Vísir - 21.08.1963, Blaðsíða 6
f
4».
V í SIR . Miðvikudar»ur 21. ágúst 1963.
—gg—c—r»annii nuiii—a^—
ATHUGÁSEMD -
S Framnald al bls 2
teljum við okkur óviðkomandi, en
yfirdómari yfirgaf völlinn, og við
héldum mótinu áfram. Að fram-
kvæmdanefndin hafi stuðlað að
þessu fráviki yfirdómaráns, er þess
vegna ímyndun íþróttafréttaritar-
ans eða rangar upplýsingar sem
honum hafa verið gefnar.
Þegar leiðréttar eru missagnir
íþróttafréttamanns Vísis, verður I
þessu tilliti að benda honum á, að
í leikreglum FRÍ segir svo um
yfirdómara:
„5. grein.
Dómnefnd (yfirdómari).
Skipa skal sérstaka dómnefnd
(eða yfirdómara), og skulu henni
sendar allar kærur, sbr. 23. gr.
Úrskurður dómnefndar er fulln-
aðarúrskurður“.
í 23. gr. eru taldar kærur varð-
andi þátttökurétt íþróttamanns, svo
og kærur, sem fram kunna að koma
í keppni.
Það er því auðséð, að yfirdóm-
ara ber eingöngu að fjalla um þau
kærumál, sem til hans er vísað.
Þess vegna er nauðsyn að benda
iþróttafréttamanni Vísis á það, að
í verkahring yfirdómara felast eng-
in afskipti af framkvæmd mótsins,
nema þá að kæra berist til hans,
en í þessu tilfelli höfum við ekki
fengið vitneskju um neina slíka.
FASTEIGNAVAL
.... .... ■ t**i TvTÍmii I II m |
Tfl sölu m. a.:
2 — 5 herb. íbúöir I Hlfðunum.
4 herb. íbúð á hæð i Austur-
bænum. Einbýlishús f Vestur^
bænum (skipti koma tii greina
á 4 —5 herb. íbúð).
3 — 4 herb. íbúð við Langholts-
veg og ICleppsveg.
Nýjar 5 herb. fbúðir í Skipholti
og við Sólheima.
Fokheldar 6 herb. fbúðir í Kópa
vogi og einbýlishús og íbúðir f
smfður á Seltjarnamesi.
Höfum kaupendur að 2 — 6 herb.
fullgerðum og f smfður f Reykja
vík og nágrenni. Miklar útborg-
anir.
Lögfræðiskrifstofa
og fasteignasala.
Skólavörðustfg 3A, III
Sfmi 14624 og 22911
JÓN ARASON
GESTUR EYSTEINSSON
Bílur til sölu:
Opel Kapitan ‘57, fallegur,
útborgun samkomulag.
Opel Rekord ‘56, sem nýr.
Fiat 1400 ‘57, mjög þokkal.,
lítið keyrður.
Volkswagen ‘59, — 80 þús.
Volkswagen ‘57 — 65 þús.
Ford ’55, góðir greiðsluskil-
málar, skipti möguleg.
Chevrolet ’55, góður blll,
skipti á nýrri.
Chevrol. ’52, 6 cyl. sjálfsk.
- BfLAR FYRIR ALLA. —
SKILMÁLAR við allra hæfi.
Og kaupin gerast hjá okkur.
RAUÐARÁ
SKÚLAGATA 5S — SÍMI (3812
í grein sinni 16. ágúst gerir I-
þróttafréttaritari Vísis sig svo ber-
an að því, að gera ekki greinar-
mun á yfirdómara og leikstjóra
frjálsíþróttamóts, en leikstjóri hef-
ur, skv. reglum FRÍ, allt vald um
framkvæmd móts, eftir að það er
hafið.
Við verðum þvl að óska þess, að
íþróttaritari Vlsis, sem hefur að
mörgu leyti sýnt það, að hann hafi
þá kosti til að bera, sem einn slík-
an mega prýða, gæti þess I fram-
tíðinni að kynna sér tvö sjónar-
mið, sem alltaf eru á hverju máli,
áður en hann ákveður hvaða af-
stöðu hann tekur til þess máls, sem
hann á að skrifa um.
Stjórn frjálsíþr.d. KR.
