Vísir - 19.08.1963, Page 8

Vísir - 19.08.1963, Page 8
8 VISIR . Mánudagur 19. ágúst 1963. VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Bráðabirgðalögin Bráðabirgðalögin í verkfræðingadeilunni, sem gef- in voru út í fyrradag, binda loks enda á það öngþveiti, sem ríkt hefir í kjaramálum verkfræðinga. Þar hefir gengið á ýmsu síðustu misserin og er skemmst að minnast þess, er stéttarfélag verkfræðinga stefndi vegna ráðningu fjögurra meðlima sinna hjá ríkinu. Sú ráðning var engan veginn ólögleg, heldur einmitt hið gagnstæða, þótt félagið væri á annarri skoðun. Síðan 27. júní hafa stéttarfélagsverkfræðingar verið í verkfalli og krefjast verulegra kauphækkana, almennt hærri en laun sambærilegra starfsmanna sam- kvæmt kjaradómi. Ef þeim kröfum er haldið til streitu þá er öllu samræmi milli launa hjá ríkinu og öðrum aðilum stefnt í hættu og nýju launakapphlaupi boðið heim. Það er til þess að fyrirbyggja slíkt, að bráða- birgðalögin skipa svo fyrir að gjörðardómur skuli út- kljá þessa langvarandi vinnudeilu og ákveða sann- gjamt kaup í samræmi við sambærileg störf hjá ríkinu. Það hefir þegar komið í ljós, að verkfræðingar em fúsir til þess að ráða sig til verkfræðistarfa á þeim gmndvelli, og því verður ekki trúað að óreyndu að meðlimir stéttarfélagsins geti ekki unað við þessa lausn hinnar löngu deilu. Þreklaus bióð? Ummæli Benedikts Jakobssonar iþróttakennara um þrek íslendinga — eða öllu heldur þrekleysi, hafa vakið mikla athygli. Sumir hafa bmgðizt reiðir við en fleiri munu þó hafa hugleitt, að eitthvað mundi bogið við líkamsrækt þjóðarinnar, ef tölur Benedikts gefa rétta heildarmynd af þjóðinni. Víst er að orð hans hafa verið í tíma töluð, hvort sem íslendingar ganga næstir Bandaríkjamönnum í þrekleysi, eða ekki. íþróttir em hér allnokkuð stundaðar, en það vill brenna við, að það er ekki nema tiltölulega fámennur hópur unglinga, sem þar á hlut að máli. Sá hugsun- arháttur er hér of landlægur, að íþróttir séu aðeins til þess að taka þátt i keppnum og vinna sigur. Hins vegar skortir enn mjög á að fjöldinn taki þátt í létt- um íþróttum og útivist með það í huga að það er heilsu og líkamsræktin, sem hér er aðalatriðið. Hér bíður mikið verkefni fyrir íþróttahreyfinguna og skólana. Við getum litið til nágrannalandanna, t. d. Svíþjóðar og Bretlands, þar sem skólamir skipu- leggja hópíþróttir af mestu prýði. Það verkefni er miklu mikilvægara að vel verði Ieyst en að íslend- ingar fái nokkmm stigum hærra en nágranninn í milli- ríkjakeppni, þá sjaldan það kemur fyrir. Námabærinn á Svalbarða, þar se m slysin urðu. 1| > ; Námuslysin og erfiðieikar norsku ríkisstjórnarinnar Ctjórnmálin í Noregi hafa sann arlega verið á dagskrá í sumar, og það þrátt fyrir, að engar þingkosningar séu í vænd- um — og verða ekki hvað sem á gengur. Stórþingið verður að sitja f fjögur ár skv. stjórnar- skrárlögum, og forsætisráðherr- ann getur ekki rofið þing og efnt til nýrra kosninga eins og hægt er hér, í Danmörku og í Svfþjóð, ef hann hefur minni hluta í þinginu. Slys það sem varð í kolanám- unum á Svalbarða og skýrslur rannsóknamefndarinnar sem rannsakaði orsakir slyssins, hafa valdið Gerhardsen forsætisráð- herra miklum erfiðleikum. A® s'íðustu þingkosningum f Noregi loknum, missti Jafn- aðarmannafiokkurinn sinn nauma meirihluta, fékk þá 74 þingmenn af 150 þingmönnum alls Hinir svokölluðu borgara- flokkar fengu samtals 74 þing- menn og Socialiski þjóðarflokk- urinn fékk 2 fulltrúa. Síðast- nefndi flokkurinn bauð þá fram f fyrsta skipti, en hann hefur verið í andstöðu við rfkisstjórn- ina þetta kjörtímabil. Spurning- in er nú aðeins sú, hvort þessi sócialistaflokkur þorir að fylgja gagnrýni sinni eftir þegar til vantraustsatkvæðagreiðslunnar kemur. í haust fara fram bæjar- stjórnarkosningar í Noregi og hvað munu launþegarnir segja og hvaða afstöðu munu þeir taka til launþegafiokks, sem verður þess valdandi að ríkis- stjórn fulltrúa launþeganna verð ur að hrökklast frá eftir sam- fleytt 28 ára völd. Clysið sem átti sér stað f nóv- ember í kolabænum á Sval- barða er ekki það fyrsta á þeim stað í sögunni. Námagröfturinn er stundaður af einkafyrirtæk- inu „Store Norske“ og ríkinu, og það er ríkið sem hefur orðið fyrir barðinu á fjórum fyrri meiriháttar slysum þarna. 