Vísir - 15.05.1964, Blaðsíða 4
A
V í SIR . Föstudagur 15. maí 1964.
HMIWIII—i'l 11 i Tl—
Hingað og ekki lengra
Ræða Þorvaids Garðars Kristfdnssonar við útvarpsnmræðurnor
1 öllu þvi moldviðri, serri stjórn-
íWandstaðan þyrlar upp í þessum
umræðum, sjiulum við ekki missa
sjónar af þeirri staðreynd, að þeg-
ar efnahagsmálastefna núverandi
ríkisstjórnar var mótuð árið 1960,
var horfið frá þvi skipulagi hafta-
og uppbóta, sem hér hafði ríkt um
áratuga skeið. Það var miðað að
því að taka upp nýtt skipulag, sem
skapaði þegnunum aukið frelsi til
athafna og dáða, I stað hafta og
banna af hálfu ríkisvaldsins. Síðan
hafa islenzk stjórnmál fyrst og
fremst snúizt um það, hvort takast
mætti að framkvæma hina nýju
stefnu.
Höfum þetta í huga þeim mun
fremur, þar sem þeir, sem berjast
gegn hinni nýju skipan, hafa forð-
azt frá fyrstu tíð í öllum málflutn-
ingi sínum og árððri, að segja hug
sinn allan í þessu efni. 1 hug sín-
um og hjarta viil stjórnarandstað-
an ekkert frekar en að þessi stefna
ríkisstjómarinnar mistakist í fram-
kvæmd, vegna þess að þeir vilja
og þrá hið gamla skipulag. En þeir
hvorki þora né geta sagt það, vegna
þess að enn er í of fersku minni,
að hið gamla hafta- og uppbóta-
kerfi hafði gengið sér til húðar,
þegar vinstri stjórnin gafst upp. Og
reynsla almennings af hinni nýju
skipan er þess eðlis, að fólk fýsir
ekki að snúa aftur til gamla tím-
ans.
Þegar frumvarp um efnahagsmál
kom fram árið 1960, sagði þáver-
andi formaður Framsóknarflokks-
ins, háttvirtur 1. þingmaður Vest-
firðinga, Hermann Jónasson, af mik
illi dulúð, að ekki mætti beita þjóð-
arskútunni upp i skilningsstraum
fólksins. Annar þingmaður og orð-
hagur mjög, háttvirtur 1. þingmað-
ur Norðurlandskjördæmis eystra,
Karl Kristjánsson, sagði, að tillög-
ur frumvarpsins byggðu á lögmál-
um vetrarins, frostsins, sem tak-
markar gróðurinn, og þær væru fyr
ir gróður félagshyggjunnar eins og
ís legðist að landi á vordögum.
Menn verða ekki margs vísari af
slíkum ummælum sem þessum.
Stjórnarandstaðan hefir heldur
aldrei kært sig um að ræða sjálf
grundvailaratriðin. Hefir eðlilega
fundið sig standa höllum fæti í
slíkum umræðum.
Framsókn vill gamla
skipulagið.
En verkin tala. Stjórnarandstað-
an hefir staðið gegn viðreisnar-
stefnunni í heild og hverjum ein-
stökum veigamiklum þætti hennar.
Framsóknarflokkurinn vill ekki
hverfa frá gamla skipulaginu, þvi
við það hefir hann miðað tilveru
sína, skipulag og starfshætti alla.
Framsóknarflokkurinn hefir alltaf
lagt megináherzlu á það að hafa
aðstöðu gegnum ríkisvaldið til að
deila út gæðum, skammta leyfi og
beita bönnum gagnvart þegnum
þjóðfélagsins og talið jafnan, að
hann ætti meira undir misnotkun
slíkrar aðstöðu en beinni málefna-
baráttu. Kommúnistar aftur á mþti,
í hvaða reyfi, sem þeir kunna að
ganga á hverjum tíma, kjósa held-
ur hið gamla skipulag hafta og
banna því þeir meta það rétt, að
slfkt fyrirkomulag ber í brjósti sér
dauða þeirrar þjóðfélagsskipunar,
sem þeir vilja feiga.
En hvað þykist Framsóknarflokk
urinn vilja? Þeir kalla stefnu sína
framfara- og uppbyggingarstefnu.
