Vísir - 15.05.1964, Qupperneq 6
VlSIR . Föstudagur 15. maf 1964.
Góðir norskir gestir
heimsækja Island
Svo sem greint hefir verið frá
í blöðum og útvarpi, heldur stúd
entahijómsveitin í Osló hljóm-
leika í samkomuhúsi Háskólans
í kvöld k!. 9 Það er mikið fagn
aðarefni, hve mjög menningar-
leg tengsl milli Noregs og ís-
lands hafa styrkzt sfðustu ára
Itugina. Á það ekki sízt við
tengslin milli háskólastofnana
og akademiskra félaga í þessum
tveimur löndum. Námsdvalir ís-
lenzkra stúdenta í Noregi og
norskra stúdenta hér á landi
hafa sífellt farið í vöxt. Þrír
norskir prófessorar hafa flutt
fyrirlestra hér við Háskólann á
þessu háskólaári og hinn fjórði
er væntanlegur eftir nokkra
daga. f upphafi þessa háskólaárs
komust á veigamikil tengs! milli
verkfræðideildar Háskólans hér
og tækniháskólans f Þrándheimi,
sem tekur nú árlega við 5 fs-
lenzkum verkfræðinemum, er
lokið hafa fyrrahlutaprófi frá
verkfræðideild Háskólans. Einn
ig á öðrum sviðum, ekki sfzt i
sambandi við skógrækt hafa
samskiptin aukizt til mikilla
muna, báðum þjóðum til gagns
og gleði.
Fyrir tveimur árum sótti okk
ur heim norski stúdentakórinn
í Osló. Var heimsókn kórsins
einstaklega ánægjuleg, og stuðl
aði hún að auknum áhuga
manna hér við Háskólann á að
efla sönglíf í skólanum. Það er
mikið gleðiefni, að í dag er kom
in hingað í heimsókn stúdenta-
hljómsveitin f Osló. Hún
er enginn nýgræðingur, heldur
stendur hún á gömlum merg.
Hún er skipuð mönnum, sem
eru við nám, svo og eldri há-
skólamönnum. Þar standa hlið
við hlið fyrsta árs stúdentar og
sprenglærðir prófessorar. Hljóm
sveitin hefi gegnt mikilvægu
hlutverki í tónlistarlífi Háskól- |
ans í Osló og í bæjarlífinu þar. B
Minnumst við, sem dvalizt höf 1
um í Osló, ánægjulegra hljóm- M
leika þessarar hljómsveitar og |
hins hressilega og heillandi w
blæs, sem á þeim var. f kvöld S
hefir hljómsveitin sér við hlið |
tvo frábæra norska tónlistar-
menn, þau Evu Prytz óperusöng
konu og fvar Johnsen pfanóleik-
ara.
Ég vil leyfa mér að bjóða hina
norsku stúdentahljómsveit hjart
anlega velkomna, og jafnframt
vil ég hvetja menn til að sækja
hljómleikana í kvöld í samkomu
húsi Háskólans.
Ármann Snævarr.
Seðlabankinn ---
Framhald af bls. .5.
Jafnframt er nauðsynlegt að minna
á, hve hættuleg áhrif verðtrygging
launa getur haft, ef verðlagið á
annað borð raskast, t.d. af óraun-
hæfum kauphækkunum. Öll vísi-
tölubinding verður þá til þess eins
að gera víxlhækkanir kaupgjalds
og verðlags enn örari og óhjá-
kvæmilegri en ella. Forsenda þess,
að kauptrygging leysi fleiri vanda-
mál en hún skapar, er því, að ekki
eigi sér stað óraunhæfar
hækkanir grunnkaups og jafnframt
sé reynt að taka út úr vísitölunni
gagnkvæm áhrif af launabreyting-
um milli stétta.
