Vísir - 06.12.1963, Side 10
70
V í SIR . Föstudagur 6. desember 1963.
Föstudagsgrein —
Framhald af bls. 7
byssum. En engin sönnun hefur
enn fengizt fyrir þvf, að um
samsæri fleiri manna hafi verið
að ræða.
lVræst er að víkja að hvötum
og tilgangi Oswalds með
morðinu. Einfaldasta leiðin til
iiu rannsaka það er auðvitað að
athuga fyrri feril hans, hugsana
gang og stjórnmálaskoðanir.
Þegar fyrstu fréttirnar bárust
um morðið á Kennedy, held ég
að viðbrögð allra hafi verið að
þeir ímynduðu sér, að negra-
hatarar hefðu verið þar að
VOÍ^i.
En staðreyndirnar töluðu öðru
máli. Ferill Oswalds sýndi, að
hann hafði verið kommúnisti af
þeirri tegund, sem hatast við
allt og alla. Hann hafði meira
að segja gengið svo langt að
setjast að í Rússlandi og óska
eftir ríkisborgararétti þar. En
sjálfir eru Rússarnir víst ekkert
hrifnir af því að fá inn í land
sitt kommúnista með glæpa-
mannshugarfari og sendu hann
því aftur heim eftir þrjú ár.
Koma Oswalds aftur til Banda
ríkjanna vakti þá nokkra athygli
og var það þá, sem sjónvarps-
Viðtal var tekið við hann, þar
sem hann lýsti þvi yfir, að hann
væri ekki kommúnisti, heldur
marxisti. 'Átti þetta að þýða að
hann væri á Pekinglínunni. Síð
an hefur hann starfað í öfga-
fullum kommúnistasamtökum
og unað sér vel í samfélagi
Castro-sinna.
Tjannig eru þá helztu stað-
" reyndir málsins, en síðan
gerist sá einkennilegi atburður,
sem Dallas-lögreglan ber sök á
og er alger hneisa og svívirða
á bandarísku réttarfari. Nætur-
klúbbseigandinn Jack Ruby fær
aðstöðu til að ganga að hinum
handtekna manni og drepa hann
svo að segja í höndum lögregl-
unnar. Það er þessi atburður,
sem fyrst og fremst kemur grun
semdum og getgátum af stað.
Menn spyrja t. d. hvernig gat
Jack Ruby átt svo greiðan að-
gang, komizt að Oswald í hönd
um lögreglunnar? Þegar farið er
að skýra það, er komið að þeirri
lögregluspillingu, sem er svo út
breidd meðal lögreglunnar viðs
vegar I Bandaríkjunum. Jack
Ruby var „vinur“ lögreglunnar.
Þessa vináttu eignaðist hann
með því að bjóða einstökum lög
reglumönnum að koma og njóta
veitinga I næturklúbbnum og
horfa á nektarsýningar stúlkn-
anna. Nú munu lögregluþjónarn
ir I Dallas ekki framar fá tæki-
færi til að njóta hinna höfðing
legu veitinga I Carousel Club.
Og hvers vegna þurfti Jack
Ruby að afla sér vina meðal
lögreglunnar? — Vegna þess, að
við hliðina á næturklúbbnum
rak hann vændi. En vináttan
opnaði honum líka dyrnar að
kjallara lögreglustöðvarinnar í
Dallas. Hví áttu lögreglumenn-
irnir að loka hann úti, Jack,
sem var vinur þeirra allra? Þeir
gátu ekki grunað hann um
græsku. Þannig virðist stað-
reynd þessa máls vera, en hvik-
sögurnar ganga jafnvel svo
langt að herma að lögreglan I
Dallas hafi staðið að samsær-
inu um að myrða Kennedy. Fyr
ir slíku er enginn fótur.
i~kg svo spurningin um það,
^ hvers vegna Jack Ruby
myrti Oswald. Málið er sem
fyrr segir I höndum ríkislögregl-
unnar, sem hefur neitað að gefa
upplýsingar fyrr en rannsókn-
inni er lokið. Hugleiðingar um
þetta efni verða því flestar get-
gátur einar, en þær snúast flest-
ar um það, að bak við morðið
hafi verið samsæri glæpahrings
og það hafi verið hlutverk Jack
Rubys að koma I veg fyrir það,
að Oswald leysti frá skjóðunni.
