Vísir - 06.12.1963, Qupperneq 6
6
V1 SIR . Föstudagur 6. desember 1963.
ras
Sveinbjörn Hannessonendur
kjörinn formaðar Óðins
Finnlandsvina-
fagnaður í kvöld
Finnlandsfélagið Suomi
minnist þjöBhátfðardags Finna, 6.
desember, með kvöldfagnaði fyrir
félagsmenn og gesti þeirra f Tjarn
arcafé (uppi), í kvöld 6. des. kl.
9 slðdegis.
Dagskrá kvöldfagnaðarins verður
Sement —
Framh. af bls. 1.
nam útflutningur 18000 tonn-
um.
Jón Vestdal sagði, að fram-
leiðsla Sementsverksmiðju ríkis-
ins hefði verið í hámarki í ár. En
verksmiðjan getur framleltt 115
þús. tonn á ári. Vfsir spurði Jðn,
hvort ekki yrðl að stœkka verk-
smiðjuna í náinni framtfð. Ekk-
ert vildi hann fullyrða um það
að svo komnu máli. Það færi
eftir því, l.vort hin mikla eftir
spurn eftir sementi innanlands
héldist eða ekki. Jón sagði, að
8000 lestir hefðu farið í Kefla-
vfkurveglnn nýja á árinu. Verði
framkvæmdir jafn miklar og ver
ið hefur mun hin mikla eftir-
spurn vafalaust haldast, sagði
Jón, en dragi úr framkvæmdum
minnkar eftirspurnin að sjálf-
sögðu einnig.
Vísir spurðj Jón hvað liði und
irbúningi að pökkunarstöð í
Reykjavík. Hvað Jðn Sements-
verk'-miðjuna þegar hafa fengið
lóð í Reykiavík undir stöðina,
þ.e. í Ártúnshöfða en fram-
kvæmdir hefðu enn ekki Jiafizt.
Ráðagerðir Sementsverksmiðj-
unnar eru þær að flytja sement
ið ópakkað frá Akranesi til
Reykjavíkur í hina nýju pökk-
unarstöð en pakka því þar og
selja ópakkað einnig. Te'.ur Sem
etsverksmiðjan að pökkunarstöð
í Revkja-. " yrði til mikils hag-
ræðis.
Málfundafélagið Óðinn, félag
Sjálfstæðlsmanna í launþegasam-
tökunum hélt aðalfund sinn i gær-
kvöldi. Var fundurinn mjög vel sótt
ur og mikill áhugi og einhugur
ríkjandi meðal fundarmanna.
Fundarstjóri var Axel Guðmunds
son og Sigurður Sigurjónsson, fund
arritari.
Sveinbjörn Hannesson, formaður
félagsins gaf skýrslu um starfsemi
Óðins á liðnu starfsári, sem var
bæði mikil og fjölbreytt. Að lok-
inni skýrslu formanns las féhirðir,
Valdimar Ketilsson reikninga félags
ins, sem sýndu góðan hag og mjög
góða innheimtu félagsgjalda, reikn
ingarnir voru samþykktir í einu
hljóði.
Á fundinum voru samþykktar inn
tökubeiðnir frá 22 verkamönnum
og sjómönnum, félagsmenn eru nú
um 760.
Sveinbjörn Hannesson var ein-
róma endurkjörinn formaður félags
ins. Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Friðleifur Friðriksson, Valdimar
Ketilsson, Þorsteinn Kristjánsson,
Gunnar Sigurðsson, Stefán Þ.
Gunnlaugsson og Hilmar Magnús-
son. 1 varastjórn voru kosnir: Guð-
jón Hansson Svavar Júllusson, Ey
steinn Guðmundsson, Kristján Jó-
hannsson og Hróbjartur Lúthers
son. Endurskoðendur voru kosnir
Meyvant Sigurðsson, Sigurður Ey-
þórsson og Bjarnhéðinn Hallgrims-
son.
Svelnbjörn Hannesson.
fjölbreytt:
Taisto Suominen Ies upp úr ljóð-
um Eino Seino. Einar Sveinbjörns
son leikur á fiðlu, með undirleik
Þorkels Sigurbjörnssonar. Þorleifur
| Guömundsson sýnir litmyndir frá
i hálendi íslands og fleiri stöðum.
Ennfremur verður skemmtiþáttur
þar sem bæði Finnar og Islending-
ar keppa, — konur og karlar. Að
lokum verður stiginn dans.
