Vísir - 14.09.1963, Qupperneq 13
V í SIR . Laugardagur 14. september 1963.
73
^wwwwwwws/wvwwwwvwvwwww>
Irik iruhii —
Framhald af bls. 9.
Allir dansarar
j af nþýðingarmiklir
„Hvað vilduð þér helzt gera,
þegar þér hættið að dansa þau
hlutverk, sem þér eruð núna
með? Gætuð þér hugsað yður
að taka að yður hlutverk, sem
eingöngu er látbragðsleikur?"
„Nei. Ég get ekki gert grein-
armun á látbragðsleik og dansi
— f mínum augum er það eitt,
hver hreyfing er dans. Ég held,
a? ég vildi gjaman kenna og
sviðsetja balletta. Ég yrði þó að
fá frelsi til að vinna eins og ég
vil helzt, sópa burt aukaatrið-
um, sem hafa enga þýðingu, og
leggja rækt við hvert smáatriði,
sem eftir verður. Allt hefur
jafna þýðingu, og allir dansarar
eru jafnþýðingarmiklir, þó að
þeir hafi kannske ekki tækni á
við aðaldansarana — en hver á
að skipa sitt sæti og gera það
vel og af alúð“.
„Þér eigið vonandi eftir mörg
ár á sviðinu“.
„Mjög mörg verða þau tæp-
lega. Ég er núna 34 ára, 35 í
næsta mánuði, ég vonast til að
halda mér til fertugs — og ég
vona, að ég hafi vit á að hætta,
áður en ég fer að dala. Ég held,
að ég sé núna á hátoppnum lík-
amlega séð, en það er harmsaga
allra dansara, að þegar þeir eru
orðnir nógu andlega þroskaðir
til að fá verulega mikið út úr
hlutverkunum, þá er líkaminn
hættur að hlýðnast vilja þeirra.
Þegar ég var yngri, hugsaði ég
með mér, að ekkert lægi á; ef
ekki þetta ár, þá það næsta.
En nú veit ég, að ég verð að
gera það núna — allt, sem ég
get gefið, verð ég að gefa á
þessum næstu árum, því að ann
ars er það orðið um seinan. Áð-
ur fyrr hugsaði ég ekkert um
að spara kraftana, heldur dahs-
aði bara af hjartans lyst, en
smám saman hef ég lært að
nota þá skynsamlegar. Meðan
ég get endurnýjað mig ög haft
vald á starfstæki mínu, líkam-
anum, er allt í lagi ... svo hætti
ég“.
Hann stendur upp og brosir
hlýlega. „Skelfing er ég búinn
að tala mikið um sjálfan mig“,
segir hann af venjulegri prúð-
mennsku. „Við skulum heldur
horfa á regnbogann þarna — er
hann ekki dýrleg sjón?“
— SSB
Famh. af 4. síðu.
er. En að hitastigsaukningin i
herbergi frá t. d. + 19 til 22
gráður auki hitakostnaðinn jafn
mikið eins og t. d. þegar útihita
stigið minnkar frá t. d. — 5 til
8 gráður munu fáir hugsa út f.
Hvert hitastig fram yfir 20
gráður eykur árlega hitunar-
kostnað um ekki minna en 6 til
• 7%.
ÓJÖFN HITADREIFING
ER ÓRÉTTLÁT
Vandamál, sem snerta ójafna
hitadreifingu í íbúðarhúsi lúta
ekki eingöngu að óhagsýni, held
ur einnig að þægindum íbúarmg.
Til íbúða er eytt miklu fjár-
magni, en sé hitastigið of lágt
verður íbúðin óvistleg. Hugtakið
góð íbúðarþægindi nær einnig
yfir góða upphitun. Þar sem
hitunarkostnaðurinn er greiddur
af íbúum er gert ráð fyrir að
allir hafi sama hitastig f her-
bergjum sínum. Þeir, sem hafa
of kaldar íbúðir telja sig ekki fá
þá upphitun, sem þeir greiða
fyrir og álíta sig verða fyrir ó-
réttlæti gagnvart þeim íbúum,
sem hafa hlýjar íbúðir.
HVER ER ORSÖK
ÓJAFNRAR HITADREIFINGAR
Ójöfn hitadreifing orsakast
nær alltaf af þvf að hitakerfið
er kallað eða alls ekki rétt stillt.
Stillingin verður að vera til
þess að hitadreifingin milli
hinna mismunandi varmadreif-
ara (ofna) geti orðið slfk að öll
byggingin hitni jafnt.
Ójöfn hitun orsakast örsjald-
an vegna þess að leiðslur, varma
dreifarar eða hringrásardælur
séu skakkt ákveðin hvað vfdd
snertir. Til þess að gefa hentug
an grundvöll að áframhaldandi
skrifum um vandamál ójafnrar
hitaskiptingar, verður i stuttu
máli lýst hvernig hitakerfi með
varmasendum er byggt upp og
hvernig það á að vinna.
Síldarverksmiðja -
Framhald af bls. 8.
götur lagðar og aðrar lagfærðar á
hafnarsvæðinu og vfðar.
SÍLDARVERKSMIÐJA
TILBÚIN.
Frá því í lok febrúar s. 1. og til
þessa dags, hefur verið stanzlaust
unnið við margvfslegar endurbætur
og nýsmfði á fiskimjölsverksmiðj-
unni Grótta og hraðfrystihúsinu
Kaldbak hér á Vatneyri, sem nú er
eign dánarbús Þorbjörns Áskels-
sonar frá Grenivfk.
