Vísir - 05.12.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 05.12.1963, Blaðsíða 16
I Jónsson lótinn ísak Jónsson skólastjóri Iézt s.l. þriðjudagskvöld í Landsspítalan- um. Hann var einn af brautryðjend um bamafræðslunnar hér á landi og meðal kunnustu og fram- kvæmdasömustu skólamanna sinn- ar samtíðar. Isak var 65 ára gamall, fæddur í Gilsárteigi í Eiðaþinghá sonur hjónanna Jóns Þorsteinssonar hreppstjóra í Loðmundarfirði og Ragnheiðar S. Isaksdóttur. Isak Jónsson lauk búfræðiprófi frá Frabih. á bls. 6. Verzlanir í Reykjavík eru óðum að fá á sig jólasvip, og með hverjum deginum, sem líður, aukast jólaskreytingamar að miklum mun. Þessi mynd var tekin í morgun fyrir utan verzlunina Kjörgarð á Laugavegi, en þar hafa tvö falleg jólatré verið sett fyrir utan aðaldyr verzlunarinnar. Mikill jólaundirbúningur Það má orðið sjá að jólin eru að nálgast. I glugga verzlana borgarinnar eru komnar jóla- skreytingar, sala jólakorta og jóladagatala er hafin og líf er að færast í minjagripaverzlan- irnar. Svo að ekki sé nú talað um allar jólabækurnar, sem nú flæða yfir landsmenn, en þær em kafli út af fyrir sig. Hjá fyrirtækjum þeim, sem sjá um framleiðslu og dreifingu á „jólavörunum" svokölluðu er víða unnið dag og nótt til að unnt verði að ljúka öllu því, er ljúka þarf fyrir jólin. Vísir hringdi í morgun í nokkra aðila sem framleiða eða flytja inn vör ur, sem koma til með að setja jólablæ á islenzk heimili, og spurði þá frétta. Er þá fyrst að nefna jólatrén en innflutningur á þeim er þeg- ar hafinn. Eru trén, sem fara eiga út á landsbyggðina komin til landsins en þau sem fara eiga til Reykvikinga eru vænt- anleg á næstunni. Flutt verða inn rúmlega 10 þús. jólatré og um 30 tonn af greinum. I Reykjavík mun sala jólatrjáa væntanlega hefjast laust fyrir miðjan desembermánuð. Jólaávexti er nú tæplega hægt að tala um lengur, því að ávext ir eru markaðinum allt árið um kring. Heldur mun þó vera flutt inn meira af ávöxtum fyrir Framh. á bls. 6. Enn er ó vissa um framtíBar- Heita vatnið og við Bretland Isak Isak Jónsson Fimmtudagur 5. (Jesember 1963. rafmagn hækkar Á næstunni munu hitaveitu- gjöldin hækka um 12% hér í borginni og rafmagnið til heim ilisnota um 5.83%. Verður til- laga um þessa hækkun rædd á borgarstjórnarfundi í dag, en hún er borin fram i sambandi við fjárhagsáætiun borgarinnar, sem þá vérður til 1. umræðu. Með óbreyttu hitaveituverði er gert ráð fyrir því að greiðslu- Sigurbjörn ókæríur halli yrði hjá Hitaveitunni um 6 millj. 844 þús. kr. Hækkun- inni á heita vatninu er ætlað að mæta þessum halla. Kostar þá teningsmeterinn kr. 5.50. Reiknað er með að tæpra 11 millj. kr. halli hefði orðið á Raf- magnsveitu Reykjavfkur 1964 ef gjaldskrá hennar hefði ekki vér ið breytt. Er rafmagnið hækkað til þess að jafna þennan halla. Greiðsluhallinn sem verða mundi bæði hjá hitaveitunni og Rafmagnsveitunni á næsta ári stafar af hækkuðum launum starfsmanna, auknum tilkostn- aði o. fl. Heilsufar gott Vísir átti i morgun tal af borg arlækni og innti hann frétta af heilsufari í borginni. Sagði hann að heilsufar manna mætti teljast gott og væru