Vísir - 11.09.1963, Síða 9

Vísir - 11.09.1963, Síða 9
VlSIR . Miðvikudagur II. september 1963. 9 Keppti í íþróttum í 40 ár Það mun ekki algengt að sextíu ára gamall maður hafi tvo þriðju hluti ævi sinnar keppt í íþróttum á opinberum vettvangi. Staðreynd er þó að slíka menn er enn í dag að hitta á fömum vegi. Sá síðasti sem á vegi okkar varð, var Gísli Sigurðsson lög- regluþjónn f Hafnarfirði — maður sem hver íþróttamaður eða íþróttaunnandi á landinu hlýtur að kannast við fyrir framúrskarandi þrautseigju og þó fyrst og fremst fyrir braut- ryðjandastarf á sviði íþrótta. Gísli iigurðsson er ýmislegt meir en íþróttamaður. Hann er sveitabarn og náttúruunnandi í eðli sínu, að atvinnu er hann lögregluþjónn, en f hjáverkum hefur hann safnað örnefnum í Álftaneshreppi hinum gamla, og eru þau orðin á 4. þúsund tals- ins. Loks hefur Gfsli skrifað íþróttasögu Hafnarfjarðar frá upphafi og safnað til þess gögn- um og handritum hvaðanæva að. Er þetta hvorttveggja hin merkasta heimildasöfnun og einstök f sinni röð. Lögreglu- þjðnn hefur Gfsli verið á 4. tug ára. Gerðu mikið gott Það var f tilefni af sextugs- afmæli Gísla að Vísir leitaði á fund hans og spurði hvað á daga hans hafi drifið, — Það er sitt af hverju, sagði Gísli, en ef ég á að taka eitt fram yfir annað, þá er það viðhorf mitt til íþróttamála og skerfur minn til þeirra. Lffsvið- horf mitt hefur mjög snúizt um þann möndul og ég held — sagði Gfsli — að íþróttimar hafi gert mér meira gott en nokkuð annað sem á daga mfna hefur drifið. Það er út frá þessum for- sendum og þessu lffsviðhorfi hins sextuga lögregluþjóns að talið beinist framar öðru að íþróttaferli hans og áhugamál- um á því sviði. o Hvar öðláðist þú þenna brennandi áhuga á íþróttum, Gísli? — 1 heimabyggð minni, Ár- nessýslu. Ég er fæddur að Sól- heimum í Hrunamannahréppi 23. júní 1903 og strax sém stráklinaur hréifst ég af íþrótt- um og líkamlegu boli manna. — Varðstu fyrir einhverjum sérstökum áhrifum í þvf efni? — Á þeim árum sém ég kom til vits austur þar var ung- mennafélagshréyfingin að kóma til sögunnar, Það fylgd; henni mikill kraftur og í kjðlíari hennar sigldi áhugi fyrlr íbróttum. Sá áhugi var að vísu að nokkru fvrir hendi áður en ungmennafélögin voru stofnuð, ekki sízt meðal héirra sem sótt hðfðu bændaskólana heim og lært þar glímur, ýmsa leiki og fleira. Lærðu allir að synda. Það má ennfremur geta þess Iofsverða framtaks hreppsbúa minna að þeir sendu alla ferm- ingardrengi — rfka sem fátæka — tll sundnáms. — Hvert? — Það var í svokallaða Grafarbakkalaug, skammt frá Flúðum. í>ar voru heitar laug- ar, og með þvf að gera stfflu í læk fékkst gðð sundlaug. Þang- að voru fermlngardrengir úr Hrunamannahreppi sendir hálf- an mánuð til sundnáms vor hvert. Þéir bjuggu flestir í tjöldum og höfðu skrínukost, en sumir þeirra a. m. k. munu hafa notið einhverrar aðhlynn- ingar á nærliggjandi bæjum. Þetta m. a. varð til þess að íþróttaáhugi vaknaði í minni sveit Öðrum sveitum fremur. Drengimir drukku f sig útðoft- ið, þeir brunnu f sólinni, þeir reyndu með sér afl og annan fræknleik og íþróttamennskan rann þeim í bíðð. í þvflfku um- hverfi ólst ég upp. Gripinn áhuga og metnaði — Og þú hefur notið áhrif- anna? — Já, Og það var ótalmargt méira á þessu sviði sém héill- aði mig. Það voru sumarhátíðlr á Álíaskéiði, sem þá voru ár- lega haldnar með keppni i ýmiskonar íþróttum, er höfðu sín ákveðnu áhrif. En hitt þó öllu meira að ég var í átokum og glfmu við jafnaldra mína. Það Vakti hjá mér metnað að vera ekki síakari en þeir, að reynast jafnoki þeirra — eða jafnvel eitthvað betur — ef til átaka kom. Ég mun hafa verið átta ára gamall þegar ég fluttist f nýtt umhverfi. Þetta nýja umhverfi var Háfnarfjörður og þar hef ég átt heima