Vísir - 15.08.1963, Blaðsíða 1
v. .••;VV ■'> ,.' •• ‘ •>•vi..
VISIB
53. árg. — Fimmtudagur 15. ágúst 1963. — 176. tbl.
Frönsk stúlka villt í þoku á
Mývatnsöræhm
Frönsk stúlka, sem dvalizt ur, lenti i ævintýri á Mývatns-
hefur hér sem snyrtisérfræðing- öræfum, villtist þar í þoku frá
bíl sem hún var með og varð
að ganga um 15 km. Ieið áður
en hún mætti öðrum bíl, sem
tók hana upp í og flutti hana
að Reynihiíð við Mývatn.
Þetta gerðist í niðaþoku, sem
Framh. á bls. 5
Utanríkisráðherra í morgun:
CNGAR KAFBÁTA CBA HCR■
SXIPASTÖD VAR í HVALFIRÐI
— Það er tilhæfulaust
með öllu að í ráði sé að
gera herskipa- og kaf-
bátastöð í Hvalfirði,
sagði utanríkisráðherra
Guðmundur í. Guð-
mundsson í viðtali við
Vísi í morgun.
Blaðið snéri sér til ráðherrans
vegna forsiðufregna í Tímanum
og Þjóðviljanum í morgun þar
sem greint er frá því að slík á-
form séu á döfinni.
Ráðherrann skýrði Vísi svo
frá að hér sé eingöngu um að
ræða byggingu olíugeyma fyrir
Nato, sem á verði geymdar vara
birgðir. Atlantshafsfloti banda-
lagsins muni ekki taka olíu í
Hvalfirði fremur en hingað til
og skipaferðir munu ekki auk-
ast vegna þessara framkvæmda.
Einu skipaferðirnar sem verða
um fjörðinn í þessu tilefni eru
olíuskip sem flytja olíuna til og
frá geymunum.
Engin breyting verður á olíu-
stöðinni önnur en sú að þar
verður unnt að geyma meira
magn en hingað til hefir verið
sagði ráðherrann. Allar fuilyrð-
ingar um herskipastöðvar og kaf
bátalægi f þessu sambandi cru
gripnar gjörsamlega úr lausu
lofti.
Á geymunum verður geymd •
olía og benzín eins og verið hef
ir hingað til í Hvalfirði. Birgðirn
ar hafa venið geymdar þar sem
varabirgðir nokkur ár, en síðan
fluttar burtu og endumýjaðar.
Þeir geymar, sem nú em f firð-
inum og Olíufélagið á, em orðn
ir gamlir og hyggst félagið
sjálft nú endumýja þá. Auk
þessa er um byggingu hinna
nýju geyma að ræða fyrir At-
lantshafsbandalagið, en Vfsir
greindi frá því f gær að þeir
myndu verða 20-28 talsins. Þá
verður væntanlega byggð olfu-
bryggja við geymana og legu-
færi í firðinum.
Um engar aðrar framkvæmdir
er þama að ræða og eins og
fram kemur f áðurgreindum
ummælum utanríkisráðherra
breytist hlutverk birgðastöðvar
innar ekki á neinn hátt við fram
kvæmdirnar. Þar er einungis um
stækkun hennar að ræða.
Segjast ekki hafa
ætlað að fremja
tryggingarsvik
Piltamir þrír sem gerðu tilraun
til að sökkva þilfarsbátnum Guð-
rúnu á Skagafirði fyrir nokkrum
dögum neita því ákveðið að þeir
hafi verið að gera tilraun til vá-
tryggingarsvika. Þeir gefa þá
skýringu, að þeir hafi verið ráð-
villtir og niðurdregnir vegna þess
hve Iftið þeir báru úr býtum af
veiðum á bátnum og hafi þeir bara
i hugsunarleysi ætlað sér að losna
við hann með einhverjum hætti.
Guðrún er um 6 tonna þilfars-
bátur og piltarnir, sem fluttu ný-
lega f héraðið og búa á bæ einum
f Laxárdal gerðu hann út frá
Sauðárkróki. En reiðileysi var á
þeirri útgerð og afli lítill sem
enginn. Þeir eiga ekki bátinn,
heldur bróðir eins þeirra. Hann
hefur einnig verið yfirheyrður og
neitar því að hafa átt nokkurn
þátt í gerðum þeirra
Báturinn er tryggður hjá vél-
bátatryggingu ísafjarðar og mun
tryggingarupphæðin vera um 150
þúsund krónur. Skömmu áður en
atvik það gerðist, sem nú komst
upp um hafði honum verið bjargað
af vélbátnum Andvara Þá var um
vélarbilun að ræða og var Guðrúnu
þá að reka upp við Selnes. Hugs-
anlegt er, að þá hafi einnig verið
um tilraun að ræða til að granda
bátnum. Nú krefjast bæði Andvara-
menn og Adams-menn, sem björg-
uðu bátnum í seinna skiptið björg-
unarlauna.
Málið hefur verið sent saksókn-
aratil athugunar.
Frú Gestrún Gestsdóttir við gluggann, sem stolið var úr. Til hægri sést hurðin, en glerið var skorlð
úr henni með glerskerara.
Stórborgarbragur reykvískra þjófa
skartgripaverzlun Jóns Sigmundssonar
Ölaðíð í dag
Síða 3. Þórsmörk.
4. Viðtal viö Barry
Goldwater
8. Lestarránið mikla.
9. „Kristur i dag“.
Biskupsritarí skrifar
frá Helsingfors.
Innbrotið í
„Það var enginn viðvanings-
bragur á þessu“ sagði frú Gest-
rún Gestsdóttir um innbrotið,
sem framið var f skartgripa-
verzlun Jóns Sigmundssonar að
Laugavegi 8 fyrir tæplega hálf-
um mánuði. Hún hefur unnið
þar við afgreiðslustörf sl. 17
ár og sagði, að aldrei hefði neitt
þvílíkt komið fyrir áður.
„Málið er í rannsólui og lítið
hægt um það að segja að svo
stöddu“, hélt hún áfram. „En
þetta hefur verið geysilegt tap,
líklega eitthvað á fimmta hundr-
að þúsund krónur að verð-
mæti“.
„Hverju var stolið?"
„öllum úrum, sem til voru
í verzluninni — 89 nýjum og
u. þ. b. 80 viðgerðum — og
ennfremur miklu magni af
fixo-flex keðjum fyrir bæði
dömur og herra, en verðmæti
þeirra er metið á ca. kr.
100,000.00“.
„Voru engir skartgripir
teknir?“
„Nei, ekkert annað en þetta“.
„Hver uppgötvaði þjófnað-
inn?“
„Það var einn úrsmiðurinn
okkar, Símon Ragnarsson. Hann
kom um hálfníuleytið til vinnu
og varð litið fram i búðina og
Framh. á bls. 5
l