Þetta eru algerar getgátur, en
hitt er vist, að Jack Ruby er
skuggaleg persóna, sem hafði
samband við undirheimana og
var tengdur þeim glæpahring,
sem hefur þróazt I verkalýðs-
samtökum vörubllstjóra undir
hinum illræmda James Hoffa.
Það er þvf engin furða þó
skýrslna bandarísku ríkislög-
reglunnar sé beðið með eftir-
væntingu.
Þorsteinn Thorarensen.
VINNA
Bifreiðaeigendur
gerið við bílana ykkar sjálfir — við sköpum
ykkur aðstöðu til þess.
BÍLAÞJÓNUSTAN - KÓPAVOGI
Auðbrekku 53
Bílaeigendur —
Veitum yður aðstöðu til hreingem
inga og viðger8a á bílum yðar. -
Einnig þvott og hreinsun. Reynið
hagkvæm viðskipti. Bifreiðaþjón-
ustan, Súðavogi 9. — Sími 37393.
Bifreiðar til sölu
Landrover ’63 diesel — Opel Record ’62 og ’63 —
Volkswagen ’62 og ’63 á mjög hagstæðu verði.
Zimca ’62 mjög góður bíll — Volvo vörubifreið ’61,
5—6 tonna Iítið ekinn. Mikið úrval af öllum tegund-
um bifreiða.
MATTHÍAS SELUR BÍLANA
BÍLLINN Höfðatúni 2
Símar 24540 og 24541.
VÉLAHREINGERNING
Vanir
menn.
Vönduð
vinna.
Þægileg
Fljótleg.
ÞRIF. -
Sími 21857.
TePpa- og
húsgagnahreinsunin
Sími 34696 á daginn
Sfmi 38211 á kvöldin
og um helgar
Vélhrein-
gerning
og
teppa-
hreinsun
ÞÖRF. -
Sími 2083í>
Vclahreingern-
ng og húsgagna-
Vanir og vand-
-irkir menn.
'Ijótleg og
-ifaleg vinna
ÞVEGILLINN
Sími 34052.
^FTFfNgERM INC7fFroy
FLJOT OCGÖÞ VINNA X
f'CL Rq
Hreingerningar f ; glugga-
hreinsun. — Fagmaður f
hverju starfi.
ÞC .ÐUR OG GEIR
Símar 3. 37 og 51875
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu
sængurnar. Eigum
dún- og fiðurheld ver.
Æða- og gæsadún-
sængur óg kodda fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstig 3 — Sími 18740
Áður Kirkjuteig 20
Næturvakt ! Reykjavík vikuna
30-7. des. er I Vesturbæjarapóteki
Nætur og helgidagavarzla I
Hafnarfirði vikuna 30-7. des.:
Kristján Jóhannesson Mjósundi
15, sími 50056.
Neyðarlæknir — sími 11510 —
frá kl. 1-5 e.h. alla virka daga
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9,15-8, laugardaga
frá kl. 9,15-4., helgidaga frá kl.
1-4 e.h. Sími 40101
Slysavarðstofan i HeiIsuvernO-
arstöðinni er opin allan sólar-
hringinn, næturlæknir á sama
_.au klukkan 18 — 8. Sími 21230.
Holtsapótek. Garðsapótek og
Apótek Keflavfkur eru opin alla
virka daga kl. 9-7 laugardaga frá
kl. 9-4 og helgidaga frá kl 1-4
Lögreglan, slmi 11166.
Slökkviliðið og sjúkrabifreiðin.
stmi 11100
tJtvarpið
Föstudagur 6. desember.
Fastir liðir eins og venjulega.
18.00 Merkir erlendir samtfðar-
menn: Séra Magnús Guð-
mundsson talar um Toyo-
hiko Kagawa.
20.00 Efst á baugi (Björgvin Guð
mundsson og Tómas Karls-
son).
20.30 Einsöngur: Amelita Galli
Curci syngur ítalskar óperu
aríur.
20.45 Frá Mexíkó, VI. erindi:
Staðir, sem við komum á
(Magnús Á. Árnason list-
málari).
21.10 Frá tónlistarhátíðinni I
Salzburg í sumar.
21.30 „Brekkukotsannáll“ eftir
Halldór Kiljan Laxness, XI.
