Vísir - 28.05.1964, Page 5

Vísir - 28.05.1964, Page 5
V í SIR . Fimmtudagur 28. maí 1964, 5 Frá heimssýningunni. í baksýn er voldugt hnattlíkan, táknmerki sýningarinnar í heild. Heimssýningin — Framhald af bls. 4 ar þjóðar skálamir voru. Danska byggingin minnti einna helzt á ameríska sendi- ráðið í Delhi. Hins vegar gera Asíu- og Afríkuríkin sér meira far um að sýna í þjóð- legum stíl og láta bera á menningu sinni. Afríkuríkin eru með heilan dýragarð: ljón gíraffa, úlfalda, fíla og hver veit hvað“. „Er það þeirra aðalframlag til menningarinnar?“ „Nei, nei, þeir sýna líka þjóðlega list af ýmsu tagi. Tahitibúar sýna perluköfun í glerkari, Spánverjar hafa stór merkilega myndlistarsýningu með málverkum frægustu listamanna sinna allt frá Goya og Velasquez til Picasso, Dali og annarra frægra nútímamálara. Eins eru sýndir spænskir dansar, já, og jafnvel það sem þeir segja vera sverð E1 Cids“. írskt kaffi í hitanum. „Voru fleiri Islendingar þarna um sama leyti og þú?“ „Við Már Elísson hagfræð- ingur vorum saman á sýning- unni, og auk þess vissi ég um hóp íslendinga á vegum ferða skrifstofunnar ,Lönd og leið- ir‘. Annars týnist maður alveg í þessum aragrúa gesta“. „Var ekki orðið nokkuð heitt í New York?“ „Veðrið var indælt, hitinn um 25 stig í skugganum og lítill raki. Mér fannst nú ekki mega heitara vera, og það er dálítið þreytandi að skoða svona mikið í einu, en gott að geta komið við á írska veitingahúsinu og fengið sér írskt kaffi. Betri hressingu fær maður varla“. „Hvað er svona sérstakt við írskt kaffi?“ „Samsetningurinn. Það er kaffi með írsku whisky út í og þeyttum rjóma ofan á til að halda bragðinu sem lengst óskemmdu“. „Hvað verður sýningin lengi opin?“ „Fram í október, svo á að opna hana aftur næsta vor“. „Sástu Michelangelo-mjmd ina frægu, ,La Pietá‘?“ „Já, af færibandi. Það var óhjákvæmilegt, því að annans hefði fólk staðið tímunum saman og horft á hana. Ann- ars finnst mér of mikið reynt að dramatísera hana með Ijós kösturum og slfku; hún þarf ekki á því að halda“. Aðalatríðið að kynna þjóðleg sérkenni. „Hvað finnst þér íslending- ar geta lært af þessari sýn- ingu?“ „Fyrst og fremst það, að ef við eigum eftir að taka þátt í svipuðum sýningum í framtíðinni, verðum við að leggja alla áherzlu á að kynna það sem sérstætt er í okkar sögu og þjóðfélagi, en ekki nútíma tækniþróun, sem enginn hefur áhuga á að skoða, því að hún er alls stað ar lík. Við þurfum að koma okkur niður á, hvað hæfir bezt til kynningar í útlöndum af okkar þjóðarréttum, þjóð- legum minjagripum og list- munum, sýna það sem er gam alt og sérkennilegt, selja vör- ur eins og lopapeysur, gæru- skinn o.fl. Maturinn þarf að vera smekklega framborinn og með honum drukkið ís- lenzkt öl og brennivín. Fólk hefur gaman af að kynnast nýjum réttum og er ekkert hrætt lengur við mismunandi bragðtegundir“. „Þú heldur að íslenzki mat- urinn myndi falla í smekk annarra þjóða?“. „Ja sumt af honum að minnsta kosti. Veraldarvant fólk leggur sér óhikað til munns rétti eins og froska- lappir, snigla og jafnvel maura, svo að íslenzkur há- karl og brennivín ætti ekki að þurfa að vekja hjá því neina skelfingu, ef framreiðsl an væri nógu glæsileg“. - SSB útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun Ayub Khan. ® Eamon De Valera, hinn aldraði ríkisforseti frlands (frska Jýðveld- isins) kom til Washington í gær og var fagnað af miklum innileik. Hér er um opinbera heimsókn að ræða. Leið fánamistök urðu við kom- una, en voru leiðrétt á seinustu Bálför Nehru fór fram í morgun í Nýju Dehli að viðstöddu feikna fjölmenni, en fólk streymdi að úr öllum áttum þegar í gær, og í alla nótt voru menn að koma I stór- hópum. Ýmsir þjóðaleiðtogar voru við- staddir útförina, þeirra fremstur I flokki Ayub Khan, forsætisráð- stundu. Skakkir fánar höfðu verið dregnir að hún við þær götur, sem De Valera og Johnson áttu að aka um — og það, sem enn verra var, á sjálfu Hvíta húsinu, og er þetta uppgötvaðist var ekið þangað i skyndi og tókst að draga upp frska Framh. á bls. 6 herra Pakistans. Fyrir hönd Bretlandsdrottningar var mættur Mountbatten jarl, síð- asti landsstjóri Bretlands á Ind- landi, fyrir hönd brezku stjórnar- innar sjálfur forsætisráðherrann Sir Alec Douglas-Home, og fyrir stjórnarandstöðuna George Brown, varaformaður Verkalýðsflokksins. BÁLFÖR NEHRUS Laos-stjórn fær herþotur frá Bandaríkjunm Bandaríkin hafa látið hlutlausu stjórninni I Lr.os í té fleiri flugvél- ar — að beiðni Souwana Phouma forsætisráðherra. William Bundy, aðstoðarutan- ríkisráðherra í Bandaríkjunum, og sérfræðingur um Suðaustur-Asíu- mál, kemur í dag til London til viðræðna við brezka ráðherra um Laos, og Suðaustur-Asíu yfirleitt, en Bandaríkjastjórn hefir þar mjög auknar áhyggjur af ástandi og horfum. Fréttin um, að Laosstjórn hefði beðið um flugvélar — en hún kom í kjölfar fréttar um, að Bandaríkin væru byrjuð könnunarflug yfir Krukkusléttu, hefir vakið mikla at- hygli, og bendir til að því verði haldið til streitu af Bandaríkja- mönnum, að tillaga Souwana Phouma um sendiherrafund 14- þjóðanna, sem stóðu að Genfar- samkomulaginu um hlutleysi Laos, — Frakkland og Sovétríkin — vilja nýjan 14 þjóða fund í Genf. Sagt er, að franska stjórnin sé mjög óánægð yfir hversu Banda- ríkjamenn og jafnvel Bretar hafa tekið tillögúm hennar. Það er þó sagt, þótt Bretar hafi mælt með til lögunni um fund í Vientiane, að franska tillagan sé enn til athugun- ar. Allt bendir til harðandi átaka um Laos, og margir óttast, að þau kunni að breiðast út, og önnur Suðaustur-Asíuríki flækist inn í þau.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.