Vísir - 30.01.1964, Side 16
.
VÍSIR
Fimmtudagur 30. janúar 1964.
Bakarí í Iðn-
skólanum
I ggerdag hófst verkleg kennsla
í bakaraiðn f Iðnskólanum í Reykja
vfk. Bakarí hefur nú verið sett upp
á efstu hasð skólans, og það kaffi-
brauð, sem nemarnir baka verður
selt í kaffistofu skólans. Verkleg
kennsla f bakaraiðn hefur löngum
Framhald á bls. 6
Þjóðleikhúsið fœr sýningarrétt á
„ After the Fall" eftir Miller
Hvaða islenzk leikkona fær
hlutverk Marilyn Monroe?
Þjóðleikhúsið hefur nú „After the Fall“, sem var
aflað sér sýningarréttar frumsýnt á Broadway í
á leikriti Arthurs Millers New York fyrir nokkr-
um dögum og vakti
geysimikla eftirtekt.
„Við höfum sýnt frægustu
leikrit Millers hér f Þjóðleikhús
inu og hafa þau alltaf reynzt
mjög vinsæl og ég held að
„After the Fall“ verði ekki
síðra eftir þeim viðtökum, sem
það hefur fengið á Broadway,"
sagði Guðlaugur Rósinkranz,
þjóðleikhússtjóri í viðtali í
morgun.
Þjóðleikhúsið fékk sýningar-
réttinn í gegnum umboðsmann
sinn f New York, en handrit
munu berast næstu daga og
þýðandi þá fenginn til starfa.
Leikritið mun þó ekki verða
sc-tt á svið fyrr en á næsta
starfsári leikhússins, enda langt
liðið á leikárið.
Aðspurður sagðist þjóðleikhús
stjóri ekki hafa íhugað hvaða
stúlka væri bezt fallin til að
leika Marilyn Monroe. Það
, verður án efa mjög erfitt verk
að finna þá stúlku, en við höf-
um margar góðar leikkonur í
skólanum okkar og aldrei betri
en nú og ég gæti trúað, að ein-
hver þeirra kæmi til með að
hreppa hlutverkið, hver veit“.
Eins og skýrt hefur verið frá
fyrr hér í blaðinu fjallar leikrit
þetta um Marilyn Monroe, fyrr-
verandi eiginkonu Millers, enda
þótt Miller sjálfur hafi enn ekki
viljað viðurkenna það.
Myndin er tekin f hinu nýja bakaríi f Iðnskólanum. Á myndinni eru talið frá
Hersir, Sigurður Bergsson og Guðmundur Oddsson. Ljósm. Vfsis B.G.
stri: Stefán Thordarsen, Gfsli Ólafsson, Guðmundur
Kvikmyndasýning
Germaníu
Á morgun, laugardag, verður
kvikmyndasýning félagsins Ger-
maníu með venjulegum hætti, og
verða sýndar frétta- og fræðslu-
myndir.
Tal og Friðrik tefla í kvöld
Akstur hafinn á
sérleyfisleiðum
Ákstur á sérleyfisleiðum hófst f
morgun á ný með eðlilegum hætti
eftir að verkfali hafði staðið sfð-
an 17. janúar. Náðist samkomulag
um kjðr bifrelðastjóra á sérleyfis-
Ieiðum seint f gærkvöldi og verk-
falli var þegar aflétt
Aðalatriði samkomulagsins er
það, að kaup bifreiðastjóra á sér-
leyfisleiðum er unnið hafa skemur
en 3 ár hækkar um 15% en um
20% hjá þeim, sem unnið hafa 3
ár eða lengur. Yfirvinna greiðist
með 60% álagi og næturvinna með
100% álagi. Að öðru leyti var kjara
deilunni vísað til kjaradóms, sem
ákvarða á kjör bifreiðarstjóra á
sérleyfisleiðum að öðru leyti. —
Er kjaradómurinn skipaður 2 full-
trúum frá hvorum aðila og 3 hlut-
lausum mönnum er yfirborgardóm-
arinn í Reykjavík tilnefnir. Sam-
komulag það er Frami f Reykja-
vfk og Fylkir í Keflavfk hafa nú
gert við sérleyfishafa gildir frá 1.
janúar þessa árs til 15. desember.
30 km. ganga á 01:
/slendingar ekki fréttir
meðal 54 fyrstu
Tveir íslendingar, Birgir Guð-
Iaugsson og Þórhallur Sveinsson
voru meðal þátttakenda í 30 km.
göngukeppni á OL f Innsbruck f
morgun. Hvorugur mun hafa náð
góðum árangri þvf þeirra er ekki
getið f fréttaskeyti frá NTB-frétta-
stofunni, sem segir þó frá 54 fyrstu
mönnum keppninnar.
Olympíumeistari varð Finninn
Mæntyranta á 1:30.50.7 klst. en
annar varð Harald Grönningen,
Noregi, á 1:32.02.3 klst. og þriðji
Vorontsjitsjin frá Rússlandi. Þá
komu tveir Svíar Jannes Stefans-
son og Sixten Jemberg. Af fyrstu
14 mönnum keppninnar voru Norð-
urlandabúar f 11 sætum.
1 500 metra skautahlaupi kvenna
vann rússneska stúlkan Skoblikva
gullið á tímanum 45.0 sem er nýtt
Oiympfumet.
Egon Zimmermann, Austurríki,
sem eitt sinn var hér á Islandi með
skfðamönnum, vann brunkeppni
OL f morgun á 2.18.17, annar var
Leo Lacroix, Frakklandi, 2.18.49 og
þriðji Wolfgang Barthels, Þýzka-
landi á 2.19.55.
„Það liggur við að
maður hætti að tefla,
þegar maður sér menn
eins og Tal tefla. Skák-
flækjumar, sem Tal legg
ur út í eru svo óskapleg-
ar að allir hljóta að falla
á þeim“. Þetta sagði
Friðrik Ólafsson í stuttu
rabbi í gærmorgun, en
hann var óheppinn í
fyrrakvöld og hefur
raunar misst vonina um
sigur í Reykjavíkur-
skákmótinu.
„Mér yfirsást einn leikur
Wades, þegar hann lék
drottningunni, ég lagði út f ævin
týramennsku og féll á öllu sam-
an. Ég hef líklega séð þetta allt
f hillingum og þvf farið sem fór.
Hann þvingaði mig út f tvlsýn-
una og var slgurinn vfs“.
„ Hvemig flnnst þér fram-
kvæmdin á Reykjavfkurmót-
inu?“
„Ég er ánægður með hana, og
einkum þaitn mikla áhuga sem
hér er á skák. Þessi áhugi
er vart til nema LHollandi og
nokkrum austantjaldslöndum".
Friðrik og Tal tefla sam-
an f kvöld og sagðist
Friðrik ákveðinn f að gera
allt sem f hans valdi stæði til að
stöðva Tal, — en kvaðst engu
vilja lofa um úrslit.