Allir Finnar sem dvelja í Reykja
vík og nágrenni verða á kvðldfagn
aðinum. — Félagsmenn Finnlands-
vinafélagsinS Suomi hafa ókeypis
aðgang að fagnaðinum fyrir sig og
gesti sína, sýni þeir félagsskírteini
við innnganginn.
í gær upplýsti rannsóknarlögregl
an í Reykjavík tvö innbrot, sem
framin voru 1 Reykjavfk seint f sl.
mánuði eða aöfaranótt 23. nóv. og
aðfaranótt 28. nóv.
Fyrra innbrotið var framið í vigt-
arskúr hjá\Skeifunni við efri enda
Ægisgarðsins. Þar hafði þjófurinn
valdið nokkrum skemmdum en
engu stolið, einfaldlega af þvi að
þar voru engin verðmæti geymd.
Seinna innbrotið, sem framið var
aðfaranótt 28. nóv. var f gullsmíða
verkstæði Benedikts Guðmundsson
ar á Vesturgötu 45. Þaðan hafði
þjófurinn á brott með sér tvennar
trúlofunarhringasamstæður, nokkur
hnífasköft úr silfri og fleiri
silfurmuni. Var þýfið metið sam-
tals á allt að 6 þúsund kr.
í gær viðurkenndi ungur piltur,
nýorðinn 17 ára, sem ekki hefur
áður komið við sögu hjá lögregl-
unni, bæði þessi innbrot.
Annar inbrotsþjófur gaf sig af
sjálfsdáðun fram við löþregluna 1
Reykjavík. Hann kvaðst aðfaranótt
s.l. sunnudags hafa brotizt inn í
fangahælið á Litla-Hrauni — hús
sem flestir aðrir reyna að brjótast
út úr — og stal þaðan um 6 þús-
und krónum I peningum.
Fleiri —
Framh. af bls. 1.
hneigingu til að líta á vanda-
málin, sem efst eru á dagskrá
(aðg. að fiskimiðunum) sem eitt
margra vandamála, sem leysa
beri öll samtfmis.
Aðrar þáttttökuþjóðir llta aft-
ur á móti á vandamálin sem
„meira og minna einangruð".
I skeytinu segir, að á ráðstefn
unni mun Norðmenn gæta þess,
að gera ekkert sem gæti spillt
fyrir möguleikunum á þvf, að
fiskur og fiskafurðir verði til
umræðu I næsta þætti „Kenn-
edy-viöræðnanna“ um almennar
toUalækkanir. Er vitnað f Synn
anaa fiskimálastjóra Noregs sem
er aðalfulltrúl Norðmanna á ráð
stefnunni, og bætir hann við:
„ — enda þótt ekki sé enn ljóst
hvort EBE-Iöndin óski eftir að
fiskur og fiskafurðir verði ekki
á dagskrá, þar sem þau hafa
ekki enn náð einingu sín I milli
um sameiginlega stefnu varð-
andi Iandbúnaðar- og fiskafurð-
ir.
Ilmurinn er indæll
og braglii el'ir því
FYRIR DRENGI
Nylon skyrtur
hvítar mislitar
BINDI
SLAUFUR
Terelyne BUXUR
PEYSUR
SOKKAR
NÆFÖT
NÁTTFÖT
HÚFUR
HATTAR
HANZKAR
BELTI .fff
FRAKKAR
TREFLAR
KULDASKÓR
GEYSIR H/F
Úrslit
Framh. afbls. 16.
ingaþátttöku. Fimm seðlar voru
ógildlr og 19 auðir, Á kjörskrá
voru 3228 en 1476 greiddu at-
kvæði.
Seinast var talið í Nespresta-
kalli. Þar var Frank Halldórs-
son guðfræðikandidat kosinn
löglegri kosningu, hann hlaut
1946 atkvæði, en .hinn umsækj-
andinn, séra Hjalti Guðmunds-
son, 990. Auðir seðlar voru 19
og 29 ógildir. Á kjörskrá voru
5076, 2984 kusu.
Blaðið býður alla hina ný-
kjörnu presta velkomna til
starfa I söfnuðunum 1 Reykja-
vík og birtir myndir og viðtöl
við þá á bls. 8 — 9 1 dag.
JólafunJur Hvatar
Sjálfstæðiskvennafélagið HVÖT i
Reykjavík, heldur Jólafund sinn 1
Sjálfstæðishúsinu n.k. mánudags-
kvöld kl. 8,30.