Vísir - 11.09.1963, Side 5
VISIR . Miðvikudagur 11. september 1963.
5
Ballettinn —
Framhald af bls. 16.
Þegar sýningunni var lokið,
gekk Þjóðieikhússtjóri fram á
sviðið og fagnaði komu danska
ballettsins í stuttri ræðu. Sagði
hann að það hefði lengi verið
draumur sinn og Þjóðleikhúss-
ins að fá danska ballettinn, sem
nyti heimsfrægðar, í heimsókn
til lslands. Nú hefði sá draumur
rætzt. Þakkaði hann hinu
danska listafólki hlýjum
orðum komuna og hina stórkost
legu sýningu á ballettunum
tveimur. 1 virðingarskyni við
Konunglega leikhúsið færði
hann síðan framkvæmdastjóra
ballettsins og fararstjóra J. L.
Petersen lárviðarkrans, sem
hann sagði að væri æðsti heið-
ursvottur hins íslenzka Þjóðleik
húss.
Petersen svaraði með stuttri
ræðu og minntist starfs ís-
lenzkra listamanna við Konung
lega leikhúsið á liðnum árum.
Kvað hann ballettinn hafa haft
mikla ánjægju af því að koma
í þessa sýningarför og þakkaði
hlýjar kveðjur Þjóðleikhús-
stjóra. Hyllti hann og ballett-
inn, ásamt sýningargestum, síð
an Þjóðleikhús íslands.
Ballettinn sýndi á frumsýn-
ingunni tvö ólík ballettverk.
Hið fyrra var tvíþáttungurinn
Skógardísin (Sylfiden) eftir hinn
mikla danska ballettmeistara
August Bournonville. Síðari
ballettinn var Sinfónía í C eftir
Balanchine, saminn 1947 við
tónlist eftir Bizet.
Dans hins danska listafólks
heillaði áhorfendur mjög og létu
þeir í ljós hrifningu sína með
margendurteknu lófataki. Stjörn
ur kvöldsins voru ballerinan Mar
garethe Schanne og hinn heims
i kunni ballettdansari Erik Bruhn,
i sem dansaði sem gestur konung
„ lega ballettsinsj þessari för, en
þau fóru með aðalhlutverkin í
' Skógardísinni.
Það er rómantískur leikdans,
og fór þar saman skínandi dans
og sérlegur látbragðsleikur.
Mun-mörgum verða minnisstætt
hlutverk sjálfs ballettmeistar-
- ans Niels Björn Larsens, sem
hafði hlutverk Magde spákonu
. á hendi.
Sinfónía í C er ballett með
j fjórum mismunandi dönsum, án
leikþráðs, þar sem tónlistin er
allsráðandi. Er það mjög til-
| komumikill ballett, sem gefur
glögga hugmynd um hve mörg-
um góðum dönsurum danski
ballettinn hefir á að skipa.
Á sýningu ballettsins í kvöld
• verður efnisskráin óbreytt, en
á morgun og föstudaginn verða
sýndir ballettarnir Náttskugginn
og Coppelia. Síðustu sýningar
ballettsins eru á laugardag og
sunnudag.
Launakröfur —
Frh. af bls. 16:
staðreyndir komi fram.
Mánaðarlaun háseta með með
alyfirvinnutima eru sem hér seg
ir:
Án 7*4% hækkunar:
Tvlvaktaskip: 11.392,84.
Þrfvaktaskip: 10.604,27.
Samkvæmt samningsuppkasti
frá 2. sept., sem fellt var 6. sept.
Tvívaktaskip: 12.937,07.
Þrívaktaskip: 12.089,36.
Samkvæmt núverandi kröfum |
(4 af 10 kröfum):
Tvívaktaskip: 17.911,40.
Þrívaktaskip: 15.261,37.
í sambandi við framangreind
ar tölur er rétt að geta þess, að
aðeins ér reiknað með 4 kröf-
um áf 10 í liðnum „Núverandi
kröfur".
