Vísir - 15.01.1964, Page 8

Vísir - 15.01.1964, Page 8
8 VÍSIR Útgefandi: BlaSaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarénsen Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði í iausasðlu 5 kr. eint. — Slmi 11660 (5 llnur) Prentsmiðja VIsis. — Edda h.f. I Framsókn ferst sízt oð tala TÍMINN hefur stagazt mikið á því, að ekki hafi mun- að nema hársbreidd, að ríkisstjórnin missti meiri hluta sinn í síðustu kosningum. Og formaður Fram- sóknarflokksins gleymdi ekki að minnast á þetta í áramótahugleiðingu sinni. Sýnt hefur verið fram á, að engin ríkisstjórn, nema samsteypustjómir þriggja flokka, eða Sjálfstæðismanna og Framsóknar, hefur haft meira fylgi á bak við sig en sú, sem nú situr. Það situr sízt á Framsóknarmönnum að tala um ! þessa hluti. Þegar þeir stjómuðu landinu, höfðu þeir nauman þingmeirihluta og minnihluta þjóðarinnar að baki þeirri þingmannatölu. Þess verður ekki minnzt, að Tíminn eða foringjar Framsóknarflokksins teldu þá að kjósendahlutföll stjórnarinnar og stjómarandstöð- ' unnar skiptu máli. Þvert á móti barðist Framsókn eins ! og óð væri gegn öllum breytingum á kjördæmaskip- | uninni. Hún vildi halda í ranglætið eins lengi og unnt i væri, af því að hún hafði sjálf hag af því. Hún gat | jafnvel myndað ríkisstjórn með um það bil þriðjung i kjósenda í landinu á bak við sig, og taldi þetta ekki | nema sjálfsagt og eðlilegt. i Og svo eru skýringarnar á því, hvers vegna ríkis- ! stjórnin hélt meirihlutanum: í fyrsta lagi á það að ' vera góðærinu að þakka. Ekki dugði það þó vinstri , stjórninni. Þegar hún var við völd, og einmitt síðari | hluta þess tíma, var mesta góðæri, sem komið hafði. i Eigi að síður tókst henni að leiða þjóðina fram á „hengi ! flugið“ og reisa verðbólguöldu, sem hún réði ekki við. Góðæri virðist því ekki vera einhlítt. Þeir, sem með völdin fara, þurfa að kunna að stjórna. Það kunna Framsóknarmenn ekki, eins og sagan sannar, því að stjórnarforusta þeirra hefur ævinlega endað með skelf- ingu. Þá er það sú ásökun, að ríkisstjórnin hafi fyrir kosn- ingamar sagt þjóðinni rangt frá ástandi efnahagsmál- anna. Þetta er vægast sagt ósvífinn áburður. Engin ríkisstjórn hefur sagt landsmönnum eins afdráttarlaust og þessi frá gangi málanna. Hún sagði þegar í byrjun, hvað gera þyrfti og hvað þjóðin þyrfti á sig að leggja til þess að komast úr þeim ógöngum sem afglöp vinstri stjórnarinnar höfðu leitt hana út í. Hún varaði ræki- lega við því, sem ekki mætti gera, ef viðreisnin ætti að heppnast, og hún hefur æ síðan skýrt hispurslaust frá ástandinu eins og það hefur verið á hverjum tíma. Þetta er meira en hægt er að segja um vinstri stjórnina og aðrar ríkisstjórnir, sem Framsóknarmenn hafa veitt fomstu. Ef þær blikur, sem nú eru á lofti, koma einhverjum á óvart, getur það ekki verið vegna þess, að ríkis- stjórnin hafi vanrækt þá skyldu sína, að vara þjóðina við. Hitt er sönnu nær, að ófyrirleitin stjórnarandstaða eigi þar sökina, og svo auðvitað þeir, sem hafa trúað henni betur en ríkisstjórninni eða gengið vísvitandi í lið með skemmdaröflunum. V1S IR . Miðvikudagur 15. janúar 1964. III'HII^MI■II^■II■^■■■——■——■ i i miTl ili'— „Álit mitt ú ráðhúsinu" Hið fyrirhugaða ráðhús við Tjömina er nú mjög til umræðu meðal borgarbúa.. Vísir hefir í því til- efni leitað til nokkurra kunnra Reykvíkinga og spurt um álit þeirra á nýja ráðhúsinu og sérstak- lega hvemig þeim þyki arkitektunum hafa tekizt verk sitt. Fara svörin hér á eftir. Vilhjálmur Þ. Gíslason komst þannig að orði: „Mér finnst þetta myndarlegt hús og sviphreint. Hinu er ekki að neita, að það stingur dálítið I stúf við umhverfið, gamla bæ- inn, en maður gerir ráð fyrir að húsin þar muni smám saman færast þar I þetta nýtlzkulega form — þó að ég sé fyrir mitt leyti ekki allt of hrifinn af slíku formi. Þegar komið er mikið af slíkum kössum, er hætt við að heildarmyndin