Vísir - 25.10.1963, Side 15

Vísir - 25.10.1963, Side 15
 V í SIR . Föstudagur 25. október 1963. 15 — Guð minn góður, veinaði Léon í örvæntingu sinni, hun er dáin, hún er dáin. Stöðvarstjórinn fór ekki í nein ar grafgötur um, að það var um meira en kunningsskap að ræða af hálfu piltsins — vinar René Dharville. — Verið rólegur, herra minn, sagði hann, það er að minnsta kosti ekkert sem bendir greini- lega til, að stúlkan eigi skammt eftir ólifað. En hún hefir meiðzt eða særzt og vafalaust orðið fyr ir einhverjum blóðmissi. Nú læt ég menn mína bera hana þegar til Saint-Julien-du-Sault. Og þar verður gert allt sem unnt er til hjálpar stúlkunni. — Ég fer á undan herrar mínir, sagði René, berið stúik- una til húss móður minnar, og ég skal sjá um, að allt verði haft reiðubúið og læknir viðstaddur. Hann þrýsti hendur vinar síns og sagði: — Vertu hugrakkur, — trúðu því, að allt fari vel. Meðan teppi voru vafin utan um stúlkuna og hún lögð á und- irsængina, sem lögð hafði verið ; á börurnar, þreif René veiði- byssurnar og lagði af stað heim leiðis og fór eins greitt og hann frekast gat, til þess að gera móð ur sinni aðvart og ná í lækni. Flokkurinn var í þann veginn að leggja af stað, þegar stöðvar- stjórinn gaf merki. — Bíðið andartak sagði hann. Ég þarf að athuga nákvæmlega hvar slysstaðurinn er. Ég verð að tilkynna lögreglunni það, sem gerzt hefir, og ég verð að vera nákvæmur. Hann fór að leita að næsta i steini, sem mílufjöldinn var letr aður á, og fann hann fljótlega. Á honum var talan 131. — Þá skulum við leggja af stað, sagði stöðvarstjórinn eftir að hafa skrifað töluna í vasa- bók. Hann og Léon fóru fyrir burðarmönnunum. — Ég sé á öllu, að þér þekkið þessa ungu stúlku, sagði hann við Léon. — Já, hún er í heimavist hjá frænku minni, frú Fontana, | kennslukonu í Laroche. Stúlkan I heitir Emma-Rose. Ég sá hana seinast í gær hjá frænku minni. — Sáuð þér hana í gær? Otx Nokkurrar undrunar gætti í rödd stöðvarstjórans. — Já, — Og vissuð þér, að hún á- formaði að fara í ferðalag? — Móðir Emmu-Rósu hafði skrifað frænku minni og beðið hana að fylgja stúlkunni á stöð- ina, í tæka tíð, svo að hún næði lestinni, sem færi klukkan 5.58 og átti að vera í París kl. 7.35, en móðir hennar ætlaði að vera í Parísarstöðinni til þess að taka á móti henni. — Blessað barnið átti þá að ferðast á eigin spýtur? — Það var talið áhættulaust — hún átti að vera í dömuklefa. — Vitanlega hefir engan órað fyrir, að hörmulegur atburður gæti gerzt. Hvað ætlið þér að gera? — Ég mun gera frænku minni .grein fyrir því, sem gerzt hefir. — Já það verðið þér að gera. — Ég sendi henni skeyti undir eins og ég kem til Saint-Julien -du-Sault. Henni mun falla þetta mjög þungt. Henni þykir mjög vænt um Emmu-Rósu. — Og ég mun síma til Parísar. Heyrðuð þér nokkurt neyðaróp? — Við René vorum að fara á veiðar, er við allt í einu heyrðum skerandi • vein — aðeins . eitt. Það var óhugnanlegt. Mér rann kalt vatn milli skinns og hör- unds. Og samstundis lagðist eins og í mig, að eitthvað illt hefði hent einhvern, sem mér er kær. — Var lestin á fullri ferð? — Já, svo sannarlega, með eldingarhraða. — Og þið sáuð vitanlega ekk- ert — að minnsta kosti ekki greinilega? — Ekki greinilega, vegna skafrenningsins, — René hélt að hann hefði séð einhverjum hrundið út gegnum opnar vagn- dyr. Við vorum líka að hugleiða, hvort dyrunum hefði ekki verið lokað traustlega, þær opnazt og maður dottið út. — En þið hafið fráleitt verið trúaðir á þá tilgátu? — Mér fannst hún ekki alveg fráleit? — Nú? — Gat ekki hugsazt, að þetta hafi átt sér stað. Eða að hurðin hafi opnazt er stúlkan var að loka glugga. En hvað haldið þér? rn- — Ég get ekki komið með neinar tilgátur. Kannske meiðsli eða sár ungfrúarinnar gefi ein- hverja vísbendingu. Læknirinn gæti komið lögreglunni á spor- ið? — Segið mér, yður grunar sennilega, að um tilraun til að fremja glæp hafi verið að ræða. — Ég vil ekkert um þetta segja. Læknirinn einn getur varp að ljósi á þetta. — Ég skýri lögreglufulltrúan- um frá öllu og hann lætur bóka það og gerir svo sínar