Vísir - 25.06.1963, Side 13
V í S IR . Þriðjudagur 25. iúní 1983.
toBiHiwrah rma.miEwja;.*_. ‘ .‘Jt&mm
13
SUMARBÚSTAÐUR TÍL LEIGU
Sumarbústaður í Bústaðahverfi 2 herbergi, eldhús og kjallari, með
olíukyndingu er til leigu gegn húshjálp. Tilboð merkt „Bústaðahverfi"
sendist blaðinu.
I
SKRÚÐGARÐAÚÐUN
Skrúðgarðaúðun, tekið á móti pöntunum í sfma 20884 Ágúst Eiríksson
garðyrkjumaður.
PLÖNTUR TIL SÖLU
Til sölu góðar plöntur af Birki Greni og Lerki og baunatré. Finnur
Árnason garðyrkjumaður Laufásveg 52 Sími 20078.
AFGREIÐSLUSTÚLKUR
Röskar og ábyggilegar afgreiðslustúlkur helzt vanar óskast nú þegar
í kjörbúð. — Heimakjör, Sólheimum 33, sími 37750.
BÍL - VARAHLUTIR
Varahlutir í Ford ’46 dekk 550x18, drif, mótor, gírkassi, mælar, reiðar
og fleira til sölu. Ennfremur drif úr Bradford ’46 ásamt fleiru. Höfða-
borg 41 sími 13976.
SUMARBÚSTAÐUR TIL SÖLU
Sumarbústaður á Stokkseyri til sölu. Sími 16095 og Syðri-Seli Stokks-
eyri.
SUMARDVÖL BARNA
Getum bætt við nokkrum börnum til sumardvalar nú þegar, að Hvammi
í Landssveit, Rangárvallasýslu, sími Meiritunga.
Drangeyjarferð
NEMI - PÍPULAGNIR
17— 20 ára piltur, búsettur í Kópavogi óskast til náms í pípulögnum.
Tilbcð er greini nafn, aldur og menntun, leggist inn á afgreiðslu blaðs-
ins merkt „Pípulagnir”.
BIFVÉLAVIRKJAR
Til sölu mikið af alls kyns verkfærum ásamt 2 verkfæraskápum. Uppl.
að Laugarnesveg 38 kj. eftir kl. 7.
GRAMMOFÓNN - TIL SÖLU
Steró-radiogrammofónn (Grundig) til sölu. Uppl. að Dunhaga 19 kl.
7—9 e.h. í kvöld.
BARNALEIKTÆKI
Smíðum ýmis konar barnaleiktæki, sölt, rennibrautir o. fl. Einnig snúru-
staura, ýmsar gerðir. Athugið úrval sýnishorna. — Málmiðjan, Barða-
vogi 31, sími 20599. Opið til kl. 7 e. h. alla virka daga.
Hreinsum
apaskinn, rússkinn
og aðrar skinnvörur
EFNALAUGIN björg
Sólvollagötu 74. Simi 13237
Bormahlið 6. Sími 23337
Frh. af bls 9:
ert illt í hug, og það var ekki
fyrr en einn bátsverja hrópaði:
„Sjáið þið flekaveiðarnar!" að
upp fyrir mér rann ljós, ný öm-
urleg staðreynd, sem ég hafði
skoðað sem óraunverulega sögu-
lega heimild aftan úr miðalda-
grárri forneskju, en væri löngu
úr sögunni, gleymt og grafið og
það væri gjörsamlega útilokað
og óhugsandi að fyrirbæri sem
þetta þekktist í nútíma þjóðfé-
lagi. Ég hafði lesið um fleka-
veiðar við Drangey í Lærdóms-
listafélagsritunum á seinni hluta
18. aldar og þá voru þær í raun-
inni sjálfsagðar. Ríkti hungur í
landinu og önnur vopn eða aðr-
ar veiðiaðferðir voru ekki til-
tækilegar. Drangey var í þá
daga forðabúr Skagfirðinga og
fuglinn og eggin úr hennikomust
á nær hvert einasta býli í hérað-
inu. Það hefur vafalaust bjarg-
að lífi fjölda fólks fyrr og síð-
ar. Viðhorfin í dag eru önnur.
Hver sem nennir að rétta út
hendina hefur gnægð matfanga
og miðalda veiðiaðferðir og dýra
pyndingar eru ekki lengur rétt-
lætanlegar.
Ómannúðlegar
pyndingar.
Þarna sáum við fuglinn berj-
ast um á flekanum, vitstola af
hræðslu og þrá eftir frelsi, þar
til allur máttur var þrotinn þá
kúrði hann sig niður og hreyfði
sig ekki þótt báturinn kæmi al-
veg upp að flekanum.
Flekaveiðar eru mér vitanlega
hvergi stundaðar nema við
Drangey. í aðaldráttum eru þær
þannig, að þrem flekum er fest
saman, hver þeirra um metri á
lengd og hálfur metri á breidd.