f rúma hálfa öld. Virðingin vannst með áflogum — Dofnaði íþróttaáhuginn ekkert við skiptin á dvalar- stað? — öðru nær. Hann jókst! En kom til af illri nauðsyn. Strákarnir í Hafnarfirði viður- kenndu engin aðskotadýr nema þau gætu sýnt það svart á hvítu að þau stæðu sízt að baki þeim innfæddu. Þetta kostaði mig heljarátök og mikil áflog þar til ég hafði unnið virðingu þeirra og aðdáun með þvf að íeggja flesta jaftialdra mfna að velli og jafnvel þjarma eilítið að þeim sem eldri voru. Eftir það var virðingu minni borgið og Hafnarfjarðarréttlndi mín viðurkennd svo ekki varð um vilzt. Iþróttaáhugi minn Óx fremur Við þetta heldur en hið gagnstæða. Einstæður kennari — Fékkstu nokkra tilsögn í fþrðttum? — Hún var lftil að vfsu, en nokkur þó. Ég naut tilsagnar f leikfimi tvö áir meðan ég var í skðla og eftir það um nokk- urra ára skeið hjá Bjarna Bjamasyni, siðar skðlastjóra á Laugarvatni. Hann var ein- stæður kennari og persónuleiki að sama skapi. Við ungu menn- irnir í Hafnarfirði sem nutum handleiðslu hans dáðum hann og geruftt það enn í dag. Hann var stoð og stytta alls íþrótta- lífs í Hafnarfirði á þeim árum og áhrifa frá honum hefur gætt æ síðan. —- Hvenær hefst íþróttaferill þinn fyrir alvöru? — Ég tél það hafa verið með árinu 1919. Þá bindast ungir áhugamenn í Hafnarfirði sam- tðkum um að stofna knatt- spyrnufélög — frekar tvö en eitt. Anhað hét „17. júnl", en hitt hlaut nafngiftina „Fram- sókn“ og meðal stofnenda þess var ég. Fjögurra stunda gangur að og frá keppni Þessi tvö félög settu ákveðið svlpmót á líf Hafnfirðinga og það má fullyrða að eftir það hefur aldrei ofðið neitt lát á íþróttaáhuga þeirra. Félögin byggðu samelginlegan Iþrðtta- völl á Hvaleyrarholti undir Fuglstapaþúfu og með sam- starfi þeirra var í rauninni Iagður grundvöllur að fyrsta íþróttabandalaginu í Hafnar- firði. — Úr þessu byrjar þú að taka þátt í keppni? — Já en það var ekki vegna gétu minnar éða "löngunar til eigin framaiá.sviði Iþrótta. Það Váíjpiiklw fremur hitt, að ..njjg langaði til að sjá Hafnfirðings einhvers staðar getið á keppnis- skrá utan heimavettvangs. Mér kom til hugar að ef ég ryddi brautina og léti skrá mig til leiks á opinberum vettvangi yrði það e.t.v. til þess að vekja áhuga Hafnfirðinga fyrir iþrðtt- um og fieiri myndu þá á eftir koma. — Var þetta nokkrum vand- kvæðum bundið? — í rauninni ekki. Hitt var ann að mái að aðstaðan var erfið. Fyrst og fremst vegna þess að maður kunni ekki néitt, vissi ekki neitt hvernig maður átti að haga sér í keppni. Það einasta var að maður hafi stolizt ti! að Gísli Sigurðsson horfa á nokkra Reykvíkinga æfa sig í íþróttum og reyndi að apa eftir þeim þegar til keppninnar kom. Annað var það að maður varð að ganga frá Hafnarfirði til kappleiksins í Reykjavík og þaðan aftur að keppni lokinni til Hafnarfjarðar. Það var röskur 2ja klst. gangur hvora leið. Um annað var ekki að ræða. Helztu keppinautamir Ég held að fyrsta íþróttamót- ið sem ég tók þátt I utan Hafn- arfjarðar, hafi verið á gamla Melavellinum í Reykjavik árið 1923 eða 24. Ég man ekki hvórt heldur. En þá stóð íþróttavöllur inn þar sem fjölbýlishúsin stóru standa nú við Hringbraut. — Hverjir voru þá helztir íþróttakappar Reykvíkinga? — Ég man eftir Tryggva Gunnarssyni, Þorgetri frá Varmadal sem nú er 1 Gufunesi, helmingnum af Silla og Valda þ.e. Sigurliða Kristjánssyni, Ós- valdi Knudsen og ýmsum fleir- um sem nú eru orðnir nafntog- aðir menn í bæjarlífi Reykvik- inga. — Stóðstu þig vel? — Eftir efnum og ástæðum. Verðlaun hlaut ég ekki, en varð heldur ekki aftastur allra. Ég keppti f þetta skipti f köstum Og Framhald ' bls. 13. listaverk í augum Islendinga. En það að gera Iandið fegurra og þá um ieið búsældarlegra er varla næg réttlæting