Þeir segjast vilja vinna að fram-
förum og uppbyggingu atvinnuveg-
anna um allt land, kjör fólks þurfi
að bæta og framleiðsluaukning
þurfi að verða til hagsældar fyrir
aila þjóðina. Þessu hampa þeir og
kalla þjóðmálastefnu. En ég spyr:
Hvaða stjórnmálaflokkur fyrir-
finnst, sem ekki telur sig geta tek-
ið undir, að vinna beri að þjóðar-
hag. Um það er ekki ágreiningur
á milli flokka, heldur hitt, með
hverjum hætti verði bezt unnið að
þjóðarhag. Það er um það, sem
deilurnar standa.
Undan þessum staðreyndum
víkja Framsóknarmenn sér. Þeir
vilja ekkert af slíku vita. Þeir
segja, að deilan standi milli Fram-
sóknarflokksins, sem vilji þjóðar-
hag, og ríkisstjórnarinnar, sem
vinni gegn þjóðarhagsmunum, að
yfirlögðu ráði. Þeir halda fram, að
ríkisstjórnin vilji kreppuástand í
landinu. Þeir halda fram, að ríkis-
stjórnin vilji magna dýrtíð í land-
inu. Þeir halda fram, að ríkisstjórn-
in vilji atvinnuleysi í landinu. Þeir
halda fram, að ríkisstjórnin vilji
ekki framfarir í landinu.
Með slíkum áróðri og fullyrðing-
um hafji Framsóknarmenn látið sér
sæma að misbjóða dómgreind al-
mennings ár eftir ár. Slík ósvinna
er 'þeim mun vitavérðari, þár settt
$vo sannarlega- vita þeir, hvað þeir
gera. Þetta er gert undir forystú
háttv. 1. þingmanns Austfirðinga,
Eysteins Jónssonar, sem sagði fyrr
á árum hér í umræðum á Alþingi,
með leyfi hæstv. forseta:
,,Ég held, að þeir menn, sem láta
sér til hugar koma, að nokkur ríkis-
stjórn skapi að yfirlögðu ráði
kreppu, til þess að geta rýrt af-
komu almennings á meðan hún sit-
ur að völdum, séu i því ástandi
andlega, að þeir þurfi annarrar
hjúkrunar við en þeirrar, sem hægt
er að veita í svona umræðum".
Ég hygg, að þessi ummæli Ey-
steins Jónssonar séu enn í fullu
gildi í dag. En til slíks andlegs á-
stands má rekja það foræði for-
heimskunnar, sem einkennt hefir
allan málflutning Framsóknar-
flokksins á undanförnum árum.
Hvítt er svart.
í þessu andlega ástandi geta
menn haldið fram, að tollalækkanir
sáu tollahækkanir, vegna þess að
lækkun tolla dregur úr smygli,
þannig að heildartollatekjur rikis-
sjóðs aukast, þrátt fyrir tollalækk-
unina. í þessu andlega ástandi geta
menn sagt, að skattalækkanir séu
skattahækkanir, vegna þess að
þróttmeira athafnalíf eykur gjald-
stofnana og gefur meiri heildar-
skatttekjur I ríkissjóð, þrátt fyrir
skattalækkunina. I þessu andlega
ástandi geta menn sagzt vera með
því að auka gjaldeyrissjóði lands-
ins, en barizt gegn bindingu spari-
fjár í Seðlabankanum, sem er 6-
hjákvæmilegt skilyrði þess, að
gjaldeyrissjóðurinn geti aukizt. í
þessu andlega ástandi geta menn
heimtað aukin útlán frá lánastofn-
unum, en barizt fyrir þeim ráð-
stöfunum, sem draga úr því trausti
almennings á gjaldmiðlinum og
fjárhagskerfinu, sem fær menn til
að leggja fram sparifé sitt, sem er
grundvöllur útlánanna. í þessu and-
lega ástandi geta menn sagzt vera
með auknum almannatryggingum,
en gert að árásarefni hækkun fjár-
Iaga, sem stafar af auknum fram-
lögum til trygginganna. í þessu and
lega ástandi gátu menn stagazt
stöðugt á því á fyrstu árum við-
reisnarstjórnarinnar, að stórkost-
legt atvinnuleysi væri yfirvofandi,
en'á einni nóttu fyllzt vandlætingu
yfir vinnuþrn' an, sem þjóðin væri
þjökuð af. Allt þetta verður skilj-
anlegra, þegar höfð eru í huga um-
mæli Eysteins Jónssonar, sem ég
viðhafði hér áðan, þótt framferðið
sé hins vegar'ekki afsakanlegt. En
hitt er vafalauét rétt, sem Eysteinn
Þorvaldur G. Kristjánsson.
sagði, að þeir, sem eru í þessu
ástandi, þurfa annarrar hjúkrunar
við en þeirrar, sem hægt er að
veita í svona umræðum.
