Vísir - 19.07.1963, Side 8
8
V í S I R . Föstudagur 19. júlí 1963.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgréiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
1 lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 l(nur).
'^’-entsmiðja '7teis. — Edda h.f.
íbúða banki
Skýrsla hins norska bankastjóra um íslenzk íbúða-
mál er í senn nokkur áfellisdómur um íslenzk bygg-
ingamál síðustu áratugina og einnig vísir fram á veg-
inn til bættra aðgjörða.
Bankastjórinn bendir réttilega á að ekki hefir
verið nægilegt aðstreymi lánsfjár til íbúðabygginga,
vextir af íbúðalánum hafa verið óeðlilega háir og lán-
veitingar hafa verið illa samræmdar. Á öll þessi atriði
hefir verið drepið hér í Vísi, og orsakimar einnig rakt-
ar, sem að baki liggja, því enginn skyldi halda, að
þessi atriði hafi ekki fyrr verið ljós. En skýrsla banka-
stjórans undirstrikar nauðsyn þess að úr þeim sé bætt
sem allra fyrst, og gefur hún því máli góðan byr.
Tillögur hans til úrbóta em hinar athyglisverðustu,
og þá fyrst og fremst tillögur um breytt skipulag í
byggingamálunum. Þær verða tiltölulega auðveldlega
framkvæmdar, en hitt er aftur erfiðara, að finna í
einni svipan mjög aukið fjármagn til íbúðabygginga.
Kjaminn í tillögunum er stofnun íbúðabanka, sem
taki að sér hlutverk Húsnæðismálastjómar og lána-
sjóðanna sumra. Norðmenn hafa tekið upp þessa skip-
an hjá sér og telja hana hafa reynzt vel. Aðalkostur-
inn er að lánin yrðu þá á einni hendi og einnig yrðu
væntanlega settar strangari reglur um hagsýni í bygg-
ingum, en þær skortir nú mjög, eins og nýlega var
bent á hér I forystugrein.
Á næstunni verða þessar tillögur til umræðu. Þær
munu koma róti á þessi mál og er það vel. Lækkun
byggingarkostnaðar er ein raunhæfasta kjarabót al-
mennings. Það má ekkert til spara svo hún verði sem
víðtækust. , _
Lifandi kirkja
Á sunnudaginn heldur þjóðin enn Skálholtshátíð
og nú verður hin nýja dómkirkja vígð.
Allt teiknar til þess, að í hugum þeirra þúsunda,
sem þangað koma eftir tvo daga, verði hátíðin þó
fyrst og fremst sögulegs eðlis, frémur en trúarleg.
Þjóðkirkjan á sorglega litlar rætur í hugum þjóðar-
innar. Þjóðin og kirkjan hafa smám saman verið að
fjarlægjast á undanförnum áratugum, illu heilli. Nokk-
ur merki þess hafa þó sézt upp á síðkastið, að hér sé
að verða breyting á. Æskulýðsstarfsemi þjóðkirkjunn-
ar er hér heilbrigður vottur og einnig styrkara og ein-
arðara starf margra þjóna hennar úti á meðal fólksins.
Það færi vel ,ef vígsla Skálholtskirkju gæti orðið
upphafið að endurvakningu í þessum efnum. Kirkjan
þarf að vera lifandi afl og laga sig að kröfum hinna
nýju tima, ef hún á að ná til þjóðarinnar. Enda kennir
sjálf kirkjan að trúin sé ávallt ný. Þar í er fólgin lyk-
illinn að huga þjóðarinnar.
Sumarhótelið
að BUÐUM
Nú þessar vikumar,
þegar Reykvíkingar í
sínum sumarfríum og
helgarferðum leggja leið
sína út úr borginni í leit
að fögrum stöðum, í leit
frá allri mannþrönginni,
TVTú er þetta ekki skrifað í
áróðursskyni fyrir þá Snæ-
fellinga, enda hafa þeir vfst hug
á flestu öðru en auknum ferða-
mannastraumi. Staðreyndin er
einfaldlega sú, að Snæfellsnesið
hrífur hvern þann sem þangað
kemur.
Ofan á þetta bætist, að mitt
í allri fegurðinni, innan um
ætíð hefur verið fullsetið hvert
rúm í hótelinu, og auk þess hef-
ur þar matazt fjöldi fólks, sem
búið hefur í tjöldum í nágrenn-
inu.
A llt frá 1956 hefur Lóa Krist-
jánsdóttir, kona Friðsteins
Jónssonar veitingamanns, verið
Sumarhótelið að Búðum.
þá verður það að teljast
í meira lagi undarlegt,
hversu þeim ferðum er
hagað og hvert haldið er.
Yfirleitt er straumur-
inn suður á bóginn, þ. e.
Þingvellir, Laugarvatn,
Álftavatn, ellegar aðrir
staðir í grennd við höf-
uðstaðinn. En ef Reyk-
víkingar legðu á sig
tveggja tíma keyrslu til
viðbótar, þ. e. ækju í
fimm tíma, Hvalfjörð-
inn, Borgarfjörðinn og
upp Mýramar, síðan
vestur Snæfellsnesið, þá
uppgötvuðu þeir ekki að
eins hentuga helgarferð,
heldur einnig eitt falleg-
asta hérað landsins.
— hentugur
og skemmti-
legur gisti-
stuður
hraunborgirnar, með Faxaflóann
á aðra hönd og Snæfellsnesfjöll
in á hina, stendur lltið heimilis-
legt hótel — sumarhótelið að
Búðum.
AF SNÆFELLSNESI
Hótel hefur verið þarna á
staðnum allt frá árinu 1948, en
það er ekki fyrr en seinni árin
sem augu fólks hafa opnazt fyrir
þvl, hversu ákjósanlegur staður
Búðir eru til gistingar. Hefur
svo verið síðustu sumrin, að
hótelstýra að Búðum og rekið
hótelið með miklum myndar-
skap.
Þegar Vísismenn gistu hótelið
1 síðustu viku, sagði Lóa, að
það sem af væri sumrinu hefði
ávallt verið fullt hjá henni og
mikil eftirspurn eftir gistingu I
allt sumar. Við höfum hótelið
opið í tæpa þrjá mánuði í sum-
ar, frá 20. júní til mánaðamót-
anna ágúst—september. Tekur
hótelið 30—40 manns, en alls
eru þar 15 herbergi. Eru mörg
herbergjanna þannig útbúin, að
hentugt er fyrir fjölskyldur að
búa í hótelinu. Mest er þetta
sama fólkið sem kemur hér aft-
Frh. á bls. 7.
* 'i*
Gamla „búðin“ Clausensverzlunarinnar.