Vísir - 14.09.1963, Side 5
I
^ISIR . Laugardagur 14. september 10S3.
Framnalö al bls. l.
STJÖRNARSTÖRF
A FERÐALAGI
Fylgdarlið forsetans telur 36
manns, en í þeim hópi eru marg
'_r sérfræðingar hans í hinum
ýmsu málum er forsetinn þarf
að fjalla um stöðu sinnar vegna.
Hafa stjórnarstörf hans ekki
fallið niður á feröalaginu.
Nefnd manna úr fylgdarliðinu
sem kannar síðasta undirbún-
inginn undir komu varaforsetas
°g ferðir has hér kemur í dag
sða á morgun.
Ambassador Badaríkjanna,
James Penfield og kona hans,
komu í gærmorgun úr sumar-
leyfi. Thor Thors ambassador ís
lands í Bandaríkjunum er kom-
inn til íslands vegna heimsókn-
ar varaforsetans.
Ríkisútvarpið mun m. a. út-
varpa frá komu varaforsetans.
gjafir
VARAFORSETANS
Þær breytingar aðrar hafa orð
ið á dagskrá heimsóknarinnar,
að Lyndon Johnson afhendir
Gunnari Friðrikssyni, forseta
Slysavarnarfélags íslands. þrjár
íæranlegar talstöðvar að gjöf til
félagsins. Afhendingin fer fram
að loknu hádegisverðarboði ís-
lenzku forsetahjónanna.
Þá mun hann einnig afhenda
Háskóla íslands bókagjöf til
nýju vísindadeildar Háskólans.
Rektor veitir gjöfinni viðtöku.
Á samkomu í Háskólabíó
niun Ármann Snævarr háskóla-
rektor ávarpa Jonhson varafor-
seta. Þá mun Johnson flytja
ræðu, en síðan mun hann ganga
um salinn og ræða við þá, sem
þar eru viðstaddir.
Þá mun dóttir varaforsetans
sennilega ekki heimsækja Sund-
laug Vesturbæjar eins og ráð
var fyrir gert. 1 stað þess verð-
ur hún í kaffidrykkju með stúd-
endum f Háskólanum.
VEIZLUR
Þrjár veizlur verða haldnar í
sambandi við komuna. Hádegis-
verðarboð Forseta íslands og
frúar í glersalnum að Hótel
Sögu. Þar verða um 65 gestir.
Forsetafrúin velur sjálf réttina.
Kvöldverðarboð forsætisráð-
herra verður að Hótel Borg. Þar
verða um 150—160 manns.
Verður þetta stærsta veizlan
og aðalveizlan í heimsókninni.
Ein veizla verður fyrir ung-
frú Johnson í Nausti á vegum
Varðbergs. Þar verða væntan-
lega um 90 manns. Matseðillinn
er aðallega kalt borð, íslenzkir
sjávarréttir, kalkúnar, Iaxar,
svínasteikur og yfirleitt allt sem
slíku boði tilheyrir.
inu í fyrradag. Hann er rekinn
af Fransiskanasystrum á veg-
um Kaþólsku kirkjunnar og
átti Visir tal við skólastýruna,
systur Audomaros, í gærkvöld.
Hún sagði að öll börn væru
velkomin í þennan skóla. án
tillits til trúarskoðana, og væru
þar nú 310 börn. Svo heppilega
vildi til, að börnin voru fyrir
skömmu farin heim úr skólan-
um í fyrradag, er vatnið tók að
flæða inn í hann. Það var um
kl.,5 og sumar götur í Þórshöfn
þá eins og fljót yfir að líta.
Systir Audomaros kvað þær
Fransiskanasystur fyrst hafa
vopnazt fötum og byrjað að
ausa vatninu út úr bygging-
unni. En það var eins og að
ausa upp hafinu með fingur-
björg og varð þeim „systrum"
það næst fyrir að biðja slökkvi
liðið að koma með dælur sínar.
Þeirri beiðni, var synjað í
fyrstu, þar eð ekki var um elds-
voða að ræða. En síðan komu
slökkviliðsmennirnir þó, munu
hafa hugsað sem svo að þeirra
myndi tæplega verða þörf við
slökkvistörf, þar sem vatnsflóð
ið hefði nægt til að slökkva
skógarelda. Unnu slökkviliðs-
mennirnir siðan að því að dæla
vatni út úr skólabyggingunni til
klukkan eitt um nóttina, og í
gær voru þeir að dæla vatni,
sem safnazt hafði fyrir í uppi-
stöðum utanhúss.