(Höfundur les).
22.10 Daglegt mál (Árni Böðvars
son).
22.15 Erindi: Huglækningar
(Árni Óla rithöfundur).
22.35 Næturhljómleikar.
23.25 Dagskrárlok.
Blöðum
flett
Eina kann ek vísu:
Ari sat á steini.
Aðra kann ek vísu:
Ari sat á steini.
öll er sem ein sé:
Ari sat á steini.
Skúli jarl I ræðu.
(Flateyjarbók)
Við ígerðarbólgu skal leggja við
soðna mjólk úr einlitri kú, eða
saxa saman ljónslappa og lambs-
eða kálfslungu I bækur, eða blaða
með hafursblóði, eða gera plástur
úr hrútstaði og ediki og leggja
við. Þá gera graftarbólgur fljótt
út, ef stækur hákarl er lagður
við þær. Algengasta ráðið við
heimakomu var bakstur úr kúa-
mykju eða súru skyri. Ánamaðka
bakstur var og ágætur . . . tínd
var hrúga af ánamöðkum, látin I
smápoka úr sauðsvörtu eða gráu
vaðmáli og þetta var svo bundið
við bólguna og látið sitja þrjár
nætur, en þá átti að brenna pok-
anum með möðkunum I að húsa-
baki.
ísl. þjóðhættir.
Strætis-
vagnhnoó
Þá mundi um færri afglöp
að þrefa og þrátta
og þjóðlífið .
fastara 1 skorðum,
ef jólasveinarnir væru
ekki nema einn og átta —
eins og j. töldust forðum.
skáld fyrr á tímum, ef þau mis-
notuðu skáldgáfuna, og væri það
refsing frá æðri máttarvöldum ...
er svo að sjá, sem hin æðri mátt-
arvöld „flokksins" hafi dæmt Lax-
ness sekan um sömu óhæfu, og
ákveðið honum sömu refsingu, og
þessu skuli almenningur verða að
trúa fyrir meðalgöngu áróðurs-
vélar þeirra, hvort eð hann vill
eða ekki . . . nú er ekki eins og
Laxness hafi sagt skilið við all-
an kommúnisma, rétt eins og
hann sagði forðum „skilið við alla
kaþólsku" — hann á einungis i
fremur lítilfjörlegum ágreiningi
við flokkspáfana hérna og um
veigalítil atriði . . . en fyrst ekki
þarf meira til, að þeir dæmi þann
ig alla snilld af sínu höfuðséníi
og nóbelskáldi, þá gefur nokkurn
veginn auga leið, hversu hlutlaus
ir hinir „óskeikulu" menningar-
postular flokksmáttarvaldanna
hafa verið á undanförnum árum
í gagnrýni sinni á verk þeirra,
er vitað var að voru kommún-
ismanum andvígir, og fóru jafn-
vel ekki I neina launkofa með and
úð sína á öllu, sem til hans tald-
ist, og ætti meðferð þeirra postul-
anna á Laxness nú að vera öllum
almenningi þar nokkur lærdómur
. . . kannski þeir eigi líka eftir
postularnir, að gera þá „játningu"
að Hagalín og Gvöndi Dan sé,
þrátt fyrir allt, ekki alls varnað,
og veita þeim uppreisn, jafnvel
þó að þeim hafi ekki tekizt að
myrða þá — hvað virðist aðalskil-
yrðið fyrir uppreisn ærunnar f
sovét . . .
Eina
sne/ð
Eftir sinfóníuhljómleika: — Ég
veit það, að hann er ósköp ungur
og sætur, þessi írski . . . en að
mínum dómi, þá Iætur hann hljóm
sveitina leika alltof sterkt og hátt.
Það lá við að við frú Elín yrðum
að kallast hvor í eyrað á annarri
til að geta talað saman . . .
3
. . . fyrrverandi vopnabræður
Laxness halda áfram þeirri iðju
sinni, að reyna að lauma því inn
hjá almenningi, að hann hafi allt
í einu misst gáfuna, líkt og segir I
þjóðsögum, að komið hafi fyrir
. . . að þetta margumtalaða cg
arðsæla hagsmunafé sé yfirleitt
með þvi gamla og góða fjármarki
afeyrt bæði?
lEjanrr