Vísir - 15.05.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 15.05.1964, Blaðsíða 4
A V í SIR . Föstudagur 15. maí 1964. HMIWIII—i'l 11 i Tl— Hingað og ekki lengra Ræða Þorvaids Garðars Kristfdnssonar við útvarpsnmræðurnor 1 öllu þvi moldviðri, serri stjórn- íWandstaðan þyrlar upp í þessum umræðum, sjiulum við ekki missa sjónar af þeirri staðreynd, að þeg- ar efnahagsmálastefna núverandi ríkisstjórnar var mótuð árið 1960, var horfið frá þvi skipulagi hafta- og uppbóta, sem hér hafði ríkt um áratuga skeið. Það var miðað að því að taka upp nýtt skipulag, sem skapaði þegnunum aukið frelsi til athafna og dáða, I stað hafta og banna af hálfu ríkisvaldsins. Síðan hafa islenzk stjórnmál fyrst og fremst snúizt um það, hvort takast mætti að framkvæma hina nýju stefnu. Höfum þetta í huga þeim mun fremur, þar sem þeir, sem berjast gegn hinni nýju skipan, hafa forð- azt frá fyrstu tíð í öllum málflutn- ingi sínum og árððri, að segja hug sinn allan í þessu efni. 1 hug sín- um og hjarta viil stjórnarandstað- an ekkert frekar en að þessi stefna ríkisstjómarinnar mistakist í fram- kvæmd, vegna þess að þeir vilja og þrá hið gamla skipulag. En þeir hvorki þora né geta sagt það, vegna þess að enn er í of fersku minni, að hið gamla hafta- og uppbóta- kerfi hafði gengið sér til húðar, þegar vinstri stjórnin gafst upp. Og reynsla almennings af hinni nýju skipan er þess eðlis, að fólk fýsir ekki að snúa aftur til gamla tím- ans. Þegar frumvarp um efnahagsmál kom fram árið 1960, sagði þáver- andi formaður Framsóknarflokks- ins, háttvirtur 1. þingmaður Vest- firðinga, Hermann Jónasson, af mik illi dulúð, að ekki mætti beita þjóð- arskútunni upp i skilningsstraum fólksins. Annar þingmaður og orð- hagur mjög, háttvirtur 1. þingmað- ur Norðurlandskjördæmis eystra, Karl Kristjánsson, sagði, að tillög- ur frumvarpsins byggðu á lögmál- um vetrarins, frostsins, sem tak- markar gróðurinn, og þær væru fyr ir gróður félagshyggjunnar eins og ís legðist að landi á vordögum. Menn verða ekki margs vísari af slíkum ummælum sem þessum. Stjórnarandstaðan hefir heldur aldrei kært sig um að ræða sjálf grundvailaratriðin. Hefir eðlilega fundið sig standa höllum fæti í slíkum umræðum. Framsókn vill gamla skipulagið. En verkin tala. Stjórnarandstað- an hefir staðið gegn viðreisnar- stefnunni í heild og hverjum ein- stökum veigamiklum þætti hennar. Framsóknarflokkurinn vill ekki hverfa frá gamla skipulaginu, þvi við það hefir hann miðað tilveru sína, skipulag og starfshætti alla. Framsóknarflokkurinn hefir alltaf lagt megináherzlu á það að hafa aðstöðu gegnum ríkisvaldið til að deila út gæðum, skammta leyfi og beita bönnum gagnvart þegnum þjóðfélagsins og talið jafnan, að hann ætti meira undir misnotkun slíkrar aðstöðu en beinni málefna- baráttu. Kommúnistar aftur á mþti, í hvaða reyfi, sem þeir kunna að ganga á hverjum tíma, kjósa held- ur hið gamla skipulag hafta og banna því þeir meta það rétt, að slfkt fyrirkomulag ber í brjósti sér dauða þeirrar þjóðfélagsskipunar, sem þeir vilja feiga. En hvað þykist Framsóknarflokk urinn vilja? Þeir kalla stefnu sína framfara- og uppbyggingarstefnu. Þeir segjast vilja vinna að fram- förum og uppbyggingu atvinnuveg- anna um allt land, kjör fólks þurfi að bæta og framleiðsluaukning þurfi að verða til hagsældar fyrir aila þjóðina. Þessu hampa þeir og kalla þjóðmálastefnu. En