Vísir - 15.08.1963, Qupperneq 6
V1 S IR . Fimmtudagur 15. ágúst 1963,
6
'eimdðUw*
Gjör rétt —
Þol ei órétt
Ritstjórar Ásgeir Thoroddsen og Ragnar Kjartansson
Islenzkar kvikmyndir
á erlendum markaði?
Hvenær þrýstir
Mao á hnappinn?
Rabbað við Lúðvík Karlsson
kvikmyndagerðarmann
Nýlega er kominn frá London
ungur og þekktur Heimdelling-
ur, Lúðvik Karlsson. Hann hef-
ur lagt stund á kvikmyndagerð
við London School of Film
Technique um skeið.
Siðunni þótti forvitnilegt að
rabba örlítið við hann um nám-
ið og kvikmyndagerð.
Telur þú, Lúðvik, að grund-
völlur sé fyrir ísienzkan kvik-
myndalðnað?
„Já, það er ég sannfærður um.
Við íslendingar eigum afbragðs
góða leikara, leikstjóra á heims-
mælikvarða, yndislegt landslag
og hvað getur maður óskað sér
meir?“
En hvað um markaðs- og r'jár
hagshliðina?
„Ef við tökum fjárhagshiið-
ina fyrst þá er okkur í hag að
vera að byrja á kvikmyndagerð,
þegar tæknihlið málsins hjá öðr
um þjóðum er komin svo langt,
að við getum Iært ómetanlega
lexíu af þeirra mistökum og
þurfum ekki að eyða tíma og
peningum í að gera mistökin
sjálfir. Sorglega hlið málsins er
sú, að ekki virðist vera mikil
trú á því hér heima að við ís-
lendingar getum gert leikara
okkar og land að fjárhagslegri
tekjulind með öflun gjaldeyris.
Sem dæmi um gjaldeyristekjur
af kvikmyndaiðnaði má nefna,
að Brigitte Bardot hin franska
gefur állka mikinn gjaldeyri af
sér og allur bílaiðnaður í því
ágæta landi.
Um markaðshliðina vil ég það
eitt segja, að öðrum hefur tek-
izt að afla markaða fyrir mynd-
ir slnar og því skyldi okkur
ekki takast það líka.
En við erum nú ekki nema
180.000, sem tala okkar ylhýra
mál á móti öllum þeim milljón-
um, sem tala móður mál Brigitte
Bardot gerir það ekki strik í
reikninginn?
Lúðvik Karlsson
„Nei, alls ekki! Grískar, ítalsk
ar, þýzkar og franskar myndir
eru almennt sýndar í Bretiandi
og á Norðurlöndum með skýr-
ingartextum. Myndir með ensku
tali, sem sýndar eru I Þýzka-
landi og ítalfu, eru „dubbaðar"
þ. e. talið er sett inn á máli
þeirra þjóða, þar sem myndin
er sýnd. Þannig efast ég ekki
um að Þjóðverjar og Italir láti
sér lynda að horfa á fslenzkar
jafnt sem enskar myndir með
þýzku og ítölsku tali. Kostnað-
urinn við að „dubba" er hverf-
andi þegar þess er gætt, hve
Veiðiferð í Reyðorvotn
n.k. Inugnrdng
Laugardaginn 17. ágúst
efnir Heimdallur F.U.S.
til veiðiferðar í Reyðar-
vatn. Lagt verður af stað
frá Valhöll við Suður-
götu 39 kl. 2 e. h. og kom
ið til baka að kvöldi
sunnudags.
Leiðin að Reyðarvatni
liggur um Þingvelli og
Uxahryggjaveg og er um
1 Vz tíma akstur þangað.
Að öllum jafnaði er
mikil veiði í vatninu, en
veiðileyfum verður
mjög stillt í hóf.
Nánari upplýsingar
um ferðina í síma 17100
-18192.
Heimdallur F.U.S.
stóran markað myndin kemst
inn á.
Norðurlönd myndu eflaiut
samþykkja okkar kvikmyndir
jafnt sem annarra þjóða með
skýringartextum“.
Viltu þá ekki leggja orð í
belg um 79 af stöðinni eins
og flestir aðrir hafa þegar gert?
„Aðstandendur þeirrar mynd-
arhafa sýnt og sannað betur en
rakið verður f st./.tu blaðavið-
tali hvað hægt er að gera ef
áhugi og fjármagn er fyrir
hendi. Um kvikmyndasöguna vil
ég sem fæst segja en mitt álit
er, að hin tekniska hlið mynd-
arinnar hafi ekki verið nýtt ens
og möguleikar voru til. Listræna
túlkun var þar ekki að finna."
Hver eru tengsl milli kvik-
myndagerðar og töku fyrir sjón-
varp?
„Eg mundi gizka á, að meira
en helmingur dagskrár beztu
sjónvarpsstöðvanna sé kvik-
myndaður fyrst og sýndur sið-
an f sjónvarpi af filmum. Lög-
mái fyrir kvikmyndatöku f sjón
varpsskyni eru að mestu Ieyti
hin sömu og lögmál kvikmynda-
töku fyrir kvikmyndahús.
Hugsanleg tilkoma íslenzks
sjónvarps hlýtur þvf að vekja
miklar vonir og eftirvæntingu
og verða lyftistöng fyrir kvik-
myndagerð. Sjónvarp mundi
geta veitt þeim, sem leggja vilja
stund á kvikmyndagerð hér á
Iandi atvinnu fyrstu og erfið-
ustu árin og einmitt á milli
verkefna, þvf það á sennilega
nokkuð Iangt f land að menn
geti unnið fyrir sér með kvik-
myndagerð eingöngu, sökum
þröngsýni og áhugaleysis ráð-
andi aðila".