verði nokkuð einhæf. Ennþá veit maður ekki hvernig húsið verður að innan, en það veltur á miklu. Mjög fallegt verður útsýnið úr hús- inu. Þar munu menn sjá vítt yfir Reykjavík, sem er allra bæja fallegastur. Lengi hefir verið nauðsyn á slíku húsi hér I Reykjavlk og gott að nú er að framkvæmdum komið". ★ Ásmundur Sveinsson mynd- höggvari sagði: „Ég hef ekki kynnt mér þetta nógu vel. Hef bara séð myndir 1 blöðum. Ekkert farinn að kynna mér skipulagið I heild. svo að ég hef I rauninni ekki möguleika á þvl að láta álit • mitt I ljós. Frumskilyrði þess að geta gagnrýnt er að hafa kynnt sér út I æsar málefnið eða hlutinn, sem um er rætt. Eitt vil ég samt segja. Gamli bærinn, þ. e. miðbærinn er okk- ur gömlu mönnunum kær. Ég er þeirrar skoðunar að hann hefði átt að vera okkar „gamli bær“ áfram. Það er of þröngt þar hvort eð er til að koma þar upp eins konar centrumi. Það á að dreifa úr borginni, en ekki hrúga öl) upp á litlu svæði. ekki hrúga öllu upp á litlu svæði að framtíðarcentrum Reykjavík- ur verði I námunda við Laugar- dalinn. Þar eru stórhýsin að byggjast og allt bendir til að þar verði miðbær Reykjavíkur. Ég er hræddur við þrengslin í gamla bænum. Svo er það Tjömin. Hún er okkur helgidóm ur. Ef endilega hefði þurft að byggja ráðhúsið við Tjörnina, því þá ekki við suðurenda henn ar? Ég held að það hefði farið betur á því. Nú, um bygginguna út af fyr- ir sig, eins og ég hef séð hana dregna upp I blöðum, verð ég að segja að mér lízt að ýmsu leyti vel á hana. En sem sagt, ég verð að vera varkár I dóm- um á meðan ég hef ekki kynnt mér málið til hlítar". ★ Ragnar Jónsson forstj. Helga- fells komst þannig að orði: „Eins og skýrt kom fram I Helgafelli, í grein sem við feng- um Gunnar Thoroddsen þáver- andi borgarstjóra til þess að skrifa fyrir okkur, vorum við Helgafellsmenn þvl eindregið fylgjandi að ráðhúsið væri byggt sem næst bæjarstæði Ingólfs. Sjálfum finnst mér að enginn annar staður en þessi komi til greina eftir að mér hafði verið bent á hann. Byggingin finnst mér stór- falleg — fyrsta stórbyggingin af þeim sem teiknaðar hafa veríð hér síðari árin, sem ég er reglu- lega ánægður með". ’ ★ Maria Maack yfirhjúkrunar- kona sagði: „Það er ágætt að nú fáum við loks ráðhús. Ég hefði viljað sjá það byggt fyrir að minnsta kosti 50 árum síðan. Ég var nokkuð efins í að staðurinn væri heppi- legur, en eftir að ég hefi séð teikningarnar er ég ánægð. Það kemur ekki til með að skemma Tjörnina, en hún er alltaf svo falleg. Aðalatriðið er að það verði nógu rúmt I kring um ráð- húsið, þótt ég muni sakna jafn ágæts húss og Þórshamars. Reyndar vildi ég á sínum tlma láta Ioka Austurstræti með ráð- húsbyggingu og rífa alla kofana þar I kring. En nú er það of seint. Um útlit hússins vil ég segja þetta: Það er verið að byggja fyrir 20. öldina og þá er það hárrétt að reisa nýtlzkulegar byggingar. Það er verið að byggja fyrir framtíðina, en ekki fyrir okkur sem brátt hverfum af sjónarsviðinu". ★ Birgir ísleifur Gunnarsson hdl. komst þannig að orði: „Mín afstaða hefir þegar kom- ið fram með atkvæði mlnu I borgarráði, en þar greiddi ég atkvæði með tillögum þeim, sem fyrir liggja og almenningur hefir átt kost á að sjá undan- fama daga. Auðvitað eru skipt- ar skoðanir um ráðhúsið. Norð- urendi Tjarnarinnar virðist þó vera sá staður, sem flestir.geta fellt sig við ,enda mun ráðhús- ið þar verða borgarprýði og fegra Tjömina og umhverfi hennar. Um húsið sjálft er það að segja, að það er einfalt og stílhreint, en við getum aldrei við þvl búizt að nú verði byggt hús I byggingarstíl Alþingishúss ins og Dómkirkjunnar, enda þau hús mjög ólik. Ráðhúsið, Al- þingishúsið og Dómkirkjan munu I framtíðinni standa sam- an I góðum félagsskap, þar sem hvert þeirra húsa verður full- trúi ólíkra en merkra tlmabila I sögu landsins".

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.