Vísir - 09.09.1963, Side 5
V 1 S I R . Mánudagur 9. sept. 1963.
5
Þýfi skilað —
Framhald af bls. 16.
um að upplýsa það.
Ingólfur Þorsteinsson sagði
Vísi í morgun að maður þessi
hafi verið búinn að gefa út
svikna tékka og samþykkja fyr-
ir fjárhæð sem nam 73 þús. kr.,
en var ekki búinn að, selja
nema fyrir 47 þús. kr. Hinir
komu óseldir í leitimar. Þessa
peninga hefur maðurinn þegar
alla endurgreitt, eða að hann
hefur skilað þeim vamingi sem
hann keypti fyrir hinar fölsuðu
ávísanir. Þá hefur hann og skil-
að öllu öðm þýfi sem hann stal
þ.á.m. úmm og armböndum úr
verzlun Jóns Sigmundssonar,
sem var aðal verðmætið sem
hann komst höndum yfir og
nam eitt úr út af yfir sig um
400 þús kr. Þess má þó geta
að enn hafa þau 20 úr, sem
hann fleygði í gjána í Þingvalla
hrauni, ekki verið verðbætt, en
þau munu öll hafa skemmst
meira eða minna og eru jafnvel
flest ónýt. Mat hefur ekki farið
fram á því tjóni ennþá. Að öðru
leyti hefur öhum verðmætum
verið skilað þ.á.m. kvikmynda-
vélunum sem stolið var frá
Gevafoto og dýrmæta hringnum
sem hann stal frá Guðmundi Þor
steinssyni
Skýfall —
Framhald af bls. 16.
ist 9 mm úrkoma en það svar-
ar til að snjór sé í ökla og á
Máná á Tjörnesi var úrkoman
60 mm og mun það vera nær
einsdæmi þar um slóðir. Er þar
um skýfall að ræða.
Á Norðurlandi er nú 2-3 stiga
hiti niður við sjávarmál en inni
á hálendi er kaldara, t.d. var
eins stigs frost á Möðruvöllum.
Að sögn Veðurstofunnar mun
veður heldur fara batnandi f
dag. Á Suður- og Vesturlandi
er þurrt og hefur vfða verið
heiðskírt í morgun.
Vísir hafði í morgun sam-
band við fréttaritara sinn á
Siglufirði og er þar nú hvftt
niður í miðjar hlíðar og Siglu-
fjarðarskarð er orðið ófært.
Síðdegis í gær tók að snjóa á
Siglufirði og í gærkvöldi hafði
snjóað svo mikið í Skarðið að
það var orðið ófært bifreiðum.
Þó mun áætlunarbílnum hafa
verið hjálpað yfir og nokkrar.
bifreiðir hafa komizt í slóð
hans. Snjókoma er enn í Skarð
inu svo að ekki hefur verið
unnt að ryðja það enn. Niðri á
Siglufirði er veður nú kyrrt,
krapahríð og tveggja stiga hiti.
Fréttaritarinn á Akureyri
sagði í morgun að samkvæmt
fréttum úr Mývatnssveit hefði
verið jafnfallinn snjór, 15-16
sm, er fólk kom á fætur í morg
un.
Ekki höfðu neinar fregnir bor
izt um að vegir hefðu teppzt
þar um slóðir eða á Hólsfjöll-
um af völdum snjókomu.
Á Akureyri snjóaði ekki en
hins vegar voru fjöll hvít nið-
ur í miðjar hlíðar í morgun. í
gær var hellirigning allan dag-
inn en í gærkvöldi byrjaði að
snjóa til fjalla.
Verkfall —
Framhald at bls. i.
samninganefndir þeirra höfðu gert
fyrir þeirra hönd. Það er því ein-
vörðungu hásetarnir sem valda þvl
að til verkfalls kemur að nýju.
FRÁLEITAR KRÖFUR.