Þeir eru tengdir saman með
þunnum fjölum. Boruð eru göt
á flekana og í gegnum þessi göt
er þrætt snæri. Þegar fuglinn
sezt á flekana og gengur eftir
þeim dregst snærið til og snar-
ast að fótum hans, þannig að
hann situr fastur áður en var-
ir. Áður var það venja að skilja
einn fugl eftir hverju sinni og
var honum ætlað það hlutverk
að lokka aðra fugla til sín á
flekann. Þessi fugl var kallað-
ur bandingi. Nú mun lögum sam
kvæmt vera bannað að hafa
bandingja á flekunum og við
skulum vona að því lagaákvæði
sé hlýtt. Hins vegar sé ég ekki
að það skipti nokkru megin-
máli, hvort þessi eini fugl er
látinn kveljast lengur eða skem-
ur á flekanum á meðan fleka-
veiðar eru yfirleitt leyfðar. Að-
ferðin öll er í einu orði sagt
hroðaleg. Verst af öllu er þó
þegar hvassviðri kemur á. Þá
er ekkj unnt að vitja um flek-
ana, jafnvel ekki dægrum eða
dögum saman, fuglarnir
drukkna, þeir svelta, stundum
slitna fæturnir af þeim eftir
jl l?!JÍ
Sápa fyrir þurra húð
Sápa fyrir feita húð
Sápa fyrir normal húð
Nærir og hreinsar
húðina.
SNYRTIVORUBUÐIN
Laugavegi 76 . Sfmi 11275
snörurnar eða þá að gráðug
veiðibjalla ræðst á vamarlaus-
an fuglinn og rífur hann á hol.
Þótt veður sé sæmilegt eru oft
harðir straumar, ýmist svokall-
að austur- eða vesturfall, við
Drangey og þeir draga fleka-
niðurstöðurnar oft og einatt á
haf, þannig að fuglinn drukknar.
Uppfinning Hólamanna
Sagt er að það hafi verið
Hólasveinar, sem fundu upp
flekaveiðina. Sáu þeir tré eitt
á reki við Drangey og var þétt-
setið svartfugli. Kom þeim þá
til hugar að unnt myndi að
finna upp einhverja þá aðferð,
sem fengi fest fuglinn við tréð.
Flekaveiðar byrjuðu oftast 4
—5 vikur af sumri og stóðu a.
m. k. fram í 12. viku sumars,
stundum lengur, jafnvel fram-
undir slátt. Lengst af var bæði
fugl, og egg, sem aflaðist við
Drangey, eign Hólastóls. Miklu
meiri var eftirtekjan talin af
flekaveiðunum heldur en við
bjargsigið.
Óþriflegar kveðjur.
Litlar heimildir eru um magn
fugla- og eggjatöku við Drangey
fyrr en á síðustu áratugum. Þor-
valdur Thoroddsen getur þess
að árið 1893 hafi nær 162 þús-
und fuglar veiðzt við Drangey
en tveim árum síðar aðeins 47
þúsund. Hver eftirtekjan hefur
orðið hin síðustu ár er mér ekki
kunnugt um, en vafalaust mjög
miklu minni en áður. Bæði er
það að flekaveiðar eru ekki
stundaðar af sama kappi og áð-
ur, enda færri um það, svo líka
hitt að fýl hefur fjölgað ört í
Drangey síðustu áratugina og
það hefur fælt svartfuglinn I
burt. Samlífi svartfugls og fýls
hefur aldrei verið gott. Svart-
fuglinn er einn þrifalegasti fugl
sem um getur, en fýllinn hins
vegar sá sóðalegasti. Einkum
kvarta sigmennirnir undan fýln
um þegar hann gubbar lýsinu
upp úr sér framan í mennina.
Þykja það óþrifalegar kveðjur.
Bílakjör
Nýir bílar,
Commer Cope St.
BIFREIÐALEIGAN,
Bergþórugötu 12. Slmar 13660,
34475 og 36598.
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR
SUMARFERÐ VARÐAR
SUNNUDAGINN 30. JÚNÍ 1963
Ekið verður að botni Kollaf jarðar, að Laxá í Kjós og staðnæmst í Hvalfjarðarbotni. Síðan verður ekið hjá
Ferstiklu um Dragháls að sunnan og að Grund í Skorradal. Frá Grund er svo ekið yfir Skorradalsháls, neð-
anverðan fyrir mynni Flókadals og að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal, þaðan upp Hálsasveit og að Húsa-
felli, þar verður staðnæmst, snæddur miðdegisverður og staðurinn skoðaður. Þá verður ekið áfram að Kal-
manstungu hjá Gilsbakka, um Hvítársíðu og upp Lundareykjadal og Uxahryggi um Þingvelli til Reykja-
víkur. KUNNUR LEIÐSÖGUMAÐUR VERÐUR MEÐ í FÖRINNI.
Farseðlar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu (uppi) og kosta kl. 250,00 (innifalið í verðinu er miðdegisverður
og kvöldverður). - Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu kl. 8 árdegis, stundvíslega.
STJÓRN VARÐAR.
ra
mMiL
œ