakklandi, að nú dragi að leikslokum Á stund um fannst mönnum sem De Gaulle minnti á hinn „deyjandi svan“ í þessum ræðum sínum, — væri með öðrum orðum byrj- aður á kveðjusöngnum. 1 einni ræðunni kvað hann svo að orði, að þetta væri lík- lega í seinasta sinn, sem hann gæti heilsað upp á almenning, en alls staðar varð honum all- tíðrætt um aldur sinn, en hann er nú 72 ára, og hann talaði um vaxandi fjölda ungra manna, sem fengju það hlutverk að halda áfram starfinu við styrka forustu. Hann talaði hvað eftir annað um tímann, sem kæmi, þegar hann væri allur og geng- inn, þörfina á traustum þjóð- arstofnunum, og traustri forustu — og þjóðareiningu Og hann lýsti hinu hörmu- Iega ástandi, sem var í landinu, þegar hann tók við, — þegar hver hönd- in var upp á móti annarri, fjár- hagur og efnahagslíf í öngþveiti, og allt í hönk á vettvangi stjórn málalífsins og stjórnarskipti vikulegir viðburðir, að ekki sé meira sagt tni3 J3l9 (119 efíftt íwimC‘70 ‘1. <-ismi án De Caulle' Fyrir um það bil viku lauk De GauIIe Frakklandsforseti enn einni ferðinni um borgir og byggðir landsins, en hann hefur farið hverja slíka ferðina af annarri, einkum seinustu tvö ár- in, til þess að kynna skoðanir sínar og treysta fylgi sitt, og ekkert skeytt um neinar hætt- ur, en margoft hafa honum ver- ið brugguð banaráð, og stund- um að því er virðist ekki mun- að nema hársbreidd, að banatil- ræði heppnuðust. En tilgangurinn með ferðalög- um De Gaulle um landið er ekki einvörðungu að kynna skoð anir sínar og afla þeim fylgis, en þær eru i seinni tfð að fá á sig, ef svo mætti segja, annan blæ, því að hann leggur æ meiri áherzlu á að búa svo í haginn, að því verki, sem hann hefur unnið svo kapp- samlega að, verði haldið áfram eftir hans dag. Hann vinnur þannig markvisst að því, að Gaulle-isminn iíði ekki undir lok, er hans nýtur ekki leng- ur við, — en hann veit — og fer ekki dult með það, að óð- um líður að lokum valdatlma hans sjálfs. Fréttaritarinn H. Giniger komst svo að orði, er De Gaulle nýlega var heim kominn úr fimm daga ferðalagi um landið: De Gaulle forseti er nú kom- inn aftur til Parísar, eftir að hafa ferðazt undangengna fimm daga um landið, til þess að und- irbúa þjóðina undir að taka við eftirmanni hans. Aldrei fyrr hefur forsetinn Á þessu ferðalagi var De Gaulle að fá þjóðina, segir Gin- iger, til þess að , .aðhyllast Gaulle-isma án De Gaulle", þ. e. að hún sameinaðist til stuðn- ings við stefnu hans áfram, er hann héldi ekki lengur um stjórnvölinn. Forsetakjör á að fara fram 1965, en forsetinn gaf í skyn, að hann mundi ekki bjóða sig fram, heldur skipa eftirmann. Allar ræðurnar á ferðalaginu voru tilmæli um að fallast á þann eftirmann, sem hann skip- aði, þvf að það væri eina leiðin til þess að Gaulle-isminn yrði áfram við lýði í Frakklandi, og hann lýsti yfir hvað eftir ann- að, að hann treysti því að það væri þetta, sem þjóðin vildi. Upplýsingabæklingur um Island mR Islendingavinafélagið í Ham- borg undir formennsku Oswalds Dreyer Eimbcke ræðismanns, byrjaði nýlega- að gefa út fjöl- ritaðar upplýsingar um ísland i samvinnu við Germaniu á ís- landi. Er þarna að finna sitt af hverju fréttnæmt frá íslandi, meðal annars ýmislegt úr þjóð- arbúskapnum. Þá eru birtar fréttir þýzkra dagblaða um ís- lendinga og íslenzk málefni. Meðal þess, sem er í fyrsta upplýsingabréfinu, er stutt grein um 17. júní, þjóðhátíðardaginn, um ýmsa menningarlega starf- semi í Reykjavík að undanförnu, um kosningarnar til Alþingis, fiskirannsóknir íslenzkra sér- fræðinga o. fl. Þetta er góð hugmynd og lofs- vert framtak, sem óhætt er að þakka.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.