Vísir - 16.04.1964, Side 2
Lokastaðan f 1. dei’d í hand-
knattleik (reiknað með að Fram
og FH þurfi ekki að leika sam
an aftUr):
ic Ármann—FH 20:18
ic Frám—Vfkingur 19:13
nær að falli
ÉT
Þegar Armann vann FH
20:18 í gærkvöldi
Það var ekki beint hægt að kvarta yfir daufu leikkvöldi að Háloga-
landi. I'vert á móti, eigi siík spenna að halda áfram mörg kvöid í við-
bót, er hætt við að einhverju taugakerfinu verði ofboðið. Kvöldið f
gær var hlaðið spennu frá kl. 8,15 þar til flautan gall skömmu fyrir
kl. 11. Og úrslitin, — Þau voru eins óvænt og nokkur úrslit geta verið,
botnliðin, sem voru í fallhættu, björguðu sér bæði, Ármann með glæsi
legum sigri yfir FH, 20:18, en Víkingur með jafntefli 19:19 gegn
Fram, að visu aðeins til bráðabirgða, þvl þeir munu leika aukaleik
um fallið gegn ÍR, sem nokkuð óvænt er komið i fallhættu.
Fram 10 8 1 1 222:183 17
FH 10 6 1 3 273:215 13
KR 10 4 0 6 240:244 8
Ármann 10 4 0 6 196:210 8
Vikingur 10 3 1 6 212:242 7
ÍR 10 3 1 6 243:274 7
Markahæstu leikmenn f mót-
inu urðu þeir Karl Jóhannsson,
KR, og Ingólfur Óskarsson,
Fram, sem skoruðu báðir 82
mörk í leikjum sinum. Næstir
á listanum korna:
2. Gunnlaugur Hjálmarss. ÍR 75
4. Hörður Kristinsson Á 69
5. Hermann Samúelss ÍR 63
6. Reynir Ólafsson KR 59
7. Ragnar Jónsson FH 58
8. Rósmundur Jónsson Vík. 56
9. Lúðvfk Lúðvfksson Á 52
10. —11. Páll Elríksson og öm
Hallsteinsson FH 51
Ármenningamir byrjuðu með
miklum áhuga og innblæstri gegn
FH í gærkvöldi og það var greini-
legt að þeir mundu selja sig dým
verði. Þeir náðu forystu í leiknum
og tókst að halda henni út leikinn.
1 hálfleik var staðan 9:6.
1 seinni hálfleik byrja Ármenn-
ingar vel og Þorsteinn ver víti frá
Emi Hallsteinssyni. Gegnum hálf-
leikinn var siðan nokkuð jafn leik-
ur, en Ármenningum tókst þó allt-
af að halda góðu forskoti og kom-
ust t. d. i 15:10 um miðjan hálf-
leik, þegar Hjalti Einarsson kemur
aftur f mark fyrir Loga, sem varði
þó ágætlega. Hjalti gerði margt
mjög vel og liðið óx þegar, og áð-
ur en varði er staðan orðin 15:13
og 10 mínútur eftir af leik. Ár-
menningum tókst að ná 3 marka
forskoti í'17:14, úr víti Árna Samú-
elssonar, en þá var Auðuni Óskars-
syni visað af leikvelli í 2 mínútur
vegna endurtekinna brota. Lúðvík
skoraði 18:14 og það var greinilegt
að Ármenningum mundi, eða a. m.
k. ætti að takast að sigra, en sá
sigur virðist þó ætla að renna úr
greipum þeirra vegna skota í tíma
og ótíma.
Ármann má þakka sigurinn Jak-
obi Ifnumanni, sem fór vel með tvö
tækifæri, sem hann fékk á síðustu
fimm minútum leiksins, en þá skor
aði hann 19. og 20. mark Ármanns.
