Vísir - 06.12.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 06.12.1963, Blaðsíða 8
8 VISIR Utgerandi: Blaöaútgðfan VISOL Ritstjóri: Gunnar G. Schraac. AöstoSarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti S. Áskriftargjald er 70 krónur ð mánuöi. I lausasólu 5 kr. eint. — Simf 11660 (5 llnur). Prentsmiðja Visis. — Edda h.f. Fé til atvinnuveganna MEÐ stjórnarfrumvarpinu um að 25% af innstæðum lánastofnana skuli bundin hjá Seðlabankanum er ætl- unin að gera bankanum það betur kleift en hingað til að leysa úr rekstrarfjárþörf atvinnuveganna. Það sem hér á að gera er að veita hluta af sparifé landsmanna til forgangsþarfa atvinnuveganna. Verður það gert í mynd endurkaupa afurðavíxla, bæði landbúnaðar og sjávarútvegs. Það er alkunna að báðir þessir undirstöðuatvinnu- vegir þurfa á miklu og vaxandi fé að halda til starfsemi sinnar. Gera má ráð fyrir því að bankinn þurfi að kaupa afurðavíxla landbúnaðarins fyrir um það bil 100 millj. króna hærri upphæð en í fyrra. Til þess hefði bankinn ekki fé nema slík ráðstöfun sé gerð og viðskiptabankarnir geta ekki hlaupið þar undir bagga. Af þessu er ljóst að hin aukna innstæðubinding er atvinnuvegunum mjög í hag, og þá ekki sízt land- búnaðinum. Er þessi breyting hin míkilsverðasta fyrir bændur landsins, sem nú fá aukið lánsfé handa á milli. Aukning innstæðubindingarinnar hefir einnig önn- ur þjóðfélagsleg áhrif. Ef fé væri veitt úr Seðlabank- anum til atvinnuveganna án þess að nokkuð kæmi á móti hefði það óhjákvæmilega verðbólgu og ofþenslu- myndun í för með sér. Bindingin hindrar hins vegar að um slíkt verði að ræða. Ekki þarf að taka það fram að sízt er nú bætandi við það fjármagn sem í um- ferð er og þá þenslu sem þegar hefir skapazt. Þess vegna er þessi leið mjög skynsamleg sem hér hefir verið farin, og verður ekki með rökum gagnrýnd, allra sízt af þeim mönnum sem kveðast bera hag at- vinnuveganna fyrir brjósti. Bretar og Islendingar f>AÐ er full ástæða til þess að bjóða forsetahjónin vel- komin heim úr Bretlandsferð sinni. Sú ferð var öll hin ágætasta. Móttökur drottningar, forsætisráðherra og ann- arra foringja Bretaveldis voru með þeim rausnar- og vináttubrag, að lengi mun í minnum haft. Orð forseta íslands voru hvarvetna mikils metin og honum fagn- að sem góðum gesti bæði í borgarstjórnarhöllum og háskólum hvar sem hann fór um landið. Um skeið var uppstytta í vináttu Breta og íslend- inga. För forsetans er staðfesting á því að þeim kapi- tula er að fullu og öllu lokið. Jafnframt undirstrika móttökurnar að Bretar virða og meta hinn einarða nábúa sinn í norðri. Og til Bretlands munum við ís- lendingar enn leita um viðskipti, menningu og menntir. -T V1 S I R . Föstudagur 6. desember 1963. Séra Amgrímur Jónsson ásamt konu slnni Guörúnu Hafliðadóttur og tveim börnum þeirra. Til Reykjavíkur eftir 17 ár í Odda í Háteigsprestakalli náði kjöri séra Arngrímur Jónsson prestur að Odda í Rangárvallasýslu. Hann Iauk prófi í guðfræði 1946 og vígðist það sama ár prestur að Odda. Hefur hann því verið þar prestur s. 1. 