Eins og sést af þessu yfirliti
þýða núverandi kröfur Sjó-
mannafélagsins 43,92% hækkun
miðað við launagreiðslur f júní
á þrívaktaskipum en 57,22% á
tvívaktaskipum“.
Vísir átti tal við Pátur Sig-
urðsson, ritara Sjómannafélags
Reykjavíkur um þessa yfirlýs-
ingu útgerðarfélaganna laust
fyrir hádegi í dag. Hann sagði:
Ef sjómehn á farskipunum
komast upp í þessar tekjur með
meðaltals yfirvinnu þá sést bezt
á því hve gegndarlaus yfirvinna
er á þessum skipum. Ef nokkurs
staðar má tala um vinnuþrælk-
un þá er það á íslenzka verzlun-
arflotanum öðru fremur. Ég hef
ekki haft aðstöðu til að kynna
mér þessar tölur enn og get
þess vegna ekki -rætt þær ýtar-
Iega. Hins vegar má benda á að
ekki eru teknir þar með neinir
af öllum þeim fjölda farmanna
sem stöðu sinnar vegna eða sigl
inga skipsins eiga ekki kost á
neinni yfirv. og búa við fasta
kaup sem er miklu lægra en
kaup sambærilegra manna f
landi.
Það sem felst fyrst og fremst
í kröfum farmanna er að þeir
verði settir á sama bekk og
hliðstæðar starfsgreinar f landi.
Farmenn telja sig ekki lengur
geta unað við að standa við hlið
verkamanna við losun úr lestum
t.d. að nóttu til f höfnum úti á
Iandi fyrir miklu lægri laun en
verkamaðurinn hefur. Og þar
við bætist að hásetinn, samkv.
íslenzkum lögum, verður að
skila mörgum mánuðum í
reynslutíma. Þrátt fyrir það hef-
ur hann í dag lægri laun en ó-
faglærður verkamaður.
Út af þessum tölum útgerðar-
manna verður ekki hjá því kom
ist að lokum að leggja fyrir þá
eftirfarandi spurningu: Hvað
mundi Dagsbrúnarverkamaður
hafa í laun fyrir þann vinnu-
tfma, er útgerðarmenn leggja til
grundvallar þessum tölum.
Framúraksfur —
Framhald af bls. 1
ing er skráð vegarlengdin sem
bannað er að aka framúr en
það er f þessu tilfelli 1200
metrar.
Vísir spurðist fyrir um það
hjá lögreglunni í Kópavogi f
morgun í hvaða skyni þessar
ráðstafanir væru gerðar og fékk
þau svör að þetta væri gert f
öryggisskyni til að forða siys-
um. Á þessu svæði er ein mesta
umferð sem um getur á nokkr-
um vegi utan Reykjavíkur, en
þétt og mikil byggð beggja
vegna vegarins og samskipti
mikil meðal íbúannad báðum
megin við hann. Þannig eru
opinberar stofnanir, skólar,
verzlanir o. fl. báðum megin
við veginn og stöðugur straum-
ur fótgangandi fólks yfir hann
jafnt að degi sem á kvöldin.
Við framúrakstri herða bifreið
ir oft á ferðinni svo að þær fara
á stundum fram úr löglegum
hraða sem er á þessum vega-
kafla 45 km. Af þessu stafar
mikil hætta, einkum fyrir fót-
gangandi vegfarendur og þess
vegna hefur verið gripið til
framangreindra öryggisráðstaf-
ana.
Þar sem gera má ráð fyrir að
þessar ráðstafanir verði til að
tefja nokkuð umferðina, ekki
sízt þegar þungir og hæggengir
vöruflutningabílar eru á ferðinni
upp brekkurnar, væri að sjálf-
sögðu æskilegt að komið væri
fyrir annað hvort göngubraut-
um yfir akbrautina eða þá undir
göngum, Það yrði enn betri
öryggisráðstöfun fyrir gangandi
fólk og þyrfti heldur ekki að
tefja bflaumferðina.
