Vísir - 25.10.1963, Síða 1
VISIR
53. árg. — Föstudagur 25. október 1963. — 137. tbL
Sólfaxi á Thule-flugvellinum í Græniandi ásamt bandariskum herþotum
Sjómann tók út Sólfaxi tryggður fyr-
ir nærrí 10 milljónir
Það slys varð vestur á Hala í
ofviðrinu kl. rúmlega 5 í fyrra
dag að mann tók út af togaran-
um Apríl frá Hafnarfirði og náð
ist hann ekki aftur. Maður þessi
Líkams-
aras
Skömmu fyrir miðnætti í nótt
réðust tveir menn, að talið er, á
aldraðan vaktmann í m.s. Reykja-
fossi, þar sem skipið lá f Reykja-
vikurhöfn.
Vaktmaðurinn, Guðmundur Guð-
mundsson, Barmahlíð 18, er 82
ára að aldri. Hann var leikinn
mjög grátt og barinn sundur og
saman í andliti, þannig að flytja
varð hann á sjúkrahús.
Framh. á bls. 5.
hét Knútur Guðjónsson, var
hann annar matsveinn á togar-
anum og átti heima að Suður-
landsbraut 94 D i Reykjavik.
Hann var 42 ára gamall.
Togarinn Apríl var svo til ný-
farinn á veiðar þegar þetta slys
varð og er ennþá úti. Skipstjór-
inn tilkynnti þennan atburð þeg-
ar til Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar.
Knútur Guðjónsson.
— Það er mjög erfitt um sam
band við Narsassuaq, ekkert beint
sfmasamband en við fengum
skeyti frá Þorsteini Jónssyni, flug
stjóra í grækvöldi, sem var um
beðin staðfesting á ýmsu því sem
okkur hafði verið sagt um brun-
ann að enginn hefði slazast og
gjöreyðileggingu Sólfaxa, sagði
örn Johnson, forstjóri Flugfélags
íslands við Vísi I morgun.
Flugvélin, sem hefur verið í
leiguflugi fyrir dönsku Grænlands®"
verzlunina, brann seint í fyrra-
kvöld í Narsassuaq inni í fiug-
skýli úr timbri ásamt tveimur
Katalínuflugbátum og lítilli einka
flugvél. Engin slys urðu á mönn-
um. Flugvélin, sem var sérlega
vel búin tækjum, m. a. sérstaklega
stórum radartækjum til leitar-
flugs, er talin 10 milljón króna
virði og nam vátrygging því sem
næst þeirri upphæð, að sögn for-
stjóra Flugfélagsins.
Eldurinn breiddist svo skyndi-
lega út að ekkert varð að gert til
að bjarga Sólfaxa. Var flugskýlið
brunnið til grunna á einni klukku
stund' og fiugvélar gjörónýtar. Ó-
kunnugt er um éldsupptök, en
gizkað er á að skammhlaup hafi
orðið í rafmagnskerfinu.
Skymasterflugvélin Sraumfaxi
mun að einhverju leyti koma í
stað Sólfaxa. Fer flugvélin f fs-
könnunarflug á mánudag, kemur
við í Narsassuaq og sækir áhöfn
Sólfaxa, en lendir síðan í Reykja
vík. Á miðvikudag fer Straumfaxi
svo í farþegaflug til Narsassuaq,
en kemur strax til baka. Ekki er
unnt að geyma flugvélina þar
Framh. á bls. 5.
Orsakir ÍSA GA -brun*
ans
Erlendir sérfræðingar, sem
fengnir voru til að rannsaka
orsakir ísaga-brunans f sumar
hafa skilað áiiti. Að þeirra dómi
kemur ekki til mála að kviknað
hafi í útstreymi frá gashylki
regna þess að heitur skrúf-
Iykill var borinn að út-
streyminu, eins og álitið var í
upphafi. Vfsir skýrði fljótlega
frá því að þessl skoðun væri
ekki talin hafa við rök að styðj
ast og hefur það nú verið stað-
fest.