Hvemig væri að við lcæmum
nú að þvi, sem við hefðum átt
að byrja á að tala um, þ. e.
hvemig náminu við skóiann var
hagað?
„Krafizt er prófs samsvarandi
fsl. stúdentsprófi til inngöngu í
skólann, en þð munu hafa verið
veittar örfáar undanþágur. Ég
komst inn aðallega vegna prófs
sem ég lauk frá Cambridge-há-
skólanum og þeirrar undirbún-
ingsmenntunar, sem ég hafði áð
ur fengið f Englandi.
Skólinn hafði á að skipa
nokkrum 16 mm. kvikmynda-
tökuvélum og þremur eða fjór-
um 35 mm. vélum, talsverðu
magni af sviðsljósum, eigin
„studio", myrkvastofum, „klipp
ingarstofu" og eigin sýningar-
sal. Við vorum fyrst leiddir f
gegnum undur þeirrar tækni,
sem gerir fært að festa myndir
á filmu og sýna þær sfðan á
tjaldi fólki til ánægju og me.tr-
ingarauka. Síðan kom nokkur
skammtur af„litteratur“ og
kvikmyndasögu. Þá gafst mönn
um kostur á æfingu og þjálfun
Framh. á 10. sfðu.
Rauða-Kína undirbýr nú hvað
óðast fyrstu atómsprengjutilraun
sína. Sérfræðingar halda þvf fram
að það sé aðeins spuming um
nokkra mánuði hvenær fyrsta
tilraunin verður gerð.
Það sem Kínverjar binda mest-
ar vonir við til að byrja með eru
áhrif sprengjunnar, sem þeir
hyggjast notfæra sem sálfræðilegt
og stjórnmálalegt vopn sér til
framdráttar í Asfu og innan
kommúnistablokkarinnar. Þá er
einnig talið að þeir hyggist með
þessum auknu áhrifum troða sér
inn f samtök Sameinuðu þjóðanna.
Erfitt er þó að sjá hvaða erindi
slíkir stríðsæsingamenn eiga með-
al Sameinuðu þjóðanna og ekui
verða Kínverjar sannir sjálfum
sér er að undirritun sáttmála S.
þj. kemur, en þar segir m. a.:
„Vér, hinar Sameinuðu þjóðir, er-
um staðráðnar í að bjarga kom-
andi kynslóðum undan hörmung-
tun ðfriðar. .sem tvisvar á einum
manrisaldri hefur leitt ósegjanleg-
ar þjáningar yfir mannkynið" —
Svo sannarlega samrýmist petta
ekki yfirlýstri stefnu Kfna um að
kommúnisminn hljóti að útrýma
hinu vestrænu þjóðskipulagi með
strfði.
Þrátt fyrir áframhaldandi til-
raunir Kínverja telja sérfræðingar
litla ástæðu til að óttast, að
minnsta kosti fyrst um sinn. —
Rauða-Kína er nærri tveimur ára-
tugum og 40.000 sprengjum að
baki Bandaríkjunum f vígbúnaði
og mestar Iíkur á að þeim tak-
ist ekki að ná Bandaríkjunum og
Rússum.
Talið er að vígbúnaður Kín-
verja komi til með að fylgja eftir-
farandi tfmaáætlun:
1963:
Fyrsta kfnverska atomsprengju-
tilraunin gerð, svipuð þeirri,
sem Bandarfkin sprengdu fyrir
18 árum f Alamogordo.
1970:
Verða búnir að koma sér upp
atómvopnabirgðum á borð við
það sem Bretland hafði komið
sér upp fyrir þó nokkuð mörg-
um árum sfðan.
1975:
Koma til með að eiga kjam-
orkusprengjur og meðallang-
drægar eldflaugar. — Árið
1975 verða þeir þó langt frá
því marki, sem Rússar hafa náð
í dag.
1980:
FuIIkomið kjamorkuvopnabúr
með langdrægum eldflaugum.
— Bandarikin munu á því stigi
hafa fullkomin vamarvopn
gegn eldflaugum á borð við þær
kfnversku og hafa yfir að ráða
ýmiss konar geimvopnum.
Mao
Af þessari tímaáætlun má
draga þá niðurstöðu, að ekki
þurfi beint að hræðast tilraunir
Kínverja. hvað snertir yfirlýsta
stefnu þeirra að grafa hið vest-
reena þjóðskipulag f rústum atóm-
styrjaldar. — Enn eru þeir mörg-
um árum á eftir Frökkum hvað
þá annað.
Fylgjast verður þó nákvæmlega
með gangi mála í Rauða-Kfna og
hafa verður hugfast að ef kjam-
orkuvopn á borð við vopn Rússa
væru til staðar í Kína myndu
þeirra skv. yfirlýstri stefnu sinni
leggja út í 3. heimsstyrjöldina „f
nafni friðar og til alræðis öreig-
anna“.
Margsinnis hefur það komið
fram f blöðum í Kína, þar á með-
al í Rauðu stjömunni, málgagni
stjómarinnar, að Kfnverjar þurfi
ekkert að óttast hvað atómstyrj-
öld snertir, því aðeins 400.000.000
(FJÖGUR HUNDRUÐ MILI.JÓN-
IR) öreiga myndu láta iífiðl! Jú,
og eftir væru þá 300 milljónir
Kínverja, er vill segja, að bvf
óbreyttu verði Kína eina stórveldi
heimsins og geti á rústum hins
vestræna þjóðskipulags hafið
byggingu hins eina og sanna kín-
verska kommúnisma.
Kínversk sprengja mun ekki
útrýma vestrænu þjóðskipulagi
fyrst um sinn, þrútt fyrir fullan
vilja Mao's og féSaga hairs