í umræðum þessum hafa tals-
menn stjórnarandstöðunnar kyrjað
þann söng, að viðreisnin hafi farið
út um þúfur, og jafnvægi efnahags-
lífsins sé rokið út í veður og vind.
Vist eru blikur á lofti og vandi
á höndum, sem bregðast þarf við
af raunsæi og taka þarf föstum
tökum. En viðreisnarstefnan var
annað og meira en viðhald stöðugs
verðlags, þótt það sé mjög veiga-
mikið grundvallaratriði. Stefnt var
að sterkari stöðu út á við og mikl-
um og vaxandi framleiðsluafköst-
um, heilbrigðu verðmyndunarkerfi
og fjárhagskerfi með vel uppbyggð-
um lánastofnunum. Stefnt var að
lækkun tolla og skatta og hvers
konar umbótum i ríkisrekstri.
Stefnt var að frjálsri verzlun og
frjálsu vöruvali neytenda, og svo
mætti áfram telja. Að þessum verk-
efnum hefir verið unnið af slíkri
kostgæfni, að árangurinn er öllum
augljós. Viðreisnin hefir þannig
reynzt þróttmeiri og lifvænlegri en
stjórnarandstaðan gerði ráð fyrir
og vill nú vera láta. Þjóðin er vissu
lega á farsælli framfarabraut á
grundvelli viðreisnarinnar. En 6-
leystur er sá vandi að tryggja við-
unandi verðfestu, og vil ég engan
veginn lítið úr þeim vanda gera.
Lærum að nota
frelsið.
En þegar við metum árangurinn
af störfum ríkisstjórnarinnar, þá er
nauðsynlegt að hafa í huga það,
sem ég vék að í upphafi máls míns.
Ríkisstjórnin markaði þá stefnu að
afnema hafta- og uppbótakerfið og
koma á frjálsu efnahagskerfi. Slíkt
hafta- og uppbótakerfi, sem við
bjuggum við, hefir á síðari tímum
ekki viðgengizt í lýðfrjálsum lönd-
um, nema á hallæris- eða striðs-
tímum. Haftaskipulagið skapar sín-
ar venjur og starfshætti á hinum
ýmsu sviðum athafna- og þjóðlífs-
ins. Menn vinna undir öðrum skil-
yrðum heldur en í frjálsu efnahags-
kerfi. Þegar hið frjálsa efnahags-
kerfi er innleitt á ný, þurfa menn
að aðlaga sig nýjum háttum. Menn
þurfa að læra að nota frelsið og
ekki misnota það. Þetta gengur
ekki alltaf snurðulaust, eins og
dæmin sanna frá stríðslöndunum
eftir síðari heimsstyrjöldina, þótt
haftakerfið hefði ekki staðið nema
meðan á styrjöldinni stóð. Hvað
halda menn þá hér á landi, þar sem
við höfum búið við meira og minna
haftakerfi svo áratugum skiptir og
meira að segja lengst af undir
handarjaðri Framsóknarflokksins.
Og haftakerfi, útfært af Framsókn-
arréttlæti, er sennilega það versta
skipulag, sem hugsazt getur. En
þrátt fyrir þetta verður ekki ann-
að sagt en að íslenzkt athafnalíf
hafi aðlagað sig hinu nýja efna-
hagskerfi, 'bæði vel og fljótt, þó
að sjálfsögðu séu ýmsir misbrestir
á, sem enn á eftir að ráða bót á.
En það hefir orðið hlutskipti
stjórnarandstöðunnar að einbeita
áróðri sínum og undirróðri til að
íáuka á alla þá erfiðleika, sem
æðlilega hljóta alltaf að sljgpúst,
meðan verið er að koma á svo rót-
tækum breytingum á efnahagskerf-
inu, sem hér hefir verið gert á
undanförnum árum. Þetta hefir
þeim tekizt misjafnlega vel og hef-
ir það farið eftir aðstöðu þeirri,
sem þeir hafa haft til þessarar
iðju sinnar á hinum ýmsu sviðum
þjóðlífsins. En mestum árangri
hafa þeir náð í niðurrifsstarfsemi
sinni á sviði kjarabaráttunnar með
þeim afleiðingum, að verðbólga og
dýrtíð hefir vaxið stórlega svo sem
kunnugt er.
Það er ekkert nýtt, að komm-
únstar séu ábyrgðarlausir í kjara-
málunum. Háttv. 1. þingmaður
Austfirðinga, Eysteinn Jónsson,
hefir sagt í þvi tilefni í almennum
útvarpsumræðum hér á Alþingi á
fyrri árum, með leyfi hæstv. for-
seta:
Ljóðabók eftir Stein Steinar
á dönsku, þýdd af danska skáld-
inu og þýðandanum Poul P. M.