1 því samkomulagi, sem háset-
arnir felldu, var gert ráð fyrir að
B-taxti fyrir yfirvinnu hækkaði
upp í næturvinnutaxta verkamanna
en sjómenn hafa haft allmiklu
lægri yfirvinnutaxta. Einnig var
gert ráð fyrir að samkomulagið
gilti til 6 mánaða og átti á þvi
tímabili að fara fram kerfisbundið
starfsmat og síðan átti að ganga
til nýrra samninga samkv. samn
ingsfrumvarpi, sem Sjómannafélag
ið hefir lagt fram fyrir alllöngu og
er þar gert ráð fyrir breyttu samn
ingsformi, sem of langt yrði að
útskýra. Þessu var sem sagt hafnað
og á fundi með sáttasemjara í nótt
lögðu fulltrúar hásetanna fram
nýjar og að þvi er útgerðarfélögin
telja fráleitar kaupkröfur. Sem
fyrr segir verður nýr sáttafundur
í kvöld.
SKIPIN STÖÐVAST
UNNVÖRPUM.
Þessi skip hafa stöðvazt þegar í
Reykjavík: Reykjafoss, Drangajök
ull, Herjólfur, (sem verður þó reynt
að fá Iausan vegna mjólkurflutn-
inga), Brúarfoss, Akraborg, Skjald
breið, Hvassafell og Rangá. Hér er
sem sagt um þrjú strandferðaskip
að ræða, og hin stöðvast jafnóð-
um og þau koma til Reykjavíkur,
og í heimahöfnum úti á landi. Oti
á ströndinni eru nú Tungufoss,
sem er á Reyðarfirði, Jökulfell,
Litlafell og leiguskip frá SÍS, Esja
og Herðubreið frá Skipaútgerð rík-
isins. Hekla er væntanleg frá út-
löndum á miðvikudag og átti að
sigla með farþega til Þýzkalands
og Hollands n.k. föstudag.
Hásetar af Tungufossi munu
hafa gert fyrirspurn um það frá
Reyðarfirði til Sjómannafélags
Reykjavíkur, hvort þeir ættu að
ganga af skipinu þar, en fengið
fyrirmæli um að halda áfram sigl-
ingunni, þar eð ekki myndi vera
löglegt að stöðva skipið fyrr en í
heimahöfn, en hásetamir eru fél-
lagsmenn í staðbundum félagsskap
£ Sjómanafél. Reykjav. Væri hins
vegar um verkfall vélstjóra, eða
annarra starfshópa í landsfélögum
að ræða, myndi vera hægt að
stöðva skipin hvar sem væri á
landinu.
BalBettinn —
Framhald ■..! bls. 1.
stór!“ sagði Margrethe Schanne
hin yndislega Sylphide, og
horfði fögrum ballettaugum út
um gluggana á efstu hæð Hótel
Sögu. „Hún hefur breytzt svo
mikið seinustu tíu árin, að ég er
alveg rugluð í r£minu“.
„Þið hafið allt — fjöll og haf
og fegurð, meira að segja sól-
skin“, bætti Kjeld Noack við.
En þeim fannst báðum svolitið
kalt úti í reykvi'ska haustveðr-
inu, jafnvel þótt sólin skini upp
á kraft.
Þau voru himinlifandi að vera
aftur komin til íslands og geta
nú sýnt list sfna við beztu skil-
yrði með tilheyrandi leiktjöld-
um, dansflokki og sinfónfuhljóm
sveit til að annast undirleikinn.
Þau voru fyrstu dönsku dansar-
arnir, sem komu fram á sviði
Þjóðleikhússins — nánar tiltek-
ið f ágústmánuði 1952 — og þau
hlakka til að dansa aftur fyrir
íslenzka leikhúsgesti.
En við máttum ekki tefja þau
lengi, því að þau voru óþreyju
full að fara út og skoða borg-
ina, sem hafði stækkað svona
gífurlega, síðan þau sáu hana
seinast.