Þjófnaður —
Frá setningu námskeiðs f starfsfræðsiu í Kennaraskólanum í morgun.
Dr. Broddi Jóhannesson ávarpar þátttakendur.
Framhald af bls. 16.
máli sínu hjá rannsóknarlögregl-
unni.
I nótt handtók lögreglan annan
þjóf, sem hafði rétt áður farið um
í fbúðarherbergi við Tryggvagötu
og stolið þar peningum. Hann gisti
og fangageymsluna það sem eftir
var nætur.
Loks voru í nótt teknir þrír ungl
ingspiltar sem grunaðir voru um
að hafa brotið brunaboða á Lauga
vegi 40. Þeir neituðu raunar allir
að hafa brotið brunaboðann, en
rannsókn í máli þeirra er enn ekki
lokið.
Lagður niður••?
Framhald af bls. 16.
upp á síðkastið einnig meðal
Þjóðvarnarmanma, sem hafa tal
ið rétt og sjálfsagt að áfram
yrði haldið á þann veg að Al-
þýðubandalagið yrði byggt upp
sem stjómmálaflokkur“.
Um aðstöðu kommúnista f
slfkum nýjum flokki segir blað
ið, að hann edgi að vera iýð-
ræðislega uppbyggður, „þannig
að hver og einn hafi aðstöðu
til að hafa áhrif á störf hans
og stefnu“.
Verkamaðurinn segir ennfrem
ur að á flokksstjómarfundi Sós
falistaflokksins nú í haust verði
nánar fjallað um mál þessl og
þar muini væntanlega liggja fyr
ir niðurstöður af viðræðum við
bandamenn Sósíalistaflokksins í
Alþýðubandalaginu. „Kynnj þá
svo að fara, að veturimn yrði
notaður til að stofnsetja og
hannesson, skólastjóri, nám-
byggja upp nýjan stjómmála-
flokk — fjöldaflokk vinstri
manna“, segir blaðið að Iokum.
Kennarar á starf-
fræðslunámskeiði
Starfsfræðslunámskeið fyrir
kennara var sett f Kennaraskól-
anum kl. 10 í morgun. Nám-
skeiðið sækja milll 30 og 40
framhaldsskólakennarar víðsveg
ar að af landinu. Tilgangurinn
með námskeiðinu er að veita
kennurunum alhliða yfirlit yfir
starfsfræðslu. Námskeiðið mun
standa yfir f 11 daga.
Helgi Elíasson, fræðslumála-
stjóri, setti námskeiðið í morg-
un en síðan lýsti Broddi Jó-
hannesson, skólastjóri, nám-
skeiðinu. Aðalkennarar nám-
skeiðsins eru tveir Danir, þeir
A. Jörgensen og Kaj Sörensen,
En auk þeirra flytja erindi
Kristinn Björnsson, sálfræðing-
ur, Sveinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri og Þórir Einarss.
viðskiptafræðingur.
Skipulaðar hafa verið kynnis-
ferðir fyrir þátttakendur í um
tuttugu fyrirtæki og stofnanir,
m. a. ísbjörninn, Héðinn, At-
vinnudeild Háskólans og Rann-
sóknarstofur Fiskifélagsins.
r
Arekstur —
Framhald vt bls. 1.
utan húsdyrnar á Bergþórugötu
27. Þegar eigandinn kom út 1
morgun varð hann mikilla
skemmda var á bifreiðinni og sýni-
legt að ekið hafi verið á hana
af miklu afli, m. a. var frambretti
hennar mikið beyglað, ljósker
brotið og fleiri skemmdir á henni.
Málið var kært til rannsóknar-
lögreglunnar og skorar hún á við-
komandi ökumann, sem árekstrin-
um olli, að gefa sig fram við
hana og eins þá sem orðið hafi
varir við áreksturinn í nótt að
láta sig vita hið allra bráðasta.
