Vísir - 14.09.1963, Qupperneq 8
8
Otgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði.
1 lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Dómur gamals samherja
Einn af fyrrverandi forustumönnum Framsóknar-
flokksins lét nýlega svo ummælt í blaðagrein, að þeir
Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson hefðu nýlega
„hafið sókn á opinberum vettvangi í sambandi við
hafnaraðstöðu Natóríkjanna í Hvalfirði“. Átti hann
þar við æsingaskrif Tímans undanfarið og sagði að
þessir tveir þingmenn og allmargir samherjar þeirra
hefðu undangengin 20 ár starfað í nánu samfélagi við
kommúnista, til að hindra íslendinga í eðlilegri og
nauðsynlegri þátttöku í samstarfi frjálsra menningar-
þjóða.
Þótt einhverjum kunni að þykja þetta full djúpt
tekið í árinni, verður því ekki neitað, að fyrmefndir
tveir liðsoddar flokksins bera aðaíábyrgðina á stefnu
hans í utanríkismálum og skrifum Tímans um þau. Það
hefur oft, og ekki hvað sízt nú upp á síðkastið, verið
erfitt að sjá það, að Tíminn sé málgagn stjórnmála-
flokks, sem vill þátttöku íslands í vestrænu samstarfi.
Æsiskrif blaðsins um Hvalfjarðarmálið verða út á við
tæplega skilin á annan veg en þann, að forustumenn
Framsóknarflokksins vilji að við hættum ábyrgri þátt
töku í vömum Nató. Hefðu þessi skrif Tímans verið
andstæð skoðunum Hermanns og Eysteins, var þeim
í lófa lagið að stöðva þau strax í upphafi. En þeir lé^u
það óátalið, þótt ritstjórinn gengi í þessu máli, eins os
svo mörgum öðrum, í lið með kommúnistum og beitti
fjandsamlegum áróðri gegn vestrænni samvinnu og
varnarsamtökum.
Að vísu er svo að sjá nú, allra síðustu dagana, að
leiðtogum flokksins hafi þótt nóg komið í bili, og jafn-
vel ekki heppilegt að halda þessum æsiskrifum áfram
um það leyti sem varaforseti Bandaríkjanna er að
koma hingað í heimsókn. Það má þá líka hjálpa komm
únistum á annan hátt í staðinn t. d. með því að leggja
þeim til liðsstyrk á mótmælafundinum, sem þeir hafa
boðað!
Með kápuna á báðum öxlum
Þegar Tíminn skrifar af mestum æsingi og f jand-
skap gegn Atlantshafsbandalaginu og þátttöku íslands
í vamarkerfi lýðræðisþjóðanna, er því oft skotið ein-
hvers staðar inn í, eða hnýtt aftan við, að það beri
ekki að skilja þetta svo, að Framsóknarflokkurinn vilji
ekki styðja Nató og vestræna samvinnu. Það sé nú eitt-
hvað annað. Hann hafi þar allra flokka heilbrigðasta
afstöðu! Þetta mun vera ætlað sem „plástur“ á fylgis-
menn flokksins úti um landið, sem lítið er gefið um
samfélagið við kommúnista.
Meðan aðalforustumenn flokksins taka ekki af
skarið og stöðva ritstjórann alveg í þessari iðju, verða
beir að liggja undir því ámæli að þeir séu samstarfs-
nenn kommúnista. Það er ekki endalaust liægt að bera
Kápuna á báðum öxlum: segjast í öðru orðinu styðja
vestrænar vamir, en láta svo aðalmálgagni flokksins
haldast uppi, að reka fjandsamlegan áróður gegn sam-
tökunum.
V1SIR . Laugardagur 14. september 1963.
a
mm
: :'
.
