Vísir


Vísir - 19.07.1963, Qupperneq 1

Vísir - 19.07.1963, Qupperneq 1
Samið við smiði og múrara 13 tínta samningafundur Samntngar um kaup og kjör hafa nððst milli vinnuveitenda annars vegar og trésmiða, múr- ara og rakarasveina hins vegar. Samið var á grundvelli þess samkomulags, sem gert hefur veriS við örniur félög 1 sumar, eða um 7.5% almenna kaup- hækkun. Samningafundir við trésmiði stóðu yfir samfleytt í 13 klukkustundir, eða frá þvi kl. 9 í fyrrakvöld til hádegis í gærmorgun. Rakarasveinar munu hafa fengið 16% kauphækkun. Sam- komuiag þetta sem náðst hefur með samninganefndum aðiia er háð samþykki viðkomandi fé- iaga. Tillögur norska íbúðabankastjórans: Birt var í gær merki- leg skýrsla norsks sér- fræðings um íbúðabygg- ingar á íslandi, hvemig afla eigi fjár til þeirra og bæta það byggingar- og lánsfjárfyrirkomulag, sem nú tíðkast. Em nið- urstöður skýrslunnar birtar orðrétt á 9. síðu Vísis í dag. Pað var bankastjóri norska íbúðabankans, Johan Hoffmann, sem kom hingað s. I. haust á vegum tækniaðstoðar Samein- uðu þjóðanna. Kynnti hann sér ýtarlega íslenzk byggingarmál, með þaö fyrir augum að gera tillögur til úrbóta. Hefur han.n nú ritað ýtarlega skýrslu um málið, sem er hin merkilegasta og kennir þar margra grasa. Hef ur Húsnæðismáiastjóm Iátið þýða skýrsluna og kynnir Vísir lesendum stnum hana í dag i blaðinu. Eru hér í fyrsta sinn Iagðar fram ýtarlegar heildartil lögur um það hvernig við getum komið ibúðabyggingamálum okk ar I hagkvæmara horf, og þá sérstaklega merkilegar tillögur um öflun lánsfjár til bygging- anna. Niðurstöður norska bankastjór- ans eru i aðalatriðum þessar: 1. Auka verður íbúða- byggingar á yfirstand andi áratug ef unnt á að vera að fullnægja eftirspum. Leggur sér fræðingurinn til að 196b-1970 verði byggð ar 14—15000 íbúðir. 2. Stofnsettur sé íbúða- banki ríkisins, sem veiti fyrsta veðréttar lán til verulegs hluta þeirra íbúða, sem byggðar eru á hófiegu verði. 3. Útlánsvextir séu smám saman lækkað- ir og lán íbúðabank- ans vérði veitt til langs tíma. 4. Byggingarkostn- aður húsa verði takmarkaður með ströngu eftirliíi. íbúða bankinn synji um lán þegar framkvæmdaá- ætlunin fullnægir ekki kröfum um hag- kvæma skipuíagningu. Þannig verður bygg- ingarkostnaður smám saman lækkaður. Johan Hoffmann banka- stjóri sat norrænu hús- næðismálaráðstefnuna, sem nýlokið er hér í Reykjavík. Hefur Hús- næðismálastjóm nú til- lögur hans til athugunar og mun væntanlega taka afstöðu til þeirra innan nokkurs tíma. f tillögun- um er m. a. gert ráð fyr- ir að Húsnæðismála- stjóm verði lögð niður, en hinn nýi banki taki við hlutverki hennar. Skýrsla bankastjórans nefnist: íbúðabyggingar og fjárframlög til þeirra á íslandi. Týndur í blándþoku i hólfan annusi sólarhring Blaðið í dag Slða3Myndlr og viðtöi frá eldsvoðanum. — 4 Njósnamálin I Þýzka- landi. — 6 Dómkirkja vfgð f Færeyjum. — 7 Myndir úr Skálholts- kirkju. — 9 Byggingartillögur norska sérfræðingsins. Maður á sextugsalðri hefur verið týndur í blindþoku á Arnarvatns heiði í hálfan annan sól- arhring. Hefur litið sem ekkert verið hægt að leiía vegna þokunnar, en í morgun var Flugbjörg- unarsveitin kölluð út og s'dðafólklð í Kerlingar- fjöiluin sömuleiðis verið kvatt til hjálpar. Maðurinn, sem villzt hefur, er Garðar Ólafs- son, tannlæknir í Kefla- vík. Nánari málavextir munu þeir, að Garðar hafði ásamt tveim félögum sínum veriö við veið- ar I Amarvatnl, og voru þeir á bakaleið er þeir tjölduðu við Ullarkvísl. Um nfuleytið f fyrra- kvöld gekk Garðar eitthvað frá og kom ekki aftur. Þegar félag- ar hans urðu uggandi vegna fjarveru Garðars, leituðu þeir aðstoðar á Hveravöllum og gerðu leit meðfram veginum í grennd. Það sem gerði þó og gerir aila leit erfiðari er, að blindþoka er þarna á heiðinni og Iftið sem ekkert skyggni. Er Garðar hafði ekki komiö f leitirnar í gærkvöldi var Slysavarnafélaginu gert aðvart, og var þá þegar auglýst f út- varpinu, og fólk f uppsveitum beðið að gera viðvart, ef Garð- ars yrði vart. 1 morgun var Flugbjörgunar- sveitin kölluð út, og eins var ákveðið að flugvél frá Bimi Pálssyni flygi yfir heiðina strax og létti. Ákveðið var einnig að Framh. á bls. 5

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.