ég spyr: Hvaða stjórnmálaflokkur fyrir- finnst, sem ekki telur sig geta tek- ið undir, að vinna beri að þjóðar- hag. Um það er ekki ágreiningur á milli flokka, heldur hitt, með hverjum hætti verði bezt unnið að þjóðarhag. Það er um það, sem deilurnar standa. Undan þessum staðreyndum víkja Framsóknarmenn sér. Þeir vilja ekkert af slíku vita. Þeir segja, að deilan standi milli Fram- sóknarflokksins, sem vilji þjóðar- hag, og ríkisstjórnarinnar, sem vinni gegn þjóðarhagsmunum, að yfirlögðu ráði. Þeir halda fram, að ríkisstjórnin vilji kreppuástand í landinu. Þeir halda fram, að ríkis- stjórnin vilji magna dýrtíð í land- inu. Þeir halda fram, að ríkisstjórn- in vilji atvinnuleysi í landinu. Þeir halda fram, að ríkisstjórnin vilji ekki framfarir í landinu. Með slíkum áróðri og fullyrðing- um hafji Framsóknarmenn látið sér sæma að misbjóða dómgreind al- mennings ár eftir ár. Slík ósvinna er 'þeim mun vitavérðari, þár settt $vo sannarlega- vita þeir, hvað þeir gera. Þetta er gert undir forystú háttv. 1. þingmanns Austfirðinga, Eysteins Jónssonar, sem sagði fyrr á árum hér í umræðum á Alþingi, með leyfi hæstv. forseta: ,,Ég held, að þeir menn, sem láta sér til hugar koma, að nokkur ríkis- stjórn skapi að yfirlögðu ráði kreppu, til þess að geta rýrt af- komu almennings á meðan hún sit- ur að völdum, séu i því ástandi andlega, að þeir þurfi annarrar hjúkrunar við en þeirrar, sem hægt er að veita í svona umræðum". Ég hygg, að þessi ummæli Ey- steins Jónssonar séu enn í fullu gildi í dag. En til slíks andlegs á- stands má rekja það foræði for- heimskunnar, sem einkennt hefir allan málflutning Framsóknar- flokksins á undanförnum árum. Hvítt er svart. í þessu andlega ástandi geta menn haldið fram, að tollalækkanir sáu tollahækkanir, vegna þess að lækkun tolla dregur úr smygli, þannig að heildartollatekjur rikis- sjóðs aukast, þrátt fyrir tollalækk- unina. í þessu andlega ástandi geta menn sagt, að skattalækkanir séu skattahækkanir, vegna þess að þróttmeira athafnalíf eykur gjald- stofnana og gefur meiri heildar- skatttekjur I ríkissjóð, þrátt fyrir skattalækkunina. I þessu andlega ástandi geta menn sagzt vera með því að auka gjaldeyrissjóði lands- ins, en barizt gegn bindingu spari- fjár í Seðlabankanum, sem er 6- hjákvæmilegt skilyrði þess, að gjaldeyrissjóðurinn geti aukizt. í þessu andlega ástandi geta menn heimtað aukin útlán frá lánastofn- unum, en barizt fyrir þeim ráð- stöfunum, sem draga úr því trausti almennings á gjaldmiðlinum og fjárhagskerfinu, sem fær menn til að leggja fram sparifé sitt, sem er grundvöllur útlánanna. í þessu and- lega ástandi geta menn sagzt vera með auknum almannatryggingum, en gert að árásarefni hækkun fjár- Iaga, sem stafar af auknum fram- lögum til trygginganna. í þessu and lega ástandi gátu menn stagazt stöðugt á því á fyrstu árum við- reisnarstjórnarinnar, að stórkost- legt atvinnuleysi væri yfirvofandi, en'á einni nóttu fyllzt vandlætingu yfir vinnuþrn' an, sem þjóðin væri þjökuð af. Allt þetta verður skilj- anlegra, þegar höfð eru í huga um- mæli Eysteins Jónssonar, sem ég viðhafði hér áðan, þótt framferðið sé hins vegar'ekki afsakanlegt. En hitt er vafalauét rétt, sem Eysteinn Þorvaldur G. Kristjánsson. sagði, að þeir, sem eru í þessu ástandi, þurfa annarrar hjúkrunar við en þeirrar, sem hægt er að veita í svona umræðum. í umræðum þessum hafa