Vísir - 17.09.1963, Page 11
VIS IR . Þriðjudagur 17. september 1963.
11
Um þessar mun-dir er unnið að
því að flytja gömlu simstöðina
að Austurgötu 11 í Hafitarfirði
til Reykjavíkur, því 1. desember
n. k. verður sett upp ný sjálf-
virk símstöð í Hafnarfirði.
Gamla símstöðin verður flutt
tii Reykjavíkur og notuð þar. Á
myndinni hér að ofan sést Gísli
Vilmundarson símvirki.
20.30 Armstrong Circle Theater
21.30 Stump The Stars
22.00 The Unexpected
22.30 To Tell The Truth
22.55 Afrts Final Edition News
23.00 Lawrence Welk’s Dance
Party
Söfnin
Landsbókasafnið. Lestrarsalur
opinn alla virka daga kl. 10—12,
13—19 og 20—22 nema laugar-
daga kl. 10—12 og 13—19. Öt-
lán alla virka daga kl. 13—15..
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega frá kl. 1,30 til kl.
Árbæjarsafnið er opið á hverjum
degi frá kl. 2—6 nema á mánu-
dögum. Á sunnudögum er opið
frá kl. 2—7. Veitingar i Dillons-
húsi á sama tíma.
í ný húsakynni
Kolli
og
kóng-
urinn
Á nokkrum mínútum hvarf hin
glæsilega snekkja undir yfirborð
ið. Hvað skeði? spurði vélameist
arinn, sem rak hausinn upp úr
vélarúminu. Hann hafði heyrt læt
in, en þar sem hann sé ekkert
þarna niðri, þá var hann kominn
upp til þess að gá. Það ætti að
kjöldraga þig kálhausinn þinn,
hrópaði Kalli og leit fokvondur
á hinn snöktandi stýrimann. 1
sama bili hrópaði Tommy. Þarna
kemur einhver. Hver, hvar?, hróp
aði Kalli ruglaður. Nú já já. Það
lítur út fyrir að nú syrti í álinn,
því að þetta er líklega eigandinn.
Og hann var allt annað en vin-
gjarnlegur, á svipinn.
Rip er í slæmri klípu. Það er
fjórum byssum beint að yður
herra Kirby, segir Ming vingjarn
lega, þér hljótið því að deyja.
En ég mun hafa félagsskap yðar
á leiðinni til heljar, svarar Rip.
Það er nú ekki vlst, segir Ming
rólega, það getur verið að þér
munduð bara særa mig, og
kannski jafnvel alls ekki hitta.
Hann hefur á réttu að standa,
hugsar Rip með sér það eru fjór
ir möguleikar gegn einum, og það
er honum í vil. Hvern fjárann á
ég nú að gera.
BUT m HAVE YOU
FOR COMPANY ON
JOURNEY INTO
ETERNÍTi; MINS.
HE'S RISHT OF
COURSE. OVOS
ARE K3UR TO
ONE IN HIS
FAVOR. WHERE
# % % STJÖRNUSPÁ #
Spáin gildir fyrir miðvikudag-
inn 18. september.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú ættir að nota daginn
til undirbúnings til frekari átaka
ef svo skyld; vera að logn ríkti.
Haltu uppi góðu sambandi við
félaga þfna.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Það eru litlar horfur á að at
vinna þfn eða verkefni hafi upp
á neitt nýstárlegt eða sérstakt
að bjóða í dag. En þér kynni að
bjóðast tækifæri til að hvílast.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júnf: Þú hefur talsverðar til-
hneigingar til að fara eigin leið
ir, þrátt fyrir að vinir þínir og
jafnvel ástvinir ráðleggi þér ann
að. Farðu meðalveginn.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að halda áfram við að
leita eftir beztu aðferðunum
sem henta aðstæðum og vinnu
þinni. Það eru meiri líkur fyrir
að leitin beri árangur heldur
en endranær.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Ef til vill finnst þér að þú sért
ekki nægilega framhleypinn, en
félagi þinn mun samt vera á
öndverðum meiði í þvf efni.
Stundum er bezt að flýta sér
hægt.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Það getur verið verra að spara
of mikið heldur en að spara of
lítið. Reyndu að fara hinn gullna
meðalveg f þessum efnum og
taka beggja vængja byr.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Þeir sem þú átt mest saman við
að sælda eru þess albúnir að
standa fullkomlega á rétti sín-
um. Þú getur ekki skelt skolla
eyrum við þvf sem þeir segja.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Það væri hyggilegast fyrir þig
að halda þig utan svíðsljóssins
í dag og gegna hlutverki áhorf
andans. Ofneyzla matar og
drykkjarfanga er mjög óráðleg.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Þú ættir að notfæra þér
þær uppörvandi ráðleggingar,
sem vinir þínir og ástvinir gefa
þér núna. Þú munt fá aukið
sjálfstraust með því móti.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Þú ættir að einbeita þér að
þvf að afla þér allra nauðsyn-
legra upplýsinga varðand; þau
framtíðaráform, sem þú hefur á
prjónunum.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Hugur þinn kynni að
reika til fjarlægra staða, þai
sem vinir og ættingjar búa.
Ýmsum ráðgerðum um ferðalög
kynni að skjóta upp.
Fiskamir, 20. febr. til 20.
marz: Stattu á verðbergi gegn
þeim, sem kunna að hafa í'
hyggju að hagnast á þinn kostn-
að, án þess að gefa neitt f stað
inn. Gerðu engan að trúnaðar
manni þínum eins og stendur.
FRÆGT FÖLK
Yngsta systir Husseins
Jórdaníukonungs heitir Basma
og er aðerns 12 ára gömul.
Prínsessan kom til Lundúna
fyrir skömmu, en þann 20.
september hefur hún nám f
Benenden skólanum, sama
skóla og Anma Engiandsprins-
essa. Þær eru báðar nýir nem-
endur í skólanum.
Zein drottning móðir Basma
kom með henni til Lundúna og
ætlar hún að dveljast í land-
inu meðan dóttir hennar er að
venjast umhverfinu.
Þegar Basma kom á flugvöli
inn var hún í grárri kjóldragt.
Hún brosti feimin þegar sendi-
nefnd frá sendiráði Jórdaníu
bauð hana velkomna.
Paul-Henry Spaak reyndi f
ræðu, sem hamn hélt, að gefa
skýringu á þykkjunni milli
Englands og Frakklands.
— Ástæðan, segir Spaak, er
sú, að Harold Macmillan talar
Paul-Henri Spaak
alltaf um Evrópu sem aðalat-
riðið en Frakkiand sem auka-
atriðið, en de Gaulle talar allt-
af um Frakkland sem aðalat-
riðið en Evrópu sem auka-
atriði.
Mflanóbúinn Tommaso Pinto,
22 ára gamall, hafði ákveðið
að ferðast „á puttanum“ f sum
arleyfinu. En begar út á þjóð-
vegina kom .reyndist það ekki
svo auðvelt, því að engin-n
vildi taka hann upp f bílinn.
Þá datt honum f hug að klæða
sig eins og ung stúlka, fór í
kjól og fékk sér Ijósa hárkollu
— og nú gekk allt eins og f
sögu.
En Tommaso situr nú f
gæzluvarðhaldi og laganna
verðir brjóta heilann um, fyrir
hvað þeir eigi að ákæra hann.