skógrækt- inni f augum margra lands- manna, sem hættir til þess að spyrja um fjárhagslegt gildi allra hluta á þessari miklu mammonsöld. Þeir spyrja um það hvort skógræktin sé ekki aðeins fögur draumsjón, sem lít- ið eigi skylt við veruleikann. Hvort þeim tfma og því mikla fé sem þegar er til hennar eytt væri ekki betur varið í aðra þarfari hluti eins og verklegar framkvæmdir, síldarverksmiðj- ur og félagsheimili. Þar grillir á hið mikla viðskiptalögmál mann lífsins. Getur skógræktin nokk um tíman borið sig? Er í sann- leika unnt að rækta annað en yndisaukahríslur á lslandi? Er hægt að rækta hér nytjaskóg í þess orðs fyllstu merklngu? Og það er eðlilegt að þannig sé spurt. Landið er stórt og þjóðin lítil, en engu að síður skortir nú brátt bithaga tii kvik fjárræktar. Þvf er spurt hvort skynsamlegt sé að friða landið til skógræktar, einkum ef það er gert f stórum stíl. ★ Kað er ekki hægt að gera sér grein fyrir fjórhagslegu gildi skógræktar nema vita til hlítar hver vöxtur viðarins er. Til þess þarf nákvæmar mæling ar og þá þeirra tegunda sem mest eru nytjatrén. Þar er efst á blaði siberíulerki og svo vili til að lerki þetta hefir verið mælt á þriggja ára fresti frá 1952 í Hallormsstaðaskógi. Það er nógu langur tími til að vaxt- armælingar gefi Örugga vit- neskju um gróðrarmátt þessarar trjátegundar á Islandi. Lerkið, sem var gróðursett f skóginum 1938 hefir að meðaltali irlega vaxið á hekttra lands um 6,3 teningsmetra viðar. Almennt er talið að helmingur þessa irs- vaxtar trjánna fftrí f skógar- högg, niðursögun og tll spillis. En reikna mi með að helmingur inn nýtist eða írlega 3 tenings- metrar. Verðmæti þessa írsvaxtar er eftir núverðandi verðlagi i trji viði f landinu kr. 9.400 i ári. Þettt er hreinn ágóði af skðgin- um þar sem stofnkostnaður ali ur við gróðursetningu er þegar greiddur með sölu girðingar- staura, sem féllu til við grisjun skógarins. Að vísu verður að bíða nokkra tugi ára frá gróðursetn ingu áður en slíkur skógur gef- ur af sér þennan árlega ágóða. En þegar hann er vaxinn lftur dæmið þannig út. Af þessu er ljóst að skógræktin skilar marg földum hagnaði 6 við land sem nýtt er tll sauðfjárbeittr og reynist meira en samkeppnisfær við grasrækt. Arðurinn af slíkri skógrækt á spildu á stærð við meðaltún islenzks bónda yrði árlega 120—150 þús. krónur. ★ Ag það má líka líta á þetta dæmi frá öðru sjónarmiði. — Markmið islenzkrar skóg- ræktar er að framleiða í land- inu megnið af þeim viði sem þjóðin þarfnast. Nú flytur þjóð- in inn um 120 þús. tenings- metra af barrviði sem við gæt- um ágæta vel ræktað i landinu sjálfu. Verðmæti þess innflutn ings er hvorki meira né minna ert 80—100 millj. kr. á ári. Og eins og Sigurður Blöndal skóg- arvörður bendir á í ritgerð sinni, Skógrækt — nýr þáttur f ræktun landsins, þarf ekki nema landssvæði sem er fimm sinnum stærð Þingvallavatns, til þess að rækta allan þann við, sem þjóðin þarfnast nú. Það er tæplega fertugasti hluti af áætluðu gróðurlendi lands- ins. jþær tölur sem ég hefi vitnað 1 hér að framan eru teknar úr niðurstöðum rannsókna skógræktarinnar. Skógræktar- menn eru þeim kunnir, en ég efast um að leikmenn, eins og undirritaður, hafi gert sér þær gjörla ljósar. Mörgum er tamt að líta á skógræktina sem fal- legan draum. En hér eru engir draumórar á ferðinni. Hinn furðugóði fjárhagslegi grund- völlur íslenzkrar skógræktar er staðreynd sém sjá má jarðfasta í Hallormsstaðarskógi. Sú stað- reynd sýnir glöggt að í ræktun landsins er varla til skynsam- legri fjárfesting en skógrækt. Með gróðursetningu er verið að leggja inn á banka framtíðar- innar, sem borgar hærri vexti en nokkur annar banki þessa lands. Gunnar G, Schram.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.