17 ár. Séra Arngrímur er fæddur á Arnarnesi á Galmaströnd 1923, sonur Jóns Pálmasonar trésmíða meistara á Akureyri og Kristin- ar Ólafsdóttur. Hánn lauk stú-< dentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1943. Fyrir tveim ár- um stundaði séra Arngrímur framhaldsnám 1 guðfræði í Ox- ford. Hann er kvæntur Guðrúnu Hafliðadóttur frá Hergilsey á Breiðafirði, og eiga þau 3 börn. Hvernig llzt yður á að flytj- ast til höfuðstaðarins eftir að hafa verið svo lengi úti á landi? Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Ég kunni ljómandi vel við mig í Odda og hefði ekki verið í kot vísað þó ég hefði orðið að fara aftur austur. En mér lízt einnig vel á að takast á við ný viðfangsefni hér í Reykjavik, enda þótt erfiðleik- arnir verði sjálfsagt miklir fyrst í stað. Hvernig er aðstaðan til starfs í Háteigssókn? Hún er ekki góð, meðan söfn uðurinn hefur ekki kirkju. En vegleg kirkja er nú í smíðum og væntanlega verður þess ekki langt að bíða að unnt verði að taka hana I notkun. En á meðan kirkjan er ekki tilbúin, verður að messa í Sjómannaskólanum eins og undanfarið. Hvernig þótti yður að starfa að kosningaundirbúningnum? Það var erfitt starf og ég vil taka það fram, að ég tel hik- laust að leggja ætti prestskosn- ingar niður. Hvaða rök viljið þér helzt færa fram fyrir þvi að leggja prestskosningar niður. Ég sé ekki, að fremur sé á- stæða að láta fara fram kosn- ingar við val á embættismönn- um þjóðkirkjunnar en við val á öðrum embættismönnum ríkis- ins, nema síður væri. Almenn- ingur þekkir okkur ekkert þeg- ar við bjóðum okkur fram. Og það vill verða svo, að ávallt er hafður í frammi nokkur áróð- ur, sem teljast verður óviðeig- andi, þegar verið er að velja presta þjóðkirkjunnar. Blöðin taka oft þátt i áróðr- inum og ég vil nefna sem dæmi, að ég var eini frambjóðandinn í nýafstöðnum prestskosningum, sem tekinn var sérstaklega fyrir í einu dagblaði bæjarins, þ. e. í grein í Þjóðviljanum. Komu úrslitin i Háteigssókn yður á óvart? Ekki algerlega. En í rauninni vissi ég að sjálfsögðu ekkert um það fyrirfram hvernig kosn- ingarnar mundu fara. Hvað viljið þér segja að lok- um í tilefni af að þér urðuð at- kvæðahæstur í Háteigssókn? Ég vil aðeins segja, að það er ekki nóg að kjósa prest til starfa, það verður einnig að styðja við bakiö á honum í starf inu. Og þess vildi ég óska að ég hlyti stuðning safnaðarfólks- ins í væntanlegu starfi minu í Séra Sigurður Haukur og kona hans frú Kristin Gamla sóknin 241 — næsta hús með 270 sóknarbörn Séra Sigurður Haukur Guð- jónsson, sem fær veitingu fyrir Langholtsprestakalli, er 36 ára gamall Hafnfirðingur. Hann sagði m. a. í viðtali í gær: — Mín fyrstu kynni af trú- málum og sú ákvörðun að ger- ast prestur urðu í löngum sjúkrahússlegum mínum, og eft ir stúdentsprófið 1950 ákvað ég að innritast í guðfræðideild Há- skóla Islands. Og þaðan lauk ég embættisprófi 1955, en IV2 ár var ég við búskap í Gljúfurholti i Ölfusi. Á því tímabili varð mér ljóst, að ég hafði þörf fyrir að verða prestur. Eftir námið starfaði ég hjá aðalbókhaldi SÍS meðan ég beið eftir veitingu á brauði, og réðst síðan til Háls- prestakalls í Fnjóskadal og þar hef ég starfað í 8 ár“. — Og hvernig líkar yður við Þingeyinga? „Mjög vel. Þetta var allt elsku Framh. á bls. 5.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.