Verði hins vegar farið inn á
þessa braut í launamá'.um, mæla
sterk rök með því, að samtímis sé
tekin upp verðtrygging f peninga-
samningum, einkum að því er varð
ar lán til langs tíma, verðbréfaút-
gáfu og ávöxtun lífeyrissjóða. Hér
er um að ræða samninga til langs
tíma, þar sem traustur verðmætis-
grundvöllur skiptir höfuðmá'i. Sér-
staklega mikilvæg hlýtur slík verð
trygging að vera, eftir að stórfelld-
ar verðhækkanir hafa lamað traust
'mennings á framtfðarverðgildi
gjaldmiðilsins. Með því að eyða
verðlagsáhættunni sem í löngum
Iánssamningum felst, áetti að vera
hægt að lækka vexti á slíkum lán-
um veru’.ega, frá þvf sem nú er,
og gæti það skipt miklu máli að því
er varðar íbúðalán og önnur fjár-
festingarlán til langs tíma. Rétt er
hins vegar að minnast þess, að mik
il óvissa er um það, hvernig verð-
trygging f peningasamningum
mundi verka á peningamarkaðinn
í heild, og reynsla annarra þjóða
í því efni hvergi nærri ótvíræð.
Hér er því nauðsyn’.egt að fara
með löndum og láta reynsluna
skera úr um það, hve hratt skuli
farið.
Þau vandamál, sem við hefur
Sænsk
veiðistígvél
úrvals tegundir
nýkomin.
GEYSIR h.f.
Fatadeildin.
MYNDAVÉLAR
í miklu úrvali. Einnig
allar aðrar Ijósmynda
vörur.
FÓTÓHÚSIÐ
verið að glfma í verðlagsmálum
hér á landi að undanförnu, eru
ekkert einsdæmi. Síðan styrjö’.d-
inni lauk hefur það orðið megin-
markmið í stefnu flestra þjóða í
peningamálum og fjármálum að
tryggja, að heildareftirspurn væri
ætíð næg til þess, að full atvinna
væri handa öl’.um vinnufærum
mönnum. Það hefur hins vegar
sýnt sig, að mjög erfitt er til lengd
ar að sameina slíka stefnu stöðugu
verðlagi, nema saman fari aðhald
í verðlags og launamálum annars
vegar og peninga- og fjármá’.um
hins vegar. Verði launahækkanir
umfram framleiðslugetu þjóðarbús
ins við slíkar aðstæður, hljóta þær
að koma fram annað hvort í verð-
hækkunum eða minnkandi atvinnu.
Reynslan hefir þá orðið sú að menn
hafa í lengstu lög viljað ve!ja fyrri
kostinn, látið heildareftirspurnina
aukast nægilega mikið til að at-
vinna yrði óbreytt, enda þótt það
kostaði verðhækkanir.
Jafnframt hefur það sýnt sig, að
við fulla atvinnu er venju’ega um-
frameftirspurn eftir ýmsum tegund-
um vinnuafls og samkeppni um
það milli atvinnurekenda, Hefur
þetta leitt til launaskriðs, sem tek
ið hefur upp mikinn hluta fram-
’.eiðsluaukningarinnar, svo að svig-
rúmið til hækkunar á kaupmætti
almennra launataxta hefur verið
minna en ella. Þessi vandamál
verða þó enn verri viðureignar, ef
ofþensla skapast á vinnumarkað-
inum og almennur skortu-r vinnu-
afls. Það er því ein af forsendum
þess, að eð’.ileg stefnumið Iaun-
þegasamtaka nái fram að ganga, að
heildareftirspurn í þjóðfélaginu
fari ekki fram úr þvi marki, sem
er nauðsynlegt til að tryggja við-
unandi atvinnuástand.
Þessar fáu athugasemdir verða
gagnkvæmu áhrif stefnunnar í
að nægja til þess að benda á hin
launamálum annars vegar og pen-
ingamálum hins vegar. Almennur
skilhingh á þ'éSsum 'meginátflððíh'
gæti orðið grundvöllur nýrrar og
árangursríkari stefnu I efnahags-
málum en við höfum átt við að
búa undanfama tvo áratugi.
