Vísir - 05.12.1963, Page 1
V
53. árg. — Fimmtudagur 5. desember 1963. — 165. tbl.
' i ^
Séra Felix Ólafsson
Séra Grímur Grímsson
Séra Ólafur Skúlason
Sex nýir prestar í
Úrslit á hndegi: Grímur Grímsson, ÓBuf-
ur Skúluson og Felix Ólufsson kjörnir
1 dag bjóða Reykvíkingar 6
nýja presta velkomna til starfa í
höfuðborginni. Prestskosningar
fóru fram s.l. sunnudag sem
kunnugt er en lögum samkvæmt
má ekki hefja talningu fyrr en
eftir 3 sólarhringa og er það
kærufrestur. Talning atkvæða
hófst í biskupsskrifstofunni kl.
9 í morgun að viðstöddum em-
bættismönnum og fulltrúum um-
sækjenda eins og venja er til og
hafði verið talið í þremur presta
köllum af 6 er blaðið fór í prent
un. Talið er í prestaköllunum
eftir stafrófsröð.
Úrslit urðu því fyrst kunn í
hinu nýja Ásprestakalli sem
verður milli Laugarnespresta-
kalls og Langholtsprestakalls.
Þar var séra Grímur Grtmsson
prestur í Sauðlauksdal kjörinn
lögmætri kosningu, hann hlaut
639 atkvæði en hinn umsækjánd
inn, séra Jónas Gíslason f Vík í
Mýrdal hlaut aðeins 70 atkvæð-
um minna, eða 569 atkvæði. 14
atkvæðaseðlar voru auðir og 4
ógildir. Á kjörskrá voru 2067
og alls kusu 1126 manns eða
59 af hundraði.
Næst urðu úrslit kunn í Bú-
staðaprestakalli, sem einnig er
nýtt prestakall, var áður sókn,
er Kópavogsprestur þjónaði á-
samt Kópavogssókn. Séra Ólafur
Skúlason æskulýðsfulltrúi þjóð
kirkjunnar var eini umsækjand-
inn um þetta nýja prestakall.
Hann hlaut 1155 atkvæði eða
98% greiddra atkvæða. 19 at-
kvæðaseðlar voru auðir og 6 ó-
gildir. Á kjörskrá voru 2438
manns og kusu alls 1180 eða
48,5% atkvæðabærra manna.
Vantaði aðeins 26 atkvæði upp á
að helmingur kjósenda greiddi
atkvæði, en 50% kosningaþátt-
töku þarf til þess að kosning
teljist lögmæt. Þetta þykir þó
góð kjörsókn þegar ekki er nema
einn umsækjandi, og hlaut hann
98% greiddra atkvæða sem fyrr
segir.
Þriðja prestakallið í stafrófs-
röðinni er hið nýja Grensás-
prestakall, vestan Grensásvegar
og sunnan Miklubrautar, eða á
Háaleitinu. Umsækjendur voru
tveir. Felix Ólafsson, cand. theol
og fyrrverandi kristniboði, var
kjörinn þar lögmætri kosningu.
Hann hlaut 488 atkvæði, en sr.
Ragnar Fjalar Lárusson prestur
í Siglufirði hlaut 408 atkvæði.
Auðir seðlar voru 13 og 7 vafa-
atkvæði. Á kjörskrá voru 1336,
en 917 kusu, eða 68,6, og var
það mesta kosningaþátttaka f
prestskosningunum á sunnudag.
Vísir Ieyfir sér að bjóða hina
nýkjörnu presta velkomna til
starfa og óskar þeim velfarnað
ar í embættunum. Eftir var að
telja í Háteigs,- Langholts- og
Nesprestaköllum er blaðið fór i
prentun.
Sr. Grímur Grímsson, hinn ný
kjörni sóknarprestur í Áspresta
kalli er 51 árs Reykvíkingur. —
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1933 og síðar verzlunarskóla-
prófi í Kaupmannahöfn, en var
síðar skrifstofumaður hjá Toll-
stjóraembættinu í Reykjavík.
Guðfræðinám hóf hann síðar við
Háskóla Islands og lauk þaðan
embættisprófi 1954 og var vígð
ur til Sauðlauksdalsprestakalls
sama ár og hefur þjónað því
síðan. Sr. Grímur er kvæntur
Guðrúnu S. Jónsdóttur og eiga
þau 3 börn.