Fréttabréf frá Patreksfirði:
Síldarverksmiðjm tilbúin
Patreksfirði, 5. sept. —
í Sumarið hefur verið frekar kalt
■Jhér um slóðir, einkum framan af,
J«en í ágústmánuði var veðráttan
■Jmun hlýrri. Heyskapartíð hefur
.Jverið góð og nýting heyja með
J«bezta móti. Tún voru yfirleitt vel
■Jsprottin en háarspretta er svo til
I"engin. Bændur hér í nágrenninu
J.eru þegar búnir eða eru að ljúka
■Jheyskap og má segja að heyfengur
J*sé góður og hey öll óhrakin. —
■ÍLJtlit með sprettu garðávaxta er
■Jallsæmileg, þótt á stöku stað hafi
J«kál fallið í görðum vegna nætur
■Ifrosta. — Berjaspretta er sáralít-
■*il, hvert sem farið er, og kenna
J.menn þar um kuldunum í vor.
I'AFLI BÁTA.
J« Afli hjá liandfæra- og dragnóta-
■Jbátum hér hefur verið tregur
jMengst af, þó fiskuðu handfærabát-
J.ar allvel síðustu viku ágústmán-
aðar, allt upp í 1200 kg. á færi yf-
ir daginn. Meðalafli á bát mun
samt vera minni en f fyrra.
Hraðfrystihús Patreksfjarðar á
Geirseyri hefur tekið yfirleitt við
afla bátanna og er þegar búið að
taka við meira magni af hráefni
en á sama tíma í fyrra og stafar
sú aukning af því, að nú hafa fleiri
bátar lagt þar upp eða 27, þegar
flest var, þar af 5 sem veiða með
dragnót. Þá hafa 2 bátar með
dragnót lagt upp afla sinn í
Tálknafirði.
Mikil vinna hefur verið f Hrað-
frystihúsinu á Geirseyri við nýt-
ingu aflans. Kolinn er allur flak-
aður en bolfiskur aðallega hengd-
ur upp. Skreiðin hefur orðið meiri
nú en í fyrra og verkast mun bet-
ur, þakka menn það köldu sumri.
TÆPLEGA 40% LÆKKUN
ÚTSVARA Á PATREKSFIRÐI.
Skrá yfir útsvör og aðstöðugjöld
á Patreksfirði var lögð fram í
byrjun ágústmánaðar og er heildar
upphæðin kr. 3.148.000,00, sem
jafnað var niður á 300 einstaklinga
og 11 félög.
Útsvör voru lögð á tekjur og
eignir skv. gildandi útsvarsstiga
og útsvörin svo lækkuð um 39,3%.
Notuð var heimild laganna um
800 kr. lækkun á öllum útsvörum.
Ekki var lagt á bætur almanna-
trygginga, nema fjölskyldubætur.
Útsvör allra 65 ára og eldri voru
lækkuð um 25%.
Hæstu útsvör bera: Jón Magn-
ússon, skipstj., 70,000, Finnbogi
Magnússon, skipstjóri, 61.400,
Sigurður Guðmundsson, vélstj.,
44.000, Hallgrímur Matthfasson,
stýrim., 41.000 og Kristján Sig-
urðsson, héraðslæknir, 39.400. —
Hæstu aðstöðugjöld bera: Hrað-
frystihús Patreksfjarðar 126.100 og
Kaupfélag Patreksfjarðar 103.600.
jÍÞessi mynd var tekin í Stykkishólmi síðsumars og sýnir tvo unga fiski-
•Jmenn á handfærabáti þar sem þeir koma með afla sinn að landi.^>
BYGGINGAR OG
FRAMKVÆMDIR.
Nú eru 10 fbúðarhús f smíðum
hér á Patreksfírði og auk þess hafa
verið veitt 6 byggingaleyfi, en fram
kvæmdir við þau hús, eru enn ekki
hafnar.
Þá er hafin bygging fyrsta á-
fanga nýs félagsheimilis og er ráð
gert að Ijúka við grunninn f haust
Verið er að byggja við hús Eyra-
sparisjóðs og fyrirhugað er að
byggja nýtt húsnæði fyrir sýslu-
skrifstofur Barðastrandarsýslu.
