Vísir - 16.04.1964, Page 16
VI
VISIR
Fimmtudágur 16. apríl 1964
Harðar deilur
ó fundi ffjár-
eigenda
Miklar umræður urðu á fundi,
sem sauðfjáreigendafélögin í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnar
firði héldu í gærkvöldi, og stóð
fundurinn fram á nótt. Fundur-
inn var haldinn vegna frum-
varps til laga um búfjárhald í
Reykjavík og 3 kaupstöðum,
sem nú liggur [fyrir Alþingi.
Frumvarpið er flutt af tveimur
borgarfulltrúum í Reykjavík, al-
þingismönnunum frú Auði Auð
uns og Alfreð Gíslasyni, lækni.
Nokkrum gestum var boðið á
fundinn, og mættu þrír þeirra:
Auður Auðuns, Alfreð og
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri
Reykjavíkurborgar. í upphafi
fundarins í gær flutti formaður
Framh. á bls. 5.
Reykvikingar ráku upp stór
augu í morgun, þegar þeir vökn-
uðu og litu út um gluggann.
Þá hafði víst dreymt um það
að vorið og sumarblíðan héldi
áfram. I gær höfðu þeir getað
gengið garða sína og flest trén
voru orðin laufguð. En nú var
allt skyndilega orðið þakið snjó.
Veturinn, sem hefur legið í hlíð-
um fjallanna í kring hafði allt
í einu tekið stökk undir sig og
lagt Nesin úndir sig.
Snjórinn þakti alla borgina,
en heldur virtist hann meyr og
voru góðar vonir um að hann
myndi bráðna án þess að valda
nokkrum skemmdum. — Vona
menn því að engin hætta sé á
ferðum. Hér sé ekki um neitt
raunverulegt vorhret að ræða.
Myndina, sem hér birtist tók
ljósm. Vísis, I. M., í morgun í
hljómskálagarðinum. — Stytta
þjóðskáldsins er með snjóhjúp
og sýnir það, hve mikil logn-
drffa var og greinar trjánna í
lundinum í kring eru þaktar
snjó.
iw ^—n ~
Telpa beið bana
/ umferðarslysi
Síðdegis í gær varð banaslys í
Vestmannaeyjum, er 5 ára stúlku-
barn lenti undir vörubifreið og beið
samstundis bana.
Slysið varð um sexleytið e. h.,
en þá var stór vörubifreið á leið
austur eftir Vestmannabraut. Allt
í einu skauzt lítill telpuhnokki út
á. götuna á harðahlaupum, mun
ekki hafa getað stöðvað sig og
hljóp beint undir bílinn. — Mun
vinstra afturhjólið hafa farið yfir
telpuna, en ekki varð ökumaðurinn
hennar var fyrr en hann taldi sig
finna, að hjólið fór yfir einhverja
ójöfnu. Stöðvaði hann þá bifreið-
ina, en í sama mund kallaði ein-
hver til hans og sagði honum að
barn hefði orðið fyrir bílnum. Lá
telpan þá aftan við bílinn og var
örend. Hún hét Guðrún Ágústa
Gunnarsdóttir og átti heima á Vest-
mannabraut 53.
í morgun, þegar menn litu út
um glugga sína í Reykjavík, brá
þeim heldur í brún, er þeir sáu
allt í einu alhvíta jörð og snjó-
muggu úti fyrir. Greinilegt var
þó, að veðurharka var erigin og
frostlaust.
Jón Eyþórsson veðurfræðing-
ur tjáði Vísi, að þessi snjókoma
væri aðeins á mjög takmörkuð-
’ um svæðum sunnanlands og
norðan. Snjókoma var í morg-
un aðeins á stöku stað hér sunn
anlands, aðallega á Suðurlands-
undirlendinu og í nágrenni
Reykjavíkur.
Á Norðurlandi snjóaði í Gríms
ey, Akureyri, Hrauni á Skaga
og Nautabúi í Skagafirði. Enn
fremur norðanverðum Vestfjörð
Urh. Annars staðar var úrkomu-
laust og bjartviðri um allt aust-
anvert landið.
