Vísir - 09.09.1963, Qupperneq 16
Fjöldi báta bíður löndunar
(áóð veíði é síidsarmiðunuin s
Allgóð veiði var á síidarmiðun-
um s.l. sólarhring og fengu 36
skip samtals 34.430 mál. Síldin
veiddist 115 — 140 milur austur að
suðri frá Dalatanga.
Veður var nú gott á miðunum,
úr þvi að komið er út fyrir 100
mílur, SV gola og bjartviðri. Á
leið til lands hafa skipin lent í
brælu en allt hefur gengið sæmi-
lega og engu skipi hefur hiekkzt
á svo vitað sé. Bátarnir eru nú
í færra lagi á miðunum því að
mörg skip liggja inni á höfnum
Austurlands og bíða löndunar.
Norðan og NA rok er nú við
Mánudagur 9. sept. 1963.
Stjórnandinn
forfallaðist
Hljómsveitarstjórinn, Gustav Kön-
ig, sem stjórna átti á þrem fyrstu
hljómleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar, fyrst 10. október n.k., hefur
tilkynnt að hann verði að hætta
við komu sína hingað. Ekki er
ákveðið hver stjórnar í stað hans.
Vísir skýrði frá prógrammi Sin-
fóníuhljómsveitarinnar f. helgi, en
skömmu eftir að blaðið kom út
barst forráðamönnum hljómsveitar-
innar bréf Königs.
Skýfall á Tjörnesi og Siglu-
GUÐRÚN HYLLT I SÚLNASAL
Ungfrú Alheimur, Guðrúh
Bjamadóttir var hyllt af miklum
mannf jölda á glæsilegri móttöku
og kveðjuhátíð sem haldin var
henni til heiðurs f Súlnasalnum
á Hótel Sögu s.I. Iaugardags-
kvöld.
Geysifjölmennt var á hátið-
inni og munu færri hafa komizt
að en vildu og sýnir það hve
ánægðir landar hennar em með
hina glæsilegu frammistöðu
hennar á Langasandi.
Á dagskrá hátíðarinnar var
m.a. tízkusýning og sýndu stúlk
ur úr tízkuskólanum kápur og
dragtir frá verzlun Bernharðs
Laxdals í Kjörgarði og var mikil
og almenn ánægja meðal áhorf-
enda.
Sigurður Magnússon fulltrúi
flutti ræðu og var mjög góður
rómur að henni kveðinn og fékk
ræðumaður dynjandi lófatak. Að
ræðunni lokinni steig upp á
pallinn Guðrún Bjarnadóttir og
var hún hyllt af gestum með fer
földu húrrahrópi og lófataki.
Frú Sigríður Gunnarsdóttir
afhenti sfðan Guðrúnu gjafir og
blóm sem henni höfðu borizt
og las upp heillaskeyti sem send
höfðu verið. Meðal gjafanna
voru Elna saumavél frá heild-
verzlun Árna Jónssonar og dem-
antshringur frá gullsmiðum
Steinþóri og Jóhannesi.
Er Guðrún hafði veitt gjöf-
unum, blómunum og skeytun-
Framh. á bls 5
Langanes svo að ekki komast nema
stærstu bátar til Raufarhafnar til
löndunar.
Eftirtalin skip fengu 1000 mál
eða meira:
Vigri 1150, Auðunn 1100, Ólafur
Magnússon 1300, Gullfaxi 1200,
Helgi Helgason 1700, Hannes Haf-
stein 1700, Guðmundur Pétursson
1400, Fram 1250, Sæúlfur 1100, Þor
geir 1100, Helgi Flóventsson 1550,
Skipaskagi 1100, Lómur 1400, Húni
II. 1350, Freyfaxi 1000, Snæfell
1650, Ingvar Guðjónsson 1550.
Frú Sigríður Gunnarsdóttir afhendir Guðrúnu Bjarnadóttur
gjafir og bióm er borizt höfðu.
VÍSIR
Þrír menn
slasast
Þrír menn slösuðust í Reykjavik
um helgina að því er bókað var
hjá lögreglunni.
