Vísir - 19.08.1963, Blaðsíða 3
VÍ-SIR . Mánudagur 19. 'gúc!
3
Havnar Hornorkestur
Færeyska lúörasveitin Havnar
Homorkestur lék að Árbæ í gær
dag, í tilefni af afmæli Reykja-
vikur. Margt manna var saman-
komið að Árbæ f gær, þrátt fyr-
ir fremur óhagstætt veður. Var
það mál þeirra, sem á hlýddu,
að lúðrasveitin léki alveg snilid-
arlega vel. Og sama er að segja
um aðaleinleikara hennar, cor-
netleikarann Robert Oughton.
Koma færeysku Iúðrasveitar-
innar hefur vakið athygli hér,
enda er hér um að ræða fyrstu
eiginlegu lúðrasveitarheimsókn-
ina hingað til Iands. Havnar
Hornorkestur er lúðrasveit sem
eingöngu er skipuð áhugamönn-
um og hefur hljómsveitin notið
tilsagnar enska cornet-snillings-
ins Roberts Oughton, sem bú-
settur er nú f Færeyjum. Robert
Oughton hefur m, a. Ieikið með
mörgum frægustu Iúðrasveltum
Bretlands.
Stjórnandi og jafnframt for-
maður lúðrasveitarinnar er Th.
Pauli Chrlstiansen, bæjarfulltrúi
f Þórshöfn.
Fyrstu hljómleikar Havnar
Homorkestur voru s. 1. Iaugar-
dag f Háskólabfói og vakti leik-
ur lúðrasveitarinnar engu minni
athygli þá heldur en að Árbæ.
Havnar Homorkestur mun næst
leika í nokkrum kaupstöðum f
nágrenni Reykjavíkur.
Enski Comet-snillingurinn Róbert Oughton. Ljósm. Vísis, I. M.