M. a. telur lögreglan að árekstur-
inn hafi verið það harður að hár
skellur hafi orðið og telúr ekki ó-
líklegt að fólk í nærliggjandi hús-
um hafi vaknað við hann.
Mokafll —<
Framhald at bls. 16.
Hamravík 1300, Gunnar 1500,
Skarðsvík 1300, Sigurður Bjarna-
son 1650, Hafrún 1500, Guðmund-
ur Þórðarson 1400 Ólafur Bekkur
1100, Sólrún 1600, Haraldur 1150,
Skírnir 1100, Gjafar 1000, Sigfús
Bergmann 1000, Náttfari 1200,
Loftur Baldvinsson 1000, Oddgeir
1500, Margrét 1400, Guðrún Jóns-
dóttir 1000, Hilmir II. 1000, Seley
1300, Ásólfur 1000, Ársæll Sigurðs
son II. 1000, Rifsnes 1250, Grótta
1250, Ólafur Tryggvason 1200.
fyrir bólusótt
í nótt voru tveir farþegar úr
millilandaflugvél Flugfélags íslands
settir í sóttkví í öryggisskyp.i vegna
hugsanlegra bólusóttartilfella. Þess
ir farþegar voru að koma frá Spáni
og veiktist annar þeirra í flugvél-
inni á leiðinni frá London til
Reykjavíkur.
Þegar þetta var Ijóst og jafn-
framt að hinn sjúki farþegi taldi
möguleika á því að hann væri smit
aður af bólusótt voru nauðsynlegar
ráðstafanir gerðar af hálfu heil-
brigðisráðstafana hér. Læknar fóru
út á flugvöll og fluttu báða Spánar
farana í sóttkví í borgarsjúkrahús
ið, sem þeir verða einangraðir í
nokkra daga ennþá. Flugvélin var
sótthreinsuð i dag og eins bifreiðin
sem flutti Spánarfarana í borgar-
sjúkrabifreið í nótt.
Vísir átti I morgun tal við Björn
Jónsson lækni við borgarlæknis-
embættið, og skýrði hann frá því
að í nótt og morgun hafi farið fram
ítarleg skoðun á Spánarförunum
tveim. Að þeirri rannsókn lokinni
benti allt til þess að þarna væri
ekki um bólusóttartilfelli að ræða,
heldur um meinlaus útbrot af öðru
tagi. Erfitt væri þó að ganga úr
skugga um þetta með öruggri vissu
eins og sakir stæðu og annaðhvort
yrði að bíða eftir óyggjandi ein-
kennum veikinnar eða þá með rækt
un sjúkdómsins, en hvorttveggja
tekur nokkra daga. Á meðan verða
mennirnir báðir hafðir í sóttkví.
Um aðra farþega væri það að
segja að ekki þætti ástæða til að
setja þá í sóttkví að svo komnu
máli, en þeim hafi verið gefin fyrir
mæli um að láta borgarlæknisem-
bættið vita ef þeir fyndu til óþæg-
inda næsta hálfan mánuðinn.
Björn sagði að lokum að réttara
hafi þótt að grípa til ákveðinna ráð
stafana, og ganga fremur of langt
í þeim efnum, heldur en að ásaka
sjálfan sig um aðgerðarleysi á
hættustund.
Sátu fastir
Bílar á leið yfir Möðrudalsöræfi
lentu í talsverðum erfiðleikum að-
faranótt mánudags og á mánudag
vegir ófærir aðfaranótt mánudags.
Mikil snjókoma hefur verið þar
um slóðir síðan um helgi og urðu
vegir cfærir aðfaranótt mánudags.
Sat fjöldi vöruflutningabifreiða, á-
ætlunarbifreiða og fólksbifreiða
fastur unz jarðýta og veghefill
höfðu rutt veginn. Þeir sem lengst
máttu biða höfðu setið nokkuð á
annan sólarhring.