Vísir - 28.06.1963, Page 16
Föstudagur 28. jútií 1963.
s
Ur 75
m. hæð
Ljósmyndari Vísis, I. M., klifr-
aði einn sólskinsdaginn fyrir
stuttu upp hinn nýja reykháf,
sem Síldar- og fiskimjölsverk-
smiSjan hefur reist að Kletti.
Reykháfurinn er 75 m. hár og
í góðu veðri sést vítt yfir, eins
og myndin ber með sér.
(sjá myndsjá).
Lektor í
Gautaborg
Eirikur Hreinn Finnbogason,
bókmenntaráðunautur Almenna
bókafélagsins er að láta af störfum
hjá félaginu en hann hefur verið
ráðinn lektor við háskólann í
Gautaborg og mun einnig kenna i
Lundi. Kennslugrein hans er ís-
lezka. Eirikur Hreinn heldur vænt-
anlega utan í ágúst.
;Wv"jW;!v!
t m - r.
Gullleit á Skeiiarársandi
hefst að nýju í ágást
Mikil veiði í Laxá
í Þingeyjarsýslu
Þeir Bergur Lárusson for-
stjóri frá Kirkjubæjarklaustri og
bræður hans hafa sem kunnugt
er haft forgöngu um það, að
leita að farmi Indíafars, sem
strandaði á Skeiðarársandi eftir
miðja 17. öld, en farmurinn var
hinn dýrmætasti að því er ann-
álar herma, silki, gull og annað
verðmæti, og mun farmurinn
einhversstaðar í Skeiðarársandi.
Þeir Klausturbræður hafa
unnið að málinu I um 3 ár og
reynt að finna farminn eða leif-
Samið um kaup og
kjör í vegavinnu
-<•>
Undirritaðir hafa verið nýir
heildarsamningar um kaup og
kjör í vegavinnu milli Alþýðu-
sambands Islands og Vegagerð
ar ríkisins. Hér er um að ræða
sams konar kauptaxta og verka
lýðsfélögin hafa samið um und-
anfarið og falla samningamir úr
gildi 15. okt. i haust.
Samkvæmt nýju samningun-
um hækkar tímakaup í alm.
verkamannavinnu upp í kr. 28,
34, en tímakaup í eftirvinnu
verður 42,51.
Tímakaup bifreiðastjóra og
þeirra sem vinna við loftþrýsti-
tæki verður kr. 29,62, en í eftir-
Framh. á bls. 5
ar hans og var í vor sem leið !
leitað með málmlejtartæ.kjum,.
eins og getið var hér i blaðinu
þá, en þá fundust við mælingar
á sandinum eitthvað sem benti
til, að máimur væri grafinn þar:
á ákveðnum stað.
Þetta verður nú athugað frek-
ara I sumar, en ekki fyrr en
sfðari hluta sumars, eða í ágúst
að því er Bergur Lárusson for-;
stjóri hefir tjáð Vísi, er spurði :
hann um þetta i morgun.
— Eins og kunnugt er, er
selveiðum á sandinum lokið <
fyrst nú og við munum ekki
verða tilbúnir af ýmsum ástæð-
um til frekari aðgerða við ieit-
ina fyrr en seinna I sumar,;
sagði Bergur, og munu aðgerð-;
irnar fyrst í stað að minnsta
kosti beinast að þvi að fá frek- i
ari staðfestingu á staðsetningu!
málmsins, sem við teljum að
fundizt hafi með leitinni í vor.
Það er m. a. vegna erfiðleika
Framh. á bls. 5.
^Jiðustu daga hefur laxveiði
i Laxá í Þingeyjarsýslu verið ó-
venju mikil. Síðustu tvo dagana
hafa veiðzt 22 laxar ,en þeir
veiddust flestir í Laxamýrar-
landi. Frá því á fimmtudag i
síðustu viku til miðvikudagsins
síðasta, veiddust 65 laxar í
ánni á 10 stangi. Er þetta meiri
afli en var á sama tíma í fyrra,
en hins vegar þykja laxarnir
minni nú. Reykvíkingar höfðu
ána i siðustu viku, og veiddust
a.m.k. fjórir 18 punda laxar.
Veiðisæld virðist allmikil þar
nyrðra um þessar mundir, því
4 bátar eru gerðir út frá Húsa-
vik á ufsaveiðar í sumar og
veiða þeir allir vel. 1 gær kom
Sæborg með 20 lestir og eins
Fanney, lfka með 20 lestir. Ufs
inn veiðist norður við Grfmsey
og er stór og fallegur.
Ennþá kyrrsettur
Dómur í máli brezka togarans
Dorade, sem tekinn var að ólög
legum veiðum innan Iandhelg-
innar aðfaranótt miðvikudags,
var kveðinn upp í gærdag. —
Landhelgisbrot togarans þótti
sannað og var skipstjórinn
dæmdur í 260 þús. kr. sekt, og
afli og veiðarfæri gerð upptæk.
I morgun, þegar Visis hafði sam
band við fréttaritara sinn á
Framh. á bls. 5
Fyrir skömmu fór skátaflokk-
ur úr Reykjavik í útilegu aust-
ur fyrir fjall. Þegar skátamir
komu á tjaldstað blasti fyrir
þeim hörmuleg sjón skammt
frá. — Einhverjir ójmkkar
höfðu fundið hjá sér iöngun til
þess að kvelja kind til dauða
með því að hefta hana á báðum
afturfótunum með sterku snæri,
binda við múgavél og skilja
hana síðan þannig eftir. Múga-
vélin stóð nokkuð langt frá
bænum og var þvi bóndanum
ekki kunnugt um þennan fá-
dæma óþokkaskap. Skepnunni
hafði tekizt að slíta af sér ann-
að snærið en það nægði ekki
og hefur kindin án efa barizt
við dauðann langa hríð.