Vísir - 25.10.1963, Side 16
Björgun brezka
togarans hætt
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæzlunni í morgun er
vonlaust orðið um björgun brezka
togarans Northern Spray sem
l strandaði vestur við Rit í ísa-
I fjarðardjúpi í fyrrakvöld.
f Tilraunir þær sem gerðar voru
: 1 gær til að ná togaranum á flot
mistókust, enda sat hann fastur
á stóru bjargi í fjörunni og varð
ekki bifað. Varðskipið Óðinn gerði
ítrekaðar tilraunir til að ná togar-
anum út en án árangurs.
1 morgun tjáði Landhelgisgæzlan
Vísi að frekari tilraunir til að
bjarga togaranum myndu ekki
verða gerðar. Hann er fullur orð-
inn af sjó og er tekinn að brotna.
Aftur á móti mun f dag verða
reynt að bjarga þeim verðmætum
úr togaranum sem tiltök eru á að
bjarga.
Að því er fréttaritari Vísis á
ísafirði símaði í morgun er þetta ;
Framh. á bls. 5. í
Stolna
Vetrardagskrá útvarpsins:
ÚtvarpiB hefst kl. 7 á morgnana
Vetrardagskrá ríkisútvarpsins er
að ganga f gildi nú um helgina.
Verður margt nýjunga f dag-
skránni. T.d. hefst útvarp kl. 7 á
hverjum morgni frá og með fyrsta
vetrardegi og það nýmæli verður
tekið upp, að kl. 9 á hverjum
morgni verður lesinn stuttur út-
dráttur úr leiðurum blaðanna.
Af nýjum þáttum má nefna
skemmtiþátt f umsjá Flosa Ólafs-
sonar leikara, sem hefst n. k. sunnu
dagskvöld og' þátt með vinsælum
íslenzkum lögum, sem Egill Bjarna
son mun annast á hverju sunnu-
dagskvöldi kl. 22.10. Þáttur dr.
Gunnars G. Schram ritstjóra „Á
blaðamannafundi" verður áfram,
einnig „Efst á baugi“ í umsjá Björg
vins Guðmundssonar og Tómasar
Karlssonar og þáttur með ungu
fólki, er þeir Markús Örn Antons-
son og Andrés Indriðason annast.
Eftir áramót mun Svavar Gests
verða með skemmtiþætti á móti
Flosa Ólafssyni.
Einhver merkasti liður vetrardag
skrárinnar í vetur verður erinda-
flokkur á sunnudögum f tilefni af
300 ára afmæli Áma Magnússonar.
Munu ýmsir flytja erindi en þau
verða 7—8 talsins. Margt merkra
leikrita verður flutt í vetrardag-
skránni. Annan laugardag verður
Grettissaga flutt f samtalsformi en
Gunnar Þórðarson bóndi frá Grænu
mýrartungu hefur búið söguna til
flutnings. Ævar Kvaran, hefur
stjórn á hendi en Helgi Skúlason
leikur Gretti.
Ný útvarpssaga hefst eftir helg
ina, Brekkukotsannáll eftir Halldór
Kiljan-Laxness. Höfundur flytur.
Föstudagur 25. október 1963.
Háskólahátíð-
in á morgun
Á morgun, fyrsta vetrardag,
verður Háskólahátíðin haldin og
hefst hún kl. 2 í Háskólabíói.
Hefst hún með því að leikinn
verður háskólamars etfir dr. Pál
Isólfsson. Fluttir verða þættir úr
háskólaljóðum Davfðs Stefánsson-
ar við lög dr. Páls ísólfssonar og
syngur dómkórinn undir stjórn
Framh. á bls. 5.
70 þús.
stolið
Bygging sú, sem meðfylgj-
andi mynd er af, er að rfsa á
homi Gunnarsbrautar og Egils-
götu f Reykjavík, Heilsuverndar
stöðin er f baksýn. Það er
læknahúsið, Domus Medica,
sem er þarna f smíðum, reist
fyrir sameiginlegt átak Lækna-
félags íslands og Læknafélags
Reykjavíkur, allir læknar lands-
ins láta eitthvað af mörkum til
þessarar framkvæmdar, sagði
Snorri P. Snorrason læknir í
viðtali við Vísi f morgun. Þetta
á að verða 4ra hæða hús, auk
kjallara. Þar verður félagsheim-
ili lækna og lækningastofur og
rannsóknastofur. Sérfræðingar
á sviði læknisfræðinnar munu
hafa þessar stofur og er stefnt
að þvf að þarna komi upp alls-
herjar rannsóknarstöð, Poly-
Klinik, þar sem menn geti feng
ið sem flestar læknisrannsókn-
ir á einum og sama staðnum, en
það hefir löngum verið mikill
þvælingur á sjúklingum hér á
landi milli sérfræðinga hér í
borginni. Arkitektamir Gunnar
Hansson og Halldór E. Jónsson
hafa teiknað læknahúsið og er
nú verið að slá upp fyrir fyrstu
hæðinni. Byggingameistarinn
segir að unnið verði að bygg-
ingu hússins f vetur og piuni
ekki taka nema rúma viku að
slá upp fyrir hverri hiæð.
Á morgun opnar Magnús Á.
Árnason sýningu á 50 málverk-
um, og sex höggmyndum eftir
sig í Bogasal Þjóðminjasafnsins.
Tíu þessara málverka, eru mál-
uð í Mexico, en þar dvaldi
Iistamaðurinn um 3 mánaða
skeið ásamt konu sinni sinni, og
tóku þau þar þátt f stórri sam-
sýningu.
Bíllinn ónýtur og þrír slösuðust
Þrfr drukknir menn slösuðust
er þeir óku bifreiS út af Klepps
vegi í nótt og hvolfdu henni.
Bifreiðinni höfðu mennirnir
stoIiS og var ökumaðurinn ekki
aðeins drukkinn heldur og rétt-
indalaus. Við fljótlega
í nótt var ekki annað
en bifreiðin væri
ónýt.
Skömmu síðar varð bflstjór-
inn þess var að bifreiðin var
horfin og gerði lögreglunni þá
aðvart. Var verið að leita henn-
ar þegar óhappið varð, en þá
var klukkan orðin 3 eftir mið-
nætti.
Bifreiðinni hefur, þegar hún
valt, verið ekið austur Klepps-
veginn, sýnilega á ofsalegri
ferð. ökumaðurinn hefur ætlað
sér að beygja inn á Langholts-
veginn, en hraðinn verið of
mikill svo hann náði ekki beygj
unni. Eftir öllum sólarmerkjum
að dæma verður ekki annað séð
en bifreiðin hafi tekizt á loft,
Framh. á bls. 5.
Um hádegið í gær var stoiið
peningakassa úr skrifstofu heild-
verzlunar Kr. Ó. Skagfjörðs í
Tryggvagötu 4.
Skrifstofurnar voru mannlausar
f hádeginu að undanteknu því að
tveir menn voru þar við störf, en
hvorug þeirra varð mannaferða
var.
í peningakassanum voru mikil
verðmæti bæði í ávísunum og
reiðufé, líklega allt að 70 þús. kr.
í seðlum voru á 12. þús. kr. í kass
anum, en í ávísunum 50 — 60 þús.
kr. Málið er í rannsókn.
Múlverkasýning
Hér var um leigubifreið
ræða, Chevrolet, árgerð 1955.
Eigandi hennar, leigubílstjóri
að atvinnu, hætti akstri um
miðnættið og lagði
þá fyrir utan hús
Hverfisgötu.