tals- menn stjórnarandstöðunnar kyrjað þann söng, að viðreisnin hafi farið út um þúfur, og jafnvægi efnahags- lífsins sé rokið út í veður og vind. Vist eru blikur á lofti og vandi á höndum, sem bregðast þarf við af raunsæi og taka þarf föstum tökum. En viðreisnarstefnan var annað og meira en viðhald stöðugs verðlags, þótt það sé mjög veiga- mikið grundvallaratriði. Stefnt var að sterkari stöðu út á við og mikl- um og vaxandi framleiðsluafköst- um, heilbrigðu verðmyndunarkerfi og fjárhagskerfi með vel uppbyggð- um lánastofnunum. Stefnt var að lækkun tolla og skatta og hvers konar umbótum i ríkisrekstri. Stefnt var að frjálsri verzlun og frjálsu vöruvali neytenda, og svo mætti áfram telja. Að þessum verk- efnum hefir verið unnið af slíkri kostgæfni, að árangurinn er öllum augljós. Viðreisnin hefir þannig reynzt þróttmeiri og lifvænlegri en stjórnarandstaðan gerði ráð fyrir og vill nú vera láta. Þjóðin er vissu lega á farsælli framfarabraut á grundvelli viðreisnarinnar. En 6- leystur er sá vandi að tryggja við- unandi verðfestu, og vil ég engan veginn lítið úr þeim vanda gera. Lærum að nota frelsið. En þegar við metum árangurinn af störfum ríkisstjórnarinnar, þá er nauðsynlegt að hafa í huga það, sem ég vék að í upphafi máls míns. Ríkisstjórnin markaði þá stefnu að afnema hafta- og uppbótakerfið og koma á frjálsu efnahagskerfi. Slíkt hafta- og uppbótakerfi, sem við bjuggum við, hefir á síðari tímum ekki viðgengizt í lýðfrjálsum lönd- um, nema á hallæris- eða striðs- tímum. Haftaskipulagið skapar sín- ar venjur og starfshætti á hinum ýmsu sviðum athafna- og þjóðlífs- ins. Menn vinna undir öðrum skil- yrðum heldur en í frjálsu efnahags- kerfi. Þegar hið frjálsa efnahags- kerfi er innleitt á ný, þurfa menn að aðlaga sig nýjum háttum. Menn þurfa að læra að nota frelsið og ekki misnota það. Þetta gengur ekki alltaf snurðulaust, eins og dæmin sanna frá stríðslöndunum eftir síðari heimsstyrjöldina, þótt haftakerfið hefði ekki staðið nema meðan á styrjöldinni stóð. Hvað halda menn þá hér á landi, þar sem við höfum búið við meira og minna haftakerfi svo áratugum skiptir og meira að segja lengst af undir handarjaðri Framsóknarflokksins. Og haftakerfi, útfært af Framsókn- arréttlæti, er sennilega það versta skipulag, sem hugsazt getur. En þrátt fyrir þetta verður ekki ann- að sagt en að íslenzkt athafnalíf hafi aðlagað sig hinu nýja efna- hagskerfi, 'bæði vel og fljótt, þó að sjálfsögðu séu ýmsir misbrestir á, sem enn á eftir að ráða bót á. En það hefir orðið hlutskipti stjórnarandstöðunnar að einbeita áróðri sínum og undirróðri til að íáuka á alla þá erfiðleika, sem æðlilega hljóta alltaf að sljgpúst, meðan verið er að koma á svo rót- tækum breytingum á efnahagskerf- inu, sem hér hefir verið gert á undanförnum árum. Þetta hefir þeim tekizt misjafnlega vel og hef- ir það farið eftir aðstöðu þeirri, sem þeir hafa haft til þessarar iðju sinnar á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. En mestum árangri hafa þeir náð í niðurrifsstarfsemi sinni á sviði kjarabaráttunnar með þeim afleiðingum, að verðbólga og dýrtíð hefir vaxið stórlega svo sem kunnugt er. Það er ekkert nýtt, að komm- únstar séu ábyrgðarlausir í kjara- málunum. Háttv. 