Vísir - 19.08.1963, Blaðsíða 2

Vísir - 19.08.1963, Blaðsíða 2
V í SIR . Laugardagur 17. ágúst 196?. 2 Fram kærir leikinn við Hafnarfjörð Tvö ný andlit sáust í kappliði Vals og Akraness í gær. Gunnlaugur Hjálmarsson, handknattleiks- maður úr ÍR, lék í marki Vals og Þórður Þórðarson lék miðherja hjá ÍA. Báðir settu svip á leik- inn og hér sjást kappamir kljást um knöttinn. Á föstudagskvöMið léku Fram B og Hafnarfjörður síðari leik sinn £ fyrstu umferð bikarkeppninnar. Fyrri leikurinn endaði jafntefli 2:2 eftir framlengingu, en þá flautaði dómarinn leikinn af í stað þess að hefja vítaspymukeppnina, en samkvæmt nýjum lögum um bikar- keppnina, skuiu liðin sem eru jöfn eftir framlengingu 2x15 taka 5 víta- spyrnur, sem séu teknar af jafn- mörgum leikmönnum liðanna. Þetta var ekki gert í leik Fram og iBH og varð þvf að leika leikinn að nýju. Leikurinn var illa leikinn en fjör ugur, bæði liðin áttu fjölda tæki- færa í leiknum, en þeim tókst ekki að gera mark í fyrri hálfleik. Það var ekki fyrr en 20 mín. voru liðn- ar á síðari hálfleik að Bergþór gerði 1. mark IBH með fallegu skoti. Fram skoraðj sjálfsmark stuttu síð- ar og ÍBH bætti 3. markinu á list- ann með marki frá Ásgeiri á síð- ustu mínútu leiksins. Fram gerði að vísu mark í leikn- um, sem línuvörðurinn og dómar- inn sáu hvorugur. Hár svifbolti kom á mark og í pressu fór bolt- inn langt inn fyrir línu, en mark- verðinum tókst að slá hann út. Akumesingar eiga enn von eftir sigur gegn Val Akranes vann Val 3:1 Það voru „gömlu menn- imir“ í liði Akraness, sem fyrst og fremst hófu liðið upp til sigurs í leiknum gegn Val í 1. deild á Laug- ardalsvelli í gærdag, því enda þótt enginn þeirra væri í 1. flokks ástandi varðandi æfingar, var ótví rætt mikil stoð í þeim fyr- ir hina yngri menn liðsins. Með 3—1 sigri Akraness, hafa þeir enn möguleika á sigri i mótinu, en sigur KR er þó að flestra áliti lík- legri, enda hefur liðið sýnt hvað bezta leiki að undan- fömu. Það var rok og af og til rign- ingarúði á Laugardalsvelli í gær- dag, er leikurinn fór fram. Þetta setti svip sinn á leikinn sem von- legt var og snörp gola af suðri veitti liðunum byr sinn hvorn hálf- leikinn. Þannig áttu Valsmenn jafn an lei'k gegn Akranesi í fyrri hálf- leik, þar sem Akurnesingar réðu lögum og lofum í þeim síðari. ★ ★ Valsmenn höfðu reynt í aðeins 10 mínútur, er þeir skor- uðu fyrsta og eina mark sltt. Bergsveinn Alfonsson skoraði þá Iaglegt og óvænt mark af víta- teigslínu. Hanil fékk óvæntan bolta í færi sem leit út fyrir að vera saklaust. Hann notfærði sér þetta til hins ýtrasta og sendi boltann í bláhorn marksins, en Helgi var of seinn niður og boltinn rann undir hann í net- ið. Ógurleg öskur kváðu við í stúkunni, ekki sízt frá Agli rak- ara, sem menn spurðu hvort hann hefðl skipt um félag, cn eins og vitað er hefði sigur Vals í þessum Ieik ásamt sigri KR i kvöld þýtt að KR hefði fengið íslandstignina í kvöld og ferðin til Akureyrar n. k. sunnudag því orðið „Iystireisa“, þar eð stigin hefðu ekki breytt neinu fyrir KR. Sú varð þó ekki raunin. Bæði lið áttu hættuleg færi í fyrri hálfleik, — Akumesingar þó fleiri og í eitt skipti hefði Haukur Óskarsson, annars góð- ur dómari þessa ieiks, átt að dæma vítaspymu fyrir grófa hindrun Áma Njálssonar á Þórð Þórðarson innan vítateigs. Jöfnun Akraness var að þakka siglingafræðiskyni hins ágæta innherja Skúla Hákonarsonar, sem þarna bætti við markatölu sína, en hann er nú markhæstur í I, deild. Skúli komst £ þokka- legt færi rétt innan vítateigs og notfærði vindinn, boltinn þaut gegnum loftið í stórum boga, stefndi framhjá útréttum hönd- um Gunnlaugs Hjálmarssonar í Valsmarkinu og beygði upp í hægra hornið í stöngina og inn, stórfallegt mark og vindurinn notaður skynsamlega. Það lá nú i loftinu að Skaga- menn áttu að sigra og því hlaut citthvað fleira að