Það var ekki ætlun mín að
gera „brottrekstrarmál“ yfir-
dómarans á Mf að efni f blaða-
deilu. í fréttum af þeim atburð-
um, sem barna áttu sér stað eru
staðreyndirnar einar og eru til-
skrif KR-inga hér á undan í
hæsta máta Iélegt yfirklór. Við
skulum bara horfast í augu við
staðreyndirnar. Milli ÍR og KR
er sjúklegt ástand, — baráttan
(algjörlega óopinber) um meist-
aratitlana. Nú vill svo til að
skipting þeirra verður mjög
jöfn ef kvennadeilurnar eru
taldar með (sem hefur oftast
verið gert). Þannig er enn óút-
séð hvemig þeirri keppni lýkur,
er þær greinar eru eftir, sem
stjórn FRÍ hefur ákveðið að Iáta
fara fram aftur.
í grein KR-inganna segir m.
a. að „fordæmi séu fyrir“ o. s.
frv. Barnaskapur að álíta að
JKSBlS "«gi Wgbrot af því að
einnver annar hehir gert sama.
Tilfærslur og frestanir eru af-
ár síáemar í íþróttum, ekki eru
vellirnir of margir og Iaus kvöld
á völlunum gerast æ færri, þess
vegna er mikils virði að hægt
sé að komast hjá slíku.
Þegar getið er um tilfærslu
á tugþraut og fleiri greinum, er
réttilega tekið fram „enda var
það gert að beiðni stjórnar
FRÍ“. Leyfi FRÍ lá hins vegar
ekki fyrir í þetta skipti og því
átti þrautin að fara fram skv.
reglugerð, ekki sízt vegna þess
að utanbæjarmenn voru mættir
til keppni. Hvað myrkrinu I
Laugardal viðvíkur er það að
segja að „II menn voru skráð-
ir“, en bæta má við að 7 vom
mættir. Þegar þrautin fór fram
hófst hún að vísu klukkutíma
fyrr, en henni Lauk á 2 y2 tíma,
rúmum klukkutíma áður en fór
að rölckva. Myrkrið getur ekki
talizt ástæðan fyrir því að menn
voru svo umfram um að fresta.
Hver var þá ástæðan? Ein-
faldlega sú að hinn góðkunni
íþróttamaður Valbjörn Þorláks-
son átti að safna 9 meistara-
stigum en til þess að svo mætti
fara var mjög óæskilegt að
4X100 og 4X400 metra boð-
hlaup færu fram svo til sam-
tímis, því þannig er framkvæmd
in, þeim er skotið inn f en ekki
eins og Iátið er í skína að þau
fari fram, þegar eklcert annað
gerist á vellinum.
Ég þakka svo að lokum hrós-
yrði í minn garð og tek undir
þau ummæli KR-inga, „að kynna
sér tvö sjónarmið, sem alltaf
eru á hverju máli“. Þetta mætti
jafnvel verða ein af gullvægu
reglunum í frjálsíbróttunum,
bvf það eru tvær hliðar eða
fleiri á öllum málum, eklci ÍR-
hlið og KR-hlið eins og stund-
um mætti ætla.
Læt ég úrskurð st'órnar FRÍ
því tala í þessu máli.
— jbp —
Nýja höfnin á Búðareyri við Reyðarfjörð. Veghefill sést jafna hafnarbakkann nýja, en hópur manna
fullkomnar verkið með járnhrífum. Seinna verður steypt þekja á allan bakkann. — Fremst á mynd-
inni er Iöndunartæki fyrir sfld, sem komið hefur verið fyrir á hafnarbakkanum.
Hafnarframkvæmd-
Nýlega er lokið byggingu
ágætrar hafnar er ríkið hefur
látið gera á Búðareyri við Reyð-
arfjörð. Bætir þessi höfn úr
brýnni þörf sem skapazt hefur
vegna ört vaxandi vöruflutninga
um þennan stað til og frá hinum
frjósömu héruðum Austurlands.
Síðan hin gamla bryggja Kaup-
félags Héraðsbúá varð ónothæf
hefur aðeins verið unnt að af-
greiða eitt skip f einu.
Samtímis hafnargerðinni var
"d am*' ‘i
OMtimBBi -n«B8 «v tabla abnkilln
byggð ríkisverksmiðja til fiski-
mjölsvinnslu úr síld og fiskúr-
gangi og eru nú sköpuð þarna
ágæt skilyrði til hvers kyns út-
gerðar á stórum skipum jafnt
sem smáum, þar sem Kaupfélag-
ið hefur nýlega látið byggja
ágætt frystihús, sem hingað til
hefur skort verkefni.