Pedersen, er nú lw.nin í verzl-
anir. Bókin er tæpar 200 síður
og nefnist „Rejse uden Iöfte“
(Ferð án fyrirheits), gefin út af
Helgafelii, í samvinnu við Gyld-
endal í Kaupmannahöfn.
Ragnar Jó.isson, forstjóri
Helgafells, bauð Pedersen hing-
að fyrst fyrir einum fjórum ár-
um, 1 þeim tilgangi að ræða við
hann um þýðingar á íslenzkri
nútímaljóðlist yfir á dönsku. Og
það varð úr, að Pedersen tók að
sér að þýða bókaflokk, sem
skyldi heita „Moderne islandsk
lyrikbibliotek", og ætlunin er
að gefa út á n::stu árum. Er
þýðandinn auk þessarar bókar,
vel á veg kominn með Ijóð eftir
Tómas Guðmundsson og Davíð
„Ég ákæri stjórnarandstæðinga
fyrir að hafa fallið fyrir freistingu
þeirri, sem háskalegust er, að
vera ábyrgðarlausir á háskastund
og vinna það fyrir von í fylgi
þeirra skammsýnustu að vinna
skemmdarverk á þeim framkvæmd-
um; sem þeir sjálfir vita, að voru
óumflýjanleg nauðsyn. Þetta er
þung ákæra, en hún er sönn.“
Þessi ummæli Eysteins Jónsson-
ar þarfnast ekki annarrar skýring-
ar en þeirrar að þau voru við höfð
þegar Eysteinn var i ríkisstjórn
með Ólafi Thors. En Ólafur
„kom öllum til nol.kurs þroska"
eins og sagt var forðum um annan
mann. En ólán Eysteins er það, að
hafa ekki ávaxtað sitt pund betur
en svo, að slík ummæli hitta I dag
fyrst og fremst Eystein sjálfan,
sem beitir nú öllu atfylgi Fram-
sóknarflokksins að því að styðja
skemmdarverk kommúnista.
Leysum vandann í
kjaramálum.
Herra forseti. Þó að það sé
nauðsynlegt, að gera sér grein
fyrir ávirðingum stjórnarandstöð-
unnar, þá er hitt nauðsynlegra,
að allir skynsamir og góðir menn
bindist nú samtökum um að leysa
þann mikla vanda, sem við er að
glíma í kjaramálunum. Og það er
einmitt í þessu efni sem höfuð-
vandinn stendur í dag. Undir lausn
kjaramálanna er- þaxj. rkomið, j, að
takast megi að framkvæma það
veigamikla grundvallaratriði í við-
reisnarstefnunni að koma á og
viðhalda stöðugu verðlagi. Að
þessu verða allir þeir að vinna,
sem tryggja vilja það, að hafnað
verði endanlega hafta- og upp-
bótakerfinu. Að þessu verða allir
að vinna, sem tryggja vilja það,
að fram nái að ganga þjóðarviljinn,
sem fram kom í siðustu Alþingis-
kosningum. Það er hlutverk Sjálf-
stæðismanna um land allt að vinna
af alefli að því, að hið frjálsa
efnahagskerfi, sem viðreisnar-
stjórnin hefir komið á fót, fái
staðizt og borið þann árangur til
heilla landi og lýð, sem vonir
okkar og hugsjónir standa til. Við
munum hlýða kalli hins nýja tfma,
um leið og við segjum við niður-
rifsmennina: hingað og ekki lengra.
Stefánsson, sem gefin verða út
í tveimur bindum.
Poul P. M. Pedersen er kunn-
ur í sinu heimalandi bæði sem
rithöfundur og þýðandi. Hefur
hann skrifað mikið af bók-
menntalegum greinum í norræn
blöð, m.a. Berlingske Aftenavis,
og hefur hann í þeim greinum
oft drepið á íslenzkar bókmennt
ir.
Fyrir 5 árum byrjaði hann
svo að þýða íslenzk Ijóð yfir á
dönsku og sænsku, og birtust
margar þýðingar hans í blöðum
beggja landanna. Ennfremur
sendi hann frá sér eins konar
sýnisbók íslenzkrar Ijóðlistar
(nútíma) „Fra hav til jökel“. —
Upplag „Rejse uden Iöfte" er
2500 eintök, og verða 1500 send
til Danmerkur, en 1000 seld hér.
Bókin er prentuð í Víkings-
prenti.
Ljóð Steias Steinars á dönsku