Vísir - 24.07.1963, Page 3
V1SIR . Mlðvikudagur 24. júlí 1963.
3
Sfldaraflinn á þessu sumri er
meir en þriðjungi minni en á
sama tima 1 fyrra. 1 fyrradag
var búið að veiða um 500 þús-
und mál og tunnur, en á sama
tíma í fyrra 850 þús. mál og
tunnur. En þótt aflirm sé minni,
er þó söltun sfldarinnar meiri
en í fyrra. Og í vikulokin var
búið að salta f 170 þús. tunnur.
Við söltunina eru mörg hand-
tökin, en þau eru iitiu færri við
að afla sfldarinnar.
Við birtum hér f dag tvær nýj-
ar síldarmyndir frá Seyðisfirði,
sem fréttamaður okkar þar og
ljósmyndarl, Ólafur Björnsson,
tók. Á efri myndinni er verið að
landa úr GuIIver NS 12 á Seyð-
isfirði.
Skipstjórinn, Jón Kr. Pálsson,
stjórnar löndunirmi.
Á efri myndinni er Arnarfell-
ið að koma með tunnur til Seyð-
isfjarðar og risa tunnustaflarnir
jafnhátt strompi skipsins.
NÝJAR SllDARM YNDIR
:
ireiðablik —
Framhald af bls. 2.
ar, haldið mjög vel saman og ríkt
hefur góður félagsandi. Okkur datt
aldrei í hug að við kæmumst í úr-
slit, en við vorum ákveðnir f að
gera okkar bezta, sagði Guðmund-
ur.
— Hvernig eru aðstæður til
knattspyrnuæfinga f Kópavogi?
— Ég þarf ekki að nota fögur
’vsingarorð til þess að segja frá
seim. En í hreinskilni sagt eru
bær mjög lélegar í dag. Ekki þarf
að kvart yfir búningsklefunum
og böðum, en völlurinn er allt of
iftill. Undanfarið höfum við æft
töluvert á túni fyrir neðan Fffu-
hvammsveg, sem bærinn hefur á
leigu. Þar eru engin mörk og túnið
langt frá þvf að vera góður knatt-
spyrnuvöllur.
— Gerið þið ykkur ekki vonir
um að aðstaða til knattspyrnuiðk-
ana f Kópavogi muni batna á næst-
unni?
— Jú, að sjálfsögðu vonum við
það. En það virðist einhver deyfð
rfkja fyrir þessum málum hjá ráða-
mönnum. Ákveðið var að stækka
völlinn í vor og.fyrir strákana var
lagt ákveðið verk til þess að vinna
í sjálfboðavinnu, síðan átti bærinn
að taka við. Strákarnir unnu sitt
verk, en ekkert hefur orðið úr fram
kvæmdum af bæjarins hálfu.
— Þrátt fyrir erfiðar aðstæður
þá eruð þið ákveðnir í að sigra II.
deildina?
— Nei, það máttu alls ekki hafa
eftir mér. Við erum langt frá því
að vera öruggir um að sigra, en
við erum ákveðnir í að gera okkar
bezta og æfa vel.
Haukar til Færeyja
Knattspyrnufélagið „Haukar" f
Hafnarfirði fór 19. þ. m. f keppnis-
för til Færeyja með Dronning Al-
exandrine. Keppt verður í knatt-
spyrnu og handknattleik karla. —
ICnattspyrnuflokkurinn fór beint til
Kiakksvíkur í boði Iþróttafélags
Klakksvikur. Þar leika þeir tvo leiki
við gestgjafana. Síðan fara þeir til
Þórshafnar og leika þar einn eða
tvo leiki.
Handknattleiksmennirnir fara til
Þórshafnar í boði Kyndils. Þeir
leika þrjá leiki, 1 f Þórshöfn, 1 f
Sandavogi og 1 í Vestmanna.
Eins og áður segir koma knatt-
spyrnumennirnir til Þórshafnar eft-
ir að þeir eru búnir að keppa í
Klakksvík, á Ólafsvökuna, en hún
hefst 27. júlí. Lagt verður af stað
heim 30. júlí. Þátttakendur f för-
inni eru alls 28. Fararstjóri er Eg-
ill Egilsson.
1 Þórshöfn eru H. B. og B. 36
gestgjafar.
Syndið
200 metrana