Vísir - 16.07.1963, Side 3
VI S I R . Þriðjudagur 16. júlí 1963. J
Franski sendiherrann Georg Strauss og Madame Strauss rabba við Gyifa Þ. Gíslason menntamálaráðherra.
KAMPA VlN A BASTIUmCINN
A BASTILLUDAGINN var mik-
ið um dýrðir í franska sendi-
ráðinu við Skálholtsstíg.
Þann dag halda Frakkar þjóð-
hátíð sína og f þetta sinn bar
14. júlí upp á sunnudag. Sendi-
herrann, Georg Strauss, hafði
boðið öllum „vinum Frakk-
lands“ eins og það var orðað
í tilkynningu hans til blaðanna.
Og þeir eru margir hér á landi,
eftir þrönginni á sunnudagseft-
irmiðdaginn að dæma.
Sendiherrar erlendra ríkja
komu þar af embættisskyldu —
og ánægju, til þess að heilsa
upp á gamlan kollega og konu
hans, Madame Strauss, sem ný-
komin er til íslands. Ráðherr-
arnir litu inn og röbbuðu um
góða veðrið og hve viðreisnin
gengi vel, embættismenn og
frönskukennarar skeggræddu
um franska menningu, ungt
námsfólk rifjaði upp minning-
arnar frá því í fyrra í París og
nóbelsskáldið okkar setti heims-
borgarasvip á selskapið og skál-
aði upp á frönsku.
Kampavínið frá Reims flaut í
stríðum straumum og um sjö-
Ieytið þegar gestir gengu frá
garði voru menn sammála um
að BastiIIan hefði ti! nokkurs
verið reist — og rifin.
□□□aDaDDDQD
□□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□□
*
□□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
wm ni
/
.................... ÍÍ.J
Þekkingin er engin blekking! segir Háskólarektor, Ármann Snævarr, brosandi við próf. Níels Dungal.
Frú rektors, Valborg Sigurðardóttir, hlýðir á.
Halldór Kiljan Laxness spjallar við frú Þóru, konu rektors Mennta-
Séra Hacking í Landakoti ræðir við Guðmund 1. Guðmundsson utanrlkisráðhcrra.
skólans.