Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 15

Vísir - 16.04.1964, Blaðsíða 15
V í SIR . Fimmtudagur 16. aprfl 1964. •fw^wmoE 15 Og hvenær á að sýna þetta? augabragði. Eftir 4-5 vikur. Eg held sann ast að segja, að það sé ekki búið að semja nema tvo þætti af fimm. — Haldið þér, að þetta verði því til hindrunar, að þér fáið hlutverkið, sem þér töluðuð um áðan? - Hvers vegna skyldi það gera gera það? Ég geri leikhúsinu einmitt greiða með því, að koma þama inn á milli, þangað til hægt verður að sýna hitt Auk þess hefir þetta leikrit, Serge Panine, verið sýnt áður við á- gæta aðsókn. Damala lék áður í því og kannski fengist hann til þess að leika móti mér. Við að heyra þetta glaðnaði held ur en ekki yfir Paroli. — Þér ættuð að reyna að koma þessu í kring, — það gæti verið forleikur að öðru meira með til stuðlan leikhússtjóranna, sem ég talaði um. — Það er aðeins eitt, sagði Jeanne Dortil hikandi. Þess mun verða krafizt, vegna undirbúnings- kostnaðar, að tryggð verði aðsókn að fyrstu sýningu. Það yrðu senni lega um 500 frankar. — Það verða engin vandræði með það. Ég skal annast það. — Þá verður þetta í lagi, sagði Jeanne glöð. Annars er ég lítið hrif in af Ðarnala, hann er laglegur, en daðrar við allar sem snoppufríð ar eru, og ýmsar svo kallaðar „fín ar dömur“ eru alltaf einhvers stað ar nálægt þar sem hann er. — Ég er nú bara að hugsa um hve marga vini og kunningja ég get fengið til að fara á fyrstu sýn- iqguna, sagði Paroli. Ég held mér sé óhætt að kaupa miða fyrir sæti í fimm stúkum fyrir 1000 franka. — Þúsund franka, sagði Jeanne undandi. — Já, og þér getið fengið pening ana strax, en með einu skilyrði — að þér haldið leynd yfir öllu, sem milli okkar fer. — Því heiti ég. Paroli tók þúsund franka seðil úr tösku sinni og rétti henni hann, og hún hefði hlaupið um hálsinn á honum, ef hann hefði ekki séð það fyrir, staðið upp snögglega og sagt: — Ég er til neyddur að fara nú, en ég kem aftur til þess að heyra um árangurinn af viðræðum yðar við leikhússtjórann. — Hafið engar áhyggjur, þegar hún sér peningana slær hún til á — Verið þér sælar, ungfrú Jeanne: — Verið þér sælir, læknir, sagði hún glöð, en auðmýkt af því, að hann sýndi engin merki þess, að hún gæti komið honum til. — Það verður líklega dálítið erf- itt að temja hann, tautaði hún fyrir munni sér á leið til móður sinnar, til þess að segja henni frá árangr- inum af viðræðunni við hann, og samgladdist móðirin henni, en furð aði sig á, hve fljótt læknirinn fór og lét nokkur orð falla um það. — Hann hefir sjálfsagt fleiri járn í eldinum, sagði dóttirin beisk lega. Þegar Jeanne var farin stóð hann kyrr nokkra stund eins og lamaður: — Grunur minn var réttur, að þessi maður væri hættulegur. En ekki datt mér í hug, að hann væri svona hættulegur, Jæja, ég hefi fengið gott verkfæri í hendurnar, sem ég get notað án þess hún hafi hugmynd um það, Paul Darnala skal koma fram á leiksviðið - til þess að hverfa að fullu og öllu. Hann fór í loðskinnsfóðraða frakkann sinn, slökkti Ijósið og fór heim í lækningastofnunina. H. Oskar Rigault kom seint heim til systur sinnar. Hún hafði beðið eftir honum með miðdegisverðinn. Eftir á skyldi