Gunnar Eyjólfsson
eikur HAMLET
á fyad i dag —
Framhald af bls. 1
kjötinu, en það verður seinni
hluta þessa mánaðar. Sumar-
verðið á nýja kjötinu er 47
krónur kflóið í heildsölu til
verzlana og bætast 70 aurar við
hvert kíló til kaupanda ef menn
vilja kaupa kjötið í heilum eða
hálfum skrokkum í búðunum.
Smásöluverðið er kr. 57.60 pr.
kíló, verð á kjöti í lærum er kr.
64.70 og í hryggjum 66.80.
Syndid 200
metra na
Jólasýning Þjóðleikhússins í
ár verður Hamlet, hinn stór-
brotni harmleikur Shakespeares
í þýðingu Matthíasar Jochums-
sonar. Mun Gunnar Eyjólfsson
fara með hlutverk Hamlets,
þetta óskahlutverk allra leikara,
en á námsárum sínum f Bret-
landi hlaut hann einmitt heið-
urspening fyrir túlkun sína á
hlutverki Laertesar í sama leik
riti. Bfða leiklistarunnendur
þess vafalaust með eftirvænt-
ingu að sjá hinn marglofaða
túlkanda Péturs Gauts í gervi
hins þunglynda, danska kon-
ungssonar. Eins og kunnugt er,
hlaut Gunnar Silfurlampann sl.
ár fyrir leik sinn f Pétri Gaut
og Andorra — nú er að vita,
hvort honum tekst að vinna þau
verðlaun tvö ár í röð.
Leikstjórn verður í höndum
Benedikts Árnasonar, en leik-
Gunnar Eyjólfsson.
tjöld og sviðsetningu annast
brezki málarinn Disley Jones.
Sýning þessi verður haldin í til-
efni af 400 ára afmæli Shake-
speares, sem er 26. apríl 1964.
Færeyska skipið Tingones
fórst við Hvarf ■ gær
Færeyskt fiskiskip, Tinganes,
sem var um 300 tonn, fórst f
gær rétt við Hvarf á Grænlandi.
Allri áhöfninni 25 manns var
bjargað.
Tinganes var á heimleið eftir
að hafa verið að veiðá'í salt við
Vestur-Græhland síðustu Vikúr.
Voru skipsménh ánægðiF eftir
góða veiðiferð og hlökkuðu til
að komast heim.
Slys —
Framhald af bls. 16.
öngvit og skarst talsvert mikið á
höfðinu. Hann var fluttur í slysa-
varðstofuna og var geymdur þar
í gær til frekari rannsóknar.
Lögreglan taldi að mjög mikil
ölvun hafi verið í Reykjavík um
helgina og fangageymslur hennar
yfirfullar bæði aðfaranótt föstu-
dags og laugardags. Hún tók og
nokkra menn ölvaða við akstur.
En allt f einu virðist sem
skipið hafi rekizt á fsjaka og
rifnaði botninn á því. Sökk
skipið nær því samstundis, en
skipverjar komust á fieka.
Nokkur færeysk skip voru
skammt frá og björguðu þau
skipbrotsmönnum eftir skamma
stund. t
Guðráii —
Framhald af bls. 16.
um móttöku þakkaði hún fyrir
þær og allt annað sem gert
hafði verið fyrir hana hér heima
og sagðist vona að hún mætti
eiga með gestum ánægjulegt
kvöld.
Gekk hún síðan um meðal
gesta, heilsaði upp á vini og
kunningja og fékk hún lófatak
hvar sem hún gekk og var fögn
uður gesta yfir sigri hennar ó-
tvíræður.
Að Iokum var stiginn dans til
kl. 2 eftir miðnætti.
VOLKSWAGEN - 1500
Alltaf fjölgar
VOLKSWAGEIN
VERÐ:
VOLKSWAGEN 1500
KR. 163.780.
VOLKSWAGEN 1500
STATION
KR. 175.220.
H E
K L A
170-172
Laugavegi
Sími 11275.