Vísir - 17.09.1963, Síða 8
8
V1SIR . Þriðjudagur 17. september 1963.
VISIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði.
í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur).
Prentsmiðja Visis. — Edda h.f.
Sókn til menntunar
„Hlutverk þjóðar ykkar mun ekki takmarkast af
hnattstöðu eða loftslagi eða auðlindum eða fólksfjölda
eða þjóðarauði. Heimurinn mun þarfnast og leita uppi
mestu gáfumenn og nýta hæfileika þeirra til mikilla
sameiginlegra átaka í þágu batnandi mannlífs*.
Þannig komst varaforseti Bandaríkjanna að orði
í ræðu sinni í Háskólabíói í gær. Hann ræddi um þær
miklu framfarir sem uppgötvanir á sviði geimvísinda
hafa fært og munu færa mannkyninu. Lyndon Johnson
er einn sona þeirrár þjóðar, sem fremst stendur í vís-
indum og tækni í veröldinni. Orð hans eru sprottin af
sannfæringu. Að baki orðum hans er reynsla og full-
vissan um að mesti auður hverrar þjóðar er menntun-
in. Og ekki aðeins alþýðumenntun heldur og vísinda-
menntun, hámenntun sérhæfingarinnar.
Því er ekki að leyna að í raunvísindum höfum við
íslendingar dregizt aftur úr. Þó er það staðreynd að án
rannsókna og vísindastarfa verður íslenzka þjóðin
aldrei annað en Iítil miðlungsþjóð. Því er mesta fram-
faramálið það að efla vísindi og rannsóknir og veita
þeim ungú mönnum sem tiug hafa til dáða á því
sviði ómæld tækifæri.
Þannig verður þjóðin stórþjóð, þótt fámenn sé.
Fordæmi Frakka
Á föstudaginn tók gildi í Frakklandi víðtæk áætl-
un stjórnar de Gaulle til þess að minnka dýrtíðina í
iandinu og styrkja efnahag þjóðarinnar. Er áætlunin
fróðleg fyrir íslendinga sem eigum í áþekkum erfið-
leikum og Frakkar.
Verðlag allra iðnaðarvara í landinu skal haldast
óbreytt. Jafnframt er verð margra landbúnaðarafurða
bundið á sama hátt og forsætisráðherra hefir tilkynnt
bændum landsins að áætlunin muni ekki takast, ef 20%
almenn afurðahækkun nái fram að ganga, sem í bígerð
hefir verið.
Útlán banka hafa verið takmörkuð og ekki er nú
Iengur unnt að kaupa vörur í verzlunum með jafn
löngum afborgunarfresti og áður. Hallinn á fjárlögum
verður mjög minnkaður. Stórt ríkislán verður jafn-
framt tekið og vextir þess verða skattfrjálsir.
Til hagsbóta fyrir neytendur verða tollar á vam-
ingi frá EBE löndunum lækkaðir um 15% og sigarettur
og benzín nokkuð lækkað í verði.
Með þessum ráðstöfunum hyggst ríkisstjórnin
stemma stigu við hinni vaxandi dýrtíð í landinu og
styrkja efnahag þjóðarinnar verulega. Þannig ganga
Frakkar til verks. Þær ráðstafanir sem gripið er til
em gamalkunnar og munu hafa nokkur samdráttar-
áhrif í för með sér. En Frakkar gera sér Ijóst að rót-
tækra ráðstafana er þörf, ef takast á að bægja hætt-
unni frá.
★
Hér fara á eftir kaflar úr
ræðu varaforseta Bandaríkjanna
sem hann flutti í Háskólabíói í
gær .
Y"ið erum mjög þakklát fyrir
” þann sóma, sem þið auð-
sýnið landi okkar -— ,og vin-
áttu þá, sem ríkir milli þjóða
okkar — með því að fagna okk-
ur á þann hátt, sem þið hafið
gert í dag og með því að koma
til þessa fundar.
Þetta er heimsókn, sem ég
hefi lengi, hlakkað til. Við í
Bandaríkjunum fræðumst þeg-
ar á unga aldri "um hinn mikla
landkönnuð ykkar, Leif Eiriks-
son. Um leið og við fræðumst
um sögu hans, sköpum við
okkur — og varðveitum um
langa ævi — mynd af íslend-
ingum sem harðgerum fullhug-
um, er byggja land, sem þjóð-
sögublær hvílir yfir. Mig hefir,
frá unga aldri, langað til að
heimsækja Island og kynnast
íslendingum.
í dag hafa þessir draumar
mínir rætzlt margfaldlega.
¥7 f frjálsir menn eiga að vera
raunverulega frjálsir, verða
þeir að geta ráðið stefnu sinni
sjálfir, mótað þjóðfélög sín að
geðþótta, varðveitt það, sem
þeim er dýrmætt, ráðið örlög-
Varaforseti Bandaríkjanna, Lyndon B. Johnson, f ræðustól f Há-
skólabfói í gær. Á ræðustólnum er stækkað innsigli varaforsetans.
Yið erum samherjar í
baráttunni fyrir friði
,H2Á.T&filq G2i$Víi TtJííji
eftir Lyndcn i. Jobnson^vura*-
forsefea iegidssriSc|eseiBf!i
um sínum og hagnýtt tækifærin
sem gefast. Þetta krefst varna
gegn þeim fjandmönnum frels-
isins, sem hyggjast þröngva
öðrum til að lúta vilja sínum
með vopnavaldi eða undirróðri.