Úrkoman var í nótt mest í
Reykjavík og Eyrarbakka, mæld
ist 6 mm, sem samsvarar 6 cm
snjódýpt.
Kaldast var í morgun á Möðru
dal á Fjöllum. Þar var 3 stiga
frost en bjartviðri. Annars stað-
ar á Norðurlandi var víðast hvar
1 — 2 stiga frost. Á Suðaustur-
landi var 2 — 4 stiga hiti, en rétt
um frostmark á Suðvesturlandi
og við Faxaflóa.
Jón Eyþórsson sagði, að þrátt
fyrir snjókomuna þyrfti ekki að
kvíða neinni veðurhörku í augna
blikinu. Hann kvaðst búast við
að snjórinn hjaðnaði að mestu í
dag, og ekki þyrfti að búast
við teljandi snjókomu. Hins veg-
ar myndi hitastig haldast áþekkt
-.næstu nótt, eða við frostmark
hér suðvestan lands.
Verksamningurinn undirritaður
mmm
■
í gær var undirritaður í Háskólanum verksamningur um byggingu Raunvísindastofnunar Háskólans. Var
myndin tekin við það tækifæri. Sitjandi við borðið sjást talið frá vinstri: Próf. Þorbjörn Sigurbjörnsson,
formaður byggingarnefndar, Ármann Snævarr háskólarektor, Ólafur Jensson verkfræðingur, forstjóri Verk-
lcgra framkvæmda og Páll Ólafsson verkfræðingur. Standandi frá vinstri: Pétur Jóhannesson húsasmiða-
meistari, Ólafur Pálsson byggingameistari, Steingrimur Jónsson fyrrum rafmagnsstjóri, Jóhannes Zoega
hitaveitustjóri, Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt, Ögmundur Jónsson verkfræðingur, Guðmundur K. Guð-
mundsson tryggingafræðingur, Loftur Þorsteinsson prófessor, Jóhannes Helgason háskólaritari og dr.
Trausti Einarsson prófessor.
Verkemanuasam
baudið stofuað i
uæsta mánuði
Vísir skýrði frá því fyrstur
blaðanna sl. haust, að kommún-
istar væru að undirbúa stofnun
verkamannasambands, sem
bryti algerlega í bága við til-
lögur Alþýðusambands íslands
um skipulagsmál. Ekki fengust
verkalýðsforingjar kommúnista
þá til þess að staðfesta það,
að endanl. ákvörðun hefði verið
tekin í málinu. En nú skýrir
Verkamaðurinn á Akureyri frá
því, að afráðið hafi verið að
halda stofnfund verkanianna-
sambands í næsta mánuði.
Segir Verkamaðurinn ,að fyrir
forgöngu Verkamannafélagsins-
Dagsbrúnar í Reykjavík, Verka-
mannafélagsins Hlífar í Hafnar-
firði og Verkalýðsfélagsins Ein
ingar á Akureyri hafi verið boð
að til stofnþings 9. maí n.k.
Muni fundurinn verða haldinn
annað hvort í Reykjavík eða i
Eins og Vísir skýrði frá sl.
haust brjóta ráðagerðir komm
únista um verkamannasamband
I bága við tillögur Alþýðusam-
bandsins um skipulagsmál. Á-
lyktanir ASÍ kveða svo á að sér
greinasamböndin skuli grund-
völluð á vinnustaðnum, þannig,
að t.d. allir í byggingariðnaðin-
um verði saman í sambandi,
jafnt byggingariðnaðarmenn
sem verkamenn, allir í málm-
iðnaðinum saman i sambandi,
verkamenn sem iðnaðarmenn o.
s.frv. En slík skipulagsbreyting
þýðir að sjálfsögðu það, að
verkamannafélögin í núverandi
mynd skiptist milli margra sam
banda. Er þetta það skipulag,
er tíðkast í nágrannalöndunum.
Sú ráðagerð kommúriista að
tengja verkamannafélögin ó-
breytt saman i sambönd mun
torvelda framkvæmd tillagna
Alþýðusambandsins.
Hafnarfirði.
y