farið með Emmu Rósu í nýju íbúðina, þar sem átti að fela hana f nokkra daga í gæzlu Óskars. Emmu Rósu var að hraka. Hún varð óttaslegnari með hverri stund- inní sem leið, því að þokan fyrir augum hennar var alltaf að þétt- ast. Hún óttaðist meir og meir að hún væri að missa sjónina, en reyndi að leyna því. Soffía hafði fyrr um daginn farið með Mariette í nýju íbúðina og undirbúið allt. Og ákveðið var að Mariette skyldi færa Emmu Rósu mat og hjálpa til með að líta eftir henni. Emma Rósa spurði Oskar hvort hann hefði gert Katrínu aðvart um, að hún væri heil á húfi. - Ekki enn, sagði hann, ég hef svo mörgu að sinna í dag — og... — Og hvað, spurði Emma Rósa blíðlega eins og henni var svo eiginlegt. — Má ég tala eins og mér býr í brjósti? — Fyrir alla muni. - Ég efast ekki um, að Katrín elski yður og sé ágætis manneskja en konur, einkum gamlar konur, eru svo masgjarnar og ég er smeykur um að hún geti ekki þagað ef ég segði henni allt af létta. Þag mælska er nauðsyn — einnig vegna hamingju móður yð&r. — Vesalings mamma, á hún þá ekkert að fá að vita. — Jú, en ekki fyrr en seinna. Ég fullvissa yður um, að það er fyrir beztu. Það mundi auka á áhyggjur hennar og harma, að vita,. að þér væruð enn í hættu. Hún mundi ekki hafa augnabliks ró. Ég játa, að í dag hefi ég ekki haft heppnina með mér, en ég hefi á tilfinning- unni, að ég nái markinu. Spyrjið systur mína hvort hún sé ekki sömu trúar. — Jú, ég trúi því og treysti, að lánið muni fylgja bróður mínum í þessu. Látið hann ráða. Yður er það óhætt. — Jæja, sagði unga stúlkan hrygg, fyrst þið eruð bæði svona vongóð þið hafið reynzt mér vinir og bjarg að lífi mínu, og það væri vanþakk- læti af minni hálfu, að treysta ykkur ekki fyllilega. En hvað hefir lífið mér annars upp á að bjóða, — kannski hefði verið bezt, að ég hefði fengið að deyja drottni mín um þarna á fljótsbakkanum. Hún huldi andlitið í höndum sér og grét beisklega. — Svona, svona, sagði Oskar róandi röddu, reynið nú að líta björtum augum á framtíðina, öll él birtir upp um síðir. Hugsið um þá stund, er þér sjáið móður yðar frjálsa og hamingjusama. Og mun- ið hverju ég hef lofað. — En hugleiðið, sagði Emma Rósa, og reyndi að stöðva grátinn, hvað ég er ung og hef orðið að líða mikið síðan þetta kom fyrir. Er nokkur furða, þótt mér finnist stundum, að guð hafi yfirgefið mig og ég geti engar vonir gert mér framar. — Þannig megið þér ekki hugsa þegar þér eigið góða vini, sem vilja hjálpa yður. — En ég er svo hrædd við fram tíðina. — Þér eruð of ung til þess að ala slíkar hugsanir. — Ef það, sem ég óttast gerist væri ég betur dauð. — Elsku barn, sagði Soffía, nú er ég farin að gráta líka. Reynið nú að líta bjartari augum á framtíð- ina Þetta fer allt vel að Iokum. Þeim ókst loks að róa hana og svo fóru þau með hana í nýju í- búðina. Mariette hafði kveikt eld. Og svo háttuðu þær Mariette og Soffía Emmu-Rósú. Þegar Leon Leroyer hafði skilið við þá Fernand de Rodyl og de Gevrey fór hann heim í íbúðinna í Neversgötu til vinar síns René Dhárville. ! Leon sagðj honum hvað gerzt hafði og er René sá örvæntingu hans rann honum það sárt til rifja, og hann óttaðist jafnvel, að ef hann fyndi ekki Emmu