1943 fórust 15 menn í námunum, 1952 fórust 9 og 1953 19. Strax á þeim árum voru uppi harðorðar kröfur um auknar varúðarráð- stafanir. Nú þegar síðasta slysið átti sér stað, þar sem 21 maður fórst, urðu háværar raddir uppi um það, að þessar varúðarráð- stafanir hefðu aldrei komizt í framkvæmd Og sá orðrómur fékk byr und ir báða vængi. Allir vita að slíkar ráðstafanir eru kostnað- arsamar en námagröfturinn hins vegir gekk erfiðlega. Eftir stríð hefur verið samtals nær 34.6 millj. d. kr. halli á námunum. sett var á laggirnar rannsókn- arnefnd og oftar en einu sinni var spurzt fyrir um skýrslu hennar í Stórþinginu. Einar Gerhardsen. J vor átti sumarfri þingmanna að hefjast 21 júni. 18. júní barst væntanleg skýrsla enn í tal í þinginu og þá var því lýst yfir að hún lægi enn ekki fyrir. Sama kvöld voru blaðamenn hins vegar á ferli — og þeir leituðu álits þingmanna á skýrslu nefndarinnar! Upplýst varð, að skýrslan hafði verið send til blaðanna áður en hún var látin í hendur Stórþings- manna — og þá varð eldurinn Iaus. Stjórnarandstaðan hélt því fram að ætlunin hefði verið að halda skýrslunni leyndri þar til þingi var lokið, en ríkisstjórnin bar af sér þær ásakanir. Endir- inn varð sá, að þinghléi var frestað um óókveðinn tíma, eða þar tii skýrslan hafði fengið með ferð í þinginu. Meðan á þessu stóð, lýsti iðn- aðarmálaráðherrann, Kjell Hol- ler, því yfir, að hann vildi segja af sér, en Gerhardsen tók af- sögnina ekki til greina og sagði að annað hvort færi öll stjórnin eða enginn, Eins og óttazt var, kom í ljós, að varúðarráðstaf- anirnar voru ekki sem beztar,' m. a. var loftþrýstingurinn ekki þannig útbúinn, að hann gæti útilokað sprenginguna, en það var einmitt sprenging, sem olii slysinu. Stjórnin heldur því nú fram, að málið skuli fá réttarlega með- ferð fyrir dómstólum landsins, og fyrst þegar dómsúrskurður hefur verið kveðinn upp, segist ríkisstjórnin geta viðurkennt að slysið hafi verið bein orsök slælegra varúðarráðstafana. Jðnaðarmálaráðherrann, Holler, hefur sagt af sér, en sagt er að hann hafi verið duglegur og hæfur í sínu embætti. 1 stað hans sem iðnaðarmálaráðherra kom Trygve Lie, fyrrum fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, sem nú hefur nýiega tekið fullan þátt í stjórnmálum í Nor- egi að nýju. Stjórnarandstaðan er ákveðin í að bera fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Skipting flokk- anna er: Jafnaðarmenn 74, Hægri flokkur 29, Miðflokkur 16, Kristilegi þjóðarflokkurinn 15, Vinstri menn 14.- Sem sagt 74 á móti 74. En svo er það sócíaliski þjóðarflokkurinn, sem hefur tvo menn. Þeir komast ekki hjá því að greiða atkvæði, því í Noregi er það ekki til sem heitir að sitja hjá. Þar er það annað hvort eða. Ef flokkurinn breytir sam- kvæmt gagnrýni sinni á ríkis- stjórnina, verður hann að greiða atkvæði gegn ríkisstjórn- inni Hins vegar er erfitt fyrir sócialistana að styðja þá flokka í atkvæðagreiðslu, sem gagnrýna ríkisrekstur. Cú aðstaða getur skapazt, að stjórnin fari ekki fram á traustsyfirlýsingu, því hana mundi sócialiski þjóðarflokkur- inn aldrei samþykkja, heldur láta sér eingöngu nægja að greiða atkvæði gegn vantrausts- yfirlýsingunni, því þá mega þeir vænta stuðnings sócialiska þjóð- arflokksins. Hins vegar væri það

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.