Fransiskanaskólinn var lok-
aður i gær, m. a. vegna þess
að miðstöðvarkerfið var í ólagi
eftir vatnsflóðið, en systir Audo
maros bjóst við að börnin
myndu koma aftur í skólann í
dag.
ilunnurnar ~
Framhald af bls. 16.
endur komust ekki yfir ána. Veg
urinn frá Sörvogi á Vogey út
á flugvöllinum eyðilagðist af
vatnselg, og í þessari byggð og
víðar varð að leysa út kýr, sem
hýstar höfðu verið í byrjun ó-
veðursins, þar sem hætta þótti
á að þær drukknuðu i fjósun-
um. Þetta er mesta steypiregn
sem komið hefir í Færeyjum í
manna minnum og sló óhug á
margan vegna hinna ofboðslegu
vatnavaxta á örskammri stundu.
En skyndilega stytti upp klukk
an 8.30 í fyrrakvöld með vest-
anátt, en rigningarveðrið var af
suðvestri og 7 — 8 vindstig.
barnaskólinn VAR
LOKAÐUR í GÆR.
Það var Fransiskanaskólinn í
Þórshöfn, sem hálffylltist í flóð
Níu monns —
Framhald af bls. 16.
harður milli beggja bílanna og
ienti framendi vörubílsins
framantil á hægri hlið strætis-
vagnsins. Við áreksturinn
sveigðist strætisvagninn undan
til vinstri en vörubillinn til
hægri og renna báðir skáhallt
upp á eyjuendann norðan
gatnamótanna. Þar var fyrir
ijósastaur og lentu bílarnir af
þvflíku afli á honum að hann
kubbast sundur og Ienti fram-
endi hans upp á gangstéttina á
Lönguhlíð austanverðri. Bíll var
þarna rétt hjá að þvf er sjónar-
vottar sögðu og töldu að engu
hafi mátt muna að staurinn
lenti á honum.
En um það leyti sem bílarnir
tveir voru að stöðvast eftir
áreksturinn lenda þeir á þriðja
bílnum, sem var Skodabifreið
og hafði hún þá staðnæmzt
austan við eyjuna. Skall fram-
endi strætisvagnsins á honum,
en það högg mun þó ekki hafa
verið mjög mikið, því skemmd-
ir á Skodabflnum voru ekki
taldar verulegar. Aftur á móti
skemmdust hinir báðir bflarnir
mjög mikið, hliðin sprakk inn
í strætisvagninum og vörubíll-
inn skemmdist mikið að framan.
Framhald af bls. 16.
á sjúkrahús. Tvennt rifbeins-
brotnaði, aðrir hlutu skurði,
skrámur, marbletti og annan á-
verka, því margir farþeganna í
strætisvagninum hlutu slæm
högg við áreksturinn.
Þeir sem áverka hlutu voru:
Bílstjórinn Birgir Sigurðsson,
Mjóuhlíð 16, Jóna Harðardóttir,
Heiðargerði 51, Kristín Ingi-
björg Jónsdóttir, Ólöf Krist-
jánsdóttir og Bergur Jósteins-
son, öll til heimilis að Garðs-
enda 4, Margrét Hallgrímsdótt-
ir, Ásgarði 139, Magna Einars-
dóttir, Stigahlíð 22, Gerður
Stefánsdóttir, Stigahlíð 14,
Hrefna Bjarnadóttir, Tunguveg
48.
Ólöf Kristjánsdóttir var í
strætisvagninum ásamt 13 ára
gamalli dóttur sinni og þriggja
ára gömlum frænda sínum. Ól-
öf slasaðist einna mest, þvf tvö
eða þrjú rifbein brotnuðu. Dótt-
ir hennar og frændi sluppu með
smáskurði og skrámur.
Vísir átti í gærkveldi stutt
samtal við Kristínu. Sagðist
hún, ásamt móður sinni hafa
séð stóran vöruflutningabíl
stefna allt í einu inn í hliðina
á strætisvagninum. Ráku nokkr-
ir farþeganna upp óp, en í sama
mund skall vörubíllinn á hægri
hlið strætisvagnsins. Sátu þau
í næsta sæti fyrir aftan bíl-
stjórann. Við áreksturinn fengu
nokkrir farþeganna í vagninum
smátaugaáfall og sumir fóru
að gráta.
Nokkuð margir farþegar
voru f strætisvaginum, þegar
áreksturinn varð, en stuttu síð-
ar kom annar vagn og hélt á-
ætlunarferðinni áfram. Vagn-
inn sem lenti í árekstrinum
var .á Bústðahverfisleið.