ráðstafan- ir. Burðarmennirnir lögðu frá sér börurnar sem snöggvast til þess að kasta mæðinni. Veðrið var batnandi og það skóf ekki leng- ur, en það var erfitt að vaða snjóinn með börurnar, þótt byrgðin væri ekki þung. Meðan burðarmennirnir hvíldu sig fáein augnablik, notuðu þeir tækifærið Léon og stöðvarstjór- inn, gengu að börunum og lyftu teppinu til þess að sjá framan í stúlkuna. en á henni hafði engin breyting orðið. Hún var náföl og hreyfingarlaus og blóðrákin vakti að nýju óttann í brjósti Léons. — Guð minp góður^ *ið yerð- Uin að 'hi-aða okkxir. Ég sé ekkert lífsmark með henni. Gúð gefi, að allt verði ekki um seinan. Burðarmennirnir tóku þegar upp börurnar og héldu áfram erfiðri göngunni. Eftir rúmlega klukkustundar göngu var komið til Saint-Julien-du-Sault. Dagur var runninn og bjart orðið. René Dharville tók þar á móti þeim. — Ég hefi talað við móðir mína, og beðið hana að hafa allt tilbúið, og læknirinn er vafalaust kominn þangað. Herrá stöðvar- stjóri, viljið þér ekki koma með? — Það vil ég gjarnan, sagði hann, en fyrst verð ég að senda skeyti til Parísar. Haldið áfram með stúlkuna til móður yðar. Ég kem á eftir. — Og ég líka, sagði Léon. Ég þarf að síma til frænku minnar. Við verðum komnir næstum jafn snemma og þið því að við getum gengið hraðara. René kinkaði kolli og gaf burð armönnunum merki um að fylgja sér eftir, en stöðvarstjórinn og Léon urðu eftir og sendu eftir- farandi skeyti: Stöðin Saint-Julien-du-SauIt til stöðvarinnar í París. Fundin nálægt mílnasteini 131 meðvitundarlaus ung stúlka —: meidd á höfði stopp — tók hraðlest númer 13 í Laroche kl. 4,58. Landry stöðvarstjóri. Léon hafði símað. Frú Fontana, Laroche Komdu fljótt til móður René Dharville í Saint-JuIien-du- Sault. Emma-Rósa særð — kannske lífshættulega. Léon Leroyer. Þessi skeyti fóru sitt í hvora áttina. Svo lögðu þeir af stað til húss frú Dharville stöðvar- stjórinn og Léon, og komu þang- að, þegar burðarmennirnir voru nýkomnir þangað með börurnar. IV. Á sama augnabliki og sím- skeytin voru komin áleiðis var gefið merki um það á aðaljárn brautarstöðinni í París, að hrað lest nr. 13 væri að koma. Það var í þessari lest, sem hryllilegt morð hafði verið framið, og að minnsta kosti tilraun gerð til að fremja annað — og launmorðing inn enn í lestinni. Það var ys og þys og margt um manninn þstöðinni sem. jafn an,. er’ von var ú Jifaðleátúm, og stöðvarkarlarnir ' lögðu af stað með smávagna sína út á brautar pallinn, sem lestinni yrði lagt við. í stóra salnum var skilrúm með vírneti og þar fyrir innan var staflað upp farangri, sem far þegar höfðu ekki getað haft með sér í klefum sínum og vitjuðu eftir á. Þarna biðu nokkrir menn afgreiðslu. En í biðsalnum sjálf um var kalt svo snemma dags. Þarna munu hafa verið um 50 manns flestir karlmenn, sem biðu ættingja eða vina, er þeir áttu von á með lestinni. Menn voru yfirleitt vel búnir til skjóls gegn vetrarkuldanum. í þessum hópi voru 5—6 kon- ur og ein þeirra var ákaflega óþolinmóð og óeirin. Hún gat ekki setið eða staðið kyrr heldur gekk fram og aftur og virtist í mikilli hugaræsingu. Það var auð séð, að hún ætlaði að gefa nánari gætur að öllum, sem kæmu, til þess að missa ekki af þeim, sem hún átti von á. R 1 Það er betra að þú segir þeim ara sem við fundum. Gana kinkar sem lengi hefur ráðið Scarab ætt svikari. Medu, höfðingi þekkir þetta Gana, og reynir að útskýra þetta vel, segir Tarzan við vin sinn. Og reyndu að beina athygli þeirra sem mést að þessum svik- kolli, og tekur eina grímuna. Líttu á vinur minn, segir hann við Mu- Mu. Mér er gríma töframannsins, bálknum. Þið hafið aldrei séð and lit hans, og þekkið hann því ekki. En hérna er hann. Það er þessi hann og segir að hann sé þræla sali, sem er að fela sig meðal ykkar. Þetta er töframaður ykk- ar. ER FYRIRLIGGJANDl Þ. ÞORGRÍMSSON & CO. Suðurlandsbraut 6 - LAUGAVEGI 90-02 Góður fjallabíll óskast 14—20 manna. Ýmsar tegundir koma til greina. Btlakjör Nýir bílar., Commer Cope St. 8IFREIÐALEIGAN, Bergþórugötu 12 Simai 13660, Í4475 02 J6598

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.