Vísir - 09.04.1964, Side 3

Vísir - 09.04.1964, Side 3
„T oastmaster s “ . í gleðskap Á Keflavfkurflugvelli hefur starfað um nokkurra ára skeið klúbbur, er nefnist Vulcan To- astmasters Club. Hefur klúbbur þessi að markmiði að þjálfa með limi 1 ræðumennsku, fundarskðp um og f þvf að koma fram, hvort sem er opinberlega eða f einkalífi. Heldur klúbburinn vikulega fundl, þar sem menn koma sam- an og borða og eru umræður yflr borðum. Bæði Bandaríkja- meran og íslendingar eru í klúbbnum og hafa félagsmenn venjulega skipzt f helminga eft- ir þjóðemi. Öll starfsemi fer fram á ensku. Hefur verið komizt svo að orði, að þetta væri alveg eins og saumáklúbbur, að öðru en því, að þarna er aðeins talað, — ekkert saumað. Á hálfs árs fresti er skipt um stjórn og er þá venja að halda fund með öðrum stíl en venju- lega, þar sem ný stjóm er sett inn í embætti. Einn slíkur var haldinn í Þjóðleikhúskjallar'an- um síðastliðinn laugardag og birtast hér nokkrar myndir það- an. Á efstu myndinni eru frá vinstri: Frú Haviland, frú Elli- son, fráfarandi formaður klúbbs ins, Ragnar Halldórsson, yfir- verkfræðingur á Keflavíkurflug- velli, í ræðustól Lieutenant Clair Brou, sem er yfir útvarps- og sjónvarpsstöð vallarins, Captain Ellison, yfirmaður Keflavíkur- flugvalllar, sem var heiðursgest- ur kvöldsins, frú Margrét Sig- urðardóttir og Bogi Þorsteins- son, yfirflugumferðarstjóri í Keflavík. Á næstu mýnd sér yfir sal- inn og er Lieutenant Chuck Lawrence að halda ræðu. — Fremst á myndinni em Ólafur Sigurðsson, Þórir Björnsson, Margrét Björgvinsdóttir og Har- aldur Jóhannsson. Á þriðju mynd sjást fleiri veizlugesta. Standandi fyrir miðju er Kristján Einarsson, flugumferðarstjóri og til vinstri Þórir Bjömsson, sem starfar hjá American Express á Keflavfkur- flugvelli. Á neðstu myndinni eru meðal annarra Ensign Orphanedes, Colonel Fitch og hinn nýi for- maður klúbbsins, Don Haveland, sem er yfir Industrial relations skrifstofu vallarins. Drengjaskyrtur. Verð frá kr. 82.00 Drengjahanzkar. Verð kr. 85.00 Drengjafrakkar. Verð kr. 698.00. Drengjamittisblússur úr khaki. Verð frá kr. 195.00. Drengjamittisblússur úr gallon. Kr. 630.00. Nylonúlpur í miklu úrvali. /neð fatnaðinn á fjölskylduna Laugaveg 99, Snorrabrautar megin - Sími 24975 pttli v:

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.