Jakob skoraði 19:15, en Guðlaug-
ur, Páll og Ragnar skomðu 3 næstu
mörk fyrir FH, 19:18 fyrir Ármann
var staðan þá og Ragnar átti hörku
skot í stöng. FH reyndi nú maður
ceen manni en varð að hætta. bar
eð Kristjáni Stefánssyni var visað
út af í 2 mínútur. Var leikurinn nú
geysispennandi og barst hann að
báðum mörkunum og fékk Jakob
m. a. gott færi til að skora, en
misnotaði. Áugnabliki sfðar stökk
Lúðvík upp fyrir utan vörn og
reyndi að skjóta, en boltinn hrökk
í varnarvegginn og til Jakobs í
hægra horninu, sem skoraði örugg-
Iega, — sigurinn var Ármanns og
Iiðið búið að bjarga sér.
Ármenningar hafa sýnt góða leiki
á þessu móti og ég leyfi mér að
spá því að liðið muni ekki keppa
um fallið næsta ár, heldur íslands-
meistaratitilinn.
Beztu menn liðanna i gær voru
þeir Sveinbjörn markvörður, Lúð-
vík, Hörður, Árni og Jakob hjá
Ármanni, en liðið allt átti reyndar
prýðis leik, en hjá FH voru þeir
Kristján, Páll og Hjalti beztir.
Daníel Benjamínsson dæmdi leik-
inn ágætlega.
hættusvæðinu í 3.-4. sæti 1. deildar.
Víkingar fá gálgafrest og
kljást við ÍR um fallsætið
Hér er Jakob línumaður Ármanns í miklum erfiðleikum gegn Birgi
og Borgþóri úr FH. Jakob skoraði sigurmörkin fyrir Ármann.
Skozka sundfólkið kepp
ir í kvöld á afmælissund-
móti KR í Sundhöll Reykja
víkur kl. 20.30. Eins og
kunnugt er, er einn þeirra
Bobby McGregor, heims-
frægur sundmaður, sem
Bretar gera sér miklar von
ir með á komandi Olympíu
leikum í Tokyo. Hörð
keppni ætti að verða í
kvöld milli Hrafnhildar og
Ann Baxter og Guðmund-
ar og Andy Harrower.
úr ótrúlegasta færi. Skömmu áður
hafði Helgi Guðmundsson varið
vltakast frá Karli Benediktssyni.
Sigurður Einarsson skoraði oú 19:
18 mjög naumlega frá línu og strax
á eftir fékk Rósmundur álíka tæki-
færi, sem fór naumlega inn fyrir
marklínuna, 19:19.
Framarar fengu aukakast í þann
mund er leik lauk, en voru lengi
að átta sig og misstu boltann eftir
3 sekúndur án þess að fá tækifæri
til að skora markið, sem hefði get-
að fært þeim íslandsmeistaratitil-
inn, — án tillits til hvernig dómur
hefur fallið 1 kærumáli FH, en
sem stendur er allt undir þeim
dómi komið hver úrslit verða í
1. deild.
Víkingsliðið í gær var mjög gott
og knúið krafti, sem ekki hefur ver-
ið til staðar I fyrri leikjum þess í
deildinni. Beztu menn liðsins voru
Brynjar Bragason markvörður, Rós
mundur Jónsson, Pétur Bjarnason
og Þórarinn Ólafsson. Hjá Fram
voru beztir Sigurður Einarsson, Ing
ólfur Óskarsson, Karl Benediktsson
og Þorgeir Lúðvíksson.
Magnús Pétursson dæmdi mjög
vel erfiðan leik.
Það tók íslandsmeistar-
ana 14 mínútur að skora
mark hjá Víkingsliðinu,
sem barðist af miklum
móði og skoraði 4 fyrstu
mörkin í þessum fyrirfram
unna leik Framaranna, sem
áttu mjög erfitt með að
hitta markið. Var jafnvel
talað um meðal áhorfenda
að hér væri búið að ákveða
úrslitin fyrirfram, sem auð
vitað á ekki við rök að
styðjast.
Víkingar leiddu leikinn og höfðu
Iengst af gott forskot og í hálfleik
var staðan 11:7. í seinni hálfleik
minnkaði Fram forskotið þannig,
að það var yfirleitt 2 mörk. Rós-
mundur skoraði 18:15, en þá tóku
Framarar kipp og skoruðu þrjú
næstu mörk, Karl, þá Ingólfur og
Sigurður Einarsson, sem með dugn
aði sfnum á línunni tókst að skora
Gerðu óvænt jafntefli við Frum