1 tveim þessara tilfella var um
vinnuslys að ræða og í bæði
skiptin f skipum í Reykjavfkur-
höfn. Á laugardaginn slóst timbur,
sem verið var að skipa upp úr
m.s. Hvassafelli, f mann sem var
við vinnu f lest skipsins. Hann
meiddist og var fluttur í slysa-
varðstofuna, en blaðinu er ekki
kunnugt um hve mikil meiðsl hans
voru.
Sfðdegis f gær varð slys á þil-
fari m.s. Brúarfoss. Maður sem
var við vinnu þar skarst eitthvað,
en ekki neitt sem nam.
Aðfaranótt sunnudagsins varð
slys í Bjamarborg við Hverfisgötu.
Drukkinn maður var að fara út úr
íbúð hússins og á leið niður stiga.
Stíginn var brattur og maðurinn
missti fótanna. Hann lenti með
höfuðið á miðstöðvarofni, féll í
Framh. á bls 5
fjarðarskarð lokað afsnjó
Þannig lítur nú út f Siglufjarðarskarði, fyrsti vetrarsnjórinn kominn. — Á myndinni er séð
ofan i Slglufjörð, kaupstaðurmn fyrir miðju.
Óvenjumikil úrkoma
og snjókoma í fjöll hef-
ur verið á norðan- og
austanverðu landinu í
nótt og í gærkvöldi og
víða í Þingeyjarsýslum
mældist úrkoma með
því mesta sem þar mæl-
ist á þessum árstíma. —
Siglufjarðarskarð er lok
að af snjó.
Til fjalla er snókoma en á
láglendi og niður við sjó er
aðallega rigning og bleytuhríð.
Á Grímsstöðum á Fjöllum mæld
Framh. á bls. 5.
Lúðuþjófar
teknir
Hálfrar milljónar kr. þýfí skilai
Stöðug og óslitin rannsókn
hefur staðið yfir undanfarið f
máli ávfsanasvikarans og inn-
brotsþjófsins, sem m.a. brauzt
inn 1 úra og skartgripaverzlun
Jóns Slgmundssonar á Lauga-
vegi 8. Alls nema verðmæti þau
sem maður þessi stal eða sveik
út úr fólki um hálfa milljón
króna, allt á einurn einasta mán
uði. Það sem lögreglunni þykir
merkilegast og í rauninni óvenju
legast við þetta mál allt, er að
þjófurinn hefur skilað eða endur
greitt nær öll verðmætin sem
hann tók ófrjálsri hendi.
Ingólfur Þorsteinsson yfirvarð
stjóri hjá rannsóknarlögreglunni
hefur haft rannsókn máls þessa
með höndum og hann tjáði Vísi
í morgun að hann myndi skila
málinu af hendi í dag til dóm-
arans. Þjófurinn situr enn í
gæzluvarðhaldi.
Það má segja að það hafi
verið snarræði og skjót hand-
tök lögreglunnar að henni tókst
að grípa þjófinn svo til á síð-
ustu stundu áður en hann komst
úr landi. Hann var búinn að
kaupa sér farmiða til útlanda
og ætlaði að taka með sér þýf-
ið, eða a.m.k. mikinn hluta
þess. Ef það hefði tekizt er
mjög óvíst hversu farið hefði
Framh. á bls. 5.
í gærkveldi kom vélamaður á
togara í lögreglustöðina og kærði
yfir þjófnaði eða ráni á 4 lúðum.
Sagði hann að þrír menn hafi
komið um borð í togarann, farið
niður í lest og tekið þar 4 lúður.
Þegar mennirnir komu með feng
sinn upp úr skipinu varð vélamað-
urinn á vegi þeirra og skipaði hann
þeim að láta Iúðurnar af hendi.
Þeir gerðu sér þá lítið fyrir og
fleygðu þeim í sjóinn, en véla-
maðurinn kærði athæfi þeirra fyr-
ir lögreglunni.
Lögreglan hóf leit að lúðuþjóf-
unum og handtók 2 þeirra, en
þann þriðja fann hún ekki.