Vísir - 16.04.1964, Síða 5
VfSIR . Flmmtudagur W. apríl 190$.
5
ALþingi —
Framh. af bls. 7
sagði hann, að Framsóknarflokk-
urinn hefði á sínum sfma fylgt
hinum nýju álögum, sem lagðar
voru á til vega, svo mjög hefðu
þeir álitið vegagerð fjárvana og
raunar komið í algjört óefni eins
og þessi tillaga ber með sér, því
hún sýnir, að þessar álögur
hrökkva skammt.
Þá sagðist hann ekki undrast
það hvað hún væri seint fram
komin, þvf mikil vinna hefði leg-
ið að baki henni, enda skýr
mynd af vegamálunum.
Að lokum kvartaði Eysteinn
undan því, að ekki kæmi fram í
tillögunni hvaða vegi og brýr ætti
að byggja, og mæltist hann til
að sá háttur yrði hafður á í
framtíðinni.
Næstur talaði
Lúðvfk Jósepsson
og kvartaði í
fyrstu undan af-
greiðslu þingsá-
lyktunartillagna á
báttvirtu Alþingi.
En um vegaáætl-
unina sagði hann,
að vafi léki á hvort hér væri f
raun og veru um að ræða 100
millj. kr. hækkun sakir verð-
bólgu. Þá sagði hann aðalatriðið
vera að taka þyrfti þannig á mál
inu á þingi, að þau bráðabirgða-
lán, sem tekin hafa verið, verði
greidd úr ríkissjóði en ekki af
skatti til vegamála. Það hefði a.
m. k. verið ætlunin, þegar hann
var lagður á.
Að lokinni ræðu Lúðvíks var
umræðu frestað til kvölds.
í STUTTU MALI.
Skúli Guðmundsson kvaddi sér
hljóðs utan dagskrár og sagði, að
f útvarpsumræðunum s. 1. föstu-
dagskvöld hefðu flestir flokk-
amir misnotað ræðutíma sinn,
tekið sér lengri tíma en þeim var
ætlaður og aðstaða þeirra þannig
orðið misjöfn. Vildi hann, að for
seti hlutaðist til um, að þetta
yrði ekki þannig f framtíðinni.
Þingforseti, Sigurður Ingimund
arson, sagði sjálfsagt að verða
við þessum óskum.
Þá var atkvæðagreiðsla um til
lögu Alþýðubandalagsmanna um
utanrfkisstefnu íslands. Komið
hafði fram ósk um, að atkvæði
yrðu greidd um hvern tölulið fyr
ir sig. En er formáli tillögunnar
hafði verið borinn upp og felldur
með 49 atkv. gegn 8, taldi forseti
ástæðulaust að halda áfram at-
kvæðagreiðslunni og tók málið út
af dagskrá.
Þessu mótmæltu harðlega þeir
Ragnar Arnalds og þó einkum
Lúðvfk Jósepsson, sem taldi þetta
vera algjör þingskaparafglöp, og
tillöguna ekki hafa hlotið nokkra
þinglega meðferð.
Kíló en ekki pund
Þau mistök urðu í blaðinu í
gær, f viðtali við Albert Erlings
son f Veiðimanninum, að fiskar
þeir er hann dró f Svíaríki voru
sagðir 3,7 og 6,7 PUND, en
átti að vera KÍLÓ. Þetta leið-
réttist hér með.
Ungverji stjórnar vor-
óperettu ÞjóSleikhússins
Ungverski hljómsveit-
arstjórínn Istvan Szalat-
sy kom til Reykjavíkur
í fyrrakvöld, en hér mun
hann stjórna uppsetn-
ingu á „Sardasfurstinn-
unni“ eftir landa sinn
Kalman, sem Þjóðleik-
húsið hefur sýningar á
um miðjan maí.
Szalatsy er kunnur um alla
Evrópu fyrir stjórn sína á óper
um, óperettum og ballettum og
er mikill fengur að fá hann hing
að.
Aðalhlutverkin f „Sardasfurst
innunni" verða f höndum fjög-
urra söngvara. Það er ung-
verska söngkonan Tatjana Dub-
novsky, sem kemur hingað eftir
viku, Erlingur Vigfússon, sem
kom frá söngnámi á Ítalíu í
gærkvöldi, Svala Nielsen og
Ketill Jensson, sem syngja að-
Fjdreigendur —
Framh. af bls. 16.
fjáreigendafélags Reykjavikur,
Ingimundur Gestsson ræðu, en
síðan tóku form sauðfjáreigenda
félaganna í Kópavogi og Hafnar
firði til máls. Gerðu þeir grein
fyrir helztu rökum fjáreigenda í
málinu og deildu hart á frum-
varpið. Einna mest var rætt og
deilt um skýrslu, er þeir Hafliði
Jónsson, garðyrkjustjóri og
Skúli Sveinsson, lögregluvarð-
stjóri gáfu borgarstjórn Reykja
vfkur um sauðfjárhald í borg-
inni. Á eftir ræðu formannanna
tóku þau Auður og Alfreð til
máls. Auður Auðuns lagði á það
ríka áherzlu, að hér væri aðeins
um að ræða heimildarlög, en
ekki lög, sem bönnuðu allt sauð
fjárhald ' í Reykjavík. Þeir
Hafliði Jónsson og Alfreð ræddu
--mikið um það tjón, er sauðfé
hefur valdið mörgum Reykvík-
ingum.