Tveir aðrir möguleikar komu
til greina. 1 fyrsta lagi að um
sjálfsíkviknun f útstreyminu
sjálfu hefði verið að ræða. Þetta
telja hinir erlendu sérfræðingar
ósennilegt f þessu tilfelli. Þeir
hallast fyrst og fremst að öðr-
um möguleika. Segja þeir hugs-
anlegt og sennilegast að maður
inn, sem var að vinna við hylk-
in, þegar íkveikjan átti sér stað,
hafi verið hlaðinn rafmagni, sem
hafi neistað f útstreymi f gas-
hylkinu er hann var að fást við,
þegar eldurinn blossaði upp.
Þar sem um ákaflega sjald-
gæft fyrirbæri er að ræða er
maðurinn ekki talinn bera
minnstu sök á þessu. Bent er á
að hann hefði átt að afhlaðast
er hann skrúfaði fyrir annað gas
hylki, skömmu áður en eld-
urinn kviknaði, en endurhleðsl-
an geti átt sér stað á örfáum
sekúndum. Það renni m.a. stoð-
um undir skýringu sérfræðing-
anna, að maðurinn var í skóm
með gúmmfbotnum, þegar hann
var að vinna, og þess vegna
„einangraður frá jörð“.
Þessi mynd er af eldhafinu í ísagabrunanum, þegar mesta spreng-
ingin átti sér stað. Lítill neisti varð að miklu báli. (Ljósm. Vfsis B.G.)
Bls. 2 Iþróttir.
— 3 í Iðnskólanum. —
Myndsjá.
— 7 Föstudagsgreinin:
Tilviljanir eða . . .
— 8 Þegar Danir drógu
úr þenslunni.
9 Ferðamannalandið
Island. —
Stofnun fleiri verkolýðssambanda í undirbúmngi:
Samband byggingarmanna undirbúið
Vísir skýrði frá þvf fyrir
nokkru, að kommúnistar væru
að undirbúa stofnun verka-
mannasambands. Hefur Þjóð-
viljinn nú staðfest þá frétt. Nú
hefur Vísir fregnað, að einnig
sé Iangt á veg kominn undir-
búningur að stofnun sambands
byggingarmanna.
Forustufélagið í undirbúningi
að stofnun sambands byggingar
manna er Trésmiðafélag Reykja
víkur. En auk þess er gert ráð
fyrir, að Málarafélag Reykja-
víkur, Félag húsgagnasmiða og
húsgagnabólstrara verði með
svo og Félag byggingarmanna f
Árnessýslu, Múrarafélag Reykja
víkur og Félag pípulagningar-
manna munu hins vegar ekki
taka þátt í stofnun þessa sam-
bands, nema hún verði aiger-
lega á grundvelli tillagna Al-
þýðusambandsins um skipulags-
mál.
Nokkur ágreiningur mun uppi
um það f herbúðum kommún-
ista, hvort taka eigi verka-
menn úr byggingariðnaðinum
með í samband byggingar-
manna. Kommúnistar í verka-
mannafélögunum vilja ekki
sleppa verkamönnunum, t. d.
má Eðvarð Sigurðsson í Dags-
brún ekki heyra það nefnt. En
Jón Snorri Þorleifsson formað-
ur Trésmiðafélags Reykjavfkur
mun hins vegar þeirrar skoðun-
ar, að stofnun sambands bygg-
ingarmanna verði að fara fram
á grundvelli tillagna ASl og því
verði að taka verkamenn í bygg
ingariðnaðinum með. Hvað ofan .
á verður er enn óvfst.
Augljóst er, að fyrir komm-
únistum vakir það eitt að skipta
Alþýðusambandinu upp f sér-
sambönd er þeir geti sjálfir ráð-
ið, missi þeir Alþýðusambandið.