Rósu skjótlega, myndi hann ganga af vitinu eða deyja. Hann hugleiddi hvað hann gæti gert til þess að beina huga hans að öðru, svo að hann gæddist hugrekki að nýju, svo að hættunni á vitfirringu eða dauða yrði afstýrt. Hann gat loks fengið hann til að koma út með sér og í matsölu til þess að neyta morgunverðar og svo gengu þeir um bæinn og Leon lét hann ráða en var mjög niðurdreginn. Hann gat ekki um annað hugsað en að Emma Rósa kynni að vera dáin. Vinur hans fór með hann í „Öld una“ í von um að hitta Soffíu þar, en hann hafði ekki hitt hana í tvo daga. Honum hafði flogið í hug. að meðfædd kæti Soffíu myndi hafa góð áhrif á hann. En eins og við vitum hafði Soffía öðrum hnöppum að hneppa. Einhvern veginn leið dagurinn og er kvöld var komið fóru þeir heim. Leon lokaði sig inni í her- bergi sínu og háttaði, lá andvaka með tárvot augu og var búinn að <>s/ Fanný Benonýs sim§ 16738 BíEnsnBea MATTHÍASAR Seljum í dag: Opel Rekord ’64.Ekinn 8000 km. Chevy ’62. Ekinn 23000 km. Chevrolet ’60 f góðu standi. Opel Kapitan ’56 og ’62 Mercedes Benz ’59 og ’60 diesel Opel Rekord ’62 lftið ekinn, skipti á V.W. ’62-’64 Opel Caravan ’55 góður Volkswagen ’55-’64 Höfum mikið úrval af öllum tegundum og árgerðum bifreiða. Bíksaln MATTHÍASAR Höfðatúni 2 sími 24540 24541 T A R Z A H Mér mjslíkar mjög Naomi að þú skyldir óhlýðnast skipunum mínum, segir dr. Dominie kulda- lega, við læknar verðum stundum að sætta okkur við óhlýðni sjúkl inga okkar, en við þurfum ekki you TOM’T UM7ERSTðN7, TARZ'VN! IW THE ttECICAU PR.OFESSION THERE'5 NO PLA.CS FOR k NURSE.. y wun Pisorteys upp snppeine! að sætta okkur við óhlýðni hjúkr unarkvenna. ÞÚ, dr. Dominie sagðir, að hættuleg skurðaðgerð gæti KANNSKI bjargað Naomi grípur Tarzan fram í. Það voru Mombai og Medu sem gáfu henni von um að hún myndi geta geng ið aftur. Þú skilur mig ekki Tarz an, segir dr. Dominie reiðilega, í læknaheiminum er ekkert að gera við hjúkrunarkonu sem óhlýðnast yfirboðurum sfnum. En þú ert ekki í sjúkrahúsi þínu núna, seg- ir Tarzan ákveðinn, og ég vil ekki að þú gerir hana órólega núna. árgfeiöslusíotur Sólvallagötu 72 Símj 14853. Hárgreiðslustofan HÁTÚNI 6, simi 15493. Hárgreiðslustofan 1 P I R O L A I Grettisgötu 31, sími 147::'- Hárgreiðslustofa VESTURBÆJAR i Grenimel 9, sírni 19218. Hárgreiðslustofa AUSTURBÆJAR , (María Guðmur.Jsdóttir) Laugaveg 13. sími 14656 Nuddstofa á sama stað. Hárgreiðsiu- og snyrtistofa Laugaveg 18 3 hæð Oyfta) STEINU og DÓDÓ Sími 24616. Hárgreiðslustofan Hverfisgðtu 37, (horni Klappar- stigs og Hverfisgötu). Gjörið svo vel og gangið inn. Engar sérstakar pantanir. úrgreiðslur Hárgreiðslustofan PERMA, Gaðsendi 21, sími 33968. Dömu, hárgreiðsla viö allra hæfi I TJARNARSTOFAN, Tjarnargötu 10, Vonarstrætis- megin. Sími 14662 Hárgreiðslustofan Háaleitisbraut 20 S&ni 12614 I MEGRUN ARNUDD. Dömur athugið. Get bætt við i mig nokkrum konum l megrun- i arnudd. Snyrtistofa Guðbjargar f Guðmundsdóttur. Laugavegi 19. ' simi 12274. SNYRTISTOFAN MARGRÉT I Skólavörðustíg 21, sími 17762 Snyrtistofa — Snyrtiskóli IsæruúBpur kr. 99 Miklatorgi SENDIBÍUSTÖÐIN H.F. BORGARTÚNI 21 SÍMI 24113

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.