1' sumar hefur verið unnið við
lagningu 300 metra langrar götu —
út svo kallað Nýjatún ofan við
höfnina á Patreksfirði. Einnig hefur
í sumar verið lögð tæplega 500
metra löng gata frá kaupfélagshús-
inu og inn með sjónum inn að
Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar á
Geirseyri.
Sú gata hefur verið byggð þann-
j ig, að grafið hefur verið með
krana upp úr höfninni og uppgröft
urinn síðan notaður til að byggja
götuna. Er hin mesta bót að þessari
nýju götu, því að nú liggur breið
og góð gata með sjónum með
fram nær allri byggðinni og er þess
ari götu ætlað að létta á efri göt
unni öllum þungaflutningum.
Þá hefur verið unnið við breikk
un Aðalstrætis á kafla og nýjar
Framhald á bis. 13.
Frétfabréf frá Stykkishólmi:
Kaksumar við Breiðafíörð
■J Sumarið hefir verið fremur kalt
I«við Breiðafjörð, hitadagar hafa
■Jverið með færra móti. Slætti er
■Jnú senn að Ijúka en hann hefir
J*ekki gengið nærri eins vel og í
•Jfyrrasumar. Hálfsmánaðarkafli fyr-
■Jir skömmu var alveg starfslaus
J«hvað heyskap áhrærði eingöngu
■Jvegna veðurs. Háarspretta lítil sem
■Jengin, eða a. m. k. misjöfn. Eg
Nhefi hitt nokkra bændur að máli
■Jog sumir fullyrða að þeir fái sama
.Jog enga há og nokkrir hafa haft á
J«orði að engin há muni verða hjá
■Jþeim. Annars eru hey ekki hrakin.
IjFyrri hluti sláttartímans var góður
J.og þeir sem notuðu sér hann bezt
■Jhafa fengið góð og mikil hey því
I*sprettan var sæmileg þrátt fyrir
J.kuldakastið í vor og í eyjum er
.Jtalin yfirleitt góð grasspretta.
I; Berjaspretta er sáralítil eða eng-
in. Krækiber sjást varla og þar sem
mikið var um ber I fyrra er nú
lítið sem ekkert að sjá. Á einstaka
stað er Iítið eitt af bláberjum en
það virðist hverfandi. Eru margir
þeirrar skoðunar að kuldakastið I
vor hafi haft áhrif þannig að ber
verði ekki teljandi f haust. Bregður
mörgum við sem þar hafa haft
gott búsílag.
Héðan hafa mest verið stundað-
ar handfæraveiðar í sumar og hefir
afli verið misjafn. Oft tregur en
stundum góður. Nokkrir bátar hafa
þó verið með lóðir.
Lúðuveiði hefir verið talsverð
og nýlega kom einn trillubátur
með 19 lúður og sumar nokkuð
vænar. Stærstu lúðuna sem ég
hefi séð á þessu sumri veiddi Sig-
urður Sörenson en hún mun hafa
vegtð um 150 kg. væn og þýkk.
Unnið er nú að viðgerð á báta-
bryggjunni hér í Stykkishólmi og
hefir Böðvar Jónasson yfirumsjón
með því verki og miðar því vel
áfram. Þá er byrjað á 4 fbúðarhús-
um.
Lyfsalaskipti verða nú f Stykk-
ishólmi á þessu hausti. Chr. Zim-
sen sem hér hefir verið um 15 ára
skeið flyzt nú til Reykjavfkur þar
sem hann hefir fengið lyfsöluleyfi
og er að reisa veglega lyfjabúð og
hefir lyfsöluleyfi verið auglýst til
umsóknar og er gert ráð fyrir
skiptum nú f byrjun september.
Zimsen hefir rekið lyfjabúð sfna
hér af mikilli árvekni og dugnaði
auk þess sem hann hefir haft mikil
afskipti af félagsmálum og skóla-
málum þessa bæjar og verið þar
mjög sterkur fulltrúi.