Vísir - 05.12.1963, Page 3
3
V1S IR . Himmtudagur 5. desember 1963.
hxÍ::::'í
••••:••••••:•:•• •:•:•:••••••• •
'f . «Sf*
’’ ••>>>•; .>:•>»»»»»•>:-»'
f p
Yfir jólin margfaldast kon-
fektneyzla landsmanna, enda
hefur konfektið ætíð þótt einna
bezt af því sælgæti, sem á
markaðinum er. Góður konfekt-
kassi hefur oft þótt góð jóla-
gjöf og margir hafa þann sið
að stinga konfektkassa með í
jólapakkann.
Það var ekki laust við að það
kæmi vatn í munninn á okkur,
er við gengum um Sælgætis-
gerðina Nóa í gærdag. Konfekt
molarnir runnu á færiböndum
framhjá okkur og ilminn lagði
af þeim.
Er lokið var við að framieiða
konfektmolana, voru þeir flutt-
ir inn f pökkunarsal, þar sem
30 stúlkur unnu að því að pakka
þeim inn í skrautlegar umbúðir.
Á undanförnum árum hafa kon-
fektkassarnir tekið alveg gífur-
legum breytingum. Nú eru á
markaðinum skrautlegar og
skemmtilegar umbúðir, einnig er
mikið af konfekti sett í box.
Hallgrimur Björnsson fram-
kvæmdastjóri sagði okkur að
Nói sendi frá sér konfekt f 30
mismunandi umbúðum, þar af
væri konfekt pakkað. í sex gerð
ir af boxum. Boxin virðast njóta
mikilla vinsælda, endá geymist
konfekt betur í þeim og margar
húsmæður geyma ýmsa smá-
hluti í boxunum, eftir að kon-
fektið hefur verið borðað.
Vinsælustu konfektkassarnir
frá Nóa eru án efa svonefndir
„Ævintýrakassar. I hverjum
kassa eru 100 grömm af kon-
fekti og eru til fimm mismun-
andi tegundir, allar með ævin-
týramyndum.
Áætla má að Nói framleiði
um 5 konfektmola á hvert
mannsbarn í landinu.
Mótunum snúið við á færibandinu.
Stærstu konfektkassarnir sem Nói framleiðir taka 2 kíló af komfekti. Á myndinni heldur ein starfs
stúlkan á einum af stærstu kössunum frá Nóa.
5 konfektmolar á mannsbarn
• . .
: :■••••■•:■:
Ein blómarósin sézt hér vinna að pökkun á hinum svonefndu ævintýrakonfekt-
Unnið að því að slá komfektið úr mótunum. Ljósm. Vísis B.G.í
kössum, en af þeim er um fimm tegundir.