1. þingmaður Austfirðinga, Eysteinn Jónsson, hefir sagt í þvi tilefni í almennum útvarpsumræðum hér á Alþingi á fyrri árum, með leyfi hæstv. for- seta: Ljóðabók eftir Stein Steinar á dönsku, þýdd af danska skáld- inu og þýðandanum Poul P. M. Pedersen, er nú lw.nin í verzl- anir. Bókin er tæpar 200 síður og nefnist „Rejse uden Iöfte“ (Ferð án fyrirheits), gefin út af Helgafelii, í samvinnu við Gyld- endal í Kaupmannahöfn. Ragnar Jó.isson, forstjóri Helgafells, bauð Pedersen hing- að fyrst fyrir einum fjórum ár- um, 1 þeim tilgangi að ræða við hann um þýðingar á íslenzkri nútímaljóðlist yfir á dönsku. Og það varð úr, að Pedersen tók að sér að þýða bókaflokk, sem skyldi heita „Moderne islandsk lyrikbibliotek", og ætlunin er að gefa út á n::stu árum. Er þýðandinn auk þessarar bókar, vel á veg kominn með Ijóð eftir Tómas Guðmundsson og Davíð „Ég ákæri stjórnarandstæðinga fyrir að hafa fallið fyrir freistingu þeirri, sem háskalegust er, að vera ábyrgðarlausir á háskastund og vinna það fyrir von í fylgi þeirra skammsýnustu að vinna skemmdarverk á þeim framkvæmd- um; sem þeir sjálfir vita, að voru óumflýjanleg nauðsyn. Þetta er þung ákæra, en hún er sönn.“ Þessi ummæli Eysteins Jónsson- ar þarfnast ekki annarrar skýring- ar en þeirrar að þau voru við höfð þegar Eysteinn var i ríkisstjórn með Ólafi Thors. En Ólafur „kom öllum til nol.kurs þroska" eins og sagt var forðum um annan mann. En ólán Eysteins er það, að hafa ekki ávaxtað sitt pund betur en svo, að slík ummæli hitta I dag fyrst og fremst Eystein sjálfan, sem beitir nú öllu atfylgi Fram- sóknarflokksins að því að styðja skemmdarverk kommúnista. Leysum vandann í kjaramálum. Herra forseti. Þó að það sé nauðsynlegt, að gera sér grein fyrir ávirðingum stjórnarandstöð- unnar, þá er hitt nauðsynlegra, að allir skynsamir og góðir menn bindist nú samtökum um að leysa þann mikla vanda, sem við er að glíma í kjaramálunum. Og það er einmitt í þessu efni sem höfuð- vandinn stendur í dag. Undir lausn kjaramálanna er- þaxj. rkomið, j, að takast megi að framkvæma það veigamikla grundvallaratriði í við- reisnarstefnunni að koma á og viðhalda stöðugu verðlagi. Að þessu verða allir þeir að vinna, sem tryggja vilja það, að hafnað verði endanlega hafta- og upp- bótakerfinu. Að þessu verða allir að vinna, sem tryggja vilja það, að fram nái að ganga þjóðarviljinn, sem fram kom í siðustu Alþingis- kosningum. Það er hlutverk Sjálf- stæðismanna um land allt að vinna af alefli að því, að hið frjálsa efnahagskerfi, sem viðreisnar- stjórnin hefir komið á fót, fái staðizt og borið þann árangur til heilla landi og lýð, sem vonir okkar og hugsjónir standa til. Við munum hlýða kalli hins nýja tfma, um leið og við segjum við niður- rifsmennina: hingað og ekki lengra. Stefánsson, sem gefin verða út í tveimur bindum. Poul P. M. Pedersen er kunn- ur í sinu heimalandi bæði sem rithöfundur og þýðandi. Hefur hann skrifað mikið af bók- menntalegum greinum í norræn blöð, m.a. Berlingske Aftenavis, og hefur hann í þeim greinum oft drepið á íslenzkar bókmennt ir. Fyrir 5 árum byrjaði hann svo að þýða íslenzk Ijóð yfir á dönsku og sænsku, og birtust margar þýðingar hans í blöðum beggja landanna. Ennfremur sendi hann frá sér eins konar sýnisbók íslenzkrar Ijóðlistar (nútíma) „Fra hav til jökel“. — Upplag „Rejse uden Iöfte" er 2500 eintök, og verða 1500 send til Danmerkur, en 1000 seld hér. Bókin er prentuð í Víkings- prenti. Ljóð Steias Steinars á dönsku

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.