í hinni nýútgröfnu kví innan
hafnargarðsins verður ákjósan-
leg aðstaða fyrir smábáta, því
að þangað leggur aldrei kviku
af hafi.
Þeir Héraðsmenn, er- á útgerð
hyggja, ættu því ekki að þurfa
að leita til Suðurnesja hér eftir,
þvi að óneitanlega er friðun
fiskimiðanna farin að láta segja
til sín, einnig við Austurland.
Auk hins 100 m langa grjót-
garðs, sem fyrir þremur árum
var byggður austan til á Búðar-
eyrinni fram á stórstraums f jöru
borð er hafnhrbakkinn úr upp-
fyllingu milli stálþilja, sem rekin
voru með 20 m millibili.
Héraismát Sjálfstæðis-
manna í V - Húnavatnssýslu
Héraðsmót ■ Sjálfstæðismanna í
Vestur-Húnavatnssýslu var haldið
að Laugarbakka sunnudaginn 11.
Úfsvesrsskrá
BoiungavÉkur
Útsvarsskrá hefur verið lögð
fram í Bolungarvík. Jafnað var nið-
ur útsvörum og aðstöðugjöldum að
upphæð kr. þrjár milljónir sjö
hundruð og fimmtíu þúsund, á 300
einstaklinga og fyrirtæki.
Af fyrirtækjum bera hæstu gjöld:
íshúsfélag Bolungarvíkur h.f. kr.
281.000.00, Verzlun E. Guðfinnsson-
ar kr. 210.000.00, Græðir h.f. kr.
118.000.00. Af einstaklingum bera
hæstu útsvör: Hálfdán Einarsson
skipstjóri kr. 60.000.00, Jón F. Ein-
arsson byggingameistari kr. 51 þús.
og Jakob Þorláksson skipstjóri kr.
40 þús. Jafnað var niður samkv.
lögboðnum útsvarsstiga. Elli- og ör-
orkulífeyrir var undanþeginn út-
Svarsálagningu. Útsvör einstaklinga
lækkuðu um kr. 800.00 og veittur
var 36% afsláttur.
ágúst. Húsfyllir var og fór mótið
ágætlega fram. Samkomuna setti
og stjórnaði síðan Bjarni Guð-
mundsson, bóndi, Staðarbakka.
Dagskráin hófst með einsöng
Kristins Hallssonar, óperusöngvara
undirleik annaðist Ólafur Vignir
Albertsson, píanóleikari.
Þessu næst flutti Óskar Levi,
bóndi, r::ðu. Þá söng Þórunn Ól-
afsdóttir, einsöng, undirleikari Ól-
afur V. Albertsson. Næst flutti
Bjarni Benediktsson, dómsmálaráð-
! herra ræðu. Að lokinni ræ^u Bjarna
' sungu þau Kristinn Hallsson og
Þórunn Ólafsdóttir tvisöng við
undirleik Ólafs V. Albertssonar. —
Þar næst flutti Brynjólfur Jóhann-
esson gamanþátt. Síðan sungu þau
Þórunn og Kristinn aftur tvisöng
og að lokum söng Brynjólfur Jó-
hannesson gamanvísur.
Ræðumörinum og listafólkinu var
mjög vel tekið.
Mótinu lauk svo með dansleik.
Héraðsiméf SiúlfstæiiS'
inanna í Árnessýslu
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í
Árness. var haldið fyrir nokkru
að Flúðum. Mótið var mjög fjöl-
sótt og fór ágretlega fram. Sam-
komuna setti og stjórnaði síðan sr.
Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Hruna.
Dagskráin hófst með einsöng
Kristins Hallssonar, óperusöngv-
ara, undirleik annaðist Ólafur Vign
ir Albertsson, píanóleikari.- Þessu
næst flutti Sigurður Óli Ólafsson,
alþingismaður ræðu. Að lokinni
ræðu Sigurðar söng Sigurveig
Hjaltested, óperusöngkona einsöng.
Þá flutti Bjarni Benediktsson, dlir.s
málaráðherra ræðu. Næst sungu
þau Kristinn Hallsson og Sigur-
veig Hjaltested tvísöng, við und-
irleik Ólafs V. Albertssonar. Síðan
flutti Brynjólfur Jóhannesson ieik-
ari gamanþátt. Ræðumönnum og
listafólki var ágætlega tekið. Mót-
inu lauk svo með dansleik.