gerast á markatöflunni. Ingvar skoraði á 21. mín. Þetta var fyrir Iaglegan Ieik Akraness upp h. megin og laglegt spil innan teigsins. Ingvar fékk boltann frá Þórði Þ. og var í ágætu færi, skotið þó ekki nema miðlungsgott, en þarna komu tveir Valsmenn til Sótt að marki ÍA. Hfelgi bjargar. hjálpar, Þorsteinn bakvörður og Bjöm miðvörður flæktust fyrir Gunnlaugi markverði og boltinn rann milli þeirra í netið, 2:1. Eftir þetta áttu Akumesingar fjölmörg tækifæri, einkum Rík- arður, en honum tókst ekki að notfæra sér þau, virtist ekki geta skotið af þeirri hörku sem honum var lagin f eina tíð. Þó áttu Akurnesingar eitt mark enn í pokahorninu og það var ekki af verri endanum. Þetta mark kom á 29. mín. og það var Þórð urÞórðarson sem skoraði mark- ið. Hann fékk háan bolta inn á markteig frá Sveini Teitssyni og enda þótt markvörðurinn hefði lagt hendurnar fram yfir Þórð var uppstökk hans hárná- kvæmt og boltinn hrökk af helj- arafli á narklínuna og í netið. Laglega gert. Akurnesingar luku þarna við síð- asta þátt sinn £ Islandsmótinu £ knattspyrnu £ ár og verða nú að bíða átekta, en nánar er rætt um möguleika þeirra annarsstaðar hér á siðunni Lið þeirra lék þarna góð an Ieik, einkum i seinni hálfleik. Beztu menn ÍA i gær voru þeir Helgi Daníelsson, þegar á hann reyndi, Sveinn Teitsson og Jón Leosson, sem höfðu tkki mikið fyrir að ná völdum á miðjunni og Skúli Hákonarson f framlfnunni. Rfkarður Jónsson var duglegur sóknarmaður, en mætti láta bolt- ann vinna meira fyrir sig. Þórður Þórðarson var og ágætur og mark hans sérlega skemmtilegt. Langbezti maður Valsliðsins var hinn ungi Hermann Gunnarsson, v. útherji liðsins. Undarlegt finnst flestum að hann skuli ekki valinn „einn af tuttugu" i sambandi við Fram kærði leikinn strax eftir leiks'lok á þeim forsendum að báðir lfnuverðir leiksins voru án dómara- prófs, en það er skylda i öllum 1. fl. og mfl. leikjum. Þetta er 3. þýðingarmikla kæran, er kpmur fyrir dómstólana. Hinar eru I 2. fl. ÍBK kærði leikinn á þeim forsend- um að enginn línuvörður hafi verið í leiknum og engir hornafánar á vellinum, en í lögum stendur að skylt sé að þeir séu á öllum íþrótta vöílum. Þriðja kæran er frá Þrótti á móti KSS, en Siglfirðingar not- uðu of ungan leikmann I ieik aðil- anna fyrir norðan. Með Fram B lék hinn kunni knattspymumaður Rúnar Guð- mundsson, en þetta er fyrsti leikur hans eftir meiðsli er hann hlaut fyrir þrem árum síðan Vonandi fá- um við að sjá hann með mfl. næsta sumar. Margir möguleikar Margir möguleikar eru á énda- lokum mótsins, t.d.: 1) KR getur unnið í kvöld og tapað á Akureyri á sunnudag- inn kemur. Það mundi þýða að Akranes og KR væm jöfn. Það mundi einnig þýða fall Kefja- víkur í 2. deild. 2) KR getur unnið í kvöld eða gert jafntefli og unnið á Akureyri. Það mundi þýða sigur KR í mótinu jafnframt. Einnig mundi það þýða að Akureyri væri fall- ið í 2. dcild. 3) Fram getur unnið KR í kvöld og Val á sunnudaginn. Það mundi gefa Fram 13 stig. Vinni KR Akureyri mundu 3 lið vera jöfn í keppninni. 4) Jafntefli Fram og KR í kvöld mundi eyðileggja möguleika Fram. KR getur aftur á móti unnið með þvf að sigra Akur- eyringa. I dag Fram. Leikurinn getur orðið til þess að svipta Fram allri von um að verja titil sinn, en Fram, KR og Akranes hafa öll von um að geta náð titlinum, en KR þó mesta. Staðan í mótinu: Valur—Akranes 1:3. Akranes 10 6 1 3 13 25:17 KR 8 5 1 2 11 20:13 Fram 8 4 1 3 9 9:12 Valur 9 3 2 4 8 17:20 Keflavík 10 3 1 6 . 7 15:19 Akureyri 9 2 2 5 6 15:20 Næstu leikir; KR—Fram í kvöld kl, 19,30. Fram—Valur næsta sunnudag. Akureyri—KR næsta sunnudag. landsleikinn við Breta. Mætti landsliðsnefnd athuga hvort ekki er þarna á ferðinni maður fyrir hana, ekki er of mikið af efni- viðnum. Dómari var Haukur Öskarsson og dæmdi vel. — jbp —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.