Eftir ræðu þeirra Auðar, Al-
freðs og Hafliða, urðu geysi
miklar umræður, og deildu marg
ir fjáreigendur hart á frumvarp-
VIÐ SELJUM:
Volvo 544 ’61 model
Opel Record ‘62 fallegur
bíll
Ford Pickup ’53
Caravan ’60
Volkswagen ’63 ’58
Moskvitsh ’59 station
Zodiac ’58
Hundruð bíla á söluskrá,
látið bílinn standa hjá okk-
ur og hann selst örugglega.
rauðará
SKÚI.AGATA 55 — SliUI 15*12
Afgreiðslustúlka óskust
strax á veitingastofu. Uppl. á staðnum.
RAUÐA MYLLAN, Laugaveg 22.
ið, flytjendur þess og einnig
þá Skúla og Hafliða. Fundurinn
stóð fram á nótt, en undir lok
hans töluðu þeir Alfreð og
Hafliði aftur. I lok fundarins
var samþykkt einróma tillaga
sem felur í sér að skora á Al-
þingi að endurskoða afst. sína
til frumvarpsins. Mikil harka
virðist nú vera að færast í þetta
mál, og hefur blaðið fregnað, að
nú ætli þeir, sem eru frumvarp
inu meðmæltir, að halda með
sér fund í kvöld.
Lending —
Framh .af bls. 1.
Eftir 5 mínútna flug frá Eyj-
um komu þeir félagar út að
Surtsey og byrjuðu þá að kanna
fjöruna að norðaustanverðu.
Þegar þeir .komu var stór-
straumsfjara. Fyrst var flogið
nokkrum sinnum lágt yfir, en
síðan voru hjól vélarinnar látin
snerta, og flugvélin að því búnu
látin taka sig upp aftur.
„Þetta reyndist alveg fyrir-
taks flugbraut, sandurinn bæði
sléttur og þéttur", sagði
Kristján. í fjórða skiptið var svo
ákveðið að reyna lendingu, sem
gekk eins og í sögu. Cessnan
undir stjórn Stefáns rann tvö
hundruð m. í fjörunni og stöðv-
aðist síðan. Þeir félagar fóru út
og skoðuðu sig um. Þriðji mað-
urinn í ferðinni var Þorvarður
Jónsson, verkfræðingu. Bæði
hann og Kristján voru með
myndavélar og notuðu þeir því
tækifærið og mynduðu. Eftir um
10 mln. viðdvöl I eyjunni var
flogið upp og tókst það einnig
ágætlega. Flugvélin markaði
aðeins um 2 cm för í sandinn.
Surtur virtist kunna ágætlega
við heimsókn þeirra félaga, því
hann var hinn rólegasti. Ekkert
gos var í honum, en glóð mátti
þó sjá. „Ég held að ég vildi
ekki ráðleggja mönnum að lenda
I Surtsey, nema með því aðeins
að gæta fyllsta öryggis. Það
verður lika að taka með f reikn
inginn að öll skilyrði voru hin
beztu, þegar við lentum sagði
Kristján Flygenring að lokum.
alhlutverkin, en Ketill hefur
ekki verið á sviði Þjóðleikhúss-
ins i mörg ár. Auk þess kemur
fjöldinn allur af leikurum og
söngvurum fram. Þjóðleikhús-
kórinn hefur og mikið hlutverk
og ballettinn ekki síður.
Æfingar eru nýhafnar, en
byrja nú af fullum krafti. Er
textinn allur á íslenzku utan
hlutverk ungversku söngkonunn
ar, sem er á þýzku.
Surtsey —
Framh. af bls. 1
Hún var þá 1960 metra löng og
1350 metra breið.
Efst á myndinni til hægri sér
í lón eða stöðuvatn, sem mynd-
azt hefur milli gígsins og sand
rifs fyrir framan það. Þetta er
allmyndarleg tjörn sem stendur,
en óvíst hve lengi hún verður
við lýði. Getur hvort tveggja
skeð að sjórinn brjóti sig inn í
hana í miklu særóti og veðra-
ham eða þá,— og það sem æski-
legra væri, — að nýja hraunið
úr gígnum fyllti hana upp. Úr
því þyrfti ekki að óttast um til-
veru Surtseyjar í framtíðinni.
Móðir mín,
ÓLÖF EIRÍKSDÓTTIR,
sem lézt 12. apríl, verður jarðsett frá Fossvogskirkju
föstudaginn 17. apríl kl. 1.30 e. h.
Lydia Pálmarsdóttir.
AUGLÝSIKG m ÁBURMRVEKÐ
Heildsöluverð á eftirtöldum áburðartegund-
um er ákveðið þannig fyrir árið 1964:
Nitrofosfat 20% N, 20% P=Oa . . Kr. 3.120,00 hver smálest
Þrífosfat 45% P=0=......... - 2.960,00 -
Kalí, klórsúrt, 50% K=0 .... — 2.040,00 — —
Kalí, brennisteinssúrt 50% K=0 - 2.720,00 - -
Blandaður garðáburður 9-14-14 - 3.300,00 - -
Kalkammon 26% N ....... . — 2.500,00 - -
Kalksaltpétur 15,5% N...... - 2.180,00 - -
Tröllamjöl 20,5% N . . .... - 4.480,00 -
Verðið miðast við áburðinn kominn á hafnir,
án uppskipunar- og afhendingarkostnaðar, sem
bætist við ofangreint verð, eins og verið hefur.
Verð á Kjarnaáburði 33,5% N hefur verið á-
kveðið kr. 3.240,00 hver smálest.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að áburðar-
kalk verður til sölu í Gufnesi eins og á und-
anförnum árum.
Launþegaklúbbur HEIMDALLAR
Fundur kl. 8,30 í Valhöll í kvöld.
IJW
Þátttakendur eru hvattir til að fjölmenna
ísmzœis&i