íþrótfir —
Framhald af bls. 2.
sem það lið skipa, eiga Valsmenn
að ná út miklu betri leik. Vallar-
skilyrði afsaka ekki nema brota-
brot af þeim mistakaflaumi, sem
liðunum varð á i gærkvöldi.
Þróttarliðið var afar slakt og inn
an liðsins virtist hálfgerður kurr,
a. m. k. varð ekki annað greint frá
áhorfendapöllunum. Þróttarliðið
sýndi mjög góða leiki í fyrrasum-
ar, einkum þó í fyrravor, og í vetur
hefur liðið æft liða bezt. Það verð-
ur því að draga þá ályktun, að
margir leikmanna séu í rauninni
mettir af knattspyrnu í bili. Sem
dæmi má nefna Axel Axelsson,
landsliðsmann í fyrra, og Jens
Karlsson, sem var í úrvalsliði Rvík-
ur, — báðir eru í ofþjálfun, og
sama má e. t. v. segja um Berg-
svein Alfonsson í Val, sem hefur
ekki gert mikla lukku á knatt-
spyrnusviðinu í vor, þrátt fyrir
mjög góða undirstöðuæfingu.
Líf í Surtsey —
Framh af bls 1
ast því, hvernig landnámi líf-
vera er háttað. Nokkuð hefir
verið umdeilt meðal náttúru-
fræðinga, hvort þurrlendisjurtir
og dýr hafi borizt til íslands
eftir Iandbrú, sem tengdi eyj-
una við meginlandið fyrir síð-
ustu ísöld, eða hvort gróður og
dýralíf hafi að mestu borizt
eftir öðrum leiðum að ísöld lok-
inni.
Þær lífverur sem við fund-
um á Surtsey í gær, sýna hve
ltf getur borizt á skömmum tima
til eyðieyjar í norðanverðu At-
lantshafi og gæti gefið vtsbend-
ingu um að stærri hluti ltfvera
hafi borizt til landsins eftir ts-
öld en nú er ætlað.
Landnám lífsins á Surtsey er
svo einstakt náttúrufyrirbrigði,
að um alþjóðlegt áhugamál vís-
indamanna er að ræða.
Vísindaleiðangurinn kom til
Surtseyjar í gærmorgun með
einu af varðskipum rtkisins. í
honum tóku þátt auk dr. Sturlu,
. ]>eir jarðfræ^mgariúr^drwSi^urð_
ur Þórarinsson, dr. Þorleifur Ein
arss., og dr. Guðm. Sigvalda-
son, og einnig þeir Gretar Guð-
björnsson, starfsmaður í At-
vinnudeildinni, og Gunnlaugur
Ellsson, efnafræðingur.
Þinglausnir —
Framh .af bls. 1
hefur staðið frá 10. okt. til 14. maí,
eða alls 218 daga. Alls hafa 270
þingfundir verið haldnir, 100 í neðri
deild, 90 í efri deild og 80 í sam-
einuðu þingi. 122 frumvörp hafa
verið lögð fyrir þingið og þar af
hafa 39 stjórnarfrv. verið afgreidd
sem lög og 16 þingmannafrv. 90
þingsályktunartillögur hafa verið
bornar fram í sameinuðu þingi og
hafa 36 þeirra hlotið afgreiðslu.
Ennfremur hafa 17 fyrirspurnir ver
ið ræddar. Mál, sem hafa verið til
meðferðar t þinginu eru alls 230 og
tala prentaðra þingskjala 701.
Síðan hélt forseti stutt ávarp,
þar sem hann sagði m.a. að það
væri ekki aðalatriöið hvort afgreidd
mál á Alþingi eru fleiri eða færri,
heldur hitt, ' ern!g til hefur tek-
izt að setja réttlát lög, sem verði
virt t framkvæmd, þannig að þau
nái tilgangi sínum. Störf Alþingis
að þessu sinni verða nú lögð undir
dóm reynslunnar, en það er ósk
mtn, að gæfa og farsæld megi af
þeim hljótast. Þá þakkaði hann
ríkisstjórn og þingmönnum sam-
starfið og óskaði þeim gæfu og
gengis, svo og öllu starfsfólki þings
ins, og fyrir hönd Alþingis bað
hann öllum íslénd' gum árs og
friðar.