Vélsmiðjan Héðinn í Reykjavík
hefur séð um alla véla- og járn-
smiði og oftast verið 8 — 12 menn
frá Héðni við þessi störf hér, ásamt
nokkrum heimamönnum. Verkið
hefur gengið vel og nú er verk-
smiðjan til búin til móttöku síldar.
Undanfarna daga hafa vélar verk-
smiðjunnar verið prófaðar og allt
farið samkv. áætlun. Áætluð af-
köst verksmiðjunnar Grótta er 12
-— 1500 mál síldar á sólarhring.
Unnið er af fullum krafti við
endurbætur og nýsmíði í frystihús-
inu Kaldbak og vonir standa til,
að móttaka fisks geti hafizt með
haustinu, ef allt gengur að óskum.
Við uppbyggingu og starfrækslu
þessara atvinnutækja á Vatneyri
binda Fatreksfirðingar miklar von-
ir.
Jón Þ. Eggertsson.
Dregið í Happdrætti
HáskóSa ísiands
Þriðjudaginn 10. september var
dregið í 9. flokki Happdrættis Há
skóla íslands.
Dregnir voru 1 150 vinningar að
fjárhæð 2 060 000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 200,000 kr.
kom á fjórðungsmiða númer 12761
Tveir fjórðungar voru seldir í um
boði Arndísar Þorvaldsdóttur, Vest
urgötu 10, Reykjavík. Einn fjórð-
ungur hjá Frfmanni Frímannssyni
í Hafnarhúsinu, Reykjavík. Og sá
fjórðj á Selfossi.
100 000 krónur komu á heilmiða
númer 56 892, sem seldur var hjá
Frímanni Frímannssyni f Hafnar-
húsinu.
10.000 krónur:
2512 4213 8402 8612 10787
11151 11779 12760 12762 15001
15709 18651 20061 23269 24693
24957 29100 42500 43423 44002
44550 45459 47362 50394 51441
53168 53744 56082
(Birt án ábyrgðar.)
Frá
Gagnfræðaskólum
Reykjavíkur
Nemendur mæti í skólunum mánudaginn 16. þ. m., kl.
4—7 síðdegis, til skráningar (1. og 2. bekkur) og til
staðfestingar umsóknum sínum (3. og 4. bekkur).
I. BEKKUR:
Skólahverfin verða hin sömu og gilda fyrir bamaskól-
ana. Fyrsti bekkur gagnfræðastigs verður nú í Aust-
urbæjarskóla, Hlíðaskóla og Laugalækjarskóla. Allir
nemendur 1. bekkjar, búsettir í Melaskólahverfi,
sækja Hagaskólann.
II. BEKKUR:
Nemendur mæti hver í sínum skóla.
III. bekkur LANDSPRÓFSDEILDIR:
Þeir, sem luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Haga-
skóla, Vogaskóla og Réttarholtsskóla, mæti hver í
sínum skóla. Nemendur frá Lindargötuskóla komi í
Gagnfræðaskóla Austurbæjar, en nemendur frá Lang-
holtsskóla f Vogaskóla. Aðrir, er sótt hafa um lands-
prófsdeild, komi í Gagnfræðaskólann við Vonarstræti.
III. bekkur ALMENNAR DEILDIR:
Nemendpr mæti hver í sínum skóla, með eftirtöldum
undantekningum: Nemendur frá Laugamesskóla komi
í Gagnfræðaskólann við Lindargötu. Nemendur frá
Miðbæjarskóla í Gagnfræðaskóla Austurbæjar og
nemendur frá Langholtsskóla komi í Vogaskóla.
III. bekkur VERZLUNARDEILDIR:
Nemendur frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, Miðbæj-
arskóla og Laugamesskóla komi í Gagnfræðaskólann
við Lindargötu. Nemendur frá Langholtsskóla komi
í Vogaskóla. Aðrir umsækjendur um verzlunardeild
mæti þar, sem þeir luku unglingaprófi.
III. bekkur VERKNÁMSDEILDIR:
Hússtjórnardeild: Umsækjendur komi f Gagnfræða-
skólann við Lindargötu.
Sauma- og vefnaðardeild: 1 Gagnfræðaskólann við
Lindargötu komi umsækjendur, er unglingaprófi luku,
frá þeim skóla og frá Miðbæjarskóla, Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar og Hagaskóla. Aðrir umsækjendur, um
sauma- og vefnaðardeild komi í Gagnfræðaskóla
verknáms Brautarholti 18.
Trésmíðadeild: í Gagnfræðaskóla verknáms komi um-
sækjendur, er luku unglingaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar, Laugarnesskóla, Gagnfræðaskólanum
við Lindargötu, Réttarholtsskóla og Vogaskóla. Aðrir
umsækjendur um trésmíðadeild komi í Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar Hringbraut 121.
Jámsmíða- og vélvirkjadeild: Umsækjendur mæti í
Gagnfræðaskóla verknáms.
Sjóvinnudeild: Umsækjendur komi í Gagnfræðaskól-
ann við Lindargötu.
Umsækjendur 3. bekkjar hafi með sér prófskírteini.
IV. BEKKUR:
Umsækjendur mæti þar, sem þeir hafa sótt um skóla-
vist.
Nauðsynlegt er, að nemendur mæti eða einhver fyrir
þeirra hönd, annars eiga þeir á hættu að missa af
skólavist.
Kennarafundur verður í skólanum sama dag kl. 2 e. h.
FRÆÐSLUSTJÓRINN í REYKJAVÍK.
SAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA^A^