Sr. Ólafur Skúlason, er fædd-
ur í Birtingaholti í Hrunam,-
hreppi 1929. Hann er Verzlunar
skólastúdent frá 1952 og lauk
embættisprófi frá H. í. 1955.
Hann var kallaður til prestsþjón
ustu hjá íslenzku söfnuðunum í
Norður Dakota 1955 og vígður
sama ár. Hann þjónaði 7 söfn-
uðum í rúm 4 ár og kom heim
1959. Hann þjónaði Keflavíkur
prestakalli í nokkra mánuði í
fjarveru sóknarprestsins, en hef
ur undanfarin ár verið æskulýðs
fulltrúi þjóðkirkjunnar. Hann
er kvæntur Ebbu Sigurðardótt-
ur og eiga þau tvær dætur.
Sr. Felix Ólafsson, cand. theol
og kristniboði, er fæddur í Rvík
20. nóv. ’29. Eftir nokkurra ára
framhaldsnám hérlendis, stund-
Framhald á bls. b
Tillögar ríkis-
stjórnar rædd-
ar á sáttafundi
Unnið að talningu á skrifstofu biskups í morgun. Talið frá vinstri Baldur Möller, ráðuneytisstjóri,
Guðmundur Benediktsson, fulltrúi, herra Sigurbjörn Einarsson, biskup og Otto A. Michelsen full-
trúi séra Ólafs Skúlasonar.
''jj'aAPKa
Sáttafundur hófst í gærkvöldi
til þess að ræða um tillögur rík-
isstjómarinnar til lausnar vinnu
deilunum. Tóku þátt í þeim
Bfioðið í dag
3 Myndsjá: Jólakon-
fekt búið til.
7 Húsmæðraskólinn á
Laugarvatni.
9 Loftur Guðmunds-
son skrífar um gos-
ið.
fundi fulltrúar úr samstarfs-
nefnd verkalýðsfélaganna, samn
inganefnd vinnuveitenda og
sáttanefnd ríkisins. Fundurinn
stóð til kl. 2 í nótt sem leið.
Eins og ríkisstjórnin tók fram
er hún birti tillögur sínar í kjara
málum, gerir hún ráð fyrir, að
tillögur hennar verði samnings-
grundvöllur, í samningaviðræð-
unum. En áður en þessar tillög-
ur komu fram höfðu samninga-
nefndirnar ekki annað að ræða
um en kröfur verkalýðsfélag-
anna um 40% kauphækkun.
Áður en sáttafundurinn hófst
í gærkvöldi var haldinn sameig-
inlegur fundur allra samninga-
nefnda verkalýðsfélaganna. Var
þar lögð fram ályktun sú, er
samstarfsnefnd verkalýðsfélag-
anna hafði gert um tillögur rík-
isstjórnarinnar og var sú álykt--
un samþykkt þar einnig.
33 SÍLDARBÁTAR FENGu\
8 ÞÚS. TUNNUR í NÓTT
Síldaraflinn í nótt nam um
8000 tunnum, en nær allur flot
inn á veiðum.
Ágætis verður var á síldar-
miðunum í nótt aðra nóttina í
röð. Lóðað var á allmiklar síld-
artorfur báðar næturnar, en þær
stóðu yfirleitt djúpt, og í fyrri
nótt neðar 50 föðmum flestar,
enda veiði ekki teljandi, en síð-
astliðna nótt glæddist hún nokk
uð og fengu 33 skip 8000 tunn-
ur. Síldin veiddist á sömu slóð
um og áður, í Kolluál. Það er
stöðugt prýðileg síld sem veið-
ist.
Síldarbátarnir fengu afla sem
hér segir:
Helga 650, Skarðsvík 400,
Áskell 400, Gnýfari 350, Loftur
500, Sigurpáll 200, Guðmundur
Þórðarson 250, Eldey 250, Gísli
lóðs 200, Faxaborg 300, Hafrún
350, Hrafn Sveinbjarnarson II
150, Rifsnes 200, Lómur 300,
Engey 350, Þorgeir 60, BÍíðfari
100, Árni Geir 150, Hólmanes
350, Sigrún 200, Ingibergur
Ólafsson 250, Snæfell 700, Sæ-
fari AK 170, Ársæll Sigurðsson
II 150, Björn Jónsson 100, Árni
200, Auðunn 100, Hannes lóðs
200, Guðm. Pétursson 40, Húni
II 25, Stapafell 70 Halkion 100,
Sigurður SI 200.
■MHnnMrssanaMMM