Eysteinn Jónsson bakkaði forseta
góða stjórn og farsæla samvinnu
og bað þingmenn rtsa úr sætum,
honum til virðing . Þá gekk for-
seti íslands, herra Ásgeir Ásgeirs-
■ -i, salinn og las unn forsetabréf
’-'r sem lýst var yfir. að 84. lög
farþingi f nds væri slitið Að
lokum risu þingmenn úr sætum og
hrópuðu húrra fyrir forsétanum og
fósturjörðinni.
Árásarmálið —
Frh. af bls. 1:
móðir hennar var í forstofunni
beint fyrir framan herbergið.
Þau myndu þvt hafa heyrt, ef
til einhverrar orðasennu hefði
komið á milli þeirra.
Kjartan kvaðst svo allt í einu
hafa heyrt skerandi angistaróp
^innan úr. herberginu. Spratt
hann þá fram úr rúminu og
kvaðst á næstu sekúndu hafa
verið kominn inn í dyrnar að
herbergi Erlu, en kom þá beint
I fangið á piltinum, sem hann
sagði, að hefði hrint sér frá sér
og slitið sig lausan. 1 sömu svif-
um kom vinkona Erlu, sem
skroppið hafði rétt sem snöggv-
ast yfir í annað hús, upp stiga-
pallinn. Árásarmaðurinn þurfti
að komast fram hjá henni, sló
til hennar og þeytti henni upp
að vegg um leið og hann ruddist
fram hjá og niður stigann. f stig
anum missti hann hnífinn og
þar hirti lögreglan hann
skömmu síðar.
Kjartan sagði, að þegar hann
hefði litið inn í herbergið, hefði
dóttir sín legið þar í blóðpolli
á gólfinu, og hafi þau hjónin
þá þegar gert ráðstafanir til að
kalla á sjúkralið og lögreglu.
Kjartan kvaðst alls ekki
þekk.a piltinn neitt. Hann hefði
séð hann einu sinni áður þar
heima og þá í hópi með öðrum
unglingum. En hann hefði ekki
sett svipmót hans á sig og því
ekki þekkt hann í sjón. Hins
vegar kvaðst Kjartan vita, að
þau hefðu, ásamt öðrum ungl-
ingum, kynnzt í „Gúttó" í fyrra
og þá haldið hópinn nokkur
saman. Hann kvaðst og vita, að
Lárus hefði hringt nokkrum
sinnum í fyrravetur heim á
Hraunteig 18 til að spyrja eftir
Erlu. En komur sínar hefði hann
ekki vanið þangað.
Erla hafði þetta kvöld setið
á stóli við borð og verið að
teikna, vinkona hennar sat á
bekk á móti henni, en Lárus I
hægindastól á milli þeirra. Vin-
stúlka Eriu þurfti að bregða sér
frá yfir í næsta hús, en um sama
eða svipað leyti hafði pilturinn
gengið yfir í salerni íbúðarinn-
ar og þá kvaðst Kjartan hafa
séð hann. Hefði það verið I eina
skiptið, sem hann sá Lárus þetta
kvöld. Ekki kvaðst Kjartan vita
hver erindi hans var þangað,
en seinna hafi sig grunað að
þá hefði hann verið að búa sig
undir árásina, enda réðist hann
á Erlu þá rétt á eftir.
Börn í Hnfnnrfirði
VÍSI vantar börn eða unglinga til að dreifa
blaðinu í Hafnarfhði (aðallega í suðurbænum)
í 10-15 daga. GÓÐ LAUN.
Hafið samband við frú Guðrúnu Ásgeirsdóttur,
Garðavegi 9. Sími 50641.
Vefstóll til sölu
vegna brottflutnings. Verð krónur 1500,00.
Sími 19458 aðeins í dag.
KARLMA"3ASKÓR
enskir, nýkomnir.
SKÓBÆR, Laugavegi 20.