eng ir umferðarsjúkdómar á ferðinni eins og stendur. Ðreifð tilfelii væru af barnasjúkdómum. Eins og ávallt á þessum tíma árs er nokkuð um kvef og hálsbólgu en ekki mun það vera meira en venjulegt er. Þess ber að geta að borgarlækni berast engar skýrslur um þá smákvilla, sem fólk Ieitar ekki til læknis með. Lítill árangur varð í gær af við- ræðunum um aðgöngu að fiskimið- um, en hins vegar er aukin bjart- sýni rikjandi um jákvæðan árang- ur af ráðstefnunni varðandi ráð- stafanir til verndar fiskstofninum. , Ekki er talið líklegt, að rætt I verði frekar um aðgöngu að fiski- miðum, en ef til vill nokkru frek- ar um aukið frjálsræði á sviði fisk verzlunar og dreifingar. Peter Thomas aðstoðarutanríkis- ráðherra Bretlands, sagði í gær, að Framh. á bls 6. Ennisvegur fær í þessum mánuði Unnið er ennþá af fullum krafti I Vísir hafði fregnað að bifreiðir í veginum fyrir Ólafsvíkurenni og væru byrjaðar að fara hinn ný- vonazt eftir að leiðin opn gerða veg, en vegamálastjóri bar ist seint í þessum mánuði. ' Framh ð ols u Flokksstjórnarfundur Sósíalistuflokksíns hefst ó morgun: Hætta á klofningi hjá kommánistum Saksóknari rikisins hefur ákært Sigurbjörn Eiríksson, veitingamann fyrir ávísanasvik og tvo fyrrver- andi gjaldkeri Landbankans fyrir misnotkun á aðstöðu og brot í starfi, með því að greiða út |um- ræddar ávísanir sem Sigurbjörn gaf út. Var búið að gefa þeim og öðrum gjaldkerum fyrirmæli um að greiða ekki ávísanir á stórar upphæðir, gefnar út á aðra banka án leyfis bankastjórnarinnar. Ákæra saksóknara hefur verið send Sakadómi Reykjavíkur. Flokksstjórnarfundur Sósial- istaflokksins á að hefjast á morgun en honum hefur hvað eftir annað verið frestað undan farið vegna mikilla átaka í röð um kommúnista. Er búizt við, að til tíðinda dragi á flokks- stjórnarfundinum en þar á að ræða um framtíðarskipulag Sósi alistaflokksins og Alþýðubanda- Iagsins. Tveir af foringjum kommún- ista, þeir Bjöm Jónsson á Akur eyri og Karl Guðjónsson, hinn fallni frambjóðandi i síðustu kosningum, hafa undanfarið barizt skelegglega fyrir því, að flokksstjórnarfundurinn verði upphaf að stofnun nýs flokks. Vilja þeir að annað hvort verði Alþýðubandalagið gert að flokki og Sosialistaflokkurinn iagður niður eða enn einu sinni fundið nýtt nafn á fyrirtækið, ef það gæti greitt fyrir samningum við Þjóðvarnarmenn, sem ætlun in er að draga inn í fyrirtækið. Lúðvík Jósefsson hefur verið tvístígandi í málinu en talið er, að hann verði með þeim armin- um á flokksstjórnarfundinum, sem sterkari verður. Þeir Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarna son berjast hatrammlega gegn ráðagerðum Björns og Karls og njóta þeir þar stuðnings ýmissa harðra Moskvu-kommúnista. Vafalaust mun koma fram til- laga á flokksstjómarfundinum um að fresta þessu einu sinni enn, Mun því verða borið við, að nú séu mikil átök í launa- máium og þvi ekki heppilegur tími til uppgjörs í herbúðum kommúnista. Má vera, að launa málin verði flokki kommúnista til bjargar að þessu sinni og ekki komi til uppgjörs. Allt er þó i óvissu um það mál.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.