Vísir - 19.07.1963, Side 3
3
V1SIR . Föstudagur 19. júlí 1963.
—inmniTii' •• íiHMimrrrmiTriíTiim""
IHI
UIDSMENN AÐ STARfí
Gunnar varaslökkviliðsstjóri, Erlingur Pálsson, yfirlögregluþjónn og Jón Sigurðsson slökkviliðsstjóri
rseðast við á brunastað.
Eins og í loftárás —
Framhald af bls. 16.
Sigurbjörku Runólfsdóttur, hálf
tíma síðar.
— Ég stóð Uti á svölum og
var að horfa á eldinn, allt í einu
sá ég eitthvað stórt járnstykki
koma fljúgandi á ofsa hraða í
áttina að húsinu. Það kom voða-
legt fát á mig. Ég hljóp inn og
niður stigann, en um leið kall-
aði ég á mömmu og sagði henni
að vara sig. Þegar ég kom út
á tröppur heyrði ég vindgný
fyrir framan mig og stórt gló-
andi járnstykki flaug fram hjá.
Lenti það á girðingunni, braut
upp úr henni, og kastaðist síðan
um 6 m til baka, sagði Sigur-
björk og var hálf-miður sín.
Eins og eftir loftárás
TJÉTT ryrir kl. 4 í nótt hittum
við að máli Þóri verzlunar-
stjóra í Raftækjaverzlun Hall-
dórs Ólafssonar. Verzlunin er
staðsett á horni Njálsgötu og
Rauðarárstígs og var því næst
brunastaðnum.
— Nei, það verður sennilega
ekki opið hjá okkur á morgun.
Engin verzlun í nágrenninu hef-
ur farið eins illa. Staðurinn lít-
ur út eins og eftir loftárás. All-
ar rúður eru brotnar bæði á
framhlið og bakhlið hússins. Ég
er ekki farinn að kanna skemmd
irnar á vörunum, en ég veit að
það er ekki hægt að selja nokk-
uð stóran hluta þeirrasemfyrsta
flokks vöru, sagði Þórir og hélt
áfram að negla fyrir gluggana.
Orð Frimanns
verkstjóra
T>ÉTT fyrir klukkan fjögur i
nótt gengu tveir menn að
brunarústunum. Það voru þeir
Frimann Helgason, verkstjóri og
Þorsteinn Jóhannsson, sem
staddur var f súrstöðinni, þegar
eldurinn gaus upp. Frímann
verkstjóri hefur starfað hjá ís-
aga í 34 .ár og er því orðinn
öllu kunnugur.
— Ég var nýkomin úr ferða-
lagi ofan úr sveit og var stadd-
ur vestur í bæ, þegar ég sá stór-
an reykmökk leggja upp hér á
þessu svæði. Ók ég hingað í
áttina og f fyrstu datt mér einna
helzt í hug að Skátaheimilið
væri að brenna. Þegar ég sá að
svo var ekki beygði ég inn
Rauðarárstíginn. Sá ég þá hvar
ísaga var að brenna og þungur
niður sprenginganna barst að
eyrum mér. Það er erfitt að lýsa
því fyrir verkstjóra, sem veit
hvað getur skeð, þegar eldur
brýzt út, hvernig honum líður,
þegar hann getur búizt við því
að einhverjir af starfsmönnum
fyrirtækisins hafi verið inni f
hinu logandi húsi, sagði Frf-
mann og virti fyrir sér bygging-
una, sem hann hefur starfað i
yfir 30 ár og nú var ein bruna-
rúst.
— Hvað var f þeirri byggingu
sem eldurinn kom upp í?
— Gasverksmiðjan var þar.
Þar býst ég við að hafi ekki
verið færri en 200 til 300 hlaöin
gashylki og einnig voru hylki
úti sem sprungu. Gastankurinn
sprakk ekki, en gasið lak út.
— Telurðu ekki hættulegt að
verksmiðjan skulj vera staðsett
inni í miðjum bænum?
— , Nærtækasta dæmið eru
Norðurlöndin og þar er mér
kunnugt um að verksmiðjur séu
staðsettar inni í miðjum bæ.
Hins vegar er mér kunnugt um
bað, að áhugi hefur verið hjá
forráðamönnum fyrirtækisins
um að flytja verksmiðjuna. Hús-
ið sem brann var bvgat ip'r
og þá var það fyrir u'm >
inn.
— Hvað hefði skeð ef e,,!
urinn hefði k^mI-‘ ( -r.rvv'-
smiðjuna?
— Ég treyst’i mér ekki ti! þes*
að svara þvf, en það hefði getaö
farið mjög illa. En svo heppi-
lega vildi til að vindáttin stóð
ekki að verksmiðjunii. Einnig
tel ég að mikið hafi þurft að
ske til þess að eldur hafi getað
orðið magnaður í súrstöðinni,
því fíð port er milli húsanna og
einnig viðgerðarverkstæði. Þó er
ekki hægt að segja annað en að
við vorum heppnir að ekki varð
meira úr þessu, fyrst svona fór.
Mesti eldsvoðinn
-pRÉTTAMAÐUR Vísis hitti
Jón Sigurðsson, slökkviliðs-
stjóra þar sem hann stjórnaði
liði sínu fyrir framan ísaga í
nótt.
— Þetta er langversti eldur af
þessu tagi sem við höfum átt
við. Það var síðast á strfðsár-
unum þegar um verulegan eld
var að ræða f sambandi við gas,
en þessi eldsvoði er mun meiri,
mér Iiggur við að segja miklu
meiri, en þá var. Hér á staðnum
starfa 50 slökkviliðsmenn og við
erum hér með 7 bfla og tvær
dælur. Vatn er hér nóg og góð-
ur þrýstingur er á því. Starf
okkar beindist fyrst að því að
verja gasstöðina frá súrstöðinni,
og einna bezt virtist aðstaðan
að norðan til siökkvistarfsins.
Ég vil sérstaklega geta þess að
öll stjórn lögreglunnar á staðn-
um er mjög góð og hefur það
flýtt mikið fyrir slökkvistarf-
inu.
Skátarnir
stóðu sig vel
pLESTIR af yfirmönnum lög-
reglunnar mættu á staðnum
og hitti fréttamaður Vísis Erling
Pálsson snöggvast að máli.
— Allt lögreglulið borgarinn-
ar var boðað út. Strax og okk-
ur barst tilkynningin um brun-
inn hé’.du allir okkar talstöðva-
bilar á vettvang og það leið ekki
langur tímj þar til mestur hluti
,!ð-.ins var mættur. Það ber að
geta þess sérstaklega að skáti
arnir hafa staðið sig mjög ve)
hér.
Frímann Helgason verkstjóri í ísaga sést hér til vinstri á myndinni,
ásamt Þorsteini Jóhannssyni, sem hélt til inni í súrstöðir.ni meðan
eldur Hir mestur í gasstöðinni.
Mikið lán réði því að Sigurbjörk varð ekki fyrlr hylkinu.