Antonio Sanni, fiskkaupmaður frá Messina, ræðir við Ianda sinn Signor
Toia, sem er starfsmaður Skiphoits h.f., en það fyrirtæki seldi honum
130 tonn af skreið.
Fiskkaupmaður -
Sendinefgici islfisids
hjó S.P. skipuð
Sendinefnd íslands á 18. Alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
verður þannig skipuð:
Thor Thors, sendiherra, Kristján
Albertsson, . sendiráðunautur,
Hannes Kjartansson, ' aðalræðis-
maður, Baldvin Jónsson, hæsta-
réttarlögmaður og Þór Vilhjálms-
son, borgardómari.
Syndii 100
Framhald at bis. 1,
vör og G. Helgason og Melsteð.
Það er hið fasta verð, sem
Sanni greiðir fyrir skreiðina,
eða 295 sterlingspund á tonnið
cif fyrir Afríku-tegundina. Er
það um 20 sterlingspundum
hærra verð en í fyrra.
Sanni skýrði frá því, að
skreið frá Noregi væri yfirleitt
betri en frá íslandi og stafar
það af eiginleikum fisksins í
sjónum, íslenzki fiskurinn er
feitari en sá norski og því ekki
\eins heppilegur í skreið.
Hann lýsti því hvemig farið
væri að hraðþurrka fisk i Nor-
egi. Það þyrfti að gera til þess
hús sem væru loftþétt og blása
lofti inn í það.með viftu. Aðal-
atriðið væri að gæta þess, að
hitinn í húsinu væri jafn, eða
um 10 stig á celsius. Þá verk-
aðist fiskurinn mjög vel og yrði
bragðgóður. Ekki væri hægt að
hraðþurrka við meiri hita, því
að þá kæmi slæmt bragð á fisk-
inn. Með slíkri hraðþurrkun
gætu íslendingar varið fiskinn
fyrir frosti, en frostskemmdir
væru algengasti gallinn á ís-
Ienzkri skreið.
Þetta er í annað sinn, sem
Signor Sanni kemur hingað til
lands. Hann sagði, að sem
ítalskur fiskkaupmaður teldi
hann það mjög mikilvægt að
geta keypt fiskinn sjálfur beint
frá íslandi, en þurfa ekki að
taka hann í gegnum aðra um-
boðsmenn. Þannig gæti hann
sjálfur tryggt sér gæði fisksins
og þegar um verulegt magn
væri að ræða, gætu þeir fengið
fiskinn fluttan beint til sfn, en
þyrftu ekki að taka hann úr
birgðageymslum á Ítalíu. Sama
væri að segja um stærri kaup-
endur á saltfiski, að þeir vildu
hafa aðstöðu til að kaupa hann
sjálfir, en að kaupin þyrftu
ekki að fara í gegnum hendur
umboðsmanna. Annað mál
væri með fiskkaupmenn, sem
keyptu minna magn, þau kaup
ættu að ganga í gegnum um-
boðsmenn.
Framhald af bls. S.
heildarskipuiag sá um Kjartan
Guðjónsson teiknari.
Skrifstofutækni 1963 er fyrsta
almenna samsýningin hér á
iandi af þessu tagi, og mun hún
í framtíðinni verða endurtekin,
eftir því sem tækniþróunin gef-
ur tilefni til.
Það er „Stjórnunarfélag ís-
lands“, sem gengst fyrir þess-
ari sýningu, og verður hún opin
til 21. þessa mánaðar.
Leiðrétting.
I grein um skreiðarframleiðslu
á 8. síðu í gær varð sú prentvilla
að ísland flytti út skreið fyrir 28
millj. en átti að vera 281 millj.
krónur.
ánderson —
Framhaid af bls. 16.
að sprengja girðinguna 1 loft
upp úr landi og hefði það verið
gert ef óvinafloti hefði ráðizt
inn á þessa firði. Enn eru tætl-
ur eftir af girðingunum og
sprengjur á botnum fjarðanna.
Ekki er bein hætta talin stafa
af þeim, en samt sjálfsagt talið
að hreinsa þær burt. Fer Lárus
Þorsteinsson frá landhelgisgæzl
unni með f leiðangur þennan.
Skipin halda til Akureyrar á
mánudaginn og verður Eyja-
fjörður fyrst slæddur.
SMURSTOÐ
Opnum kl. 10 f.h. \ dag
smurstöð í húsakynnum
okkar v/ð Laugaveg, —
aoeins fyrir Volkswagen
og Land-Rover bifreiðar
ieiBdverzIumn HEKLA h/f.