En það táknar einnig, að full-
veldi hverrar þjóðar sé óháð
kreddum allra annarra — hvort
sem þeir eru fjendur eða vinir.
Með Atlantshafsbandalaginu
— sem ísland og Bandaríkin
eru aðilar að — er heiminum
gefið glæsilegt og sannfærandi
dæmi þess, sem hægt er að á-
orka f þessu efni. Samstaða
okkar í Atlantshafsbandalag-
inu er byggð á því raunsæi okk
ar tíma, að hinar frjálsu þjóðir
verða að standa saman, ef þeim
á að takast að verjast kúgun af
hálfu alþjóðlegra yfirgangs-
seggja. En bandalag okkar i
sameiginlega þágu er ekki
byggt á samþykkt eða undir-
gefni við ósveigjanlega kreddu,
og það er lífsnauðsynlegt skil
yrðj til þess að bandalag okk-
ar megi standa ti! frambúðar.
Innan AtlantshafsbandalagS-
ins eru .15 þjóðir, sem hver á
sér sína arfleifð, sína hefð og
hver sfna sjálfstæðu menningar
sögu. Við tölum meira en tíu
þjóðtungur og enn fleiri mál-
lýzkur. Hin þjóðlega arfleifð
hvers okkar á rætur sínar í mis
munandi jarðvegi. Við erum
með réttu og að sönnu hreykin
af þessum misrnun og sérkenn-
um sem einstaklingar, og okkur
kemur ekki til hugar að fórna
þeim eða leyfa skerðingu á
þeim.
Þjóðfélagskerfj okkar og lög
eru einnig með sínum sérkenn
um í hverju landi.
Efnahagskerfi okkar eru ólík
og hagsmunir okkar einnig.
En megin þátturinn í banda-
lagi okkar er, að engin okkar
neyðist til að hlíta kreddum
eða skipunum þeirra, sem við
teljum sæmd að eiga bandalag
við.
Þetta er styrkur okkar — og
hann verðum við að varðveita!
Við höfum hafnað — og
munum áfram hafna — banda-
lagi, sem felur í sér skerðingu
hinna sérstöku menningarverð-
mæta einstakra þjóða.
Við aðhyllumst — og mun-
um aðhyllast — það bandalag,
er eigi grundvallast einvörð-
ungu á gangkvæmu öryggi, held
ur og á gildi gagnkvæmrar virð
ingar.
Bandalag okkar er hið eina f
sögunni og hið eina bandalag í
heiminum nú, þar sem banda-
menn og félagar eru eigi þving-
aðir til að verjast fyrirratlunum
og kreddum hinna bandamanna
sinna og féiaganna. Þar sem við
erum ekki innhverfir, þar sem
við. leggjum okkur eigi niður við
tortryggni í garð hver annars,
þar sem við höfum í heiðri
grundvallarmarkmið, höfum við
trú á ,að bandalag vort standi
■löngu eftir að strangari og ó-
tryggari bandalög hafa sundr-
azt.
'V/’ið Bandaríkjamenn höfum
sérstakan skilning á ósk
einstakra þjóða um að varð-
veita sérkenni sín og sjálfstæði.
Fyrir eitt hundrað og áttatíu ár
um var miðstjórn okkar mynd-
uð með sameiningu 13 ein-
stakra ríkja. Samkvæmt Stjórn
arskrá okkar, halda nú 50 riki
sérkennum sínum sem jafningj-
ar innan þessara vébanda.
Vegna / okkar eigin reynslu
heima fyrir, er okkur Banda-
rfkjamönnum ógeðfellt, þó ekki
sé nema hugsunin um banda-
lag, sem er tilfinningasnautt
og kuldalegt gagnvart stolti og
arfi bandamanna okkar.
Við lítum á bandalag vest-
rænna ríkja sem bandalag jafn-
ingja.
Við skoðum það sem bandalag,
er fær sameiningarstyrk sinn
frá sameiginlegri tryggð við
frelsi og lýðræði.
Við vitum, að okkar þjóð —
og þjóð yðar — ber f brjósti
jafnríka hollustu.
Hvað fólksfjölda snertir, er
ísland minnst. NATO-ríkjanna.
En við berum — ásamt heim-
inum öllum —. virðingu fyrir
hinum fornu hæfileikum fslend
inga til þess að leggja skerf að
mörkum við heiminn í miklu
ríkara mæli en fólksfjöldinn seg
ir til um. íslendingar hafa lagt
sögulegan skerf af mörkum við
könnun hnattar okkar. Á vett-
vangi alþjóðlegra samskipta —
svo sem hjá Sameinuðu þjóð-
unum — befur fsland haft mik
ilsverð áhrif og gegnt ábyrgð-
arstörfum.
Allt þetta sæmir landi og þjóð
sem gaf heiminum fyrirmynd
þingræðisins, sem er grundvöll
ur íýðræðis okkar í dag.
í baráttunni við skæðustu öfl
náttúrunnar hafið þið öldum
saman mótað með ykkur lif-
andi, sterkbyggt, skapandi og
innblásið þjóðfélag — og fram
lags ykkar gætt langt út fyrir
landsteinana.
Okkur er sæmd af því að vera
bandamenn ykkar og væntum
þess, að þið varðveitið hina ein-
stæðu og verðmætu forystu ykk
ar í framvindu vestrænnar meno
Framh. á bls. 13,